Morgunblaðið - 25.06.1997, Side 17

Morgunblaðið - 25.06.1997, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1997 17 Mirror hættir í samtök- um London. Reuter. MIRROR blaðaútgáfan kveðst hafa neyðzt til að segja sig úr sambandi blaðaútgefenda í Bretlandi. Fyrirtækið kvartaði yfir því að hafa ekki fengið stuðning frá NAP í baráttumálum sín- um í greininni. David Montgomery aðal- framkvæmdastjóri sakaði aðra aðila NAP um svik í yfirlýs- ingu. Fyrirtækið sagði að ekki mætti líta á ákvörðunina sem vantraust á formann NPA, aðra yfirmenn og starfsmenn. Barclays ásælist NatWest London. Reuter. NÝJAR bollaleggingar um framtíð brezka National Westminster bankans eru hafnar og herma blaðafréttir að keppinauturinn Barclays Bank Plc. reyni að knýja fram samruna. Barclays vísaði fréttinni á bug og kallaði hana vangavelt- ur. NatWest sagði að enginn hefði leitað hófanna hjá bank- anum. Áhugi á framtíð bankans hefur aukizt vegna þess að boðað hefur verið að hann muni skila hagnaði og vegna þess að yfirmaður fjárfest- ingaviðskipta, Martin Owen, hefur látið af störfum. Áhug- inn er enn mikil, þótt bolla- leggingum sé hafnað. Malta hyggst opna fleiri spilavíti Valletta. Reuter. MALTA hyggst opna tvö eða þijú spilavíti í lúxushótelum og veita fólki eldra en 18 ára aðgang til að laða að ferða- menn. Á Möltu er aðeins eitt spila- víti og sér ríkisfyrirtækið Casma um rekstur þess. Til þess að fá aðgang verður fólk að vera orðið 25 ára. Reed-Elsevi- er kaupir Walt Disney- deild Amsterdam. Reuter. ENSK-hollenzka útgáfufyrir- tækið Reed-Elsevier kveðst ætla að kaupa viðskiptarita- deild Walt Disney, Chilton Business Group, fyrir 447 milljónir dollara. Kaupin eru háð samþykki Bandaríkjastjórnar. Búizt er við að gengið verði frá kaup- unum fyrir lok júlí. BAe fær 30 pantanir London. Reuter. BREZKA flugiðnaðarfyrir- tækið British Aerospace (BAe) kveðst hafa fengið pantanir að verðmæti 425 milljónir punda í rúmlega 30 Hawk- flugvélar frá Ástralíu. American Eagle pantar fleiri flugvélar Le Bourget, Frakklandi. Reuter. AMERICAN EAGLE, innanlands- félag bandaríska flugfélagsins AMR Corp, hefur tilkynnt að það hafi pantað 117 innanlandsfar- þegaþotur fyrir 2,4 milljarða doll- ara og skiptast þær jafnt milli tveggja framleiðenda. American tilkynnti á flugsýning- unni í París að félagið hefði ákveð- ið að kaupa nýja 70 sæta útgáfu Canadair innanlandsþotu kanad- íska fyrirtækisins Bombardier, en hafnað núverandi 50 sæta útgáfu og ákveðið að kaupa í staðinn EMB-145 flugvélar frá keppinaut- inum Embraer í Brasilíu. Að sögn eins æðsta stjómanda American Eagle, Peters Pappas, AMERICAN EAGLE hefur keypt EMB-145 flugvélar frá Embraer í Brasilíu. mun félagið kaupa 42 fímmtíu sæta innanlandsþotur og fá rétt til að kaupa 25 í viðbót. Að sögn Embraer kosta flugvélar þær sem pantaðar hafa verið 700 milljónir dollara. Pappas og stjóm Bombardier Aerospace skýrðu einnig frá ann- arri pöntun í 25 Canadair CRJ 700 flugvélar að verðmæti 700 milljónir dollara og rétti til að. kaupa 25 í viðbót. Með pöntuninni verður American fyrsta félagið sem kaupir 70 sæta flugvélina. Hún er knúin nýjum CF34-8C hreyfli frá General Electric og afhending flugvélanna á að hefjast árið 2001. VISA lækkar lágmarksgjald vegna debet- korta viðskipta VISA ísland hefur ákveðið að koma til móts við Kaupmannasam- tök íslands með lækkun kostnaðar vegna „síhringikorta" með því meðal annars að lækka lágmarks- þóknun í debetkortaviðskiptum úr sex krónum í fimm krónur á færslu frá og með 1. júlí næstkomandi. Ennfremur hefur sjálfvirkri áhættustýringu almennra debet- korta verið breytt þannig að tekin hafa verið upp breytileg og hærri viðmiðunarmörk þar sem það er talið eiga við sem þýðir lægra inn- hringihlutfall og þar með minni símakostnað. „Síhringikort“ eru þau kort þar sem hringt er til kortafyrirtækis út af hverri greiðslu og eru þau fyrst og fremst ætluð unglingum og aðilum sem ekki hafa tékkhefti. í bréfí sem Visa ísland hefur sent Kaupmannasamtökum íslands kemur meðal annars fram að tals- vert meira hefur verið um útgáfu „síhringikorta“ en fyrirséð var í upphafi og eru þau nú yfir 30 þús- und talsins eða nærri 20% útgefinna debetkorta. Að sögn Sigurðar Jónssonar, framkvæmdastjóra Kaupmanna- samtaka íslands, er ljóst að um verulegan ávinning er að ræða fyrir verslun og þjónustuaðila þar sem rúmur helmingur allra færslna vegna viðskipta með debetkortum lendir í lágmarksgjaldinu. „Við teljum að verslanir og þjónustuaðil- ar geti sparað um tíu milljónir króna á ári með þessari krónu lækkun. Jafnframt hefur verið ákveðið að lækka innhringitíðni vegna debetkorta með því að beita svipaðri áhættustýringu og verið hefur í gildi vegna kreditkorta. Þetta þýðir lækkun símakostnaðar fyrir verslunina og má segja að með þessu sé komið til móts við kröfur Kaupmannasamtaka ís- lands varðandi „síhringikort" en samtökin hafa krafist þess að dreg- ið verði úr útgáfu þeirra en að öðrum kosti muni þau krefjast þess að sett verði upp grænt heim- ildarsímanúmer, gjaldfrítt, fyrir þessi kort.“ 24% aukning á við- skiptum með debetkortum í bréfi VISA ísland kemur enn- fremur fram að debetkortavið- skipti hafa vaxið mjög hratt á sl. þremur árum og nema greiðslur með debetkortum nú nærri 1,5 milljónum færslna og um fimm milljörðum króna á mánuði hjá verslunum og þjónustustöðum, auk þess sem þau eru mikið notuð til úttektar á reiðufé úr hraðbönk- um og til greiðslu reikninga og skuldaskjala í bönkum og spari- sjóðum. Á þessu ári hafa viðskipti vaxið um 24% miðað við sama tíma í fyrra. Að sögn Sigurðar hafa Kaup- mannasamtök Islands haft forystu um sameiginlega kröfugerð versl- unarinnar og kortafyrirtækjanna gagnvart Pósti og síma hf. til að ná fram lækkun á kostnaði við rafrænar gagnasendingar. „Póstur og sími hf. hefur ekki fallist á að lækka gjaldtaxta vegna slíkra sendinga í almenna símakerfínu en nýlega féllst fyrirtækið á óskir Kaupmannasamtakanna um lækk- un gjaldskrár Samnetsins og jafn- framt að opna fyrir D-gagnarás í því símkerfi eftir 2-3 mánuði. Kaupmannasamtök Islands eru ánægð með þessa áfanga en munu halda áfram að leita allra leiða til að lækka kostnað verslunarinnar við rafræn viðskipti." Wösk ZANUSSI UPPÞVOTTAVÉL ZW-416 • Tekur borðb. fyrir 12 Hljóðlát • hxbxd: 85x59,5x60 £UkUt ARR0W ELDUNAftTÆKI TFA-14-01 • Ofn með helluborði • Grill • Undir- og yfirhiti Verð áður Svaíut ZANUSSI KÆLISKAPUR ZFC-1602 • Kælir 1 37 Itr. Frystir 20 Itr. • hxbxd: 85x54,5x60 Verð áður Mr&ZZ? Opið virka daga frá kl. 9:00-18:00, laugardaga frá kl. 10:00-16:00 SUÐURIANDSBRAUT 16 • 108 REYKJAVIK SÍMI 588 0500 Raðgreiðslur Raðgrciðslur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.