Morgunblaðið - 25.06.1997, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Biskup Islands um nýja löggjöf um kirkjuna
Sjálfstæði tryggt og
sveigjanleiki aukinn
Nýir lagabálkar um stöðu, stjóm og starfs-
hætti kirkjunnar og jarðeignir hennar sem
samþykktir voru á Alþingi síðastliðið vor
verða til umfjöllunar á prestastefnu í dag.
Jóhannes Tómasson ræddi við biskup ís-
lands af því tilefni sem segir að lögin marki
þáttaskil í starfí kirkjunnar.
Morgunblaðið/Jim Smart
HERRA Olafur Skúlason biskup segir nýju lögin tryggja sjálf-
stæði kirkjunnar og að áhrif ieikmanna séu aukin.
Þrotabú Miðils
ehf., útgáfufélags
Helgarpóstsins
Ogreidd
laun rit-
stjóra
dæmd for-
gangskrafa
HÆSTIRÉTTUR hefur kveðið upp
þann dóm að kröfur Sæmundar
Guðvinssonar, fyrrverandi ritstjóra
Helgarpóstsins, á hendur þrotabúi
Miðils ehf. skuli teljast forgangs-
kröfur. Héraðsdómur Reykjavíkur
hafði áður hafnað kröfum Sæ-
mundar með dómi sem kveðinn var
upp 27. maí síðastliðinn og áfrýjaði
Sæmundur dómnum til Hæstarétt-
ar.
Sæmundur var ráðinn ritstjóri
Helgarpóstsins 1. júní 1996 með
munnlegum ráðningarsamningi en-
áður hafði hann starfað þar sem
blaðamaður frá 1. janúar 1996.
Með uppsagnarbréfi dagsettu 18.
september 1996 var honum sagt
upp störfum vegna rekstrarörðug-
leika blaðsins. Gerði Sæmundur
kröfu um greiðslu eftirstöðva launa
fyrir ágústmánuð og fyrir septem-
ber, launa í tveggja mánaða upp-
sagnarfresti, orlofsinneignar og
símareiknings, eða samtals
1.000.754 kr. með dráttarvöxtum.
I dómi héraðsdóms sagði m.a.
að enda þótt samningssamband
aðila hefði á sér þann blæ að vera
vinnusamningur ídæddur í búning
verksamnings skorti nokkuð á að
kröfu sóknaraðila yrði jafnað við
kröfu um laun eða annað endur-
gjald fyrir vinnu í skilningi gjald-
þrotalaga eða bætur vegna slita á
vinnusamningi í skilningi sömu
laga. Kröfum Sæmundar á hendur
þrotabúi Miðils ehf. væri því hafn-
að.
Sterk einkenni vinnusamnings
I dómi Hæstaréttar er komist
að þeirri niðurstöðu að krafa Sæ-
mundar að frádregnum símakostn-
aði verði viðurkennd sem forgangs-
krafa. í dóminum kemur m.a. fram
að telja verði sýnt fram á það í
málinu að samið hafi verið um það
milli aðilanna að sóknaraðili ætti
rétt á tveggja mánaða uppsagnar-
fresti og orlofi og telja verði að
samband aðilanna hafi haft sterk
einkenni vinnusamnings, en
varnaraðila hafí ekki tekist að sýna
fram á að samningur aðilanna hafi
samkvæmt eðli sínu verið verk-
samningur. Verði því að fallast á
það með sóknaraðila að launakröf-
ur hans falli undir 1. málsgrein
112. greinar gjaldþrotalaga frá
1991 og krafa hans teljist þar með
forgangskrafa. Þá var Miðli ehf.
gert að greiða Sæmundi samtals
80 þúsund krónur í málskostnað í
héraði og kærumálskostnað. Málið
dæmdu hæstaréttardómararnir
Haraldur Henrysson, Hrafn Braga-
son og Pétur Kr. Hafstein.
„MERKUSTU atriðin í þessari lög-
gjöf eru annars vegar hvernig sjálf-
stæði Þjóðkirkjunnar er tryggt og
hins vegar að nú tókst að ljúka
þessu mikla máli sem verið hefur í
umræðunni raunar allt frá árinu
1907 um jarðeignir kirkjunnar,"
sagði biskup íslands, Ólafur Skúla-
son, í samtali við Morgnnblaðið er
hann var spurður hver væri að
mati hans stærsti ávinningurinn við
lagasetninguna.
Lögin um stjórn og starfshætti
kirkjunnar annars vegar og hins
vegar um jarðeignir kirkjunnar eru
allmikil að vöxtum og taka til
margra þátta í innri málefnum
kirkjunnar. Þau ganga í gildi í byij-
un næsta árs. Biskup er beðinn að
greina nánar frá þeim breytingum:
„I meginatriðum er tilgangur
lagasetningarinnar að leggja
áherslu á sjálfstæði kirkjunnar í
sem flestum málum en allt frá því
að trúfrelsi var lögleitt hér árið
1874 hefur sjálfstæði hennar eink-
um varðað innri málin. Nú er henni
einnig tryggt sjálfstæði hvað varðar
reglur um veitingu prestakalla,
kosningu biskupa, kosningu til
kirkjuþings og öll þingsköp þess og
ýmsa þætti sem heyrðu áður undir
Alþingi.“
Rammalöggjöf
„Hér er, um rammalöggjöf að
ræða, raunar nokkuð nákvæman
ramma, en síðan verður það hlut-
verk nýs kirkjuþings, sem kosið
verður á næsta ári, að ganga frá
fjölmörgum starfsreglum sem lögin
gera ráð fyrir að settar verði.“
Eina af helstu forsendum laga-
setningarinnar segir biskup vera
þá að nú tókst að ljúka samningum
við ríkið um jarðeignir kirkjunnar
en árið 1984 voru þær 10% af öllum
jarðeignum. „Þar byggðum við á
starfí tveggja nefnda sem falið var
að kanna eignir kirkjunnar á fyrri
tíð og allt til þessa dags en málið
hefur verið á dagskrá miklu leng-
ur, allt frá 1907 þegar prestar
hættu að fá framfæri sitt af þeim
jörðum sem þeir sátu á. Er ástæða
til að þakka þessum nefndum fyrir
það mikla starf sem þær hafa unnið.
Samningurinn gerir ráð fyrir að
ríkið greiði laun biskups, vígslubisk-
upa, 138 starfandi presta og pró-
fasta og 18 starfsmanna á biskups-
stofu og síðan er gert ráð fyrir
sveigjanleika ef fjölgar eða fækkar
í þjóðkirkjunni. í staðinn afsalar
kirkjan sér jörðum sínum og ég
held að það sé hollt fyrir kirkjuna
að þessi mál verði nú ekki lengur
í umræðunni. Ríkið hefur einhliða
ákveðið verð á þessum jörðum og
ég held að fundist hafí farsæl og
góð lausn á þessum málum öllum
með samningnum."
Biskup segir að ýmsar starfs-
nefndir hafi þegar verið skipaðar
til að ijalla um tiltekna málaflokka
en það verði síðan hlutverk nýs
kirkjuþings og nýs biskups að móta
þessar reglur nánar. Þar sem nýtt
kirkjuþing verði ekki kjörið fyrr en
á næsta ári hafí núverandi kirkju-
þingi, sem kemur næst saman með
haustinu, verið falið að hefja þetta
nefndarstarf þegar á þessu ári.
„Ein mesta breytingin verður á
starfí kirkjuþings. Áhrif leikmanna
eru aukin, þeim er fjölgað og for-
seti kirkjuþings kemur úr hópi
þeirra en biskup verður ekki lengur
forseti eins og verið hefur. Kirkju-
þing verður nú skipað 9 prestum
sem þeir kjósa úr hópi sínum og
12 leikmönnum sem kosnir eru af
sóknamefndum og verða kirkju-
þingsmenn úr hópi leikmanna að
sitja í sóknarnefnd. Biskup, vígslu-
biskupar og forseti guðfræðideildar
sitja einnig kirkjuþing með mál-
frelsi og tillögurétt en ekki atkvæð-
isrétt og þar situr ráðherra einnig
eða fulltrúi hans. Kirkjuþing mótar
stefnu og er í raun ráðandi aðilinn
um öll málefni kirkjunnar. Kirkju-
ráði verður síðan falin framkvæmd
mála og þar situr biskup í forsæti
eins og verið hefur.
í stórum dráttum þýðir þetta að
nú verða ákvarðanir um flest mál-
efni kirkjunnar ekki lengur teknar
hjá ráðherra, ríkisstjóm eða Alþingi
heldur af kirkjuþingi. Kirkjan hefur
sjálf miklu meira að segja um öll
eigin mál og þetta tel ég vera lykil-
atriði, það sem er miðlægt í allri
þessari löggjöf," segir biskup og
telur hann einnig að þessi leið muni
flýta mjög allri afgreiðslu mála og
gera hana skilvirkari.
Leikmönnum fært
fory stuhlutverk
Biskup verður ekki lengur í for-
sæti kirkjuþings eins og verið hefur
heldur er forseti valinn úr hópi leik-
manna. Breytir það einhveiju um
valdsvið biskups?
„Nei, vald og áhrif biskups verða
eftir sem áður töluverð. Hann er
áfram í forsæti í kirkjuráði sem
hrindir í framkvæmd ákvörðunum
kirkjuþings. Það voru kannski
nokkuð skiptar skoðanir um þessi
áhrif leikmanna, vígðum mönnum
fannst eins og kirkjuþing setti eitt-
hvað niður við þessa fjölgun leik-
manna en ég held að það sé mis-
skilningur og tel og vona að það
sé rétt að auka með þessu vægi
leikmanna. Ég held að leikmenn
eigi að finna það að kirkjan ætlast
til forystuhlutverks af þeim og það
er vissulega gert með því að færa
þeim meirihluta kirkjuþingsfulltrúa,
auk forseta kirkjuþings.
Svo má einnig minna á að kirkju-
þing sitja fleiri vígðir menn þótt
þeir hafi þar ekki atkvæðisrétt, svo
sem fulltrúar guðfræðideildar og
biskupar."
Meðal nýrra ákvæða í lögunum
er hvernig farið er með brot á
kirkjuaga: „Biskup hefur yfírum-
sjón með kirkjuaga en skipuð verð-
ur úrskurðarnefnd til fjögurra ára
og getur hver sem er skotið máli
til hennar um hvaðeina er varðar
presta eða aðra starfsmenn kirkj-
unnar. Nefndin getur í úrskurði sín-
um lagt til varðandi prest að biskup
veiti honum áminningu, færi hann
til í starfí eða að hann verði hrein-
lega látinn fara.
Þessu hefur ekki verið til að
dreifa. Þeir sem ekki una slíkum
úrskurði geta skotið honum til
áfrýjunarnefndar sem ráðherra
skipar og skulu sitja í henni menn
sem eru kjörgengir til embættis
hæstaréttardómara. Úrskurður
hennar er endanlegur. Það hefur
töluvert lengi verið kallað eftir ein-
hverri slíkri leið og ég tel mjög
farsælt að nú sé kominn farvegur
sem menn geta skotið ágreinings-
málum í.“
Prestar ekki
lengur æviráðnir
Biskup segir að eitt umdeildasta
ákvæði laganna hvað presta varðar
sé sú breyting að þeir verði ekki
lengur æviráðnir. „Um þetta var
mikil umræða og sýndist sitt hveij-
um. Komu bæði prestar og sóknar-
nefndarmenn að þessu máli. En það
held ég að hljóti að vera öllum Ijóst
að þessi fimm ára regla um starfs-
tíma gerir útilokað annað en að
breytt verði tilhögun við veitingu
prestakalla.
Kirkjuþing hlýtur að láta það
verða sitt fyrsta verk að endurskoða
veitingafyrirkomulagið. Lögin um
veitingu prestakalla frá 1987 áttu
reyndar að vera endurskoðuð þegar
árið 1992 en það hefur dregist.
Kjörmannaaðferðin var hugsuð sem
millistig í veitingu embættanna með
almenna kosningu sem möguleika
en mundi vonandi leiða til þess að
kirkjustjórnin fengi veitingarvaldið
með einhverri íhlutun viðkomandi
aðila.“
Fer sáttur
„Ég fer úr embætti í árslok mjög
sáttur við þessa lagasetningu um
stöðu kirkjunnar og er þakklátur
þeim mörgu sem hafa unnið að
framgangi þessa máls. Þar finnst
mér ekki síst ástæða til að geta
þess að þáttur Þorsteins Pálssonar,
kirkjumálaráðherra, var lykilatriði
í lyktum þessa máls og hefur sam-
vinna okkar verið mjög góð á alla
lund. Mér hefði þótt miður ef ekki
hefði tekist að ljúka því nú og tel
að nýr biskup hefði staðið frammi
fyrir ákveðnum vanda ef svo hefði
ekki verið. En ég tel að hann geti
gengið rólegur til starfa í þessum
þáttaskilum."
OPIÐ HÚS
Ertu að leigja? Fyrstu kaup? Námsfólk?
Til sölu björt og góð 3ja herb. íbúð á 6. hæð í góðu lyftuhúsi með
suðvestursvölum og frábæru útsýni. Ný gólfefni og þvottahús á
hæðinni. Tilvalin fýrstu kaup eða fýrir námsfólk utan af landi.
Verðið er ótrúlegt! 4.950 þúsund og áhvílandi hagstæð lán 3,3
millj. króna með greiðuslubyrði innan við 20 þús. pr. mánuð og
lægra sé tekið tillit til vaxtabóta. Ath. góð húseign þar sem öllum
viðgerðum er lokið. Snyrtileg sameign og traustur húsvörður.
LAUS STRAX. Rósa sýnir íbúðina í dag og næstu daga og er við í
síma 567 9172.
Húsakaup, Suðurlandsbraut 52 v/Faxafen, s. 568 2800.
SUMARTILBOÐ
falleg gæðahandklæði
20% afsláttur
JöL Z-BRAUTIR OG GLUGGATJÖLD,
W FAXAFENI 14, SÍMI 533 5333.