Morgunblaðið - 12.06.1997, Page 42

Morgunblaðið - 12.06.1997, Page 42
42 FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Að húka á grafarbakkanum ÞEIR SEM tala um málefni aldraðra enda ræðu sína æ oftar á því að vara framtíðina við „gamla fólkinu“. Þetta fólk, sem oft eru ráðamenn þjóðar- innar, tönnlast sí og æ á þeirri hættu sem þjóðfélaginu stafar af því þegar öldruðum fjölgar hlutfallslega. Þegar stöðugt fjölgar fullorðnu fóki sem verður á „framfæri" sífellt færri “vinnandi“ manna. Þessi málflutningur er siðlaus, heimskuleg- ur og ósanngjarn. Hann hleður upp samviskubiti hjá eldri kynslóðinni sem er búin að skila sínu eða nálg- ast starfslokin. Þessu fólki er raun- ar líkt við „engisprettuplágu“ sem flæða muni yfir „velferðarþjóðfé- lagið“ upp úr aldamótunum. í þessari umræðu allri er nær aldrei minnst á annað en þann fjárhagslega „vanda“ sem við blasir. I þessari umræðu er engin hugmyndafræði á ferðinni. í þess- ari umræðu eru engar vangaveltur um félagslegan sjálfsákvörðunar- rétt einstaklinganna. Ekki minnst á reisn og sjálfsvirðingu manns- ins. Það er raunar ótrúlegt hvað full- orðið fólk hefur óendanlegt lang- lundargeð gagnvart þessum hræðsluáróðri sem dynur linnu- laust í eyrum. Það er mjög brýn nauðsyn í þessari umræðu að koma málinu út úr þessum þrönga farvegi. Að koma á dagskrá einhverri raun- hæfri hugmyndafræði sem leitt gæti til far- sællar þróunar. Að gera upp við sig áður en það verður um seinan hvort forsjár- hyggjan á að ráða ríkjum í framtíðinni og tekið verði við gömlu fólki eins og pakkavöru í „geymslu“ þegar fer að halla undan fæti, eða hvort skapa eigi nýjan grundvöll fyrir ftjóu lífi og reisn ein- staklingsins. Þarna þarf fullorðið fólk og ekki síður þeir yngri að hafa forustu um að skapa nýtt viðhorf og nýja hugmynda- fræði. Þessa umræðu er nú lífsnauðsyn að hefja af alvöru um þá þróun sem er fyrirsjáanleg á högum full- orðins fólks í náinni framtíð. Til að leggja orð í belg er hér ætlunin að skýra frá svolítilli tilraun sem gerð er í Kópavogi. Hér er um að ræða samtök fólks sem hófu starfsemi 1983 og hafa starfað óslitið síðan. Þessi samtök bera hið undar- lega nafn „Hana nú“. Þetta nafn er þannig til komið að í upphafi vildu þessir frumherjar sem stofn- uðu samtök'in mynda sér sérstöðu og hugmyndasamkeppni var hald- in um nafn á samtökin. Þetta nafn fékk flest atkvæði í leyni- legri atkvæðagreiðslu þrátt fyrir að önnur nöfn biðust eins og „Mjúk lending", „Sóleyjarhópurinn" o.s.frv. Teningnum var kastað og þessir frumhetjar nýs félagslífs aldraðra höfðu heppnina með allt frá upp- hafi. í fýrsta lagi hafði Kópavogs- bær strax jákvæða afstöðu til þess- arar starfsemi og hefur alla tíð stutt Hana nú með því að skapa starfseminni ytri ramma. Hana nú er lausbeislaður félagsskapur. Það er ekki formlegur félagsskapur. Engin stjórn. Engin félagsgjöld. Allar uppákomur og þátttöku borga þátttakendur sjálfir eins og aðrir meðlimir þjóðfélagsins. Hana nú er lausbeislað- ur félagsskapur fólks, segir Hrafn Sæmunds- son, sem hefur hvorki áhuga á því að eignast „áhyggjulaust ævi- kvöld“ né setjast í „helgan stein“. Framlag bæjarins stendur undir skipulagsvinnu eingöngu og að- gangi að húsnæði. Hitt atriðið sem réði kannski úrslitum var að Ásdís Skúladóttir leikstjóri gekk nánast í upphafi til liðs við frumherjana og hún hefur verið tengiliður Hana nú-klúbb- anna við lífæðar þjóðfélagsins allan tímann og er enn á fullu. Saga Hana nú er öll til í pappír og tölvudiskum og þessa sögu þyrfti að taka saman í bók og koma henni á framfæri í umræð- unni núna. Hér verður fullyrt að þessi litla og hljóðláta tilraun í Kópavogi er ein allra ef ekki allra merkilegasta félagsleg tilraun sem gerð hefir verið á Islandi. Og hugmyndafræði Hana nú er ekki mótuð að fræðing- um með sveittan skallann við skrif- borð heldur hefur hún gegnum árin mótast af starfi og hugmynda- auðgi þátttakenda. Og hver er nú þessi hugmynda- fræði Hana nú? Það kemur betur í ljós þegar sagan verður skráð. En grunntónninn er þessi: Frá upphafi hefur fólkið í Hana nú neitað að láta stimpla sig út úr þjóðfélaginu á vissu aldurs- skeiði. Það neitar að hlýða þeirri kvöð að eiga „áhyggjulaust ævi- kvöld“ eða setjast í „helgan stein“ á þeim forsendum að verða annars flokks þegnar í þjóðfélaginu sem þýðir í raun að þegar þú hefur lokið ævistarfí þínu eða ert búinn að fá „bréfið“ frá Tryggingastofn- un um að þú sért orðið „löggilt gamalmenni" þá farir þú sjálfkrafa í biðstöðu og farir að húka á graf- arbakkanum og bíða eftir því að rekunum verði kastað. Svona einfalt er nú þetta! Takmarki sínu nær Hana nú- fólkið með því að tengjast stöðugt öllum þáttum þjóðfélagsins, vera þátttakandi í öllu sem er að gerast og taka þátt í allri pælingu. Hér verður aðeins drepið á örfá sýnishorn úr starfi Hana nú. Blóminn af bestu skáldum og rit- höfundum og listamönnum þjóðar- innar hefur komið og unnið með Hana nú gegnum tíðina og vís- Hrafn Sæmundsson indamenn og fræðimenn á fjöl- mörgum sviðum koma við sögu. Enginn þáttur í þjóðfélaginu er utan sviðsins. Hvort sem það er undirbúningur að sýningu í Óper- unni eða að Hæstiréttur sé að kveða upp dóma þá er Hana nú á staðum. Fótabúnaður kvenna í Kína og rómantíkin í Hvanneyrar- skál á síldarárunum eru verkefni í klúbbum Hana nú. Og sorgin og gleðin eru krufin til mergjar á spjallkvöldum hópsins. Og Bókmenntaklúbbur Hana nú nær yfir breitt svið. Þar eru til að mynda lesin verk nútímahöf- unda og þeir síðan fengnir á stað- inn og sérstök bókmenntadagskrá er árlega æfð undir stjórn faglegs leikstjóra og farið með út um land- ið og nú í sumar til útlanda. Og leikhúslíf er snar þáttur í starfi Hana nú og tónleikar og Hana nú-félagar eru löngu hættir að óttast verk sem í upphafi fá bara eina stjörnu! Og þar sem gleði og gaman er á ferðinni er Hana nú mætt og kráarferðir Hana nú eru mjög eftirminnilegar uppákomur! Og Laugardagsganga Hana nú hefur „aldrei“ fallið niður frá 1983. Þetta eru bara örfá sýnis- horn úr starfi Hana nú. Starfsemi Hana nú hefur ekki látið mikið yfir sér. Þó hefur af og til verið reynt að benda á þessa hugmyndafræði á „æðri stöðum" í ráðuneytunum og hjá verkalýðs- hreyfingunni til að mynda. Ekki hefur þetta fengið hljómgrunn á þessum stöðum. Kannski hefur hugmyndafræðin „áhyggjulaust“ ævikvöld - saddur eða svangur - fest of djúpar rætur í þjóðfélagi sem er þó í meiri þróun en nokkru sinni fyrr á öldinni? Höfundur er fulltrúi á Félagsmálastofnun Kópavogs. i M °r G u'W / ^SV'h! VERÍÐ VÍÐBÚir) • StÍLLÍÐ Á FI]I 102.2 FsstuJ^gKrv 13. l3.i3 STJORnU RKnDEmian PhRDJ Samtök áhugamanna um stjörnuspeki FÉLAG IJM BÆTT MANNLÍF 8Kjr}Ar[ÐI LEIÐ JHúlftm tlttfélatjíó SIJARNAN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.