Morgunblaðið - 25.06.1997, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1997 13
AKUREYRI
Kálfur af
nýju holda-
nautakyni
Arnarneshreppi.
LENGI var beðið eftir kálfmum
hennar Spíru á Ytri-Reistará í Arn-
arneshreppi. Ástæðan er sú að búist
var við að kálfurinn yrði sá fyrsti
í Eyjafirði undan holdanauti af
frönsku Limousin kyni sem bytjað
var að dreifa sæði úr sl. sumar.
Hitt var og að Spíra átti tal fyrir
9-12 dögum og ekki var vitað hvort
allt væri með felldu.
Ákveðið var í fyrrasumar að
prófa Limousin kynið á kúm í Eyja-
firði og á Egilsstaða- og Hvanneyr-
arbúunum. Limousin naut eru há-
fætt og hyrnd og þótti ástæða til
að fara hægt í sakirnar með notkun
þeirra áður en fyrir liggur hvernig
kúm gengur að fæða kálfana. Burð-
urinn hjá Spíru gekk vel og eðlilega
fyrir sig, en búast má við að kýr
sem fá við þessum nautum gangi
lengur með en venjulegt er með
alíslensk fóstur.
Kristján bóndi Pétursson á Ytri-
Reistará hefur lagt rækt við holda-
nautabúskap frá því að notkun á
Galloway nautum hófst fyrir 18
árum. í hjörðinni eru nú um 40
hausar, nokkrar kýr ganga með
kálfa af Aberdeen Angus og Lim-
ousin kyni. Annars er Kristján
þekktur fyrir annað en holdanauta-
búskap, því hann hefur átt eitt af-
urðamesta kúabú um langt árabil,
kýr hans hafa mjólkað um 5.000
kg að meðaltali sl. 25 ár.
Norræn vina-
bæjavika hafin
VINABÆJAVIKAN NOVU 97 var
sett við hátíðlega athöfn í Iþrótta-
höllinni á Akureyri á mánudag.
Fulltrúar frá vinabæjum Akur-
eyrar á Norðurlöndunum voru
viðstaddir setninguna ásamt fleiri
gestum.
Þórarinn E. Sveinsson, forseti
bæjarstjóniar Akureyrar, setti
vinabæjavikuna og hann sagðist
m.a. vonast til að veðrið myndi lag-
ast þessa björtustu daga ársins,
þótt veðurspáin væri ekki allt of
hagstæð. Hann sagði vinabæjasam-
starfið hafa verið misjafnlega
öflugt í gegnum tíðina en þó hafi
það verið jákvætt og vinatengsl
fólksins í þessum löndum styrkst á
þessum árum. Fulltrúar vinabæj-
anna stigu einnig í ræðustól og
fluttu stutta kynningu um
heimabæi sina.
Þá lék lúðrasveitin Randers
pigegarde við setninguna. Lúðra-
sveitin er skipuð 45 stúlkum og
setti sveitin skemmtilegan svip á
athöfnina. Lúðrasveitin mun að
öðru leyti spila á miðbæjarsvæðinu
meðan vinabæjavikan stendur yfir.
Sýning á handverki
Eftir setninguna var opnuð sýn-
ing í anddyri Iþróttahallarinnar,
á handverki frá hvetju bæjarfé-
lagi sem þátt tekur í vinabæjavik-
unni. Auk ungmenna frá Akur-
eyri taka jafnaldrar þeirra frá
Randers í Danmörku, Vasterás í
Svíþjóð, Álesund í Noregi og
Lahti í Finnlandi þátt í dagskrá
vinabæjavikunnar. Frá Narsaq,
vinabæ Akureyrar á Grænlandi,
komu einnig nokkir þátttakendur,
þó að Narsaq taki ekki að stað-
aldri þátt.
I ár eru 50 ár frá því vinabæir
Akureyrar á Norðurlöndunum
hófu skipulegt samstarf. Vegna
þessara timamóta var ákveðið að
kjörorð vikunnar verði „fortíð,
nútíð og framtíð". Ungmennin
starfa saman í hópum en um er
að ræða hestamennsku, róður og
fimleika og ennfremur eru starf-
andi listahópur og umhverfis- og
náttúruhópur og þá er dagskrá í
gangi fyrir bæjarfulltrúa og emb-
ættismenn vinabæjanna.
Morgunblaðið/Björn Gíslason
DANSKA lúðrasveitin Randers pigegarde setti skemmtilegan
svip á setningu vinabæjavikunnar á Akureyri.
FINNSK blómarós opnar sýningu á
handverki frá heimabæ sínum, Lahti,
í anddyri Iþróttahallarinnar.
Ævintýraferð
með blinda
ferðamenn
FERÐAMÁLAMIÐSTÖÐ Eyja-
fjarðar og Blindrafélagið hafa um
nokkurt skeið haft með sér sam-
vinnu um skoðun á þeim möguleik-
um sem svæðið hefur til að sinna
ferðaþjónustu fyrir blinda ferða-
menn. I kjölfarið hefur verið ákveð-
ið að efna til tveggja reynsluferða
með blinda ferðamenna í sumar og
er þegar fullbókað í fyrri ferðina,
sem hefst nk. föstudag.
Aðgengi fyrir blinda ferðamenn
þykir með besta móti á svæðinu og
er fyrri ferðin farin í samvinnu við
Sportferðir, Ferðaþjónustuna Ytri-
Vík/Kálfskinn og Flugfélag íslands.
Hér er um að ræða sannkallaða
ævintýraferð sem hefst með kvöld-
skemmtun á Ytri-Vík á föstudags-
kvöld. Á laugardagmorgun verður
farið í reiðtúr áður en lagt er í
hálendisferð á sérútbúnum jeppum
að Laugarfelli, þar sem verður gist
um nóttina. Á sunnudeginum verð-
ur síðan haldið vestur fyrir hálend-
ið og ekið niður í Skagafjörð.
Við Jökulsá vestri bíður starfs-
fólk Ævintýraferða tilbúið með
gúmmíbáta og ferðalöngunum boð-
ið upp á fljótasiglingu. Að lokinni
baráttu við fljótið verður efnt til
útigrillveislu áður en haldið er á
ný til Akureyrar, þar sem ferða-
langanna bíður flug til Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Diðrik Jóhannsson
SPIRA með sinn fjórða kálf, rautt naut sem vó 43 kg við fæðingu 23. júní sl. Spíra er með hring
í nösum eins og naut en hún var á sínum yngri árum mjög aðgangshörð með horn sín og neydd-
ist Kristján til þess að grípa til þessa óyndisúrræðis. Hornin eru frá langömmu hennar komin en
móðir og amma voru kollóttar. Hún er sjálf nærri 80% af skoskum Galloway nautum komin.
Bollar til sýnis á kaffihúsi
Á FUNDI bæjarstjórnar Akureyrar
í gær var samþykkt að ráða Svein-
björn Markús Njálsson í stöðu
skólastjóra við sameinaðan skóla á
Brekkunni til eins árs. Áður hafði
meirihluti bæjarráðs mælt með því
að Sveinbjörn yrði ráðinn skóla-
stjóri.
Þá var samþykkt að ráða Ólaf
B. Thoroddsen í stöðu skólastjóra
við Síðuskóla, Sigríði Ásu Harðar-
dóttur í stöðu aðstoðarskólastjóra
Síðuskóla og Guðmund Þór Árna-
son í stöðu skólafulltrúa Akur-
eyrarbæjar. Skólanefnd hafði áður
mælt með ráðningu þeirra í stöð-
urnar.
Sturla Kristjánsson, sem einnig
hafði sótt um stöðurnar við Síðu-
skóla og stöðu skólafulltrúa var á
fundi bæjarstjórnar í gær ráðinn
til að hafa með höndum sálfræði-
þjónustu við grunnskóla bæjarins.
Fáar umsóknir í
stjórnunarstöður
Bæjarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsins lögðu fram bókun á fundi
bæjarstjórnar, þar sem gagnrýnd
er samþykkt meirihluta bæjarráðs
í síðustu viku varðandi ráðningu
skólastjóra við sameinaðan skóla á
Brekkunni. Þar kemur m.a. fram
að bæjarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsins vilja ekki taka ábyrgð á
og eru ekki sammála þeirri máls-
meðferð sem viðhöfð er við ráðn-
ingu skólastjóra við skólann. Þar
sé lagt til að ráðið sé í stöðuna
án þess að hún væri auglýst að
nýju og án þess að fyrir liggi
umsögn skólanefndar.
í bókuninni vekja bæjarfulltrúar
Alþýðubandalagsins einnig athygli
á hversu fáar umsóknir berast nú
um stjómunarstöður á sviði skóla-
mála hjá Akureyrarbæ. Það sé
sorgleg staðreynd að ekki þyki
eftirsóknarverðara að starfa að
þeim málum hjá bænum.
SÝNINGIN Koppar og kirnur, var
nýlega opnuð á Café Karólínu í
Listagilinu á Akureyri. Þar sýnir
Jenný Valdimarsdóttir verk sín
en hún nam leirkerasmíði við Den
danske husflidshöjskole í Kerte-
minde Danmörku á árunum 1989-
1991.
Jenný hefur áður sýnt verk sín
á samsýningum á íslandi, í Dan-
mörku og Þýskalandi. Sýningin
samanstendur aðallega af bollum
og er frábrugðin mörgum öðrum
að því leyti að gestir Karólínu fá
tækifæri til að drekka úr listmun-
unum og gerast þannig í raun
þátttakendur í sýningunni. Sýn-
ingin stendur til 12. júlí nk.
Bæjarstjórn Akureyrar
Ráðið í stjórnunarstöð-
ur á sviði skólamála
hAskúunn
ÁAKUREVni
Auglýsing um starf
umsjónarmanns
Háskólinn á Akureyri auglýsir eftir starfsmanni í 75% stöðu
umsjónarmanns við háskólann. Starfið felur m.a. í sér þrif og
umsjón með byggingum og tækjum háskólans, umsjón með
kaffistofu og öryggiseftirlit. Laun eru samkvæmt kjarasamning-
um starfsm. ríkisins/verkalýðsfélagsins Einingar.
Upplýsingar um starfð veitir
ívar Ragnarsson í síma 463- 900 mánudaginn 30. júní.
Umsóknarfrestur er til 5. júlí.
Umsóknareyðublöð liggja frammi
á aðalskrifstofu háskólans á Sólborg.