Morgunblaðið - 15.05.1997, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997
NEYTENDUR
MORGUNB LAÐIÐ
Skýringin háir tollar
og slæm birtuskilyrði
Paprikukílóið á allt að 900 krónur
hann er inntur eftir paprikuverði
þessa dagana.
Verðið á að lækka bráðum
„Það er rétt að verðið hefur verið
hátt í Hollandi að undanförnu en
ekki hjálpa innflutningsgjöldin. Ég
hef verið að kaupa paprikukílóið á
298 krónur að undanförnu í
Hollandi sem þýðir með öðrum
orðum að án álagningar er verðið á
paprikunni um 800 krónur þegar
hún er komin til landsins. Af þess-
um átta hundruð krónum hirðir
ríkið með matarskatti sínum sem
kallast magntollur, verðtollur og
virðisaukaskattur, næstum fímm
hundruð krónur, nánar tiltekið 487
krónur á hvert kíló. Svarið sem við
fáum hjá Landbúnaðarráðuneytinu
er að það séu til paprikur í landinu.
En það er alls ekki sama hvort
paprikur eru grænar eða rauðar."
„Framboð á innlendri papriku á að
anna eftirspurn í þessari viku“,
segir Olafur Friðriksson deildar-
stjóri hjá landbúnaðarráðuneytinu.
„Það hefur verið óeðlilegt ástand á
mörkuðum í Evrópu og þá aðallega
í Hollandi þar sem verðið hefur
verið afar hátt. Það á sinn þátt i
háu verði hérna.
Þann 12. þessa mánaðar fór
verndin úr hálfri í þrjá fjórðu.
Verndin fór úr 15% verðtolli og 199
króna magntolli í 22,5% verðtoll og
298 króna magntoll. I ljósi þess
hversu hátt verðið hefur verið í
Evrópu að undanförnu er verndin í
hærri kantinum." Ólafur telur þó
ekki líklegt að vemdinni verði
breytt því það sé spurning um fá-
eina daga þangað til markaðurinn í
Evrópu lækki verðið.
432 peysur bárust í
hönnunarsamkeppni
GARNBÚÐIN Tinna stendur fyrir
hönnunarsamkeppni á peysum og
rann skilafrestur út 1. maí sl. Ails
bárust 432 peysur frá 354 einstak-
lingum og auk þess teppi, treflar,
sokkar og vettlingar.
Hönnuðimir koma víða að en
lengst frá Frakklandi og Dan-
mörku en þaðan bámst peysur frá
íslenskum prjónakonum. Haldin
verður sýning á 140 peysum um
hvítasunnuna í litlu galleríi á efri
hæð fyrirtækisins í Hafnarfírði.
Verðlaunapeysurnar verða valdar
klukkan 14 laugardaginn 17. maí
næstkomandi en dómnefnd skipa
Bryndís Schram, Logi Bergmann
Eiðsson, Ólöf Rún Skúladóttir,
Bergrós Kjartansdóttir og Auður
Kristinsdóttir.
Garpur er kröftugur drykkur sem býr yfir
miklu og hressandi ávaxtabragði og er ríkur
að kalki og C-vftamíni. Uppistaðan er mysa
en í henni eru öll helstu bætiefni mjólkurinnar.
Garpurer góður á íþróttaæfinguna,
í skólann, fjallið, bíltúrinn og bústaðinn.
FAÐU ÞER EINN - DAGLEGA
AV>
Morgunblaðið/Sigrún Sveinbjörnsdóttir
Smurbrauðsnám-
skeið á Hornafírði
Hornafirði - Mikið er af allskonar
auglýsingum um hin og þessi mat-
reiðslunámskeið og við á lands-
byggðinni horfum öfundaraugum á,
því þau eru oftast á Stór-Reykjavík-
ursvæðinu. Nú hefur Matreiðslu-
skólinn okkar bætt úr þessu og fer
um landið og heldur námskeið í
matreiðslu þar sem áhugi er fyrir
hendi.
Ekki stóð á viðbrögðum Horn-
firðinga og nærsveitunga þegar
auglýst var smurbrauðsnámskeið
og komust mun færri að en vildu.
Marentza Poulsen smurbrauð-
sjómfrú var leiðbeinandi á þessu
námskeiði sem stóð yfír í 3 daga.
„Það er alveg rosalega gaman að
koma hingað. Þetta er mjög
skemmtilegur hópur og áhugasam-
ur. Skemmtilegt finnst mér að sjá
allar þessar konur úr bændaþjón-
ustunni og segja þær mér, að það
sem þær hafí lært hér muni koma
þeim að góðum notum í sinni vinnu.
Það sem gerði mér kleift að koma
hingað og bjóða upp á þetta nám-
skeið og þá á sama verði og í
Reykjavík er að KASK styrkti okk-
ur með allt hráefni. Við förum um
allt landið með námskeið og förum
hvert sem er ef næg þátttaka fæst.
Ef einhver hefur áhuga að fá okkur
til sín er best að hafa samband við
skólann,“ sagði Marentza að lokum
og lagði lokahönd á brauðsneið
kaupfélagstjórans sem var kræsileg
á að líta.
VERÐ á papriku er hátt þessa
dagana, kílóið af rauðri og gulri
papriku kostar allt að 900 krónum.
Svipað verð er á paprikunni hvort
sem hún er íslensk eða innflutt.
Aðalsteinn Guðmundsson sölu-
stjóri hjá Agæti segir að mjög lítið
framboð hafi verið af íslenskri lit-
aðri papriku að undanfórnu og seg-
ir hann að kuldi og dimma eigi þátt
að máli. „Við önnum eftirspum
þegar græn paprika er annarsveg-
ar en eigum nánast ekkert af ís-
lenskri rauðri og gulri papriku.“
Hann segir að paprika sé einnig
mjög dýr í Evrópu um þessar
mundir vegna kulda þar. „Hitt er
annað mál að paprikan lækkar
væntanlega á næstu tveimur vikum
í Hollandi því það hefur verið sól
og blíða þar undanfarið. Sömu sögu
er að segja héðan. Veðrið hefur
verið hagstætt síðustu daga og ef
það helst þannig fram yfír hvíta-
sunnu ætti verðið að lækka heil-
mikið“.
Ríkið hirðir um 500
krónur á kíló
„Þetta eru vinnubrögð landbún-
aðarmafíunnar", segir Jón Asgeir
Jóhannesson hjá Bónus þegar
Shop Rite ^UNSiOVMEÐLÆIlHF
Grillkol 4,6 kg ~~
l/erð:
Þurrkryddað dilkalæri 798
Búmanns Londonlamb 799
Bratwurst grillpylsur 598
Hagnikjöt fituminna 1849
Reykt eða léttsaltað folaldakjöt 399
Brauðskinka í pk 799
Franskar kartöflur 750 gr 179
Ofn franskar 750 gr 199
Oetker kartöflumús, 220 gr 159
Knarr pastaréttir í 260 gr pökkum, 5 teg 198
Pickwick te, 8 bragðtegundir 119
Maltabitar, 200 gr 149
Hrísbitar, 200 gr 149
Álpappír, 21 metri 199
Álpappír, 7 metrar 79
Happy Faces, nýtt 150 gr kremkex 89
Viking Pilsner, 0,5 Itr 65
Sun Lolly frostklakar, 5 bragðtegundir 179
Werther's Original, 150 gr 109
Ballerina kex, 180 gr 89
Remi kex, 100 gr 105
Grillbakkar, 5 stk 179
Grillbakkar litlir, 3 stk 119
Grillbakkar, diskar og hnífapör fyrir 5 189
l