Morgunblaðið - 15.05.1997, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997 65
FRÉTTIR
Gísli Árni
formaður
FÍÆT
AÐALFUNDUR Félags íþrótta-,
æskulýðs- og tómstundafulltrúa á
Islandi var haldinn á ísafirði 9. og
10. maí sl. Alls sóttu fundinn 23
fulltrúar allsstaðar að af landinu.
Á fundinum voru venjuleg aðal-
fundarstörf og erindi flutt. Omar
Einarsson, framkvæmdastjóri ÍTR
flutti erindi um samræmdar reglur
leiðbeinenda v/námskeiða barna og
unglinga og Indriði Jósafatsson,
íþróttafulltrúi í Borgarnesi, kynnti
undirbúning og skipulag landsmóts
UMFÍ 1997. Farið var í skoðunar-
ferð um ísafjarðarbæ og íþrótta-
mannvirki og æskulýðsmiðstöðvar
skoðaðar undir leiðsögn Björns
Helgasonar, íþróttafulltrúa ísafjarð-
arbæjar.
„Fundurinn samþykkti ný lög þar
sem tilgangur og markmið félag-
anna eru m.a.: Að móta þá heildar-
stefnu sem unnið skal eftir á sviði
íþrótta-, æskulýðs- og tómstunda-
mála, að auka samtarf meðal félags-
manna, að stuðla að aukinni þekk-
ingu og fræðslu meðal féiagsmanna,
að stuðla að aukinni samvinnu við
erlenda samstarfsaðila, að standa
að fræðslu til almennings um gildi
íþrótta- og æskulýðsstarfs, að stuðla
að samræmingu og hagkvæmni við
undirbúning og framkvæmdir sem
tengjast íþrótta- og æskulýðsmann-
virkjum, að stuðla að samvinnu
þeirra aðila sem vinna að hvers kon-
ar forvörnum, að stuðla að samræm-
ingu iþrótta-, tómstunda- og skóla-
starfs og að eiga samskipti við ríki,
sveitarfélög og félagasamtök vegna
íþrótta-, æskulýðs- og tómstunda-
mála,“ segir í fréttatilkynningu.
í lok fundarins fór fram stjórnar-
kjör þar sem formaður var kosinn
Gísli Árni Eggertsson, æskulýðs- og
tómstundafulltrúi í Reykjavík, gjald-
keri Stefán Bjarkarson, íþrótta- og
tómstundafulltrúi í Reykjanesbæ og
ritari Ingvar S. Jónsson, íþróttafull-
trúi í Hafnarfirði. Auk þess var for-
seti félagsins kosinn Haukur H.
Þorvaldsson, íþrótta- og æskulýðs-
fulltrúi Hornafjarðarbæjar þar sem
næsti aðalfundur mun fara fram.
Afmælissýning Fornbílaklúbbs íslands haldin í Perlunni
BUICK, árgerð 1935, sem sendur var sérstaklega frá Færeyjum vegna
afmælissýningar Fornbílaklúbbsins í Perlunni um hvítasunnuhelgina.
Buick árgerð 1935
fluttur hingað frá
Færeyjum
í TILEFNI af 20 ára afmæli
Fornbílaklúbbs íslands 19.
maí nk. verður haldin sýning
á gömlum bílum í Perlunni
alla hvítasunnuhelgina. Með-
al sýningargripa er Packard
bíll Sveins Björnssonar for-
seta og kemur hann nú fyrir
sjónir almennings í fyrsta
skipti áður en hann verður
gerður upp.
„Vegna afmælisins koma
33 gestir frá Færeyjum en
samstarf íslensku og fær-
eysku fornbílaklúbbanna
hefur verið gott upp á síð-
kastið. Með þeim í för er
glæsilegur Buick frá 1935 og
Nimbus vélhjól með hliðar-
vagni en þessir gripir voru
sendir sérstaklega til íslands
vegna afmælissýningar
Fornbílaklúbbsins í Perl-
unni,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá Fornbílaklúbbi ís-
lands.
INNRITUN er hafin í sumarbúð-
irnar við Ásljörn, en í skógivöxn-
um þjóðgarði við Jökulsárgljúfur
í Kelduhverfi, skammt frá Ás-
byrgi, íiafa verið kristilegar sum-
arbúðir í meira en 50 ár.
Frá 14. júní til 16. ágúst í sum-
ar munu 6-12 ára drengir og
stúlkur dvelja þar. Flest börnin
dveþ'a í 2 vikur, en hægt er að
dvelja þar í allt að 8 vikur. 17.-24.
ágúst verður unglingavika fyrir
13-16 ára. í fréttatilkynningu
segir, að starfið við Ástjörn
byggi á kristilegum grundvelli; á
kvöldstundum sé mikið sungið,
Innritun að
Ástjörn
börnin heyri sögur úr Biblíunni
og er kennt Guðs orð og góðir
siðir.
Skógurinn, sem umlykur
Ástjörn og svæðið, veitir fjöl-
marga möguleika til útiveru og
leikja. Við vatnið eru fleiri en
25 bátar af ýmsum gerðum og
af og til er farið í gönguferðir
og skoðunarferðir í Ásbyrgi,
Illjóðakletta og fleiri staði. Stutt
frá Ástjörn er hestaleiga og við
Ástjörn eru körfubolta- og knatt-
spyrnuvöllur og blakvöllur er
væntanlegur. Stutt frá er nýtt
íþróttahús.
Hægt er að greiða dvöl með
VISA eða EURO. Á hverju ári
koina mörg börn frá höfuðborg-
arsvæðinu og Flugleiðir bjóða
sérstakt sumarbúðafargjald frá
Reykjavík. Allar nánari upplýs-
ingar eru veittar hjá forstöðu-
manni, Boga Péturssyni, Víði-
mýri 16, Akureyri, og á skrif-
stofu Ástjarnar á Akureyri.
Ungmenni
axla ábyrgð í
áföngum
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá stjórn Heimdallar:
„Frumvarp ríkisstjórnarinnar til
lögræðislaga er til meðferðar á Al-
þingi. Heimdallur hefur áður fagn-
að frumvarpinu enda felst í því tölu-
verð réttarbót fyrir íslensk ung-
menni. Við meðferð frumvarpsins á
Alþingi hefur hins vegar komið
fram breytingatillaga við það sem
myndi breyta því í mestu frelsis-
sviptingu sem Alþingi Islendinga
hefur staðið að.
íslendingar hafa valið þá leið að
láta ungmenni axla ábyrgð á lífi
sínum í áföngum, fyrst með sjálf-
ræðinu 16 ára þegar þau ráða sín-
um persónulegum högum s.s. dval-
arstað og atvinnu og síðan með fjár-
ræðinu 18 ára. Þetta hefur gefist
vel. Það er ekki fyrr en nú þegar
menn standa ráðþrota gagnvart
vaxandi fíkniefnaneyslu ungs fólks
að umræða hefst um hækkun sjálf-
ræðisaldurs, aðallega til að geta
kyrrsett þá sem ekki vilja sjálfvilj-
ugir fara í meðferð. íslensk ung-
menni á aldrinum 16-18 ára eru
um 11 þúsund, flest heilbrigt og
skynsamt fólk. Við gerðum þeim
engan greiða með því að að taka
frá þeim lýðræðisleg réttindi og
ábyrgð á lífi sínu. Það er einungis
ódýr leið til að friða samvisku
þeirra sem ekki geta á annan hátt
tekið á vandanum sem við blasir.
Nú þegar komið er að atkvæða-
greiðslu um frumvarpið og áður-
nefnda breytingatillögu treystir
stjörn Heimdallar því að þingmenn
muni ekki falla í þá gryfju pólitísks
getuleysis að svipta ellefu þúsund
ungmenni sjálfræði fyrir pólitíska
stundarhagsmuni vegna eigin úr-
ræðaleysis í afmörkuðu vanda-
máli.“
Kjarabætur
skili sér til líf-
eyrisþega
AÐALFUNDUR Sjálfsbjargar á höf-
uðborgarsvæðinu haldinn laugar-
daginn 26. apríl treystir þeirri yfir-
lýsingu ríkisstjórnarinnar frá 26.
apríl 1997, að þær kjarabætur sem
unnið er að muni skila sér að fulli
inn í greiðslur til lífeyrisþega, segir
í fréttatilkynningu Sjálfsbjargar.
Þar segir ennfremur: „Lokasetn-
ing yfirlýsingarinnar vekur hins veg-
ar ugg fundarmanna en þar er kveð-
ið á um að hækkunin verði sam-
kvæmt mati ríkisstjórnarinnar.
Hvert verður það mat?
Aðalfundurinn lýsir áhyggjum yf-
ir því að bilið milii lífeyrisþega og
hins almenna launamanns er alltaf
að aukast og er það skýlaus krafa
fundarins að þetta verði brúað.
Þá leggur Sjálfsbjörg ríka áherslu
á þau sjálfsögðu mannréttindi að líf-
eyristekjur verði aftur tengdar al-
mennum launahækkunum í land-
inu.“
2.700 félags-
miðstöðvar
ÍUFN
SAMTÖK Norrænna félagsmið-
stöðva, Ungdom och fritid i Nord-
en, UFN, hélt aðalfund sinn í Ny-
borg í Danmörku nýverið.
A fundinum var Árni Guðmunds-
son, æskulýðs- og tómstundafulltrúi
í Hafnarfirði, endurkjörinn formað-
ur samtakanna til næstu tveggja
ára. Samtök félagsmiðstöðva á Is-
landi, SAMFÉS, hafa verið aðilar
að samtökunum frá 1987. í UFN
eru Ungdomsringen í Danmörku,
Fritidsforum í Svíþjóð, Landfören-
ingen för klubberna í Noregi,
SETNL í Finnlandi og Sukorseq í
Grænlandi. í UFN eru alls um 2.700
félagsmiðstöðvar.
„Starfsemi UFN er margvísleg
en á það sameiginlegt að auka og-
viðhalda norrænni samvinnu á sviði
félagsmiðstöðva. UFN hefur á um-
liðnum árum staðið fyrir fjölda
námskeiða, sem ætluð eru ungling-
um, auk fjölda fagnámskeiða fyrir
starfsfólk félagsmiðstöðva. Sam-
tökin gefa út blaðið Nordiska ny-
heder þar sem m.a. er ijallað um
helstu nýjungar á starfssviði félags-
miðstöðva. Skrifstofa UFN er í
Kaupmannahöfn og er rekin í sam-
vinnu við skrifstofu Ungdomsring-
en. Framkvæmdastjóri samtakanna
er Rainer Lenze, segir í fréttatil-
kynningu frá UFN.
„Bændur
græða landiðu
ÁKVEÐIÐ hefur verið að leggja 5
milljónir króna af umhverfisverk-
efnisfé samnings um sauðfjárfram-
leiðslu til verkefnisins Bændur
græða landið sem er samstarfsverk-
efni bænda og Landgræðsiu ríkisins
um uppgræðslu ógróins eða lítt
gróins lands í byggð, segir í frétta-
tilkynningu frá upplýsingaþjónustu
landbúnaðarins.
Ennfremur segir: „í samningi um
framleiðslu sauðfjárafurða milli rík-
isstjórnar íslands og Bændasam-
taka íslands sem undirritaður var
1. október 1995 var ákveðið að
veija á árinu 1997 15 milljónum
króna til umhverfisverkefna skv.
nánari ákvörðun framkvæmda-
nefndar búvörusamninga. Af þess-
um lið hafa þegar verið veittar 2
millj. kr. til undirbúnings að ræktun
Suðuriandsskóga og 2 millj. kr. til
Skjólskóga, samstarfsverkefnis
skógræktarfélaganna í Önundar-
firði og Dýrafirði.
Samstarfsverkefnið Bændur
græða landið hófst 1991. Umfang
þess óx verulega með „afmælisgjöf"
Áburðarverksmiðju ríkisins vorið
1994 en árið 1996 tóku um 400
bændur þátt í verkefninu. Fyrir-
komulag verkefnisins í sumar er
þannig að Landgræðsla ríkisins
aðstoðar bændur við að skipuleggja
uppgræðslustarfið og leggur til 85%
áburðarverðsins en bændur sjá uir.
flutning og dreifingu áburðarins."
LEIÐRÉTT
Söfnun fyrir Bosníu
í FRÉTT í blaðinu í gær var sagt
frá söfnun á skóladóti sem börn
Grandaskóla stóðu fyrir hand;.
bömum í Bosníu. Þar kom fram að
söfnunin væri í samvinnu við
Mæðrastyrksnefnd Rauða krossins
en hið rétta er að þetta átti að vera
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur og
Rauði kross íslands.
I
%