Morgunblaðið - 12.06.1997, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Jim Smart
ANNA Guðlaugsdóttir, Menntaskólanum við Hamrahlíð, Eyþóra
Hjartardóttir, Verslunarskóla íslands, og ísafold Helgadóttir,
Menntaskólanum á Akureyri, með verðlaun sín.
Yerðlaunaferð
til Danmerkur
VERÐLAUN í ritgerðasam-
keppni danska sendiráðsins í
samvinnu við danska mennta-
málaráðuneytið og Félag dönsku-
kennara voru veitt í sendiráðinu
á mánudag. Fyrstu verðlaun, ferð
til Danmerkur fyrir tvo, hlaut
Anna Guðlaugsdóttir, nemandi í
Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Ritgerð Önnu fjallaði um rit-
höfundinn Karen Blixen og sögu
hennar, Gestaboð Babettu. Að
sögn Klaus Otto Kappels, sendi-
herra Dana á íslandi, var síður
en svo auðvelt að gera upp á
milli bestu ritgerðanna, en auk
fyrstu verðlaunanna voru veitt
fern bókaverðlaun. Bókaverð-
launin hlutu þær Eyþóra Hjartar-
dóttir, Isafold Helgadóttir, Eva
Jósteinsdóttir og Arna Eyja Ed-
mundsdóttir. Tvær þær síðast-
nefndu komust ekki til að taka
við verðlaununum en munu fá
þau send.
Anna var að vonum ánægð með
árangurinn og kvaðst þegar vera
farin að skipuleggja Danmerkur-
ferðina. Hún ætlar að bjóða kær-
astanum sínum með sér og hyggj-
ast þau dvelja í Kaupmannahöfn
i hálfan mánuð í ágúst. Hún er
raunar ekki með öllu ókunnug
höfuðborg Dana, en hún átti þar
heima í tvö ár þegar hún var
átta til tíu ára gömul.
EIGMMJÐIXMIV
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali, sölustjóri.
m
Sími 588 9000 * Fax 588 9095 • Síðimuila 2 I
Skrifstofuhúsnæði óskast
1500 - 2500 fm - staðgreiðsla
Traust fyrirtæki vantar 1500-2500 fm atvinnuhúsnæði
aðallega fyrir skrifstofur og afgreiðslu. Mest áhersla er lögð
á skrifstofur en verslunaraðstaða á jarðhæð væri æskileg
(ekki nauðsynleg). Heil húseign æskileg en hluti úr stærri
byggingu kemur vel til greina.
Svæði: Múlahverfi, Skeifan, gamli borgarhlutinn.
Staðgreiðsla - ein ávísun - í boði fyrir rétta eign.
Allar nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson.
Bárugata - hæð + ris
Tvær samþ. íbúðir
í þessu glæsilega húsi á
frábærum stað í gamla vestur-
bænum er til sölu falleg íbúð á
2. hæð, 105 fm, 5 herb.
Verð 9,2 millj. Og einnig lítil 4ra
herb. rishæð. Verð 5,5 millj.
Seljast saman eða hvor í sínu
lagi.
I suðurhlíðum Esju
30 mín. frá Reykjavík
Mjög góður ca 50 fm sumar-
bústaður ásamt geymsluhúsi á
friðsælum stað í nágrenni
Reykjavikur. Verð 2,5 millj. Gott
kr. 1 millj. kr. lífeyrissjóðslán
getur fylgt. Skipti mögul. á bíl.
Flyðrugrandi -130 fm
Falleg endaíb. á 3. hæð (efstu) í nýl. fjölbýli á eftirsóttum stað.
Tvennar svalir, þar af 30 fm í suðvestur. Stór stofa, 3 svefnherb.
Sauna í sameign. Verð aðeins 9,7 millj.
Valhöll fasteignasala, Mörkin 3, sími 588 4477.
Undirbúningi að byggingu tónlistarhúss haldið áfram
Hægt verður að taka
ákvörðun fyrir árslok
STEFÁN P. Eggertsson, formaður
nefndar um tónlistarhús, telur að
allar upplýsingar um byggingu og
rekstur tónlistarhúss liggi fyrir síðar
á þessu ári og þess vegna eigi að
vera hægt að taka ákvörðun í málinu
fyrir árslok. Ákvörðunin sé hins veg-
ar pólitísk og hún verði ekki tekin
nema Alþingi og Reykjavíkurborg
fallist á að leggja fram fjármagn til
málsins.
Eins og kom fram í Morgunblað-
inu í gær leggur nefnd um tónlistar-
hús fram þrjá kosti varðandi stað-
setningu tónlistarhúss, Öskjuhlíð,
við Hótel Sögu og í Laugardal þar
sem Samtök um tónlistarhús hafa
átt lóð frá árinu 1985. í skýrslunni
er lýst áhuga á að kannaðar verði
til hlítar hugmyndir um að staðsetja
tónlistarhús í tengslum við ráð-
stefnumiðstöð, annaðhvort við Hótel
Sögu eða neðanjarðar í Öskjuhlíð í
tengslum við Perluna.
Áhugi á tengingu við
ráðstefnumiðstöð
í skýrslunni segir um staðsetning-
una: „Ef tenging tónlistarhúss við
Perluna eða Hótel Sögu reynist ekki
góður kostur þá telur nefndin að
heppilegast sé að reisa húsið í Laug-
ardal þar sem Reykjavíkurborg hef-
ur lagt Samtökum um tónlistarhús
til lóð.“
Stefán var spurður hvort túlka
bæri þetta með þeim hætti að nefnd-
in vildi fremur byggja í Öskjuhlíð
eða við Hótel Sögu en í Laugardal.
„Þessi hugmynd um að tengja
húsið við ráðstefnuaðstöðu getur
orðið ráðandi um staðarvalið. En það
er alls ekki svo að við teljum lóðina
inn í Laugardal ekki vera heppilega.
Það er eingöngu þessar nýju hug-
myndir sem hafa komið fram frá
Hótel Sögu og Reykjavíkurborg um
að tengja þetta við byggingar sem
eru til staðar sem valda því að við
viljum skoða fleiri kosti.“
Samtök um tónlistarhús 'fengu
úthlutað lóð í Laugardal 1985. Hald-
in var samkeppni miili arkitekta um
teikningar árið 1986 og var tillaga
Guðmundar Jónssonar arkitekts val-
in. Hann lauk við að fullhanna upp-
drætti 1988, en síðan hefur málið
legið niðri. 1992 var sett fram hug-
mynd um tónlistarhús við Ingólfs-
garð án þess að málið væri unnið
frekar.
Húsið minnkað
Stefán sagði að ef ákvörðun yrði
tekin um að reisa tónlistarhús í
tengslum við ráðstefnumiðstöð yrði
hönnun hússins að taka eitthvert
mið af því. Nefndin legði einnig til
að byggt yrði heldur minna hús en
upphaflegar hugmyndir gerðu ráð
fyrir. Einnig þyrfti að endurskoða
fyrri hugmyndir um að hafa leik-
sviðsaðstöðu í húsinu, en nefndin
mælir með að þeim verði hafnað.
Stefán sagðist hafa skilið hug-
myndir forsvarsmanna Hótels Sögu
um byggingu tónlistarhúss við Suð-
urgötu á þann veg að þeir vildu
byggja ráðstefnumiðstöð í tengslum
við hótelið og tónlistarhúsið, en jafn-
framt hefðu þeir opnað á þann
möguleika að hótelið legði fram fjár-
muni til byggingar tónlistarhúss.
Ekkert hefði hins vegar verið rætt
við forsvarsmenn Háskóla Islands
enn sem komið væri, en skólinn á
lóðina.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Skemmdir á
raðhúsi
MIKLAR skemmdir urðu af völdum
reyks og elds á raðhúsi við Dalsel
um miðjan dag í gær en þar kom
upp eldur í kjallara.
Kallað var á slökkviliðið eftir að
nágrannar urðu reyks varir. Var í
fyrstu óttast að fólk væri í húsinu
en svo reyndist ekki vera. Sam-
kvæmt upplýsingum frá slökkvilið-
inu var gríðarlegur reykur í húsinu
þegar að var komið og erfitt að
greina hvar upptök eldsins væru.
Farið var inn í húsið á jarðhæð
en við eftirgrennslan kom í ljós að
eldurinn kom úr kjailara. Slökkvi-
starf gekk greiðlega og ekki urðu
skemmdir á næstu húsum. Eldsupp-
tök eru ókunn.
Breytingar
á varðskipum Land-
helgisgæslunnar
Pólska
tilboðinu
tekið
LANDHELGISGÆSLAN tók tilboði
pólskrar skipasmíðastöðvar í útboði
gæslunnar á breytingum á tveimur
af varðskipum sínum. Að sögn Haf-
steins Hafsteinssonar forstjóra
Landhelgisgæslunnar var tilboð
pólsku stöðvarinnar langlægst og
þrátt fyrir kostnað í sambandi við
flutning á skipi og mannskap út til
Póllands þá hafi pólska stöðin verið
langt undir íslensku tilboðunum.
„Tilboð pólsku stöðvarinnar
hljómaði upp á 12.992 þúsund krón-
ur fyrir annað skipið en fyrir hitt
skipið var tilboðið 14.780 þúsund
krónur. Þegar flutningskostnaður
hefur verið lagður ofan á þessi tilboð
hækkar lægri talan upp í 17.476
þúsund krónur og hin upp í 19.590
þúsund krónur. Lægsta íslenska til-
boðið hljómaði hins vegar upp á
21.130 þúsund og 23.600 þúsund
krónur," segir Hafsteinn.
Annað skipið sem um ræðir er
nú þegar haldið utan til viðgerðar
en ráðgert er að gera við möstrin á
báðum skipunum og loka göngum
að aftan undir skutnum.
Andlát
HERMANN RAGNAR
STEFÁNSSON
HERMANN Ragnar
Stefánsson, danskenn-
ari og dagskrárgerðar-
maður, lést á Landspít-
alanum 10. júní sl., 69
ára að aldri.
Hermann fæddist
11.7. 1927 í Reykjavík,
sonur Rannveigar Ól-
afsdóttur og Stefáns
Sveinssonar, kennara
og verkstjóra á Neðri-
Rauðalæk á Þelamörk í
Eyjafjarðarsýslu. Her-
mann lauk gagnfræða-
prófi frá Gagnfræða-
skóla Reykjavíkur árið
1945 og danskennaraprófi frá Inst-
itut Carlsen í Kaupmannahöfn árið
1958. Hann lauk við gráðu í félags-
ráðgjöf frá Chicago háskóla í
Bandaríkjunum árið 1962, dans-
námi og gráðu í dansi frá Arthur
Murrey Dancestudio í Chicago árið
1964 auk þess sem hann stundaði
nám í Svíþjóð og við háskólana í
Leicester og í Sheffield í Englandi.
Hermann starfaði á endurskoð-
unarskrifstofu Björns Stefánssonar
og Ara Thorlacius á árunum 1946-
1953 og starfaði sem skrifstofumað-
ur í Keflavík á vegum Hins íslenska
steinolíufélags frá 1953-1957.
Hann var danskennari og stjórnandi
Dansskóla Hermanns
Ragnars frá 1958 til
æviloka.
Hermann hafði um-
sjón með Stundinni
okkar fyrir RÚV-Sjón-
varp frá 1973-1977,
var forstöðumaður Bú-
staða á vegum æsku-
lýðsráðs Reykjavíkur-
borgar frá 1976-1985
og starfaði sem skáti í
' Væringjum frá 1937 og
í Skátafélagi Reykja-
víkur frá sama tíma til
ársins 1957. Hermann
stofnaði Bræðrafélag
Bústaðasóknar 1964 og var fyrsti
formaður þess og hann var einn af
stofnendum og varaformaður
Styrktarfélags krabbameinssjúkl-
inga og aðstandenda þeirra árið
1986. Hann sá einnig um útvarps-
þáttinn Ég man þá tíð frá árinu
1982, og um þættina Dansrásin á
rás 2 og Saumastofugleði á rás 1
frá 1989.
Hermann varð heiðursfélagi
Danskennarasambands íslands á 25
ára afmæli þess árið 1989.
Eftirlifandi eiginkona Hermanns
er Unnur Arngrímsdóttir. Börn
þeirra eru Henny, Arngrímur og
Bjöm.