Morgunblaðið - 12.06.1997, Side 43
I;
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ1997 43
AÐSENDAR GREINAR
Molar af borði
húsbóndans
GÓÐIR þjáningar-
bræður og - systur,
það er elli- og eftir-
launafólk og aðrir lág-
launahópar, þá hafið
þið heyrt erkibiskups
boðskap, varðandi
kjör ykkar. Aldrei
þessu vant var staðið
við loforð sem forsæt-
isráðherra lét falla
fyrir nokkru að
greiðslur yrðu hækk-
aðar, „að mati ríkis-
stjórnarinnar" til
þeirra sem fengju
greitt frá almanna-
tryggingum.
Þakka ber það sem
gert er, ef það horfir til leiðrétting-
ar á gamalli skuld, en betur má
ef duga skal, því sú leiðrétting ef
kalla má það því nafni eru molar
af borði húsbóndans, og stendur
tæpast undir því auglýsingar-
skrumi, sem til var stofnað við að
tilkynna þessa ákvörðun. Fróðlegt
væri að heyra og sjá hvað lagt
hafi verið til grundvallar þegar
þessir öldungar og öryrkjar voru
lagðir á stall og metnir til verðs,
spyija mætti hvort þar hefði ráðið
lífsafkoma einstaklingsins, eða
sjóðir ríkisins. Eins og fram kemur
í fréttatilkynningu ríkisstjórnar-
innar um kostnað ríkissjóðs af
þessum greiðslum hljómar hún eins
og verið sé að vekja sektarkennd
hjá því fólki sem fær þessar
greiðslur. En ég leyfi mér að minna
á að í jan. 1988 var gengið út frá
því að skattleysismörk og ellilífeyr-
ir ættu í framtíðinni að fylgja verð-
bólgu, flestum er kunnugt um
hveijar efndir hafa þar verið á.
Samkvæmt þvi ætti ellilífeyririnn
að vera um 29 þús. og skattleysis-
mörkin nálægt 80 þús. Á ómeng-
aðri íslensku væri þetta kallað
gripdeild eða þjófnaður, sem hinir
öldruðu hafa orðið að þola bóta-
laust ásamt ýmsum öðrum skerð-
ingum af hálfu hins opinbera. Það
fer varla milli mála hver tilgangur
löggjafans var, fyrir einu og hálfu
ári, þegar hann tók úr sambandi
verðtryggingarákvæðið á greiðsl-
um frá Tryggingastofnun við al-
menna launaþróun í landinu.
Föstudaginn 23. maí sl. var félags-
málaráðherra í viðtali hjá Ríkisút-
varpinu þar sem meðal annars
bárust í tal hinar lágu greiðslur
til ellilífeyrisþega, og fannst mér
hann alveg óvenju hreinskilinn í
svari sínu er hann sagði að aldrei
hefði verið ætlunin að aldraðir og
öryrkjar fengju sömu upphæð og
samið yrði um á almennum mark-
aði. Það er vonandi að
þessi sjónarmið ríkis-
stjórnarinnar verði
geymd en ekki gleymd
hjá því fólki sem í hlut
á. Á vegum ríkis-
stjórnarinnar er til
nokkuð sem kallast
jaðarskattanefnd. Lít-
ið lífsmark virðist vera
með henni en hún er
ágæt til síns brúks, því
hægt er að vitna til
hennar um að hún sé
að vinna í málunum.
Því ber að fagna að
Guðmundur ýmislegt hefur verið
Jóhannsson gert fyrir hina öldruðu
og margt er í boði á
hinu félagslega sviði en galli er á
gjöf Njarðar að til að njóta þess
sem í boði er, þarf peninga, og
Lítið lífsmark virðist
með jaðarskattanefnd,
segir Guðmundur
Jóhannsson, þegar
kemur að málefnum
hinna öldruðu.
Ú’öldamargir verða að neita sér
um þetta. Ekki væri það rétt að
setja alla aldraða undir sama hatt,
sem betur fer er allstór hópur sem
hefur nóg fyrir sig að leggja, en
hinir eru í miklum meirihluta, sem
hafa lítið meira en til hnífs og
skeiðar.
Hver er orsökin til þess að kjör
hinna litlu í þjóðfélaginu hafa
versnað, eins og raun ber vitni um,
á síðasta áratug? Hefur fjármagnið
gufað upp? Ég held að það sé til
staðar og kannski rúmlega það,
en skatta- og efnahagsstefna
stjórnvalda hefur verið á þann
hátt, að tekjuskiptingin er óeðlileg
í þjóðfélaginu og auðurinn hefur
safnast á fárra manna hendur en
að sama skapi dregist saman hjá
minnihlutahópunum. Það eru
komnir falskir tónar í plötuna sem
oft hefur verið spiluð við hátíðleg
tækifæri „búum öldruðum bjart
ævikvöld". Aldraðir biðja ekki um
ölmusu, þeir vilja lifa eðlilegu lífi
og geta gengið uppréttir og horfst
í augu við samferðamenn sína.
Með vinsemd og virðingu til allra
semjhlut eiga að máli.
Höfuadur er eftirlaunaþegi.
UMFERÐARORYGGISÁÆTLU N
1997-2001
Kynning:
Á Hótel Selfossi, fimmtudasinn 12. júní kl. 17.00
í samstarfi viö Samband umferöaröryg3isnefnda á Suöurlandi
Allt áhusafólk um aukiö umferöaröryssi velkomiö.
Dómsmálaráöuneytið
'qym
VEGAGERDIN
u
UMFERÐAR
RÁÐ
Laugavegi 40, ■
s. 561 0075
SJÁÐU
'rr y >>>
MILLI ÞIN OG VEIÐINNAR
ER STERKUR STRENGUR
ertu tilbúinn í slaginn?
Veiöihjólin fré Abu Garcia, Cardinal
80R seríunni eru hjól, tilbúin til
mikilla átaka. Þau eru meö grafít
umgjörö, öruggum og liprum
bremsudiskum úr tefloni sem
tryggja mýkra bremsusviö, sér-
stökum útbúnaöi (Anti-Line-
Twister) sem kemur í veg fyrir
snúning á línu. Öll hjólin í 80
seríunni eru meö kúlulegum.
CARDINU H J 6 L :
Verð frá kr. 3.950
jSAbu
Garcia
Fæst í öllum betri veiöiverslunum um land allt
HEKLA
meiriþœgindi-meiri íburður-meiri gœði !
MITSUBISHI
/ miklunt t>u inm !
V.