Morgunblaðið - 25.06.1997, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1997 15
verð áður 1.690 kr.
á Kringlukasti
990 kr.
l;-l;
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
BOÐIÐ var til móttöku þegar tollafgreiðsluhúsið var
formlega tekið í notkun.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Kuldatíð
fyrir norðan
Sauðárkróki - Dagana fyrir þjóð-
hátíðina var víða kuldalegt um að
litast á Norðurlandi og þrátt fyrir
erfiðleika sem ferðalangar lentu í á
þjóðvegum landsins og hrakspár
þeirra eldri um kalt sumar, verra
haust og kaldan næsta vetur, voru
þó ýmsir sem tóku því sem að hönd-
um bar með æðruleysi og reyndu
að gera gott úr hlutunum. Þannig
voru bræðurnir Sveinn Ingi og Ólaf-
ur Andri sem staddir voru á Tyrf-
ingsstöðum í Akrahreppi búnir að
búa til þennan vígalega snjókarl úr
því að svona ágætur efniviður
fékkst til verksins þó að kominn
væri 15. júní og allt orðið grænt
undir snjónum.
Seyðisfirði - Hafnarsjóður Seyðis-
fjarðar og Austfar hf. buðu fyrir
skömmu til móttöku er hið nýja toll-
afgreiðsluhús við Fjarðarhöfn á
Seyðisfirði var formlega tekið í notk-
un. Mikil stakkaskipti verða í að-
stöðu tollgæslu og farþega við til-
komu nýja hússins.
í húsinu er góð aðstaða til þess
að tollskoða farartæki af öllum
stærðum og til þess að tollafgreiða
gangandi vegfarendur. Sótthreinsun
á veiðibúnaði fer nú einnig fram
innandyra. Jónas Hallgrímsson,
framkvæmdastjóri Austfars hf., hef-
ur um árabil barist fyrir því að kom-
ið yrði upp mannsæmandi móttöku
fyrir alla þá ferðamenn sem koma
til íslands um Seyðisfjarðarhöfn. í
stuttu ávarpi sem Jónas flutti kom
fram að Austfar hf. eitt og sér skil-
ar nettó 10 til 12 milljónum króna
í ríkiskassann árlega, og erlendir
farþegar sem koma með Norröna
skiía árlega milli 500 og 600 milljón-
um í þjóðarbúið. Hann sagðist vona
að ekki tæki 22 ár til viðbótar að
ljúka þeim framkvæmdum sem eftir
væru til þess að farþegamóttakan
gæti talist viðunandi. Þar átti hann
við svokallaðan „rana“ sem er vænt-
anlega næsti áfangi í framkvæmdum
vegna farþegamóttökunnar. Með til-
komu ranans geta menn gengið
beint úr skipi og inn í farþegaaf-
greiðslu og kemur það til með að
auðvelda tollskoðun og auka öryggi
farþega sem þurfa þá ekki að vera
innan um farartækin á bryggjunni.
Hann færði öllum þeim, sem að
málinu hafa komið, þakkir.
Halldór Asgrímsson óskaði þeim,
sem að þessu máli hafa staðið, einn-
ig til hamingju. Hann minntist á að
það er ýmislegt fleira í þessu feiju-
hafnarmáli sem hefur þurft að sinna
eins og vegurinn yfir Fjarðarheiði
sem hefur einnig skánað, og benti
á að brátt yrði hægt að aka um
hana á bundnu slitlagi. Halldór sagði
einnig: „Það er afar mikilvægt að
aðstaða sem þessi sé fyrir hendi.
Það skiptir miklu máli fyrir ferða-
menn sem koma til landsins að vel
sé tekið á móti þeim. Það er líka
mikilvægt fyrir starfsfólk, sem sinnir
skyldum við þessar aðstæður, og
afar nauðsynlegt að við reynum að
koma í veg fyrir að til dæmis fíkni-
efni berist inn í landið."
Halldór sagði mikið í húfi að fá
ferðamenn hingað til lands og eiga
góð samskipti við þau lönd sem feij-
an siglir til. Að lokum sagði hann:
„Við stöndum í þakkarskuld við þá
sem að þessu hafa staðið og ég er
sannfærður um að það hefðu ekki
aliir komið þessu áfram eins og þeir
sem hafa í þessu staðið. Þar ber að
sjálfsögðu hæst nafn Jónasar Hall-
grímssonar, bæjaryfirvalda á Seyðis-
firði og þá ekki síst Færeyinga og
aðstandenda Smyril-Line sem hafa
staðið mjög þétt saman um að þetta
gæti átt sér stað. Og það er rétt hjá
Jónasi að opinber yfirvöld á íslandi
hafa ekki staðið jafnt fast við bakið
á þessari starfsemi og æskilegt hefði
verið, en hér hefur orðið mikil bót á
í dag og hér á eftir að fara fram
mikilvæg starfsemi í framtíðinni.
Eg óska öllum sem hér eiga eftir
að starfa og fara hér um velfarnað-
ar og óska þess að allra þeirra ferða-
manna, sem hér fara í gegn, eigi
eftir að bíða góðir dagar og ham-
ingjurík dvöl hér á landi.“
verð áður 4.490 kr.
á Kringlukasti
2.490 kr.
verð áður 2.490 kr.
á Kringlukasti
1.490 kr.
verð áður 2.490 kr.
a Kringlukasti
1.490 kr.
verð aður 1.490 kr.
á Kringlukasti
790 kr.
verð áður 1.690 kr.
á Kringlukasti
990 kr.
verð áður 1.490 kr.
á Kringlukasti
790 kr.
verð áður 2.490 kr.
á Kringlukasti
1.290 kr.
' 'M
jf
verð áður 1.490 kr.
á Kringlukasti
790 kr. m
verð áður 11.790 kr.
á Kringlukasti
4.990 kr.
verð áður 8.990 kr.
AIR VOLT SPEED ýV Á
á Kringlukasti
5 990 kr~ /gft
verð áður 2.490 kr.
á Kringlukasti
1.290 kr.
verð áður 5.990 kr.
4 lltir
á Kringlukasti
2.990 kr.
verð áður 10.990 kr.
ART skór4lltlr
á Kringlukasti
4.990 kr.
LAUGAVEGI 67, SIMI 551 2880
KRINGLUNNI SIMI 568 9995
Nýtt tollafgreiðslu-
hús tekið í notkun