Morgunblaðið - 12.06.1997, Page 22

Morgunblaðið - 12.06.1997, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Offramboð veldur hruni á endurvinnslumörkuðum Sydney. Reuter ENDURVINNSLA á úrgangi er orðin það mikil í hinum vestræna heimi að myndast hafa heilu fjöll- in af óseldum úrgangi og markað- urinn fyrir notaðan pappír og flöskur hefur hrunið. Verðlækkunin hefur verið slík að svo gæti farið að Astralar neyddust til að borga Indónesum fyrir að taka á móti rusli. Verðið á endurunnum plastflöskum hef- ur lækkað úr 700 dollurum (tæp- um 50 þúsund krónum) tonnið í lok síðasta árs niður í 200 doll- ara (um 14 þúsund krónur) nú. Verð á endurunnum pappír náði hámarki 1995 og var þá 200 dollarar tonnið, en er nú milli 70 og 80 dollarar (milli fimm þúsund og tæplega sex þúsund króna). Borga með pappírnum Rob Campbell, stjórnandi sam- vinnufélags stjómvalda í Sydney um endurvinnslu, undirritaði fyrir skömmu samning við Indónesíu um útflutning á sex þúsund tonn- um af pappír. Hann sagði verðið það lágt að félagið hygðist hætta útflutningi. Ástralar flytja venjulega út um 130 þúsund tonn af notuðum pappír að andvirði 13 milljóna dollara (rúmlega 900 milljóna króna) fyrir um 75 dollara tonnið. Nýjasta samningi Ástrala, sem gerður var við Indónesa, fylgdu hins vegar ýmsar sporslur þannig að þegar upp er staðið borga Ástralar fimm dollara (um 350 krónur) með hveiju tonni, að sögn Tonys Notts, framkvæmdastjóra útflutnings og viðskipta hjá fyrir- tækinu Australian Paper. „Fólk vill endurvinna þannig að það flokkar meira og meira rusl, en það eru takmörk fyrir því hvað hægt er að taka við miklu,“ sagði hann. Holskefla frá Evrópu Að sögn Notts eykst geta Ástr- ala til að taka við endurunninni vöm um einn til tvo hundraðs- hluta á ári. Framboð endurunn- innar vöru aukist hins vegar um 10 af hundraði á ári. Markaðurinn fyrir notaðan pappír í Asíu hefur verið í lægð í um ár, einkum vegna þess að heilu holskeflumar af pappír hafa borist frá Evrópu. Þær þjóðir, sem flytja inn papp- ír (Kórea, Indónesía, Taiwan, Kína, Thailand og Filippseyjar) hafa allajafna leitað til Bandaríkj- anna. í lögum Evrópurílqa, sem fara fram á að úrgangur sé endur- unninn, er ekki kveðið á um það hvað eigi að gera við það rusl, sem safnað er saman og bjargað. I Bandaríkjunum er hins vegar ekki sama offramboðið á efni til endur- vinnslu og í Evrópu og Ástralíu. Ástæðuna sagði Nott vera þá að Bandaríkjamenn söfnuðu ekki jafn miklum úrgangi saman til endur- vinnslu og hefðu þannig reynt að skapa jafnvægi á markaðnum. Sagði Nott að þegar notkun á úrgangspappír í heiminum næmi 90 milljónum tonna á ári þyrfti ekki mikið til að markaðurinn færi úr jafnvægi. 1,5 -2,0 M. VERÐ AÐUR KR.1.380- NÚ KR. 790- 2,0-2,5 M. VERÐ ÁÐUR KR. 1.880- NÚ KR. 990- 40-75 CM. VERÐ ÁÐUR KR. 240- NÚAÐEINS KR. 160- SUMARBLÓM, GARÐPLÖNTUR, RUNNAR, SKÓGARPLÖNTUR, VERKFÆRI, O.FL. FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG KL. 14-19 BOGIFRANZSON SKÓG VERKFRÆÐING UR VEITIR LEIÐBEININGAR UM RÆKTUN SUMARHÚSALÓÐA OG PLÖNTUVAL PLONTUSALA IFOSSVOGI Fossvogsbletti 1 (fyrlr neðan Borgarspítala) Opiö kl. 8 -19. helgar kl. 9 -18. Sími 564 1777 Veffang: http://www.centrum.is/fossvogsstodin LEIÐBEININGAR - RÁÐGJÖF - ÞJÓNUSTA FYRIR ÞIG SELJA HNAUSPE MIRKIBERRÓTAPL. Kinkel kveðst treysta Frökkum Bonn. Reuter KLAUS Kinkel, utanríkisráðherra Þýskalands, sagðist í gær viss um að Frakkar myndu halda stöðug- leikasáttmálann, sem er grundvöll- ur væntanlegs Efnahags- og mynt- bandalags Evrópu. Kinkel sagði ennfremur, í um- ræðum í neðri deild þýska þingsins, að hann væri sannfærður um að Frakkar myndu fylgja ströngum forsendum myntbandalagsins, EMU, og uppfylla öll skilyrði fyrir þátttöku í stofnun bandalagsins á réttum tíma. Áætlað er að banda- lagið verði að veruleika 1999. Stjórn Þýskalands virðist hafa breytt um stefnu, ef marka má orð Kinkels, því hann sagði einnig í gær að Þjóðveijar væru reiðubúnir til þess að samþykkja atvinnumálaum- ræðu á Evrópusambandsráðstefnu, sem haldin verður í Amsterdam í byijun næstu viku, en þó því aðeins að þetta myndi ekki kalla á aukinn kostnað fyrir sambandið. Stöðugleikasáttmálanum er ætl- að að tryggja stöðugleika nýs gjaldmiðils, evrós, með þeim hætti að ríkjum, sem ekki standa við skuldbindingar í efnahagsmálum, verði refsað. Sáttmálinn á að öðlast gildi á fundinum í Amsterdam. Reutcr STRANGTRÚUÐ grísk kona hrópar mótmæli gegn Schengen- samkomulaginu um leið og hún heldur krossi með helgimynd á lofti. Gríska þingið samþykkti í gær Schengen-samkomulagið. Grikkir samþykkja Schengen þrátt fyrir mótmæli Aþenu. Reuter. GRISKA þingið samþykkti Scheng- en-samkomulagið í gær þrátt fyrir uppreisn í röðum þingmanna stjórn- arandstöðunnar og mótmæli, sem stóðu næturlangt, fyrir utan þingið. 300 sæti eru á þinginu og greiddu 142 þingmenn atkvæði með sam- komulaginu og 80 á móti. 78 þing- menn voru fjarverandi. Schengen-samkomulagið, sem snýst um það að afnema landa- mæraeftirlit milli aðildarríkja Evr- ópusambandsins og auka samstarf í löggæslu, naut stuðnings sósíalista og íhaldsmanna, sem eru helsti stjórnarandstöðuflokkurinn. 53 þingmenn íhaldsmanna huns- uðu hins vegar flokkslínuna og greiddu atkvæði gegn samkomu- laginu. Héldu á lofti krossum og helgimyndum Fyrir utan þingið mótmæltu um 1.000 manns. Mótmælendurnir til- heyrðu flestir trúarhópum og létu þeir fyrirberast fyrir utan þingið með krossa og heígimyndir á lofti. Hrópuðu þeir trúarleg slagorð. Mörg þúsund lögregluþjónar voru fyrir utan þingið og götum var lokað með þeim afleiðingum að umferðaröngþveiti myndaðist. Tveir lögregluþjónar hentu húf- um sínum og tóku þátt í mótmælun- um. Þeir voru síðar handteknir. „í dag samþykkti þingið-skamm- arlegan samning," sagði systir María, nunna úr rétttrúnaðarkirkj- unni. „Schengen merkir engin landamæri, engin trú, ekkert einka- líf.“ Trúarhópamir segja að opin landamæri muni stefna kirkjunni í hættu. Þeir halda því einnig fram að talan 666 verði á skilríkjum, sem eigi að láta borgara í Evrópusam- bandinu hafa samkvæmt samkomu- laginu, og það sé tala djöfulsins. Segja mótmælendurnir að Schengen muni breyta Evrópu í risastórt lögregluríki þar sem yfír- völd hafi aðgang að persónulegum upplýsingum um borgarana gegn- um tölvu. Talsmaður grísku stjórnarinnar sagði að Schengen-samkomulagið tæki gildi þegar skilyrðum, sem tryggðu friðhelgi einkalífs grískra borgara, væri fullnægt. smáskór -f sérverslun með barnaskó 1 í Mikið úrval af skóm Dúndur tilboð - ^ af eldri gerðum af skóm. Leður . st_ g6.35 . ..... Verð frá S.790 Erum x blau husi við Fakafen | i I \ f I i i I i ; I í I L

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.