Morgunblaðið - 12.06.1997, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1997 29
LISTIR
Hljóðbók
• ÚT er komin hljóðbókin Ævin-
týri Sherlock Holmes eftir sir Art-
hur Doyle í flutningi Rúriks Haralds-
sonar leikara.
Sherlock Holmes kom fyrst fram
á sjónarsviðið fyrir rúmlega einni
öld og skömmu síðar fóru sögur af
honum að birtast á íslensku. Allar
götur síðan hefur hann notið mikilla
vinsælda, enda mesti leynilögreglu-
snillingur heimsbókmenntanna og
persónan einstök, segir í kynningu.
í hljóðbókinni birtast þijár sögur
úr safni ævintýra Sherlock Holmes,
en þær heita: Blái gimsteinninn,
Þumalfingur vélfræðingsins og Betl-
arinn með varaskarðið. Loftur Guð-
mundsson íslenskaði sögurnar sem
komu út í prentaðri útgáfu fyrir
hartnær hálfri öld.
Ævintýrí Sheríock Hoimes voru
hljóðrítuð í Hljóðbókagerð Blindra-
félagsins oggefin út afHljóðbóka-
klúbbnum. Bókin erátveimur
snældum (3 'U klst.) og verður fyrst
um sinn aðeins á boðstólum fyrir
félaga Hjóðbókakiúbbsins. Verð
snældnanna er kr. 1.690.
----------------
Pinhole ljós-
myndasýn-
ingu haldið
áfram
ÁKVEÐIÐ hefur verið að lengja
„pinhole“-ljósmyndasýningu Vil-
mundar Kristjánssonar til föstu-
dagsins 20. júní.
Hér er um að ræða ljósmyndir
teknar með heimasmíðuðum mynda-
vélum og er eingöngu notað títi-
prjónsgat í stað linsu.
Myndavélarnar sem notaðar voru
við tökurnar eru einnig til sýnis
ásamt upplýsingum um „pinhole"
tæknina.
Sýningin er í Galleríi Myndáss,
Skölavörðustíg 41.
------» ♦ ♦-----
Helgi Jónsson
opnar mál-
verkasýningu
HELGI Jónsson opnar málverkasýn-
ingu laugardaginn 14. júní í nýjum
sýningarsal í Suðurhlíð 35 í Reykja-
vík, (sama hús og Blómabúðin
Garðshorn). Sýnd eru 35 málverk
máluð með olíu- og vatnslitum.
Helgi hefur_ haldið nokkrar sýn-
ingar m.a. í Ólafsvík árið 1987, í
Hafnargalleríinu árið 1989 og á
Mokka sumarið 1992.
Sýningin er opin frá kl. 14-19
alla daga. Einnig er hægt að skoða
sýninguna í samráði við Helga.
I Staðgreiðsluverð:
9.800 kr.
húsgögn
Armúla 44 • sími 553 2035
Sænski drengjakórinn St. Jacobs Gosskör í tónleikaferð
ST. Jacobs Gosskör, sem er einn
vinsælasti drengjakór Svíþjóðar,
segir í kynningu, verður í tónleika-
ferð á íslandi dagana 12.-19. júní.
Kórinn var stofnaður á 16. öld. I
honum eru 36 piltar og ungir menn
Mannaskipti 1
„Að eilífu“
BJÖRN Ingi Hilmarsson hefur tekið
við hlutverki Baldurs í sýningu
Hafnarfjarðarleikhússins á Að eilífu
eftir Árna Ibsen. Björn tekur við
hlutverkinu af Baldri Trausta
Hreinssyni, sem æfir nú hlutverk
sögumannsins í söngleiknum Evítu.
Næsta sýning á Að eilífu verður
á föstudagskvöld.
á aldrinum 8-28 ára. Stjórnandi
kórsins er John Wilund og orgelleik-
ari_ er Jonas Marklund.
I kynningu segir jafnframt að
Helgi Felixson kvikmyndaframleið-
andi í Stokkhólmi vinni að gerð
heimildarmyndar um ferðarlag kórs-
ins, sem væntanlega verður sýnd í
sænska sjónvarpinu síðar á árinu.
Kórinn verður með tónleika á eft-
irtöldum stöðum: Hveragerðiskirkju
á morgun, föstudag, kl. 20.30. í
Grensáskirkju 14. júní kl. 16, í Hall-
grímskirkju 17. júní kl. 17, í Skál-
holtskirkju 18. júní kl. 14 og í Nor-
ræna húsinu sama kvöld kl. 20. Auk
þess mun kórinn taka þátt í 17. júní
hátíðarhöldum í Reykjavík og athöfn
í Víkurkirkju í Vík í Mýrdal sunnu-
daginn 15. júní. ST. Jacobs Gosskör ásamt stjórnandanum John Wilund.
TOYOTA
bmtf) tVuiíM.’.r I»c*I**f InmjtTM i«l*'Ot»r$ctoÍtilrfi*n oó rr
mm |rppin«t i siiium
* Imif»*lmt&itr*tvr»
Hilntól alflríi itti'ó I 00°o i»»« Ailrilsla *•♦» »|Ó||
* Vbsl.n-slol