Morgunblaðið - 12.06.1997, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ1997 53
FRÉTTIR
Morgunblaðið/gg
FEÐGARNIR Róbert Reynisson t.v. og Reynir Ásgeirsson frá
Svarfhóli með 9 punda lax Róberts úr Grettisbreiðu í Laxá í
Leirársveit í gærmorgun.
Boðleg
byijun í
Laxá í
Leirár-
sveit
FJÓRIR laxar veiddust á fyrstu
vakt sumarsins í Laxá í Leirársveit
í gærmorgun, allir 9-11 punda og
í ýmsum veiðistöðum frá Laxfossi
og niður á svokallaða Grettisbreiðu.
Að sögn veiðimanna sem blaðið
rabbaði við á bökkum Laxár var
ekki mikið líf framan af morgni,
en er leið á morguninn kom í ljós
að morgunflóðið hafði skilað smá-
göngu. Menn voru þó sammála um
að það vantaði vætu og lengri hlý-
indakafia.
Það er rólegt í Borgarfirðinum
þessa dagana. Úr Norðurá eru þó
komnir um 90 laxar á land og ljóst
að áin verður fyrst til að ná þriggja
stafa tölu. Að sögn Jóns Þ. Einars-
sonar, sem er að veiða í ánni þessa
dagana, hefur veiðin þó verið treg
að undanförnu. „Við sjáum laxa-
göngur, t.d. eina með um það bil
30 löxum á Stokkhylsbroti í fyrra-
kvöld, en það er mikil ferð á laxin-
um og hann tekur ekki vel. Áin er
orðin vatnslítil og við teljum að fisk-
ur sé jafnvel genginn í stórum stíl
upp fyrir Laxfoss. Það er ekki að
marka teljarann, því í svona vatni
getur laxinn farið fossinn nánast
þar sem honum sýnist. Við höfum
séð tvo laxa í Berghyl, en enginn
hefur tekið fyrir ofan Laxfossinn
enn sem komið er,“ sagði Jón í
gærdag.
Þórey bústýra í veiðihúsinu við
Þverá sagði í samtali við blaðið í
gærdag að þá um morguninn hefðu
3 laxar veiðst og þar með væru
komnir 13 laxar í veiðibókina. „Það
eru bændadagar í Kjarrá og í gær
hafði enginn lax veiðst þar,“ sagði
Þórey.
Aðrar veiðislóðir
Enn togast hægt og rólega í
Laxá í Kjós og á hádegi í gær voru
komnir 12 laxar á land auk nokk-
urra sjóbirtinga allt að 4 pundum.
„Það er þó farið að sjást dálítið
meira af fiski þannig að við erum
bjartsýn og sátt hér í Kjósinni,"
sagði Ásgeir Heiðar fulltrúi leigu-
taka í gærdag. Hann gat þess einn-
ig að lax væri farinn að sjást ofan
Laxfoss og nefndi staðina Klinga-
berg, Pokafoss, Káranesfljót og
Skugga.
11 laxar voru komnir á land úr
Laxá í Aðaldal á hádegi í gær að
sögn Þórunnar, ráðskonu í Vöku-
holti. Allir laxarnir voru 10 til 16
pund og veiddust fyrir neðan Æðar-
fossa. Fyrsta morguninn, í fyrra-
dag, veiddust fimm laxar, eftir há-
degi sama dag þrír viðbótar og í
gærmorgun bættust þrír laxar við.
Á sunnudaginn höfðu veiðst um
30 laxar í Blöndu sem telst mjög
gott miðað við að ískyggilegt veður
hefur verið lengst af eftir að áin
opnaði 5. júní.
Þá er farið að reytast upp lax
úr Laxá á Ásum og var kominn á
annan tug físka á land í vikubyijun
samkvæmt upplýsingum veiði-
manna sem þar voru á ferð.
Sumaræv-
intýri eldri
borgaraí
Skálholti
SKÁLHOLTSSKÓLI býður eldri
borgurum til fimm daga dvalar í
Skálholti í júní, júlí og ágúst.
Umsjón með hveijum hópi munu
hafa presthjónin sr. Magnús Guðjóns-
son og Anna Sigurkarlsdóttir 24.-29.
júní, sr. Lárus Halldórsson og Þórdís
Nanna Nikulásdóttir 22.-27. júlí og
sr. Gísli Kolbeins og Sigríður Kol-
beins 12.-17. ágúst.
„Boðið verður upp á dagskrá alla
dagana og samanstendur hún m.a.
af hinu reglulega helgihaldi í Skál-
holti, fræðslu ýmissa aðila sem munu
koma í heimsókn, skoðunarferðum
um sveitina með leiðsögn félags aldr-
aðra í Biskupstungum, heimsókn í
gróðurhús, leikfími, sundferð, ferð í
dýragarðinn í Laugarási, skemmti-
og harmonikkukvöldi o.fl.
Verð á mann er 18 þúsund kr. í
því er innifalin gisting, fæði allan
tíman og ferðir til og frá Skálholti.
Skoðunarferðir og ferðir í dýragarð
og sund þarf að greiða sérstaklega,"
segir í fréttatilkynningu frá Skál-
holtsskóla.
Siglingar á
seglskútum
ALMENNINGI gefst kostur á að
kynna sér siglingasportið og verður
kynningarfundur um siglingar hald-
inn fimmtudaginn 12. júní í félags-
heimili Ýmis að Vesturvör 8 í Kópa-
vogi.
Fundurinn hefst stundvíslega kl.
20.00 og verður farið í bóklega
undirstöðu í meðferð og siglingu
seglbáta. Skráning verður á staðn-
um í verkleg námskeið í siglingum
sem siglingafélagið stendur fyrir.
Sólstöðuferð
*
HIN í Haukadal
HIÐ íslenska náttúrufræðifélag
áformar sólstöðuferð í Haukadal
í Biskupstungum laugardaginn
21. júní og sunnudaginn 22. júní.
Verður skoðað það sem staðurinn
og nágrennið hefur upp á að
bjóða.
Náttúrufar er þar ákaflega fjöl-
breytt, bæð lífríki og jarðmyndan-
ir staðarins, og þar dafnar vel sú
mikla fjölbreytni sem tilheyrir
nútímanum svo sem skógrækt,
landgræðsla, útivistarsvæði, or-
lofshús og hvers konar ferða-
mannaþjónusta í kringum hina
sögufrægu staði Haukadal, Geysi
og Gullfoss.
Leiðbeinendur í ferðinni verða
Sigurður Greipsson, líffræðingur
hjá Landgræðslu ríkisins og skóg-
fræðingur frá Skógrækt ríkisins
auk fararstjóranna Freysteins
Sigurðssonar og Guttorms Sig-
bjarnarsonar. Lagt verður af stað
frá Umferðarmiðstöðinni, suður-
dyr, kl. 9 að laugardagsmorgni
21. júní 1997. Ekið verður um
Þingvöll og Laugarvatn að
Haukadal þar sem Skógrækt rík-
isins verður skoðuð. Síðan verður
ekið upp í Haukadalsheiði og at-
hugað ástand landgræðslumála
þar. Gist verður að Geysi þar sem
bæði eru almenn tjaldstæðþ
svefnpokapláss og herbergi. Á
sunnudagsmorguninn kl. 10 verða
gönguferðir við hæfi um hlíðina
ofan við Haukadal og hugað að
jarðfræði og gróðri svæðisins.
Síðdegis verða jökulminjar skoð-
aðar í Ytri-Biskupstungum og
farið heim um Grímsnes. Stefnt
verður að afturkomu í bæinn fyr-
ir kvöldmat.
Fólk er beðið um að skrá sig í
ferðina á skrifstofu HÍN að
Hlemmi 3. Þátttökugjald í ferðina
er 5.000 kr. og hálft gjald fyrir
börn.
Verð-
Lækkun
jaldfrjálst þjónustunúmer
Stórfelld lækkun hefur nú orðið á sam-
netstengingu til heimila. Stofngjald
lækkar um allt að 41% og ársfjórðungs-
gjald um 58%.
Ef þú ert með eina línu fyrir á heim-
ilinu er stofngjald grunntengingar
ekkinema: 7.255 KR*
en sértu með tvær línur greiðirðu
ekkert stofngjald.*
’ VERÐ MIÐAST VIÐ AÐ LÍNUR SÉU THKNAR
UPP í GRUNNTBNGINGU ÁN FBRIALDS.
PÓSTUR OG SÍMI HF
L frá
Litir: Hvítt, svart, orange, gult, rautt
Reykjavík: Apótek Árbæjar - Blu di blu - Gullbrú - Ingólfs Apótek - Móttur
Nunu Hólugurði - Snyrtistofan Dekurhornið - Sólbaðsstofan Grafurvogi
Stúdió Ágústu og Hrafns - Útilif
Kópavogi: Apótek Kópavogs - Snyrtistofan Snót Húsavík: Garðarshólmi
Garðabær: Snyrtihöllin
Hafnarf jörður: Músik og Sport - Sól og Sæla
Borgarnes: Kaupfélag Borgfirðinga
Hellissondur: Blómsturvellir
Isaf jörður: Verslunin Jón og Gunno
Sauðórkrókur: Skagfirðingabúð
RUN
Akureyri: KA0Z - Ynja
Neskaupsstaður: Lækurinn
Egilsstaðir: Skógar
Höfn: Lónið
Vestmannaeyjor: Smort - Hressó
Suðurnes: Kaupfélag Suðurnesja
Sími: S68 OóS6