Morgunblaðið - 15.05.1997, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997 23
ERLENT
Austur-
ríki
brátt í
NATO?
Vín. Reuter.
ÓSÆTTI er komið upp í aust-
urrísku ríkisstjórninni í kjölfar
yfirlýsinga varnarmála- og
utanríkisráðherra landsins um
að þeir telji það ekki spurn-
ingu um hvort heldur hvenær
Austurríki muni sækja um
aðild að Atlantshafsbandalag-
inu, NATO, og Vestur-Evr-
ópusambandinu, VES, svo að
það geti haft áhrif á alþjóða-
vettvangi. Varnarmálaráð-
herrann, Werner Fasslabend,
lýsti þessu m.a. yfir á fundi
utanríkis- og varnarmálaráð-
herra VES-ríkja í París á
þriðjudag.
Fasslabend, sem er úr hin-
um hægrisinnaða Þjóðar-
flokki, sagði að sæktu Austur-
ríkismenn ekki um aðild, yrði
þeim með öllu ómögulegt að
hafa áhrif á miklar ákvarðan-
ir á alþjóðavettvangi.
Kanslari landsins, Viktor
Klima, og flokksbræður hans
í flokki jafnaðarmanna, vilja
hins vegar fara sér hægt og
segja ekki tímabært að ræða
NATO-aðild. Hefur Klima áður
lýst því yfir að hann muni boða
til þjóðaratkvæðagreiðslu þeg-
ar rætt verði af alvöru um
hvort sækja eigi um NATO-
aðild. Austurríki lýsti yfir hlut-
leysi sínu árið 1955.
Aðildarviðræður
á næsta ári?
Fasslabend sagði að taka
yrði aðild til skoðunar eftir
að NATO hefur boðið nokkr-
um Mið- og Austur-Evrópu-
ríkjúm til aðildarviðræðna á
fundi sínum í Madríd í júlí.
Kvaðst hann ennfremur búast
við því að hlutlaus ríki á borð
við Svíþjóð og Finnland
myndu bráðlega skipta um
skoðun og sækja um NATO-
aðild.
John Roper, sem starfar hjá
Konunglegu bresku rannsókn-
arstofnuninni í alþjóðamálum,
telur þetta ekki fjarri lagi, og
að næsta umferð aðildarvið-
ræðna NATO, á eftir þeirri
sem heQist í sumar, verði að
öllum líkindum við hlutlaus
ríki á borð við Austurríki,
Svíþjóð og Finnland. Það verði
til að auka tengsl NATO og
Evrópusambandsins og að
slíkar viðræður gætu hafist á
næsta ári eða árið 1999.
Meindl Island herra- og dbmuskór
Gðnguskór úr hágæða leðri. Gore-tex I
Innra byrði og góð útðndun. Vlbram
Multlgriff sóli.
■góðlr í lengrl gðngulerðlr.
Dðmust. 37-43 Kr. 16.640.-
Herrast. 41-46 Kr. 16.900.-
Stærðlr 47-48 Kr. 17.900.-
-ferðin gengur vel á Meindl
mmuTiuFmm
■ shti m 2022
Nýjustu skoðanakannanir í aðdraganda þingkosninga í Frakklandi
Fylgi stjórnarflokka eykst
París. Reuter.
STUÐNINGUR franskra kjósenda við stjórn-
arflokkana virðist fara ört vaxandi, samkvæmt
niðurstöðum skoðanakönnunar Ifop-stofnun-
arinnar, sem birtust í vikuritinu VSD í gær. Þar
segjast 48% aðspurðra vona að sömu flokkar
verði áfram við stjórn eftir þingkosningarnar
25. maí og 1. júní, en í sambærilegri könnun
ritsins viku áður var sú hlutfallstala 43%.
Jospin höfðar meira
til kjósenda
Í könnuninni kemur hins vegar fram, að Lion-
el Jospin, leiðtogi sósíalista, höfðar meira til
kjósenda en Alain Juppe forsætisráðherra þó
hinn síðarnefndi sæki á. Sögðust 38% hafa meiri
mætur á Jospin en 36% tóku Juppe fram yfir.
Jospin hafði 40% fylgi vikunni áður og Juppe
33%.
Ljóst er af könnun Sofres-stofnunarinnar, sem
vikuritið Pelerin birti í gær, að Frakkar fá ekki
þann forsætisráðherra sem kjósendur vilja helst.
„Franskir kjósendur eru jarðbundnir. Burtséð frá
því hverjir vinna, hægri eða vinstri, þá búast
þeir ekki við að fá þann forsætisráðherra sem
þeir helst-vilja,“ sagði blaðið um niðurstöður
könnunarinnar. Sigri stjórnarflokkarnir vilja
flestir, eða 26%, að Philippe Seguin þingforseta
verði falin stjórnarmyndun, 21% aðhyllast Edou-
ard Balladur fyrrverandi forsætisráðherra, en
aðeins 8% stuðningsmanna stjórnarflokka sögð-
ust vilja að Juppe sæti áfram. Er þeir voru hins
vegar spurðir hver líklegastur yrði til að stjórna
nýrri ríkisstjórn nefndu 26% Juppe, 19% Seguin
og 22% Balladur.
Stuðningsmenn stjórnarandstöðunnar vildu
flestir, eða 44%, að Jacques Delors, fyrrverandi
forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins (ESB), yrði falin stjórnarmyndun fengju
vinstriflokkarnir þingmeirihluta. Aðeins 18%
óskuðu þess að Jospin fengið hnossið. Er þeir
sömu voru spurðir hver yrði þó líklegasti verk-
stjóri nýrrar vinstristjórnar sögðu 57% Jospin
og 23% Delors.
Jacques Chirac, Frakklandsforseti, skoraði á
liðsmenn stjórnarflokkanna að hætta innbyrðis
deilum um framtíð stjórnarstefnunnar og stöðu
forsætisráðherrans því með því væri hætta á að
aðalatriði kosningabaráttunnar féllu í skuggann.
Næstu vikur munum viÖ kappkosta
aÖ hafa sem mest úrval og bjóSa sem best kjör
á þeim vörum sem tilheyra vor- og sumarstörfum
Sérstaóa okkar hvað varðar verð og gæói
er viÖskiptavinum okkar kunn,
en viS bjóðum nýja einnig velkomna í hópinn.
Fyrir garða og sumarhús
VORVÖRUR
f ÚRVALI
Landeigéndur
í ÚRVALI
Túngirðingarnet, netstaurar,
girSingarstaurar og gaddavír
GARDÁHÖLD
Á EINSTÖKU VERÐI
a> <p <p <p o
m
Bændur, hestafólk og útivistarfólk
RAFGIRÐINGAR
Allt efni sem tilheyrir
rafgirSingum, ásamt ráðgjöf
HJÓLBÖRUR
EINSTAKT TILBOÐ
75, 85 og 100 lítra
Fyrir alla húseigendur
ÞAKEFNI AF
Gamla, góða báran
í þeim lengdum sem þú óskar
Lóða-og landeigendur
ÁBURÐUR OG
SÁÐVÖRUR
Mikið úrval af viÖurkenndum
gras- og grænfóðurstofnum
llllRR
Við leggjum rækt við ykkor hag
MR búðin • Laugavegi 164
Símar: 551 1125 • 552 4355 • Fax: 5814450