Morgunblaðið - 12.06.1997, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 12.06.1997, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1997 35 gðisþjónustunni ráðið verði einnig formlegur sam- starfsaðili þeirra samtaka sem vinna að mati á lækningatækni og gerð klínískra leiðbeininga erlendis. Vísað er til þess að samræmdir biðlistar séu ein gerð klínískra leið- beininga en þeir hafi nokkra sérstöðu þar sem þeir lúti ekki beint að því hvernig meðhöndla skuli einstaka sjúklinga, en aðstoði við skipulagn- ingu á klínískri vinnu. Biðlistarnir geti nýst vel til að sýna fram á hvar skortur sé á þjónustu, að því tilskildu áð þeir séu vel unnir og sýni fram á raunverulegt ástand. Sanngjarnt sé að ákveðnar reglur séu um há- marksbið á biðlista og í vissum tilvik- um geti verið nauðsynlegt að grípa til sérstakra átaksverkefna ef biðlisti verði of langur. Forgangsröðun krefst samvinnu í skýrslunni er bent á að forgangs- röðun krefjist samvinnu Alþingis, stjórnvalda, heilbrigðisstofnana, heil- brigðisstétta og almennings. Það sé skylda lækna að taka þátt í forgangs- röðun, en með því geti þeir stuðlað að góðri nýtingu þeirra auðlinda sem varið er til heilbrigðismála og gert þannig fleirum kleift að nóta heil- brigðisþjónustu en ella væri. For- gangsröðuninni megi skipta í fjóra flokka, þ.e. forgangsröðun fjármagns milli málaflokka í ríkisrekstri, for- gangsröðun fjármagns innan heil- brigðiskerfisins, forgangsröðun sjúklingahópa og forgangsröðun ein- stakra sjúklinga. Nauðsynlegt sé að allir þeir aðilar sem koma að for- gangsröðun vinni saman þar sem ákvarðanir á einu stigi geti leitt til brejTinga á öðrum stigum, og leggur nefndin til að settur verði á stofn vinnuhópur skipaður fulltrúum heil- brigðisstétta og stjórnvalda sem móti stefnu stjómvalda hvað varðar forgangsröðun innan heilbrigðiskerf- isins og forgangsröðun sjúklinga- hópa. Áhersluþættir í niðurstöðum sínum leggur nefnd- in áherslu á nokkra þætti varðandi forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu. í fyrsta lagi er lögð áhersla á að sið- ferðilegar forsendur verði hafðar að leiðarljósi við forgangsröðun. Þá setji stjórnvöld fram markvissa heilbrigð- isáætlun með mælanlegum markmið- um, þau geri áætlun um mannafla- þörf heilbrigðisþjónustunnar á næstu áram og áætlanir verði gerðar um húsnæðisþörf í heilbrigðisþjónustu, endurnýjun og notkun þess húsnæðis sem þegar er til staðar, og loks geri stjórnvöld áætlun um fjárveitingar til heilbrigðisþjónustunnar til þriggja ára í senn. Þá hlutist heilbrigðisyfirvöld til um að fram fari fræðsla um eðli for- gangsröðunar og könnun á skoð- unum almennings á aðferðum við forgangsröðun. Settur verði á stofn vinnuhópur skipaður fulltrúum heil- brigðisstétta og stjómvalda sem móti stefnu að því er varðar for- gangsröðun, og hvert stig heilbrigðiskerfísins og tilfærsla sjúkl- inga innan þess verði skilgreint með tilliti til hlutverks og skilvirkni og lokið verði uppbyggingu frumheilsu- gæslu fyrir alla landsmenn. Áhersla er lögð á að Læknafélag íslands hafi forgöngu um að læknar samein- ist um mat á lækningatækni, gerð klínískra leiðbeininga og samræmdra biðlista, og athuga þurfi kosti fjar- lækninga og reglubundinna ferða sérfræðilækna til fámennra staða. Þá þurfi að skilgreina ábyrgðarsvið heilbrigðisstétta og skipuleggja og auka þjónustu við ferilsjúklinga. ---------- Kanna þurfi hagkvæmni : hvort hinna ýmsu möguleika á itinqar sjúkraflutningum og hvort i vaxa frekari uppbyggíng sjúkraflugþjónustu með þyrlum og flugvélum með vaktviðbúnaði allan sólarhringinn sé hagkvæm, og kanna þurfi rekstrar- hagkvæmni sjúkrahótels í Reykjavík. Loks þurfi að leggja áherslu á góða samvinnu milli sjúkrahúsa svo nýta megi á sem hagkvæmastan hátt tæki, vaktviðbúnað og aðra þjónustu, og hið sama gildi um aðrar heilbrigð- isstofnanir. TIMSS-RANNSÓKNIN Morgunblaðið/Ásdís JAFNVEL þó að almenningur virðist telja að það skipti máli að standa sig vel í stærðfræði og náttúrufræðigreinum er alltof lítil umræða í skólastofunni um tilgang þess að læra þessar greinar. B JÖRN Bjarnason mennta- málaráðherra segir niður- stöður TIMSS-rannsóknar- innar um frammistöðu ís- lenskra nemenda 3. og 4. bekkjar í stærðfræði og náttúrufræðigreinum mikil vonbrigði. Þær taki af allan vafa um nauðsyn þess að áfram verði unnið að gagngerri endurskoðun á íslenska skóiakerfinu. Anna Krist- jánsdóttir, prófessor á sviði stærð- fræðimenntunar við Kennaraháskóla ísiands segir stærðfræði og náttúru- vísindi meðhöndluð eins og framandi gesti í íslensku menningarumhverfí og að alltof lítið sé rætt við nemend- ur um stærðfræði og tilganginn með því að læra hana. Askell Harðarson, doktor í stærðfræði og leiðbeinandi við Flensborgarskólann, fagnar TIMSS-rannsókninni og segir að ef hún hefði ekki komið til hefðu menn sjálfsagt haldið áfram að una glaðir við sinn hag án þess að breyta nokkru eða horfast í augu við vandann. „Við höfum unnið að gagngerri endurskoðun á íslenska skólakerfinu upp á síðkastið og erum að vinna að því að móta nýjar námskrár fyrir grunn- og framhaldsskólann. Ég tel að þessar rannsóknir sýni að í stærð- fræði svari námsefnið ekki eðlilegum kröfum og ástæða sé til að efast um réttmæti þeirrar stefnu og hug- myndafræði sem fylgt hefur verið við gerð námsefnis og varðandi kröfur til nemenda. Einnig tel ég að kennara- menntunarstofnanir verði með rót- tækum hætti að huga að innra starfi sínu og fagbundnum markmiðum þess náms sem þær veita,“ segir Björn. Niðurstöðurnar valda vonbrigðum „Auðvitað hljóta niðurstöðurnar að valda vonbrigðum miðað við það sem menn telja sig hafa verið að gera hér í skólamálum og hefur ekki skilað betri árangri en þetta. Hér er um stefnu að ræða sem var mótuð fyrir nokkrum áratugum," segir ráðherr- ann ennfremur. Hann segir ljóst að ef menn geri ekki kröfur í skólanum, setji ekki fram skýr markmið og fylgi ekki þeim kröfum og markmiðum fram með aga, þá náist ekki árang- ur. „Menn verða að gera kröfur og gangast undir próf og reyna á kraftana í skólunum en ekki fljóta í gegnum skóla- kerfið eins og það þurfi ekkert að reyna á sig.“ Menntamálaráðherra segir meginatriðið nú vera að þeir sem vinni að þessum málum í skólakerfinu taki mið af niðurstöðum rannsóknarinnar, og átti sig á því að árangurinn sé ekki meiri en þar komi í ljós. Ekki sé nauðsynlegt að sitja margar ráðstefnur til að komast að raun um það. Þegar sé verið að vinna að stefnumörkun og endurskoðun á námskrám í menntamálaráðuneytinu, sem axli þá ábyrgð sem því beri. Valda vonbrigð- um en koma ekki á óvart Nýjar niðurstöður TIMSS-rannsóknarinnar sýna að frammistaða íslenskra nemenda í 3. og 4. bekk í stærðfræði og náttúrufræðigrein- um er svipuð og jafnvel slakari en árangur nemenda í 7. og 8. bekk, sem kynntur var sk vetur. Margrét Sveinbjömsdóttir leitaði viðbragða við þessum tíðindum. Of lítið rætt um tilganginn með stærð- fræðinámi „Það hljótum við öll að gera sem að menntunar- og fræðslumálum vinn- um, hvar sem við erum á þeim vett- vangi. Allir verða að axla sína ábyrgð og líta í eigin barm,“ segir ráðherrann að síðustu. Kemur ekki á óvart Anna Kristjánsdóttir, prófessor á sviði stærðfræðimenntunar við Kenn- araháskóla íslands og formaður Flat- ar, samtaka stærðfræðikennara, segir niðurstöðurnar síður en svo koma sér á óvart. „Ég hef i rúman áratug skrif- að um þetta til ráðuneytisins og ann- arra aðila og látið í ljósi áhyggjur af þessum málum,“ segir hún. Anna telur nauðsynlegt að þessar niðurstöður verði skoðaðar í víðu sam- hengi. „Það er svo ótrúlega margt sem hefur áhrif á að staðan er þessi. Það er í fyrsta lagi þjóðarvitundin. Þegar við erum að tala um íslenska menningu þá er alltaf talað um séris- lenska menningu, sem kannski er eðlilegt þegar um er að ræða eyþjóð. Nú ætla ég alls ekki að gera lítið úr _________ áherslum okkar á að varð- veita íslenska tungu og muna okkar sögu en hins vegar eru bæði stærðfræð- in og náttúruvísindin með- höndluð eins og framandi gestir í okkar menningar- umhverfi. Þetta þýðir að vitund fólks er ekki mjög sterk á þessu sviði. Al- menningur telur að það skipti máli að standa sig vel í stærðfræði, en sé farið ofan í saumana á hvað átt sé við með því að standa sig vel í stærð- fræði kemur upp vandræðastaða. Ég held að árangur nemenda megi að hluta til skýra með því að of lítið er rætt við þá um stærðfræði og tilgang- inn með því að læra hana og einnig að kennsluhættir eru of einhæfir," segir Anna. I öðru lagi nefnir hún þá breytingu sem gerð var á skólaskyldu árið 1990, þegar sex ára bekk var bætt við sem skyldu og kennslustundum fjölgað í yngstu bekkjunum. „Þá komu tilmæli frá menntmálaráðuneytinu um að þessi aukning yrði notuð til að leggja aukna áherslu á list- og verkgreinar og umfjöllun um náttúru og um- hverfi. Áuk þess var minnst á mikii- vægi móðurmálsins. Stærðfræðin er hvergi nefnd og það þýðir að frá opin- berum aðilum kemur ekki hvatning á þessum tímapunkti til að auka hana að sama skapi og annað í byrjenda- kennslunni. Og það kemur heldur ekki hvatning til þess að vinna með hana á verklegri og meira skapandi hátt.“ Þriðja atriðið sem Anna kemur inn á er námsefnið. „Námsefnisskortur- inn sem kennarar upplifa er kannski að hluta til spurning um hvernig fólk nýtir námsefnið. Ég er þeirrar skoð- unar að kennarar eigi að _________ fá meira í hendurnar til þess að kunna betur til verka og styrkja sig, á tím- um þar sem tæknin er að taka yfir svo marga hluti. En það er eins og áherslan “ liggi alltaf á að búa til efni beint í hendurnar á börnunum. Við vitum hinsvegar að kennari getur gert stór- kostlega hluti án þess að vera alltaf með mjög litskrúðug gögn í höndun- um,“ segir hún. Rangar áherslur í kennslunni? Anna vekur athygli á því að í þeim þáttum sem prófað var úr var árang- ur íslensku nemendanna bestur í rúm- fræði, tölfræði og líkindareikningi. Hún bendir á að sammerkt með þess- um þáttum sé að ekki sé löng hefð fyrir því hvernig þeir eru kenndir. Einnig að í gegnum námsefnið sé sjónum nemenda beint að ýmsu í þeirra ytra umhverfi, sem virðist höfða það vel til nemenda að jafnvel þó að kennararnir séu ekki sérstak- iega skólaðir í þeim þáttum, þá dugi það þeim til að koma þeim betur áfram en í þeim þáttum sem fólk tel- ur sig kunna best til verka að kenna. „Ég held að þetta sé atriði sem eigi að skoða mjög náið og leita skýringa á. Kannski er bara verið að leggja áherslu á ranga hluti í kennslunni. Það verður að mæta þessum börnum á forsendum þjóðfélagsins eins og það er í dag,“ segir Anna og minnir á þær gifurlegu tækni- og þjóðfélagsbreyt- ingar sem orðið hafa á síðustu árum en hafa ekki verið teknar með í reikn- inginn í námsefninu nema að litlum hluta til. Samsæri þagnarinnar Áskell Harðarson, doktor í stærð- fræði og leiðbeinandi við Flensborgar- skólann, undrast ekki niðurstöður TIMMS-rannsóknarinnar en segir að hefði hún ekki komið til hefðu menn sjálfsagt haldið áfram að una glaðir við sinn hag án þess að breyta nokkru eða horfast í augu við vandann. „Stað- reyndin er að stærðfræðin hefur verið fótum troðin víða og kannski einna mest í Kennaraháskóla íslands. Það skilar sér náttúrulega í menntun kennara og hefur áhrif á hveijir fara í það að kenna og þetta er útkoman. Þetta hafa örfáir verið að segja en fáir hafa kært sig um að segja nokk- uð. Það má segja að hér hafi ríkt einskonar samsæri þagnarinnar varð- andi vanda raungreinakennslunnar,“ segir hann. „En núna vildu allir Lilju kveðið hafa.“ Áskell segir að um stærðfræði- kennsluna eins og svo margt annað gildi þetta gamla góða; að fólk upp- skeri eins og það sái. „Og ef ekki hefði komið til þetta góða framtak þá hefði allur fjöldinn sjálfsagt haldið áfram að una glaður við sinn hag án þess að breyta nokkru eða horfast í __________ augu við vandann. Síðan verða örugglega fundnar einhveijar bráðabirgða- reddingar sem þýða hærri laun hjá starfandi kennur- um, en ég á svo sem ekki "““““ von á að það verði endilega gert neitt sem dugar. Ég held að það eina sem dugi sé að virkja þá sem eru virkilega duglegir í þessum grein- um, eins og til dæmis krakkar á eðlis- fræðibrautum framhaldsskólanna. Það þarf að breyta aðstæðum þannig að þetta fólk líti yfirleitt við því að fara út í kennslu, því nú er algert neyðarástand á öllum skólastigum,“ segir Áskell. Allir verða að axla sína ábyrgð og líta í eigin barm
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.