Morgunblaðið - 15.05.1997, Síða 22

Morgunblaðið - 15.05.1997, Síða 22
22 FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Ameríkubikarinn í siglingum Conner gerir enn eina tilraun Auckland. Reuter. DENNIS Conner, bandaríski skútustjórinn, sem unnið hefur Ameríkubikarinn fjórum sinn- um, ætlar að freista þess að vinna hann einu sinni enn því hann hefur skráð sig til leiks í næstu keppni, sem háð verð- ur við Nýja-Sjáland árið 2000. Frestur til þess að skrá sig til leiks rann út í gær en þá höfðu 18 siglingafélög í 10 löndum tilkynnt þátttöku, eða fleiri en nokkru sinni áður. Hefur sigrað fjórum sinnum Silfurkannan, sem keppt er um og kappsiglingin dregur nafn af, er eftirsóttustu verð- laun skútusiglinga. Conner hefur unnið hana fjórum sinn- um eða oftar en nokkur ann- ar. Einungis tvisvar í 144 ára sögu keppninnar hafa Banda- ríkjamenn tapað könnunni, í fyrra skiptið féll sá vafasami heiður Conner í skaut en í næstu keppni endurheimti hann hana aftur. Kappsiglingin var síðast háð árið 1995 og féll sigurinn þá áhöfn nýsálenskrar skútu Sir Peters Blake í skaut. Flestar kappsiglingaskút- urnar eru bandarískar eða sex en Frakkar hyggjast senda þijár skútur og Svisslendingar tvær. Aðrar skútur eru frá ít- alíu, Ástralíu, Bretlandi, Jap- an, Rússlandi, Hong Kong og Spáni. Ekki er búist við að þær mæti allar á rásmarkið þegar forkeppnin hefst síðla árs 1999. Bretlandsdrottning flytur stefnuræðu ríkisstjórnar Verkamannaflokksins Stj órnlagaumbætur og lagabreytingar boðaðar Lundúnum. Reuter. ÁÆTLUN nýrrar ríkisstjórnar Verkamannaflokksins í Bretlandi undir forsæti Tony Blairs um rót- tækar stjórnlagaumbætur og um víðtækar lagabreytingar, sem miða að því að uppfylla helztu kosninga- loforð flokksins, var kunngjörð í ræðu Elísabetar II drottningar fyrir lávarðadeild brezka þingsins í gær, en þessi háttur hefur verið hafður á flutningi stefnuræðu nýs forsætis- ráðherra Bretlands frá upphafí þing- ræðis í iandinu. Talsmenn stjórnarinnar sögðu að lagabreytingaáætlunin endurspegl- aði forgangsröðun „ríkisstjórnar fólksins" eftir endalok 18 ára valda- tíðar íhaldsflokksins, en með áætl- uninni byiji stjórnin á því að hrinda kosningaloforðunum í framkvæmd sem áttu veigamikinn þátt í kosn- ingasigri Verkamannaflokksins 1. maí sl. Áætlunin felst í 26 lagafrumvörp- um, sem ríkisstjórnin vonast til að verði að lögum á næstu 18 mán- uðum. Frumvörpin skiptast í fimm meginflokka, í samræmi við fimm meginstefnumið kosningastefnu- skrár Verkamannaflokksins: að minnka bekkjarstærðir í grunnskól- um, stytta biðlista á sjúkrahúsum, gera meðferð réttarkerfisins á af- brotum síbrotaunglinga fljótari og skilvirkari, finna 250.000 ungmenn- um vinnu, sem nú þiggja bætur úr almannatryggingakerfinu, og að skapa skilyrði fyrir varanlegri vel- megun. En í áætluninni er einnig að finna róttækar tillögur um stjórnlaga- breytingar; um að auka valddreif- ingu í stjórnkerfinu, auka gagnsæi í stjórnarháttum og að „hreinsa til“ á starfsvettvangi stjórnmálamanna eftir langt tímabil auðmýkjandi kyn- lífshneyksla og fjármálamisferla, Reuter ÞINGMENN beggja deilda brezka þingsins sátu bekki fundarsals lávarðadeildarinnar þétt í gær, þegar drottningin flutti þar stefnuræðu nýrrar ríkisstjórnar Verkamannaflokksins. sem Verkamannaflokkurinn segir að hafi einkennt stjórnartíð fyrri ríkis- stjórnar. Þjóðaratkvæðagreiðslur verða haldnar um stofnsetningu þings í Skotlandi, sem ætlað er að fara með skattheimtuvald, og þings í Wales, sem ekki er ætlað alveg eins víðtækt vald. Meðal annarra stjórnlagabreyt- inga, sem lagðar eru til í áætluninni og bijóta þvert á stefnu íhalds- flokksins, er að Mannréttindasátt- máli Evrópu verði tekinn inn í brezk lög. Þar með munu brezkir þegnar, sem telja mannréttindi hafa verið brotin á sér, geta sótt skaðabætur fyrir innlendum dómstólum í stað þess að neyðast til að leita til Mann- réttindadómstólsins í Strassborg. Fjárframlög erlendra aðila til stjórnmálaflokka verða bönnuð, vernd persónuupplýsinga styrkt og „hvítbók" verður gefin út um fyrstu skrefin í átt að setningu upplýsinga- laga. Atvinnuleysi minnkar Atvinnulausir í Bretlandi mældust vera færri í aprílmánuði en nokkru sinni síðan í ágúst 1990, samkvæmt opinberum tölum sem birtar voru í gær. 1,65 milljónir manna töldust vera atvinnulausir í mánuðinum, eða 5,9%, sem er lækkun um 0,2% frá í marz. Talsmenn Verkamannaflokksins gáfu í gær út yfirlýsingu um að þær aðferðir sem beitt væri við útreikn- ing atvinnuleysistalna yrðu endur- skoðaðar með það fyrir augum að gera þær trúverðugri. Verkamanna- flokkurinn hafði lengi sakað ríkis- stjórn íhaldsflokksins um að fela hve atvinnuleysi væri raunverulega mik- ið með því að beita vafasömum að- ferðum við útreikning atvinnuleysis- talna. I I i I 1 > ) Breyttar áherslur í málum N-írlands Sigur Verkamannaflokksins í þingkosningunum á Bretlandi — þykir boða aukna áherslu á málefni Norður-Irlands og skrifar Davíð Logi Sigurðsson í Belfast að þar gæti nú bjartsýni um að friðarviðræður hefjist að nýju. TONY Blair þykir hafa sýnt á fyrstu vikum sínum í embætti forsætisráð- herra Bretlands að hann hyggist leggja áherslu á málefni Norður- írlands. John Bruton, forsætisráð- herra írlands, var fyrstum erlendra ráðamanna boðið á fund Blairs og auk þess hefur Blair hitt alla helstu leiðtoga norður-írskra stjórnmála- flokka ef frá eru taldir forsvarsmenn Sinn Fein, hins pólitíska arms Irska lýðveldishersins (IRA). Heyrst hefur að hann haldi á næstu dögum til Norður-írlands og þá muni hann skýra stefnu sína í málefnum þess. í kjölfar sigurs Verkamanna- flokksins í þingkosningum á Bret- landi vöknuðu vonir um að ferskir vindar í breskum stjórnmálum blésu lífi í friðarferlið hér á Norður- írlandi. Ekki þótti spilla fyrir fram- ganga hins nýja ráðherra Norður- Irlandsmála, Mo Mowlam, sem heill- aði íbúa Belfast á göngu sinni um borgina einungis klukkustundum eftir að hún hlaut starfið. Mowlam er fyrsta konan sem tekst á við þetta erfiða ráðherraembætti og þykir gjörólík Patrick Mayhew sem fór með embættið í ríkisstjórn Johns Majors. Hún hefur unnið sér virðingu með því að hafa varið undanförnum mánuðum í að auka skilning sinn á málefnum Norður-írlands. Mest þykir mönnum hins vegar um þá staðreynd að hún virðist hafa raun- verulegan áhuga á starfinu sem þykir nokkur nýbreytni frá fyrri ráð- herrum sem hafa oft litið á embætt- ið sem pólitíska blindgötu. Sinn Fein fær ekki skrifstofu á þingi Sinn Fein vann stórsigur í þing- kosningunum og fékk tvö þingsæti. Hinir kjömu þingmenn flokksins, Gerry Adams og Martin McGuinness, neita hins vegar að sveija Breta- drottningu hollustueið og hyggjast ekki taka sæti á þingi. Þær ætluðu þó að neyta réttar síns til að opna skrifstofu á þingi og hafa þar að- stöðu. Betty Boothroyd, forseti neðri málstofu breska þingsins, ákvað hins vegar í gær að þeir fengju engin réttindi þingmanna nema þeir væru reiðubúnir til að sverjaþingmannseið- inn með aðra hönd á Biblíunni. Sigur Sinn Fein hefur verið túlk- aður sem skilaboð frá íbúum um að flokknum beri að halda áfram þing- ræðisleiðina að takmarki sínu. Að sama skapi telur Sinn Fein sig hafa fengið óumdeilt umboð og að yfir- völd séu nú tilneydd að hefja viðræð- ur við samtökin sem fyrst. Líklegt er að leiðtogar IRA gefí talsmönnum Sinn Fein talsvert fijálsar hendur á næstu mánuðum og að IRA hafi hægt um sig á meðan Sinn Fein leitast við að komast að samninga- borðinu. Áður en það gerist er hins vegar sú krafa gerð að IRA lýsi yfir vopnahléi og er ekki ólíklegt að IRA telji það rétt skref í stöðunni þótt vopnahlé hleypi Sinn Fein reyndar ekki sjálfkrafa að samn- ingaborðinu. Hveitibrauðsdögunum lokið Hveitibrauðsdögum nýju ríkis- stjórnarinnar er hins vegar lokið. Oft er haft á orði um írska sjálfstæð- isbaráttu að í hvert sinn sem ný stjórnmálasamtök séu stofnuð á Ir- landi sé fyrst á dagskrá þeirra að klofna í tvennt. Samtök þjóðern- issinna hafa klofnað oftar en elstu menn muna og í dag eru auk IRA starfandi mörg smærri samtök sem láta í sér heyra af og til. Oftar en ekki eru þessi samtök mun róttæk- ari en IRA og síðustu mánuði hafa þau kvartað yfir vilja IRA til að taka þátt í stjórnmálaþrasi um framtíð eyjunnar. Að þeirra mati er friðarferli und- anfarinna þriggja ára ekkert nema orðin tóm og einungis fullur sigur er viðunandi, málamiðlanir að sama skapi óhugsandi. Morð á krá Á föstudagskvöld tóku ein slík samtök, Irish National Liberation Army (INLA), sig til og myrtu liðs- mann lögreglunnar fyrir opnum tjöldum á krá í Belfast. Fyrst var talið að morðið hefði með þá stað- reynd að gera að þessi krá er höfuð- samkomustaður samkynhneigða í borginni en eftir að INLA lýstu ábyrgð á hendur sér er talið líklegra að um hefnd sé að ræða. Tveimur dögum áður hafði nefnilega ungur kaþólikki látist af völdum sára sem hann hlaut 2 vikum áður þegar stór hópur mótmælenda þjarmaði að hon- um í Portadown. Vitni að atburðunum segja að nálægt árásarstaðnum hafi liðsmenn lögreglunnar (RUC) setið hreyfing- arlausir í lögreglubíl. Kaþólikkar hafa löngum haft ímugust á lögregl- uliði RUC sem hefur í gegnum tíðina ekki alltaf þótt hlutlaust í framkomu sinni við íbúa Norður-írlands. Að- i gerðarleysi lögreglunnar þetta kvöld í Portadown þykir sumum sanna að l' RUC sé jafn andsnúið kaþólikkum ) og áður. Þrátt fyrir þetta er líklegt að vilji sé innan IRA fyrir nýju vopnahléi enda merkir öruggur meirihluti Verkamannaflokksins á breska þinginu að Tony Blair er ekki upp á náð og miskunn þingmanna sam- bandssinna eins og John Mayjor var á síðasta þingi. Það merkir að Blair ^ getur aðhafst án þess að eiga á hættu að tapa meirihluta sínum á | þingi og getur því sýnt meiri dirfsku ) í útspili sínu. Á hinn bóginn er útilokað að ná fram samkomulagi án samráðs við sambandssinna sem þrátt fyrir allt eru fulltrúar meirihluta íbúa á Norð- ur-írlandi. Atburðir síðustu helgar hafa minnt menn á að engu hafi verið áorkað enn og nú þarf að tryggja L að átök sumarsins verði ekki jafn hatrömm og á síðasta ári þegar ber- p lega kom í ljós að stutt er í hatrið | undir niðri. Spádómar um úrslit sveitarstjórnarkosninga sem haldnar verða eftir viku eru síðan jafn vafa- samir og allt annað hér á Norður- írlandi. Það sannaðist best í febrúar á síðasta ári þegar þekktur fræði- maður hélt fyrirlestur í Belfast um ástæður þess að þjóðernisdeilur tækju enda. Daginn eftir rauf IRÁ L vopnahlé sitt með Canary Wharf- sprengjunni í London. Hin gömlu p sannindi að vika sé langur tími i ^ stjórnmálum eiga hvergi betur við en á Norður-írlandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.