Morgunblaðið - 12.06.1997, Page 14

Morgunblaðið - 12.06.1997, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ LAIMDIÐ Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson FULLTRÚAR Kvenfélags Landakirkju ásamt fulltrúum Sjúkrahúss Vestmannaeyja er Kvenfélags- konurnar afhentu Sjúkrahúsinu tækin að gjöf. Vestmannaeyjum - Kvenfélag Landakirkju færði Sjúkrahúsi Vestmannaeyja tæki að gjöf fyr- ir skömmu en á síðustu tveimur árum hefur Kvenfélagið gefið Sjúkrahúsinu tæki og búnað að verðmæti 2,6 milljónir króna. María Gunnarsdóttir, formaður Kvenfélags Landakirkju, af- henti gjöfina fyrir hönd félags- ins en Björn í. Karlsson, yfir- læknir skurðdeildar, tók við gjöfinni fyrir hönd Sjúkrahúss- ins. María sagði í stuttu ávarpi sem hún hélt við afhendinguna að á síðustu fimm árum hefði félagið gefið Sjúkrahúsinu tæki Sjúkrahús- inu í Eyjum berast gjafir og búnað fyrir um fimm milljón- ir króna. Björn tók við gjöfunum og þakkaði Kvenfélaginu fyrir og sagði að Sjúkrahúsið væri illa sett ef það hefði ekki notið velvildar líknarfélaga í Vest- mannaeyjum sem hafa verið ötul við að gefa Sjúkrahúsinu ýmis- konar tæki og búnað. Búnaður sá sem Kvenfélagið gaf nú samanstendur af bækl- unarlækningatæki, sem er notað við meðhöndlun erfiðra bein- brota, lokunarvél og hliðar- plötu, sem notuð er til að loka umbúðum með sótthreinsuðum áhöldum, baðsegli, sem er til hagræðingar við að koma sjúkl- ingi, sem á erfitt með að hreyfa sig, í bað. Björn í. Karlsson, sagði að þessi tæki sem afhent hefðu verið ættu eftir að koma sér vel og væru góð viðbót við þann búnað sem fyrir væri á sjúkra- húsinu. Rótarýmenn gróð- ursetja í Þórsmörk Hvolsvelli - Félagar í Rótarý- klúbbi Rangæinga fóru á dögun- um í árlega gróðursetningaferð í Þórsmörk. Þar hafa þeir gróður- sett ásamt fjölskyldum sinum á hveiju vori í 8 ár. Þetta vorið var í þriðja sinn gróðursett í tilraunareit á svo- kölluðum Rana. Þar er gróður- sett í grastoppa eftir sáningu. Hefur þetta tekist vel og að sögn Sveins Runólfssonar, land- græðslustjóra, sem stjórnað hef- ur gróðursetningu, litu 2 ára plöntur mjög vel út í vor. Margir sjálfboðaliðar hafa gróðursett í Þórsmörk undanfarin ár og hefur gróðurfar þar tekið miklum stakkaskiptum síðan friðað var þar fyrir búfé. Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir Heitt vatn finnst í miðju þorpinu á Drangsnesi Nýtt hótel risið á Hallormsstað NÝTT hótel á Hallormsstað var tek- ið í notkun í síðustu viku en það var reist á liðnum vetri. Hótelið byggir eignarhaldsfélagið Hallormur og er það áttunda Fosshótelið. Fram- kvæmdastjóri þeirra er Ólafur Þor- geirsson en hótelstjóri á Hallorms- stað er Sigríður Sigmundsdóttir. Framkvæmdir við bygginguna hófust í lok nóvember og var tekið á móti fyrstu gestunum fimmta júní. Hótelið er á tveimur hæðum, með 21 tveggja manna herbergjum, setustofu og aðstöðu til eldunar fyrir þá sem þess óska. Hótelið er rekið í tengslum við sumarhótelið á Hallormsstað en nú í vor var samið um rekstur þess við Fosshótel til næstu sjö ára. Ólafur Þorgeirsson segir hótelið byggt á sömu hugmynd og viðbygg- ing Hótels Mosfells á Hellu sem teiknistofan Arkform teiknaði en skipulag innréttinga sá Hildigunnur Johnson um. Hefur hún einnig séð um hönnun á öllu innra skipulagi annarra Fosshótela. En er þörf fyr- ir nýtt hótel á þessu svæði? „Við teljum svo vera,“ segja þau Sigríður og Ólafur. „Ýmsir ferða- hópar hafa þegar bókað vel í allt sumar og síðan er talsvert mikið um einstaklinga sem hafa hér við- dvöl. Að vetrinum verður starfsemi hér í lágmarki en hægt að taka á móti ráðstefnum eða einstökum hópum sem fá veitingaþjónustu í skólahúsinu eða sjá um sig sjálfir í nýja hótelinu og fá aðstöðu fyrir fundahöld í skólanum en forráða- menn hans eru mjög liðlegir í að hliðra til ef svo ber undir.“ Að eignarhaldsfélaginu Hallormi standa auk Fosshótela þrír hreppar á svæðinu, Byggðastofnun, Lífeyr- issjóður Austurlands og Búnaðarfé- lagið. Önnur Fosshótel eru í Reykja- vík Hótel Lind, og City Hótel, An- ing á Sauðárkróki og Varmahlíð, Harpa á Akureyri og í Kjarnaskógi og á næsta ári bætist Bifröst í hóp- inn. NÝJA hótelið að Hallormsstað var reist á aðeins sjö mánuðum og var opnað í byijun mánaðarins. Morgunblaðið/Jenný Jensdóttir ÓSKAR Torfason, vatnsveitustjóri, mælir hitann í borholunni. Drangsnesi - Það er óhætt að segja að Drangsnesingar hafi al- deilis dottið í lukkupottinn eða eigum við að segja heita pottinn, því heita vatnið er komið og það í miðju þorpinu. 13 sekúndulítrar af 60 stiga heitu vatni úr rann- sóknarholu er meira en bjartsýn- ustu menn þorðu að vona. Undanfarna daga hefur jarð- bor Ræktunarsambands Flóa og Skeiða verið á Drangsnesi. Rann- sóknasvæðið er á tveggja km kafla meðfram sjónum frá Bása- brekku og út að Malarhorninu. Hafa verið boraðar 7 rannsókn- arholur 50 metra djúpar og áttu niðurstöður þeirra borana að gefa til kynna hvar staðsetja skyldi vinnsluholu. Niðurstöður úr þessum borunum lofuðu góðu og var ákveðið að dýpka heitustu holuna í 100 metra til að betri Krakkarn- ir vilja sundlaug strax upplýsingar lægju fyrir til frek- ari ákvarðanatöku. Þessi tilraunahola gaf aldeilis góða raun því á 100 metra dýpi fossuðu u.þ.b. 60 sekúndulítrar af 40 stiga heitu vatni upp úr borholunni sem er í vegkantinum fyrir framan Bræðraborgina sem kölluð er. Því var ákveðið að fara enn lengra og var haldið áfram í 130 metra dýpt. Lengra var ekki farið því fleiri borstangir voru ekki á svæðinu en það gerir kannski ekkert til því úr þessari rannsóknarholu streyma nú 13 sekúndulítrar af 60 stiga heitu vatni. Nægjanlegt vatn til að hita a.m.k. 90 hús. Vel ríflegt fyrir núverandi byggð á Drangsnesi. Hvað framhaldið verður er ekki ákveðið. Guðmundur B. Magnússon, oddviti Kaldrananes- hrepps, sagði að ekki væri tíma- bært að gefa neitt út um það að svo stöddu, fyrst þyrftu menn að komast niður á jörðina aftur. En skólinn er ekki nema í 40 metra fjarlægð frá borholunni og ekki ólíklegt að fyrst af öllu verði hann tengdur heita vatninu. En unga kynslóðin er ekki í vafa um forgangsröðunina. Þau vilja sundiaug og það strax.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.