Morgunblaðið - 12.06.1997, Side 30
30 FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1997
LISTIR
Leikhús án
vitsmuna-
legrar yfir-
byggingar
SIGUR fyrir Baltasar Kormák, segir
í umfjöllun Svenska dagbladet um
uppfærslu Þjóðleikhússins á leikriti
Johns Ford, Leitt hún skyldi vera
skækja, sem sýnd var á leiklistarhá-
tíðinni í Hallunda í Svíþjóð í lok maí
og var leikstýrt af Baltasar Korm-
áki. í blaðinu fjallar Lars Ring um
uppfærsluna og spjallar við Baltasar
sem honum líst greinilega vel á og
segir hafa yfirbragð og möguleika
kvikmyndastjörnu.
Ring segir að uppfærslan á
Skækjunni sé sterk endurskoðun á
verki Ford. „Leikarahópurinn er full-
ur ákafa og styrks. Hilmir Snær
Guðnason gerir Giovanni að Hamlet
með dráttum frá Kristni og fíflinu.
Margrét Vilhjálmsdóttir túlkar
Annabellu sem unga, rauðhærða og
fallega konu.“
Ring segir að Baltasar skapi ieik-
hús án vintsmunalegrar yfirbygg-
ingar. En jafnframt segir hann að
Baltasar reyni greinilega að setja
nútímalegan svip á sýninguna, hann
sækist eftir að beita myndrænu
tungumáli og öðrum meðölum af-
þreyingariðnaðarins, svo sem tón-
listarmyndbandsins, næturklúbb-
anna og popptónleikanna. „Vinsæld-
ir Skækjunnar má kannski skýra
með því að tjáning hennar er bein,
frásögninni er komið til skila með
dramatísku myndmáli en án mikilla
heilabrota."
Ofnærms-og|
astmatyf
20°A
rs HAGKAU P
CpLYFJABIIÐ
Skeifunni
Sími 563 5115
Læknasími 568 2510
Opið mán,- fðs. kl. 9-21
laugard. kl. 10-18
sunnud. 12-18
•fifrtrfiölskyktnna^
SUMIR LATA SIG BERAST
MEÐ STRAUMNUM
- á meðan aðrir standa upp úr
Abu Garcia Black Max stangirnar
eru geröar úr grafít og meö
vönduöum lykkjum sem veita
litla mótstööu. BM stangirnar
eru bæöi fyrir opin hjól og lokuö
og meö þeim fylgir vandaður poki.
jSAbu
Garcia
Veiðistangirnar í Abu Garcia 500
línunni eru ódýrar, en pú getur
veriö viss um aö fá mikiö fyrir
peningana þína. Stangirnar eru
léttar og skemmtilegar, gerðar
úr blöndu af fíber og grafít.
A B U GARCIA STANGIR:
Verö frá kr. 2.950
Fæst t öllum betri veiöiverslunum um land allt
Tennessee Williams
Óþekkt leikrit
sýnt í London
London. Reuter.
ÓÞEKKT leikrit eftir bandaríska
leikskáldið Tennessee Williams
verður frumsýnt í London á næsta
ári að því er sagði í tiikynningu frá
konunglega þjóðleikhúsinu á Bret-
landi í gær, þriðjudag.
Leikritið nefnist „Ekki um næt-
urgala“ (Not About Nightingales)
og var skrifað á íjórða áratugnum
þegar Williams var að hefja feril
sinn. Síðar skrifaði hann „Spor-
vagninn girnd“ og „Kött á heitu
biikkþaki" og varð einn helsti leik-
ritahöfundur þessarar aldar.
Ekki um næturgala
Leikritið „Ekki um næturgala“
gerist í fangelsi og úallar að hluta
til um sambönd samkynhneigðra.
Það er ekki að finna í neinum rit-
söfnum Williams. Breski leikarinn
Vanessa Redgrave fann leikritið
þegar hún var að rannsaka skjöi
leikskáldsins, sem andaðist árið
1983. Ætiunin er að sýna það
næsta vor.
„Það er með ólíkindum að hægt
sé að tala um heimsfrumsýningu á
nýju verki eftir Tennessee Will-
iams,“ sagði Trevor Nunn þjóðleik-
hússtjóri. „Það ætti ekki að vera
hægt. Þetta er heilt leikrit og mjög
átakanlegt... Það fjallar um ung-
an fanga, sem hefur ljóðræna til-
finningu fyrir sjálfum sér og því,
sem hann vill koma í verk.“
Redgrave er ein af fremstu leik-
urum Breta, en hún mun ekki koma
fram í leikritinu þar sem þar er
ekkert kvenhlutverk við hæfi.
Skækjan í Svíþjóð
Qpel Combo
kr. 1.075.000.- án vsk.
Opel er mesti seldi
bíll í Evrópu 5 ár í röð
Bílheimar ehf.
tiii
Sœvarhöföa 2a Sími:525 9000
-Þýskt eöalmerki
lipur
sparneytinn
eyðir 5,4 lítrum á
hundraði miðað við
90 km. hraða
rúmgóður
tekur 3.130. lítra
Elín G. sýnir
í Noregi
í JÚNÍ stendur yfir sýning á
rúmlega 20 málverkum lista-
konunnar Elínar G. Jóhanns-
dóttur í Provisoriet, Nygaards-
gat. 26, Fredrikstad.
Sýninguna nefnir hún Gjár
og mannlíf. Stærsti hluti verk-
anna er nýr, önnur hafa verið
sýnd í Galleríi Fold, Kringlunni
og í Svíþjóð.
Norðurljós á
Café Mílanó
SIGRÍÐUR Einarsdóttir
opnaði sýningu í Café Mílanó
8. júní sl. Þar sýnir hún gou-
ache-málverk sem hún hefur
unnið í vetur. Þetta er þriðja
einkasýning hennar.