Morgunblaðið - 12.06.1997, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FT
URVERINU
Markaðssetning vistvænna sjávarafurða
„Verðum að
sýna frumkvæði“
ISLENDINGAR eiga að sýna frum-
kvæði í markaðssetnigu á vistvæn-
um sjávarafurðum. Þetta er skoðun
Eyjólfs Guðmundssonar, doktors-
nema í auðlindahagfræði við háskól-
ann í Rhode Island í Bandaríkjunum.
Hann fjallaði um ný fiskveiðistjórn-
unarlög í Bandaríkjun og áhrif um-
hverfisverndarsamtaka á fiskveiði-
stjórnun þar í iandi á málþingi sem
Sjávarútvegsstofnun Háskóla ís-
lands gekkst fyrir í gær.
Eyjólfur segir nýju fiskveiðilög-
gjöfina í Bandaríkjunum vera al-
menna hreyfíngu í átt til uppbygg-
ingar og verndunar fískistofna.
Þannig verði ekki lengur reynt að
ná sem hagkvæmastri nýtingu út
úr fiskveiðistjórnunarkerfinu, heldur
verði litið á fiskveiðar sem nokkurs-
konar hliðarafurð. „Þá er einnig við-
urkennt í lögunum að ýmsir þættir
í uppbyggingu á strandsvæðum hafa
áhrif á vistkerfí sjávar og þannig
verði framleiðslugeta sjávarins
minni. Það þýðir að jafnvel þó
Bandaríkjamönnum takist að kom-
ast upp úr þeirri dýfu sem þeir eru
í núna, þá mun þessi löggjöf koma
í veg fyrir það að þeir nái sama
afrakstri fiskistofnanna og áður.
Ennfremur eru í lögunum ákvæði
um brottkast afla. Samkvæmt nú-
verandi fiskveiðistjómun, í til dæmis
Beringshafi, er brottkast hluti af
kerfinu, mönnum er heimilt að henda
verðminni fisktegundum, í ákeðnum
magni. í lögunum er gert ráð fyrir
að brottkast verði minnkað til muna
og fínna verði leiðir til að nýta þann
afla sem annars væri hent,“ segir
Eyjólfur.
Hann segir að hinsvegar eigi eftir
að koma í ljós hvort framkvæmd
iaganna verði í samræmi við það sem
til sé ætlast. Fiskveiðunum sé nú
stjórnað af átta fiskveiðiráðum eftir
svæðum, sem hafi tiltölulega fijálsar
hendur með það hvernig þau stjórna
veiðunum, að þau gefnu að þau fylgi
eftir þeirri almennu stefnu sem finna
má í Iögunum."
Áhrif umhverfissamtaka mikil
Morgunblaðið/Arnaldur
EYJÓLFUR Guðmundsson, doktorsnemi í auðlindahagfræði.
Eyjólfur segir hlut umhverfís-
verndarsamtaka við gerð nýju lag-
anna hafa verið mjög mikinn.
Bandaríkjamenn hafi hinsvegar ekki
þurft að gefa mikið eftir, því í þess-
um iðnaði hafi verið mikið tómarúm.
„Iðnaðurinn var illa skipulagður og
ekki tilbúinn til að beijast sameigin-
lega fyrir ákveðnum málefnum. Ein-
stök umhverfisverndarsamtök höfðu
reynt að eiga við einstök fiskveiði-
ráð, meira að segja með lögsókn,
en með takmörkuðum árangri. Um-
hverfissamtökin sáu því fram á að
til þess að hafa áhrif þurftu þau að
hafa áhrif á löggjöfina sem síðan
hefur áhrif á ráðin. Þau komu sér
saman um að stofna með sér samtök
sem voru í upphafi samtök fimm
stærstu umhverfissamtakanna.
Undir Iokin voru þessi samtök í for-
svari fyrir um 100 samtök, m.a.
fiskimanna, sportveiðimanna og
samtaka eiginkvenna fískimanna.
Þessi samtök voru því orðin mjög
sterk og virkuðu sem afl sem sýndi
þingmönnum fram á að hér var á
ferðinni málefni sem kjósendur
höfðu áhyggjur af. Þetta ferli tók
tæp fjögur ár og löggjöfin breyttist
talsvert á leiðinni. En umhverfissinn-
ar eru yfir höfuð nokkuð sáttir við
lyktir mála og telja sig hafa náð
fram þeim markmiðum sem þeir
settu fram í upphafi. í Iöggjöfinni
er ofveiði skilgreind mjög nákvæm-
lega, í henni var komið heilmild fyr-
ir viðskiptaráðherra til að grípa
meira inn í þessi mál en honum var
áður heimilt.“
Grípa þarf til aðgerða strax
FASTEIGfJ ER FRAMTIÐ
FASTEIGNA
Sudurlandsbraut 12, 108 Reykjavík,
fax 568 7072
S/M/ 568 77 68
MIÐLUN
Sverrir Kristjansson
lögg. fasteignasali II
Þór Þorgeirsson, söium. Kristín Benediktsdóttir, ritari.
Vesturbær - einbýli Sögufrægt stórt einbýlishús ásamt 27 fm
bílskúr á frábærum stað í gamla vesturbænum. Teikningar á skrifstofu.
Upplýsingar eingöngu á skrifstofu.
Glaðheimar Glæsileg 5 herb. 134 fm íbúð á 2. hæð í fjórbýlishúsi
ásamt 28 fm bílskúr. Glæsilegt eldhús og bað. Sólstofa útaf stofu. Merbau
parket. Þvottaherb. í íb. Útsýni. Áhv. 5,0 millj. húsbréf.
Ljósheimar - lyftuhús Góð 3ja herb. 80 fm íbúð á 6. hæð í
lyftuhúsi. íbúðin er stofa með vestursvölum og miklu útsýni. 2 rúmgóð
herbergi. Flísalagt bað. Parket. Hús nýviðgert og klætt að utan. Áhv. 3,3
millj. Verð 6,9 millj.
Orrahólar - lyftuhús 3ja herb. 88 fm íbúð á 3. hæð f lyftuhúsi.
íb. er stofa með suðursvölum og góðu útsýni. 2 góð herb. Húsvörður.
Gervihnattadiskur. Verð 6,5 millj.
Faxafen - atvinnuhúsnæði I einkasölu ca 1500 fm
verslunarhúsnæði á þessum frábæra stað. Til greina kemur að selja
eignina í hlutum. Áhv. góð lán. Til greina kemur að taka minni eign
uppí.
Eyjólfur segir því ijóst að um-
hverfisverndarsamtök hafi haft mik-
il áhrif á hvernig fiskveiðistefna
Bandaríkjanna þróaðist. íslendingar
ættu að geta séð í löggjöfinni hvað
það sé sem þessi samtök sækist eft-
ir. „íslendingar ættu að geta séð
hvort einhverskonar samstarf við
slík samtök er eitthvað sem þeir vilja.
Löggjöfin sem slík kemur ekki til
með að hafa bein áhrif á íslenskan
sjávarútveg en hins vegar getum við
notfært okkur hana til þess að und-
irbúa okkur undir framtíðina. Þá er
ég að tala um næstu fimm ár. Við
þurfum að vera í stakk búin til að
ná tengslum við hina almennu neyt-
endur sjávarafurða sem gera kröfur
um að varan sé umhverfisvæn. Þó
að fiskveiðar íslendinga séu að
mörgu leyti umhverfisvænar er neyt-
endum ekki vel kunnug sú stað-
reynd. Við verðum því að koma þess-
um upplýsingum á framfæri. En
hvernig, hveiju viljum við kosta?
Ætlum við að gera það einir eða í
samvinu við umhverfisverndarsam-
tök? Hveiju viljum við þá fóma í
staðin? Hvað skilyrði verða okkur
sett? Greenpeace er til dæmis leynt
og ljóst á móti frystitogurum. Til
þess gæti komið að við þyrftum að
fórna hvalveiðum endanlega ef við
ætluðum að ganga til samstarfs við
umhverfisverndarsamtök. Annað
eru deilur okkar við Norðmenn. Upp
gæti komið sú krafa að við þyrftum
að gefa eftir í þeim deilum til að
komast inn í slíkt samstarf. Þessum
spurninum er öllum ósvarað og í
raun geta umhverfísverndarsamtök
ekki svarað þessum spurningum í
dag. Þess vegna er það mín skoðun
að við þurfum að sýna ákveðið frum-
kvæði í þessum málum, hvort sem
það felst í að við kynnum sjálf okk-
ar vörur sem vistvænar eða göngum
til samstarfs við aðra aðila um slíkt.
Það er fyrst og fremst stjórnvalda
að ákveða hvaða aðferðum verður
beitt. Ef við bíðum of lengi getur
verið að við verðum að taka því sem
að okkur er rétt í þessum málum.
Ég tel því að við þurfum að taka
fljótt og vel á þessum málum, en
um leið gera okkur grein fyrir því
að það kostar peninga," segir Eyjólf-
ur.
IMEYTENDUR
Afurðamarkaður Suðurlands
18 útstöðvar
Vörutegund Lágmarks verð Hámarks verð
Svínalæri 331 331
Svínahryggur 568 , 568
Svínahnakki ; / 322 M 322
Svínasíða ‘j(</// 203 . 205
Svínasxankar 00 o 60
Svínalundir 927 927
Kálfalæri UK3 278 278
Afurðamarkaður Suðurlands
Flein vöruteg-
undir bætast við
í LOK síðasta árs hóf Afurðamark-
aður Suðurlands starfsemi sína í
samstarfi við íslandsmarkað. Viku-
lega síðan hafa verið haldin uppboð
á kjötvörum, og ýmsu grænmeti
um klukkan 15 á þriðjudögúm.
Uppboðið fer fram hjá 18 útstöðv-
um víðsvegar um landið. Von er á
nýjum útstöðvum í næstu framtíð
en núna eru þær t.d. í Reykjavík,
Hafnarfirði, Breiðafirði, Vest-
mannaeyjum, á Þorlákshöfn, Húsa-
vík, Dalvík og Selfossi.
Að sögn Jónasar Jónassonar
framkvæmdastjóra Afurðamarkað-
ar Suðurlands bætast sífellt nýjar
vörutegundir við en kjötvörur eru
aðalsöluvaran. „Mesta salan er í
svínakjöti en grænmeti, eins og
kartöflur, hefur verið tregt í sölu
fram til þessa,“ segir hann. Undan-
farið hefur sala verið þónokkur í
nauta- og lambakjöti.
- Hveijir eru það sem kaupa hjá
ykkur?
„Það eru aðallega verslanir af
höfuðborgarsvæðinu svo og af
landsbyggðinni, veitingastaðir og
Þess má geta að framvegis
á fimmtudögum birtist á
neytendasíðu tafla yfir
þær afurðir sem boðnar
voru upp síðastliðinn
þriðjudag á Afurðamark-
aðnum. Fyrsta taflan birt-
ist í dag.
Fræðslubæklingur um
Nivea sólarvörur
J.S. HELGASON ehf. hefur gefið
út fræðslubækling sem heitir Nivea
sólarvörur - spurningar og svör. í
fréttatilkynningu frá fyrirtækinu
J.S. Helgason segir að í bæklingn-
um sé leitast við að svara spurning-
um neytenda um sólarvörur eins
og hvernig eigi að velja rétta sólar-
vörn, hvemig eigi að nota hana og
svo framvegis. Bæklingurinn er
gefinn út á öllum Norðurlöndum.
Hægt er að nálgast bæklinginn í
þeim verslunum þar sem Nivea sól-
arvörur fást.
Þá hafa tvær nýjungar bæst við
sólarvörur Nivea. Fáanleg er nú
sérstök vörn fyrir börn en sólarvör-
ur fyrir börn eru vatnshrindandi og
því geta þau leikið sér í vatni án
þess að sólarvörnin fari af. Þá hef-
ur ný sólarvörn fyrir andlit bæst í
hópinn en hún er rík af E-vítamín-
um og á að vinna gegn ótímabærri
öldrun húðarinnar.
♦ ♦ ♦
Ný húð-
hreinsilína
Miðborgin - Laust
Til leigu er ca 80-90 fm húsnæöi á 2. hæð í bakhúsinu á
Laugavegi 1. Hentugt t.d. fyrir arkitekta, verkfræðinga,
auglýsingafólk eða smávöruheildsölu. Laust strax.
Nánari upplýsingar milli kl. 10 og 17.
Fasteignasala íslands,
sími 588 5060.
SNYRTIVÖRUFYRIRTÆKIÐ
Christian Dior hefur sent frá sér
nýja húðhreinsilínu. Um er að ræða
hreinsikrem fyrir feita húð, hreinsi-
gel, andlitsvatn og maska auk and-
litsvatns fyrir þurra húð sem inni-
heMur ekki alkóhól.
í fréttatilkynningu frá David Pitt
ehf. kemur fram að uppistaðan í
hreinsilínunni séu laukar hvítu lilj-
unnar sem hafi græðandi og hreins-
andi eiginleika. Þá hafa verið unnar
náttúrulegar amínósýrur úr gras-
kersfræjum.
í
kjötvinnslur."
- Eruð þið að bjóða lægra verð en
tíðkast?
„Fyrirtækin sem eru að selja
vöru sína stjórna auðvitað lág-
marksverði. Skilyrði fyrir kaupanda
til að komast að uppboðsmarkaðn-
um er að hann komi með banka-
ábyrgð og við teljum að með því
að greiðsla er tryggð með þeim
hætti geti seljendur lækkað vöru
sína nokkuð frá því sem almennt
gengur og gerist. Kaupandinn getur
með þessu móti keypt fleiri en eina
vörutegund á sama stað og á góðu
verði. Við teljum því að við séum
fullkomlega samkeppnisfærir.“
i
te
I
fc
I
I
*
i
t
i
i
»
»
i
í