Morgunblaðið - 12.06.1997, Síða 2

Morgunblaðið - 12.06.1997, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Sig. Fannar. LANDHELGISGÆSLAN gerir tundurduflið óvirkt um borð í Eyrúnu Ár í Þorlákshöfn. Eyrún ÁR-66 frá Þorlákshöfn fékk tundurdufl í trollið Jómfrúrferð skipstjórans Selfossi. Morgunblaðið. EYRÚN Ár-66 frá Þorlákshöfn voru um borð. Jón Ævarr Erlings- tundurdufl þá höfðum við strax fékk tundurdufl í trollið laust fyr- ir hádegi í gær. Eyrún var stödd 10 mílur fyrir sunnan Krísuvíkur- bjarg þegar duflið uppgötvaðist í trollinu. Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar voru kall- aðir til þegar skipið kom með duflið að landi og voru þeir búnir að gera það óvirkt laust eftir klukkan 17 í gær. í áhöfninni á Eyrúnu eru fjórir menn, sem allir son er skipstjóri á Eyrúnu en þetta var jómfrúrferð Jóns sem skipstjóra. „Þetta er alveg með ólikindum, fyrsta ferðin og ég fiska tundur- dufl úr hafinu," sagði Jón. Hann var að vonum talsvert órólegur þegar uppgötvaðist að um tundur- dufl var að ræða, en fyrst í stað héldu þeir að oliutunna væri i troll- inu. „Þegar við sáum að þetta var samband við landhelgisgæsluna, okkur var leiðbeint mjög vel og við sigldum með tundurduflið í land í Þorlákshöfn," sagði Jón. Jón Ævarr telur það hafa verið mikla mildi hversu skaplegt veðr- ið var. Siglingin frá Krísuvíkur- bjargi og í Þorlákshöfn tók rétt rúma tvo tíma. Ef vont hefði ver- ið i sjóinn þá hefði þeim sennilega ekki tekist að koma því að landi. Óljóst með sumarfrí hjá sáttasemjara Tuttugu og sjö mál óafgreidd ENN er 27 málum ólokið hjá ríkis- sáttasemjara. Fundir hafa staðið fram á nótt undanfarna daga, en þrátt fyrir það hefur dregist að ljúka samningum. Þórir Einarsson ríkis- sáttasemjari segir óljóst hvernig haldið verður á málum af hálfu embættisins í sumar, en nokkur erf- ið mál séu eftir sem óvíst sé hvort náist að klára fyrir mánaðamót. Bíldekk undan vörubíl DEKK undan vörubíl lenti framan á bíl, sem kom úr gagnstæðri átt á Vestfjarða- vegi við Tungudal í gærmorg- un. Engin slys urðu á fólki. Slysið varð skammt frá gangamunnanum í Tungudal þegar dekk losnaði undan vörubíl, sem þar var á ferð og hafnaði framan á bílaleigubíl með erlendum ferðamönnum. Bíll ferðamannanna varð óökufær en enginn slasaðist. Í gær voru á fundi samninga- nefndir flugfreyja, leikskólakenn- ara, póstmanna, símamanna, nátt- úrufræðinga, hárgreiðslumanna, ljósmæðra, múrara, kennara í Tækniskólanum, kennara í Kenn- araháskólanum og þroskaþjálfa. Flugfreyjur voru á sínum 31. fundi. Ekki náðist að klára neinn samning. Þórir sagði að hann myndi á næstunni ræða við samninganefnd ríkisins um hvernig hún vildi halda á málum næstu vikurnar. Hann sagðist gera sér vonir um að mörg mál kláruðust fyrir mánaðamót, en það væru nokkur mjög erfið mál eftir sem búast mætti við að tíma- frekt yrði að klára. Hann tiltók sér- staklega samninga við lögreglu- menn og bifreiðastjórafélagið Sleipni. Lagaskylda að boða fundi Samkvæmt lögum ber ríkissátta- semjara að kalla samninganefndir á fund á a.m.k. hálfs mánaðar fresti. Þórir sagðist telja að til að sinna þessari lagaskyldu væri óhjákvæmi- legt að hafa einhveija lágmarksvakt í Karphúsinu í sumar. Starfsmenn embættis ríkissáttasemjara hefðu hins vegar þörf fyrir að komast í sumarfrí eins og aðrir eftir erfiðan vetur. Siglinga- keppni frá Plymouth HINN 7. júní sl. hófst siglinga- keppni skútna milli Plymouth og Reykjavíkur. Að keppninni stendur einn virtasti og elsti siglingaklúbbur Bretlands, Hið konunglega sigl- ingafélag Vestur-Englands. Áætlað er að skúturnar komi að landi 17. júní nk. við golfvöllinn á Seltjarnar- nesi. Að sögn Jóns Skaptasonar hjá Siglingafélagi Reykjavíkur hefur undirbúningur að keppninni staðið í ár og var hann unninn í samvinnu siglingafélaganna tveggja, í Reykjavík og Plymouth, auk hafna- stjóra borganna. Keppendumir koma frá 4 þjóðlöndum og eru tveir menn í hverri áhöfn. „Þetta er tölu- verð þrekraun enda eru allir þessir keppendur þrautreyndir og gerð var krafa um að þetta væri ekki fyrsta sigling keppenda yfir opið haf,“ segir Jón. Framhald á ef vel tekst til Keppni nú kemur í stað siglinga- keppni á milli Plymouth og New- port á Rhode Island og ef vel tekst til mun henni vera framhaldið hér- lendis á tveggja ára fresti. Munu þá væntanlega íslenskir siglinga- menn verða meðal þátttakenda. Mörg hundruð félagsmenn munu vera í Hinu konunglega siglingafé- lagi og er Filippus drottningarmað- ur verndari félagsins. í Siglingafé- lagi Reykjavíkur eru um 200 manns. Athöfnin við komu skútnanna til Reykjavíkur mun verða með líkum hætti og þegar haldið var úr höfn í Plymouth. íslenski sendiherrann, Benedikt Ásgeirsson, var heiðurs- gestur þeirrar athafnar og mun breska sendiherranum verða sýndur sami heiður hérlendis. Keppendum verður síðan haldin veisla í Reykja- vík. Þeim sem vilja fylgjast nánar með keppninni er bent á heimasíðu Hins konunglega siglingafélags Vestur-Englands: http://pilgrims.com/rwyu/ iceland.html Laxyeiðum í sjó við ísland lokið UNDIRRITAÐ hefur verið sam- komulag sem markar endalok lax- veiða í sjó við ísland. Veiðar hafa verið stundaðar frá bæjunum Þurs- stöðum, Lambastöðum og Rauðanesi á Mýrum og Innra Hólmi og Kúiu- dalsá í Hvalfirði um langt árabil. Samtök áreigenda við Faxaflóa ásamt Norður-Atlantshafslaxasjóði Orra Vigfússonar hafa síðustu tvö árin unnið að því að kaupa upp lagn- ir umræddra jarða með þeim ár- angri að í fyrra voru veiðiréttindi Lambastaða leigð og Þursstaða keýpt upp og í vor voru réttindi Kúludalsár einnig keypt. Umræddir aðilar hafa nú samið við eigendur Innra Hólms og Rauðanesbæjanna um kaup á réttindum þeirra. Sam- kvæmt skrám Veiðimálastofnunar veiddust 3.515 laxar í sjávarnet við ísland í fyrra og liggur fyrir að nán- ast allur sá afli var í lagnir Innra Hólms og Kúludalsár. „Laxveiðum í sjó við strendur ís- lands er með þessu nánast lokið um ævarandi framtíð. Þetta eru metnað- arfullir samningar, því villti laxinn í Atlantshafi hefur átt í vök að veij- ast og nauðsynlegt er að bregðast við með viðeigandi aðgerðum. Allir þurfa að hagnast og fara ánægðir frá borði. Nú hafa netarétthafar rétt fram hjálparhönd og eðlilegt að aðrir geri hið sama. Laxinn hefur verið grundvöllur fyrir byggð víða í sveitum landsins og því er mikilvægt að tryggja afkomu þessara bænda með því að efla aðrar búgreinar á sömu stöðum," sagði Orri Vigfússon í samtali við blaðið í gærkvöldi, en hann og Jón Gíslason, formaður samtaka áreigenda við Faxaflóa og veiðifélags Laxár í Kjós, rituðu nöfn sín á samkomulagið ásamt ábúend- um jarðanna sem nefndar voru. Orri gat þess að árið 1983 hefði Alþingi samþykkt að fela ríkisstjórn- inni að gera ráðstafanir til að stöðva allar laxveiðar í sjó f Norður-Atlants- hafinu, en þrátt fyrir þverrandi laxa- stofna hefði ekkert verið aðhafst. „Því er ég þakklátur viðkomandi landeigendum og fyrir skörulega framgöngu Guðmundar Bjarnasonar landbúnaðarráðherra og starfs- manna ráðuneytisins. Ráðherra lagði alla tíð áherslu á að í flóknum hlunn- indamálum eins og þessum verði að ná árangri með ftjálsum samning- um. Þetta hefur nú tekist,“ bætti Orri við. Tímamótasamningar Orri bætti við að mjög væri litið til forystu íslands í sambandi við stjórnun fiskveiða, sérstaklega í sambandi við villta laxinn sem hér hefur haldist í jafnvægi á meðan stofnahrun heijar í nágrannalöndun- um. ísland sé að auki fyrsta landið þar sem villti laxinn heldur velli, sem hefur hreinsað upp alla sjávarveiði. Þeir samningar sem nú hafi verið gerðir marki því tímamót. Morgunblaðið/Ámi Sæberg 4,6 kíló- metra út- fallslögn RÁÐGERT er að draga útfalls- lögn frá Geldinganesi að Ána- naustum þar sem lögnin verður tengd við nýja holræsistöð Reykjavíkurborgar. Sjálf lögnin er mikið mannvirki, alls um 4,6 km á lengd. Unnið var að því í gær að selja á lögnina steyptar sökkur. Rörin eru hol að innan og ffjóta því meðan þau eru dregin að Ananaustum en þegar þangað er komið og búið verður að stilla þau af verður sjó hleypt í þau svo þau sökkvi. Annars vegar er um að ræða yfirfallslögn sem nær 500 metra út frá holræsisstöðinni en að- alútrásin nær 4,1 km út frá stöð- inni. Lögnin liggur á 15-20 metra dýpi en fer niður á 40 metra dýpi þar sem hún liggur lengst frá landi. 500 metra ein- ingum verður sökkt í einu og kafarar bolta þær saman niðri á hafsbotni. Verkinu á að vera lokið í september. H 6 m I I I C I < c < ( ( I I ' I J f.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.