Morgunblaðið - 15.05.1997, Qupperneq 66
66 FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
lÆTLAe&U ' / NEI, þó BRT \ felOUAÐkTA jl 0FS3ÓMIÍZ. f \ AilG? . ^ J þESSi MEGxm er ab æsa /miö 1 HVAÐA AMTSEM ÉS HU6SA a . uM 8ARA — ( hveíz ee ] § [SVAH6UÍ&/ >
!
I -6^X1—.
Smáfólk
HOL) ABOUT TWAT, MARCIE..
I THINK THE¥ FIXEP
THE IEAK IN THE ROOF..
LET S JU5T HOPE THERE
AREN'T 50ME OTHER
PLACES UUHERE...
Hvað segirðu um þetta,
Magga ... ég held að þeir hafi
gert við þakið.
Við skulum bara vona að það
séu ekki einhverjir aðrir
staðir sem ...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Trúarbragðakennsla
í skólum fyrir hveija?
Frá Þorsteini Sch. Thorsteinssyni
HINIR svokölluðu fræðingar um
Guð (guðfræðingar) vilja fá að
kenna önnur trúarbrögð í skólum.
Markmiðið er að þiggja bæði góð
laun og koma á boðskap gegn öllum
öðrum trúarbrögðum. Boðskapur-
inn í kennslugögnunum verður eins
og er að finna í bókunum: Credo,
Haustdreifar, Kirkjan játar og Trú-
arbrögð mannkyns. Boðskapurinn
verður þannig að allri fagurfræð-
inni og kærleikanum í trúarbrögð-
unum öðrum en kristinni trú verður
gjörsamlega sleppt í kennslugögn-
unum. Það getur hver sem er athug-
að samþykktar og viðurkenndar
bækur um hin trúarbrögðin og
þannig borið sig saman við þessar
fjórar fyrrgreindu bækur, Kirkjurit-
ið og blöð sem kirkjunnar menn
hafa skrifað, því það er hægt að
fínna hveija rangtúlkunina á fætur
annarri hjá kirkjunnar mönnum.
Höfundarnir hafa skilið verksum-
merkin eftir sig. Ef við athugum
bókina Kirkjan játar bls 23-24.
sjáum við það greinilega, því það
er annars nokkum veginn sama
hvaða bók við athugum af þessum
fjórum fyrrgreindum bókum, hinn
neikvæði boðskapur er þar til stað-
ar. Skálholtsútgáfan, útgáfufélag
þjóðkirkjunnar, hefur séð vel og
dyggilega um að koma þessum boð-
skap til skila, bæði með útgáfu
kirkjuritsins og bóka.
Það er alveg ljóst að það er
ekki nóg fyrir þá að predika gegn
öðrum trúarbrögðum á þessum
námskeiðum sem þeir halda hér og
þar, heldur vilja þeir einnig fá að
vera á föstum launum við það.
Ósannindi viðhöfð
gegn öðrum trúarbrögðum
Mörgum manninum fínnst sr.
Þórhallur Heimisson búa til ein-
hvem hálfsannleika, sem er verri
en ósannindi. Tökum nokkur dæmi
úr Kirkjuritinu eftir sr. Þórhall, þar
sem hann segir um karma og endur-
holdgun: „Markmið verður að end-
urholdgast sem oftast, ekki að losna
frá hringrás fæðingar og dauða.“
Hið rétta er að komast hjá því að
endurholdgast og markmiðið er að
losna frá hringrás fæðinga og
dauða. Þessi tiltekna kenning er
eins hjá guðspekingum, nýaldar-
hreyfingunni^ (NAM), hindúum og
búddistum. Utskýring Sr. Þórhalls
á karma er þannig: „Ekki er hægt
að þróast aftur, aðeins hið góða
karma hefur áhrif, ekki hið slæma.“
Hið rétta er að hið góða (eða sið-
ferðislega góð verk) hefur jákvæð
áhrif, rétt eins og slæm verk hafa
siðferðislega neikvæð áhrif. Þessi
tiltekna kenning er eins hjá guð-
spekingum, NAM, hindúum og
búddistum. Síðan í framhaldinu á
því útskýrir sr. Þórhallur það þann-
ig: „endurholdgun er góð“. Þegar
hann er sjálfur búinn að segja rétt
áður að endurholdgunin sé „nei-
kvætt fyrirbrigði“ hjá hindúum.
Hið rétta er að hún er neikvætt
fyrirbrigði hjá guðspekinni, NAM,
búddistum og hindúum. Það er talað
um að menn losni frá hringrás fæð-
ingar og dauða, og þannig hætti
að endurholdgast.
Eg vil síðan fá að taka það fram,
að þó þetta sé tekið úr gömlu kirkju-
riti (eða 2. hefti 59. árg. júní 1993),
þá hefur sr. Þórhallur notað einmitt
þessar sömu greinar sínar margar
hveijar hvað eftir annað og gefið
síðan fólki ljósrit á námskeiðum
sínum. Eitt er víst að sr. Þórhallur
hefur lært ýmislegt í Guðfræðideild-
inni í HÍ. hjá dr. Einari Sigurbjörns-
syni prófessor sem einmitt sýnir
þessa sömu ósiði, er hann fjallar
um önnur trúarbrögð. Dæmi um
ósannindi hans er að finna í Bjarma:
„Karma er verk, gott eða vont. Það
er ekki hægt að leggja neinn sið-
ferðislegan mælikvarða á karma,
því gott og vont er hluti blekkingar
tilverunnar og ef menn eru að gera
grillur um slíkt, eru þeir undir valdi
karma.“ Síðan hvenær þurfa menn
að fara með önnur eins ósannindi
gegn hindúisma og búddisma? Fá
menn borgað fyrir fara með önnur
eins ósannindi eins og að segja að
„gott og vont sé orðið hluti blekk-
ingar tilverunnar?“ Hjá hveijum
öðrum koma fram önnur eins ós-
annindi, en hjá dr. Einari er hann
segir: „Karma nefnist hið altæka,
hræðilega lögmál“ (Bjarmi 88. árg.
2. tbl. 1994)? í bókinni hans „Kirkj-
an játar“ er að finna skýr skilaboð
og þau eru: „Eigind austrænna trú-
arbragða er sú að vanmeta mannlíf-
ið og ætla það tilgangslausri blekk-
ingu, en sannleikurinn sé fólginn í
að flýja mannlífið." (Bls. 24). Það
kæmi mér ekki á óvart, þó að guð-
fræðiprófessorarnir létu áletra þessi
eigind hans dr. Einars í stórum
gullstöfum við innganginn í HÍ. og
við Guðfræðistofnunina. Stór hluti
Guðfræðideildar HÍ. og prestastétt-
in hefur ævinlega verið hrifin af
þessu, og sjálfsagt er hún þeim
kirkjunnar mönnum innilega þakk-
lát fyrir alla umfjöllunina, eða hvað?
Trúarlegt umburðarlyndi er
lítið sem ekkert í þjóðkirkjunni
Auðvita mun þjóðkirkjan svara
þessu þannig að aðrir trúaðir séu
að ásaka kirkjuna en ekki öfugt.
En getur þjóðkirkjan nokkuð látið
önnur trúfélög, samtök eða söfnuði
en kristinnar trúar í friði? Nei. En
hvernig er með Nýaldarsamtökin,
fá samtökin nokkuð að vera í friði
Nei. Hvað með búddista? Nei. Hvað
með jógastöðvar eða hindúatrúar-
menn? Nei. Hvað með íslamstrúar-
menn? Nei. Hvað með áhugamenn
í sálarrannsóknar-félögum og spí-
ritista? Nei. Hvað með Votta Jehóva
sem eiga það sameiginlegt með
þjóðkirkjunni að vera á móti öllum
öðrum trúarbrögðum? Nei. Áhuga-
menn margir hveijir í trúmálum eru
hissa á því að kirkjan skuli ekki
hafa farið í samstarf með Vottum
Jehóva gegn öllum öðrum trúar-
brögðum. Hver veit nema þjóðkirkj-
an eigi eftir að taka upp á því.
ÞORSTEINN SCH.
THORSTEINSSON,
formaður Samstarfsnefndar
trúfélaga fyrir heimsfriði,
Hörðalandi 6,108 Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.