Morgunblaðið - 12.06.1997, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 12.06.1997, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ1997 47 MINNINGAR INGIBJORG VETURLIÐADÓTTIR -4- Ingibjörg Vet- * urliðadóttir fæddist á ísafirði 14. október 1912. Hún lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur hinn 24. maí síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Guðrún Halldórs- dóttir, f. 3. septem- ber 1889, og Vet- urliði Guðbjarts- son, f. 26. júní 1883. Þau hjónin Guðrún og Vetur- liði bjuggu mestan sinn búskap á Lækjarmótum á ísafirði. Börn þeirra fæddust alls 19, en 13 náðu fullorðins- aldri. Þau eru: Halldóra, f. 1910, d. 1994, Ingibjörg sem hér er kvödd, Salvör, f. 1914, Veturliði, f. 1916, d. 1993, Rakel, f. 1918, d. 1984, Lára, f. 1921, d. 1991, Jóhanna, f. 1923, Guðmunda, f. 1925, Sveinbjörn, f. 1929, Margrét, f. 1930, Erla, f. 1932, Júlíus, f. 1933, og Svala, f. 1936. Árið 1944 giftist Ingibjörg eftirlif- andi eiginmanni sínum Róberti Bjarnasyni, f. 31. október 1917. For- eldrar hans voru Bjarni Bernharðs- son og Ragnhildur Höskuldsdóttir. Börn þeirra Ingi- bjargar og Róberts eru: 1) Ragna myndlistarmaður, f. 3. apríl 1945, gift Pétri Arasyni og þeirra synir Pétur Ari, f. 1967, andaðist á 1. ári, og Kjartan, f. 1972. 2) Droplaug, f. 17. september, 1946, d. 6. ágúst 1995. Hennar börn: Ingibjörg, f. 1965, María, f. 1968, Berta, f. 1971, Harpa Hrönn, f. 1973, og Gunnlaugur Orri, f. 1975.3) Andvana fædd- ur drengur 1948. Útför Ingibjargar fór fram frá Bústaðakirkju 5. júní. OLAFUR HELGASON + Ólafur Helgason fæddist á ísafirði 2. desember 1924. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 24. maí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni 3. júní. Við Ólafur Helgason vorum ná- skyldir og foreldraheimiiin lágu hlið við hlið. Það var dálítill aldurs- munur, en kynnin urðu meiri upp úr tvítugu og upp frá því leit ég á hann sem besta vin minn. Að loknu stúdentsprófi leitaði hann sér farvegs í lífinu, las m.a. hagfræði og bókmenntir við Kaup- mannahafnarháskóla. Hann bjó um tíma hjá Ástu Eiríksdóttur og Svavari Guðnasyni og bast þeim ævilöngum vináttuböndum. Hafn- arárin voru umbrotaár og vafa- laust að sumu leyti erfið, en hann aflaði sér á þeim árum lífsreynslu og mannskilnings sem urðu honum mikils virði á lífsleiðinni. Upp úr 1950 hóf hann störf í Útvegsbankanum og vann þar alla sína starfsævi. Störf hans öll ein- kenndust af framúrskarandi hæfni og dugnaði og hann fékk stöðugt erfiðari verkefni: forstaða ábyrgð- ardeildar, útibússtjóri í Vest- mannaeyjum, eftirlitsmaður úti- búa, aðstoðarbankastjóri og hann þótti að síðustu sjálfsagður í starf bankastjóra. Allra best hafa hæfi- leikar hans sennilega nýst í starfi útibússtjóra, þar sem hann setti sig rækilega inn í atvinnulífið og studdi allan heilbrigðan atvinnu- rekstur. Þrek hans og starfshæfni nýttust mjög vel í gosinu í Vest- mannaeyjum, en þá varð hann framkvæmdastjóri Viðlagasjóðs samhliða útibússtjórastarfinu. Hinar svívirðilegu nornaveiðar í tengslum við leit að sökudólg í Hafskipsmálinu skyggðu nokkuð á gleði hans síðasta starfsárið, og hann sagði mér að stuðningur konu sinnar hefði ráðið úrslitum um að hann komst óskaddaður úr þeirri orrustu. Ólafur var góður stærðfræðing- ur og kenndi þá grein um langt tímabil samhliða vinnu sinni og einnig eftir að hann hætti aðal- störfum. Kennsla átti mjög vel við hann og veitti honum mikla ánægju. Ólafur giftist bekkjarsystur sinni, Sigríði Helgadóttur, og þau eignuðust fjögur börn, sem upp komust. Það leyndist engum, að samband þeirra var framúrskar- andi náið. Tengslin við börnin og barnabörnin voru líka óvenju sterk og innileg. Ólafur var meðalmaður á vöxt, ekki beint smáfríður, en með mjög hreinan og eftirminnilegan svip. Hann var fjörlegur og fremur ör í lund, með mjög ríka kímnigáfu, sem þó var gjörsneydd allri rætni og háði, og yljaði upp öll sam- skipti við hann. Bak við hressilega framkomu var djúpur mannskiln- ingur og samúð með öllum sem áttu erfitt og minna máttu sín. Það kom ekki síst fram í kennslunni. Þegar leiðir skiljast ríkir djúpur söknuður og heimurinn varð snauðari og fátæklegri við fráfall hans. Magnús Ásmundsson. Þó að dauðinn sé oft kærkomin hvíld, ekki síst öldrúðu fólki, er eins og maður sé aldrei viðbúinn honum. Ingibjörg móðursystir mín hafði verið mikill sjúklingur til margra ára, svo eflaust hefur hvíldin verið henni líkn í þraut. Fyrsta minningin um frænku mína er frá því að ég er fímm ára, að hún kom frá ísafirði til Reykja- víkur til að sjá tímabundið um heim- ili foreldra minna, þar sem móðir mín var þá rúmliggjandi. Það er ekki gott að lýsa því með orðum hvílíka gleði og öryggi Ingibjörg flutti með sér þegar hún birtist. Hún er í mínum huga eins og álf- kona, há, grönn og fallegt hárið bylgjaðist um herðar hennar. Mikið dáði ég þessa fallegu frænku mína. Hún var sérlega skapgóð og létt í lund, og í öllum sínum veikindum hin síðari ár, heyrðist hún aldrei kvarta. Ég minnist þess þegar ég var lítil stelpa á ísafirði hjá afa og ömmu, hversu mikið var sungið, hlegið og jafnvel kveðið á Lækjar- mótum, þegar þau systkinin komu saman. Þetta var barnmargt heim- ili og því kom það af sjálfu sér, að þær eldri sem enn dvöldu í föður- garði léttu undir á heimilinu. En nú er enn eitt skarð komið í þennan stóra og sérlega samheldna systk,- inahóp. Róbert og Ingibjörg byggðu sér hús í Langagerði 64 hér í borg og hefur heimili þeirra staðið þar í rúm 40 ár. Þar ræktuðu þau garðinn sinn í orðsins fýllstu merkingu og var afar gaman að koma þangað og skoða þennan unaðsreit þeirra. Haustið 1995 urðu þau fyrir þeirri þungbæru sorg að missa yngri dóttur sína, Droplaugu, af slysförum, yndislega konu í blóma Iífsins. Var hún öllum harmdauði. Dugnaður Ingibjargar var þá ótrú- legur. Það var eins og henni væri gefinn ofurmannlegur kraftur til þess að standast þessa raun. Hin síðustu ár naut hún sérstakr- ar umhyggju Rögnu dóttur sinnar, sem annaðist hana af mikilli ástúð og er henni þakkað það af alhug. Við sem þekktum Ingibjörgu og vorum henni samtíða erum öll rík- ari að hafa fegið að kynnist svo heilsteyptri og góðri konu. Að lokum vil ég senda Róberti, Rögnu, Pétri og öllum ástvinum Ingibjargar og fjölskyldum þeirra mínar innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Ingibjargar Veturliðadóttur. Sigrún Aradóttir. t Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, INGIBJÖRG SIGRÍÐUR SKÚLADÓTTIR, Efstaleiti 14, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans þriðju- daginn 10. júní. Karl Eiríksson og fjölskylda. t Ástkær móðir okkar, GUÐRÚN DAVÍÐSDÓTTIR, Gunnlaugsgötu 2, Borgarnesi, lóst aðfaranótt þriðjudagsins 10. júní. Sigríður Héðinsdóttir Hólmfríður Héðinsdóttir. t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eigin- konu minnar, INGIBJARGAR VETURLIÐADÓTTUR, Langagerði 64, Reykjavík. Kyrir hönd aðstandenda, Róbert Bjarnason. t Ásktær faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR HILMAR HILMARSSON fyrrv. bifreiðastjóri, Þórustíg 16, Njarðvík, verður jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 13. júní kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Njarðvíkurkirkju eða aðrar líknarstofnanir. Rósmary K. Sigurðardóttir, Ólafur Guðmundsson, Sigurður H. Ólafsson, Hafdís H, Þorvaidsdóttir, Halidór B. Ólafsson, Lilja S. Guðmundsdóttir, Flóra H. Ólafsdóttir, Styrmir Gauti og Eyrún Lif. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og systir, ÁSA JÓNS PETERSEN, Njálsgötu 4, sem lést fimmtudaginn 5. júní sl., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju á morgun, föstudaginn 13. júní, kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast Ásu, er vinsamlegast bent á líknarsamtök. Borge Petersen, Ingolf Petersen, Sigrún Petersen, Örn Petersen, Berglind Ólafsdóttir, Gyða Stadil og barnabörn. t Elskuleg amma mín og langamma okkar, ÁSTA SIGURBJARNADÓTTIR, Skjóli v/Kleppsveg, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu föstu- daginn 13. júní kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Minningarsjóð Skjóls. Edda Herbertsdóttir, Jóhann Gunnar Jónsson, Ragna Soffía Jóhannsdóttir, Jón Birgir Jóhannsson, Gústav Jóhannsson. t Eiginmaður minn og faðir okkar, GÍSLI HILDIBRANDUR GUÐLAUGSSON, Smáraflöt 18, Garðabæ, lést á deild 11E á Landspítalanum þriðju- dag-inn 10. júní sl. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði mánudaginn 16. júní kl. 13.30. Jóna Valgerður Höskuldsdóttir, Höskuldur, Valgerður, Anna Hildur, Þórlaug, Auður Rún, tengdabörn og barnabörn. t Elskuleg systir mín, KISTÍN HANNESDÓTTIR frá Stóru-Sandvík, Stóragerði 36, Reykjavík, verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugar- daginn 14. júní kl. 13.30. Magnea Katrín Hannesdóttir. t Systir mín og móðursystir okkar, BJARNHEIÐUR JÓHANNSDÓTTIR, sem lést á Sólvangi í Hafnarfirði miðviku- daginn 4. júní, verður jarðsungin frá Foss- vogskapellu föstudaginn 13. júní kl. 13.30. Fyrir hönd ættingja og vina, Bjarni Jóhannsson, Svana og Helga Ragnarsdætur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.