Morgunblaðið - 12.06.1997, Page 49

Morgunblaðið - 12.06.1997, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ1997 49 FRÉTTIR Fræðslufundur um ungt fólk í vímuefnavanda Lögreg’la lýsir eftir tjónvaldi LÖGREGLAN í Reykjavík óskar eftir að hafa tal af manni sem tal- inn er hafa valdið tjóni á fólksbif- reið skammt frá Hagkaupi í Skeif- unni mánudaginn 2. júní síðastlið- inn. Þann dag var ekið á bifreið af gerðinni Lancer, með skráningar- númerið TB-382, á aksturleið er liggur að Hagkaupi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafði myndast röð bíla sem biðu þess að komast að versluninni. Næsta bif- reið á undan TB-382, sennilega ljósbrún bifreið af amerískri gerð, var þá ekið afturábak og bakkaði á hana. Var amerísku bifreiðinni síðan ekið á brott af vettvangi. Tjón varð á TB-382 og er tjón- valdurinn, sem lögreglan telur iík- legt að hafi orðið áreksturins var, beðinn um að hafa samband við rannsóknardeild lögreglu og gefa þar skýrslu um atburðinn. Skógarganga í kvöld FJÓRÐA skógarganga skógrækt- arfélaganna, Ferðafélags Islands og Búnaðarbankans um „Græna trefilinn" hefst í dag, fimmtudag- inn 12. júní, kl. 20 á vegum Skóg- ræktarfélags Reykjavíkur. Mæting og rútuferð verður frá Mörkinni 6, húsi Ferðafélagsins, kl. 20 eða við Maríuhella vestast í Vífilsstaðahlíð kl. 20.30 þar sem bifreiðum verður lagt. Þaðan verð- ur gengið um Vífilsstaðahlíð að Hjalladal. Þar bíður rúta sem ekur göngumönnum til baka í bílana við Maríuhella. Staðkunnugir leið- sögumenn frá skógræktarfélögun- um og Ferðafélaginu verða með í för og segja frá því sem fyrir ber. Næsta ganga verður fimmtu- daginn 19. júní mæting við tjald- svæðin í Hjalladal. Hópferð ís- lendinga til Víetnam KÍNAKLÚBBUR Unnar byijar með ferðir til Víetnam í september en Unnur Guðjónsdóttir fer þá með hóp íslendinga þangað. Víetnamferðin verður kynnt í Reykjahlíð 12, föstudaginn 13. júní kl. 20.30. Námskeið í áfalla- og stór- slysasálfræði REYKJAVÍKURDEILD RKÍ gengst fyrir tveggja daga nám- skeiði í áfalla- og stórslysasálfræði (sálræn skyndihjálp) 16. og 18. júní nk. Kennt verður frá kl. 20-23 báða dagana. Námskeiðið er ætlað fyrir alla þá sem áhuga hafa á áfalla- og stórslysasálfræði og eru eldri en 15 ára. Vætnanlegir þátttakendur þurfa ekki að hafa neina fræðilega þekkingu né reynslu á þessu sviði. Námskeiðshaldari verður Lárus H. Blöndal, sálfræðingur. Kennslu- staður er Fákafen 11, 2. hæð. Sameining Reykjavíkur og Kjalarness KOSIÐ verður um sameiningu Reykjavíkur og Kjalameshrepps laugardaginn 21. nk. Kynningarfundir hafa verið haldnir á báðum stöðum og næstu daga verður hægt að skoða í Tjarn- arsal Ráðhússins kort og upp- drætti sem liggja til grundvallar sameiningartillögunni ásamt öðr- um gögnum. LEIÐRÉTT Rangt föðurnafn í UMFJÖLLUN um snjósleða- keppni á sunnudaginn var Alex- ander Kárason rangt feðraður og sagður Högnason. Beðist er vel- virðingar á mistökunum. Stjórnarmönnum víxlað í SJÁVARÚTVEGSBLAÐI Morg- unblaðsins, Úr verinu, var í gær greint frá stjórnarmönnum í hinu nýstofnaða Skipstjóra- og stýri- mannafélagi íslands. Þau leiðu mistök urðu í frásögninni að full- trúar skipstjóra í stjórn voru sagð- ir fulltrúar stýrimanna, og öfugt. Hið rétta er að Engilbert Engil- bertsson, Sigurður Steinar Ketils- son, Pálmi Hlöðversson og Guð- mundur Kr. Kristjánsson eru full- trúar skipstjóra í stjórn, en þeir Magnús Harðarson, Sigurður Pet- ersen, Örn S. Daníelsson og Auð- unn Fr. Kristinsson fulltrúar stýri- manna. Beðist er velvirðingar á mistökunum. SÁÁ efnir til fræðslu- og umræðu- fundar fyrir foreldra ungs fólks í vímuefnavanda föstudaginn 13. júní. Fundurinn verður haldinn í göngudeild SÁÁ, Síðumúla 3-5 og hefst kl. 20. Aðgangur er ókeypis. Á fundinum verður rætt um þá meðferð sem ungu fólki í vímu- efnavanda er veitt, hvaða hugsun býr að baki henni og hvernig unga fólkið bregst við. Foreldrum er einnig boðið að tjá hug sinn og fá nánari skýringar. Frummælendur verða Þórarinn Tyrfmgsson, yfir- læknir á sjúkrahúsinu Vogi, og Hjalti Björnssonj dagskrárstjóri göngudeildar SÁA. + Kær vinkona okkar og frænka, JÓHANNA GUÐMUNDSDÓTTIR, Lindargötu 61, Reykjavík, lést á Landspítalanum mánudaginn 9. júní. Edith Nicolaidóttir, Áslaug Jónsdóttir, Ellen Snæbjörnsdóttir, Ásgerður Annelsdóttir Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við and- lát og útför SÆUNNAR JÓNSDÓTTUR frá Vesturhlíð, Lýtingsstaðahreppi, Skagafirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Suðurlands. Eyþór Gíslason, María Eyþórsdóttir, Birna Eyþórsdóttir, Gísli Eyþórsson, Ingibjörg Eyþórsdóttir, Kári Eyþórsson, Jón Eyþórsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Benefon Delfa Léttur og me&fœrilegur handfarsíini Einfaldur (notkun Vegur aðeins 350 g »- Ýmiss aukabúnaður fáanlegur Skammvalsminni fyrir 99 númer og nöfn 2w sendiorka »- Litir: Blár, svartur og vínrauður PÓSTUR OG SÍMI HF Söludeild Ármúla 27, sími 550 7800 Söludeild Kringlunni, sími 550 6690 Landsímahúsinu, simi 800 7000 og á póst-og simstöðvum um land allt. Heimasiða símans: httpV/www.simi.is f Fyrir r NMT farsíma kerfi& ofc / dag verður haldinn árlegur fundur sjóðsfélaga, íA-sal Hótel Sögu. Fundurinn hefst kl. 16:00 FRJÁLSI LÍFEYRISSJÓÐURINN Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár. 2. Ársreikningar ársins 1996. 3. Stutt kynning á frumvarpi til laga um lífeyrismál. 4. Tillaga um breytingu á reglugerð*. 5. Önnur mál. *) Tillaga um breytingu á reglugerb er svohljóbandi: 9. gr. Lífeyrissjóburinn ávaxtar fé sltt meb eftirfarandi hætti: 1. í ríkisvíxlum, ríkisskuldabréfum og skuldabréfum sem eru tryggb meö ábyrgö ríkissjóös. 2. í skuldabréfum bæjar- og sveitarfélaga. 3. í skuldabréfum tryggbum meb vebi í fasteign aö hámarki 65% af metnu markaösviröi nema þegar um er ab ræöa sérhæft atvinnuhúsnæbi þá skal þab hámark vera 35%. 4. Meö innlánum f bönkum og sparisjóbum. 5. í skuldabréfum og víxlum banka, sparisjóöa og annarra lánastofnana, sem lúta eftirliti bankaeftirlitsins. 6. í hiutabréfum fyrirtækja sem skráö eru á opinberum veröbréfamarkaöi í löndum OECD. 7. í hlutdeildarskírteinum veröbréfasjóöa. 8. í öörum veröbréfum þó aö hámarki 10% af eign sjóösins, (t.d. stór fyrirtæki skráö á Veröbréfaþingi). 9. I innlendum hlutabréfum sem ekki eru skráö á skipulegum markaöi, enda séu engar hömlur lagöar á viöskipti meö hlutabréfin og ársreikningar hlutaöeigandi hlutafélaga öllum aögengilegir. (Þó aö hámarki 10% afeign sjóösins). 10. MeÖ gerö afleiöa, sem draga úr áhættu sjóösins. Sjóðsfélagar eru eindregið hvattir til aó mœta

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.