Morgunblaðið - 15.05.1997, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Hressi-
legur
hrist-
ingur
KVIKMYNPIR
Kcgnboginn
SUPERCOP (Jing cha gu
shi: Chao ji jing cha)
★ ★ ★
Leikstjóri: Stanley Tong. Hand-
rit: Filre Ma, Lee Wai Yee og
Edward Tang. Kvikmyndataka:
Lam Kwok Wah. Aðalhlutverk:
Jackie Chan, Michelle Yeoh,
Yuen Wah, Maggie Cheung, Bill
Tung, og Kenneth Tsang. 95 mín.
Hong Kong. Golden Harvest
Productions 1992.
EF fólk hefur einhvern tímann
velt því fyrir sér hvaðan kvik í
kvikmyndum er komið ætti það
að skella sér á mynd með Jackie
Chan. „Supercop" eða „Jing cha
gu shi: Chao ji jing cha“ er prýð-
isgott dæmi þó hún sé ekki alveg
ný af nálinni.
„Supercop" er frá árinu 1992
en vegna vinsælda „Rumble in
the Bronx“ var rykið dustað af
henni og hún sett á Bandaríkja-
markað á síðasta ári. Endurút-
gáfan er með nýja teiknimynda-
lega byijunartitla og hljóðrás á
ensku. Myndin er sem sagt döbb-
uð og með vestrænni dægurtónl-
ist í mjög sérstæðum útsetning-
um.
Jackie Chan ieikur ofurlögg-
una Kevin Chan (upprunalega
hét persónan Chen Chiachy) og
hoppar og skoppar í gegnum
myndina eins og súperbolti. Allt
er hreyfing og hraði. Auk hama-
gangsins heldur aulahúmor
manni við efnið í „Supercop".
Einhver vísir af söguþræði er til
staðar, en eins og allir vita er
hann bara afsökun til þess að
komast á milli áhættuatriða sem
samkvæmt goðsögnum kvik-
myndaiðnaðarins erú öll fram-
kvæmd af Chan sjálfum.
Félagi bardagahetjunar í
„Supercop“ er Hong Kong kven-
stjarnan Michelle Yeaoh (reyndar
nefnd Michelle Khan í þessari
útgáfu) en hún stundar sömu
iðju og Chan þ.e. að taka áhættu
í eigin persónu fyrir framan
myndavélarnar. Yeaoh er engin
eftirbátur Chans, og er mjög
gaman að horfa á þau fljúga í
gegnum ioftið og lumbra á vondu
köllunum. Hver ætli vilja tryggja
þetta fólk?
„Supercop" er fyrst og síðast
skemmtileg kvikmynd. Hún léttir
iund og kætir, hressir, bætir,
ekki ósvipað og Ópal.
Anna Sveinbjarnardóttir
mSNr ’ \ !AUgl . W ■ ■ ÆMjSm
\ fÆ Wm, |Í' , L
Morgunblaðið/Aldís
ÞAÐ er valinkunnur hópur flytjenda sem kemur fram á tónlistarhátíðinni Bjartar nætur í Hveragerði.
Bjartar nætur -
tónlistarhátíð
í Hveragerði
Hveragerði. Morgunblaðið
Tónlistarhátíðin Bjartar næt-
ur verður haldin í fyrsta sinn
í Hveragerði um hvítasunnu-
helgina. Það eru Gunnar Kvar-
an sellóleikari og kona hans,
Guðný Guðmundsdóttir fiðlu-
leikari, sem eiga hugmyndina
að Jiessari hátíð.
I stuttu spjalli við fréttarit-
ara Morgunblaðsins sagði
Gunnar hugmyndina hafa
kviknað fyrir tveimur árum.
Þau hjónin dvöldu þá í Hvera-
gerði í nokkra daga. Þau
höfðu lengi gælt við þá hug-
mynd að halda tónlistarhátíð
úti á landi en þarna laust þeirri
hugsun niður að Hveragerði
væri ákjósanlegur staður.
„Hveragerði er ákaflega hlý-
legur og fallegur bær sem
myndar frábæra umgjörð utan
um hátíð sem þessa. Ennfrem-
ur er Hveragerðiskirkja hið
ákjósanlegasta tónlistarhús,
með frábæran hljómburð. Við
hófumst þegar í stað handa
og kynntum hugmyndina fyrir
bæjarstjórn. Þar var okkur
mjög vel tekið og allir boðnir
og búnir að aðstoða við fram-
kvæmdina.“
Aðspurður sagðist Gunnar
vænta mikils af þessari hátíð.
Svipaðar tónlistarhátíðir eru
þekktar svo sem í Skálholti og
á Kirkjubæjarklaustri þar sem
Guðný og Gunnar hafa tvisvar
verið meðal þátttakenda. „Það
er alltaf erfitt að byrja því það
þarf að skapa vissa hefð, til
að tónlistarhátíð sem þessi
öðlist sess.“ Þeim Guðnýju og
Gunnari gekk mjög vel að fá
tónlistarfólk til að taka þátt í
hátíðinni. „Svona tónlistarhá-
tíð er mjög heillandi fyrir þátt-
takendurna. Við komum til
bæjarins nokkrum dögum
áður en hátíðin hefst og æfum
saman. Ennfremur munum við
búa á sama stað, af því leiðir
að þátttakendur hristast mjög
vel saman og það gefur sér-
stakt andrúmsloft sem von-
andi skilar sér á tónleikunum.“
Landsþekktir flytjendur
Það er valinkunnur hópur
flytjenda sem tekur þátt í há-
tíðinni. Þar ber fyrst að telja
Gunnar Kvaran sellóleikara og
konu hans, Guðnýju Guð-
mundsdóttur fiðluleikara, er
leikur með Sinfóníuhljómsveit
Islands. Píanóleikararnir Pet-
er Máté og Anna Guðný Guð-
mundsdóttir munu leika á
hljómleikunum ásamt Sigurði
Inga Snorrasyni, klarinettu-
leikara í Sinfóníuhljómsveit
Islands. Frá London kemur
Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleik-
ari, sem er öllum Islendingum
að góðu kunn. Unnur Svein-
bjarnardóttir víóluleikari, sem
búsett hefur verið í Þýskalandi
um árabil, kemur gagngert til
að taka þátt í tónlistarhátíð-
inni. Síðast en ekki síst mun
Rannveig Fríða Bragadóttir
mezzosópran taka þátt í tón-
leikunum. Rannveig Fríða er
sem kunnugt er nýkomin með
samning við óperuna í Frank-
furt en nú sem stendur býr hún
í Vínarborg.
Létt og grípandi efnisskrá
Um þrenna tónleika er að ræða
dagana 16., 17. og 18. maí.
Mismunandi dagskrá er á tón-
leikunum. A föstudagskvöld
klukkan 20.30 verða flutt verk
eftir Brahms, Schubert og
Mozart. Á laugardag klukkan
17 verða flutt verk eftir
Schumann, Atla Heimi Sveins-
son og Brahms. Á lokatónleik-
unum á sunnudagskvöldið, sem
hefjast klukkan 20.30, verða
verk eftir Milhaud, Sarasate,
Brahms og Dvorák á efnis-
skránni. Eins og sjá má er
dagskráin fjölbreytt en aðal-
áhersla er lögð á kammertónl-
ist. I viðræðum við listafólkið
kom fram að kammertónlist
væri oft misskilin og fólk héldi
að hún væri þung og erfið í
hlustun. Það aftóku þau með
öllu og sögðu kammertónlist
einmitt vera yndislega fyrir
áheyrandann. „Við flutning
kammertónlistar myndast oft
meiri nálægð við áheyrend-
urna og eins milli flytjenda.
Fleiri og fleiri tónlistarmenn
þrá að flytja kammertónlist
vegna þess að hún gefur flytj-
andanum svo mikið. Það er
ákjósanlegt við flutning
kammertónlistar að flyljend-
urnir þekkist og séu vinir.“
Söngurinn skipar einnig
veglegan sess í efnisskránni.
Lög eftir Schubert og Brahms
verða flutt ásamt nýlega sömd-
um sönglögum eftir Atla Heimi
Sveinsson við ljóð Jónasar
Hallgrímssonar. Verða þau
flutt á tónleikunum á laugar-
daginn. Rannveig Fríða sagði
að sér fyndist Atli Heimir
semja yndisleg lög. „Lögin
hans Atla höfða sterkt til fólks.
Þau eru með grípandi laglínu
sem fólk hrífst strax af. Þann-
ig eru þessi nýju lög hans og
það er mjög gaman að fá að
flytja þau hér.“ Sigrún Eð-
valdsdóttir sagðist hlakka til
að spila í Hveragerði „Það er
meiriháttar að fá að taka þátt
í þessari hátíð. Það er alveg
sama hvar maður flakkar um
heiminn, alltaf gefur það mér
mest að spila hér á íslandi.“
Það er von þeirra sem að tón-
listarhátíðinni standa að hún
megi verða fastur liður í menn-
ingarlífi Hveragerðis um
ókomin ár.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Blönduós
Lokatónleikar
tónlistarskólans
Blönduósi-Lokatónleikar tón-
listarskólans á Blönduósi voru
haldnir í Blönduóskirkju fyrir
skömmu. Fjöldi nemenda kom
fram á tónleikunum og voru
nokkrir að stíga þar sín fyrstu
skref á tónlistarsviðinu. Auk ein-
leiks á hljóðfæri komu fram
nokkrar hljómsveitir, mismun-
andi að hljóðfæraskipan, og iéku
tónlist er náði utan um flestar
tólistarstefnur allt frá Bach til
Lennons og McCartneys. Skóla-
stjóri tónlistarskóla A-Húna-
vatnssýslu er Skarphéðinn Ein-
arsson.