Morgunblaðið - 25.06.1997, Side 21

Morgunblaðið - 25.06.1997, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ1997 21 LISTIR Cats slær met New York. Reuter. SÖNGLEIKURINN „Cats“ hef- ur slegið aðsóknarmet, en eng- inn söngleikur hefur gengið jafn lengi á Broadway í New York. Sl. fimmtudag var 6.138. sýning á Cats og var uppselt, enda voru margir þeirra 195 leikara, söngvara og dansara, sem tekið hafa þátt í sýningunni, viðstadd- ir og tóku undir í lokalaginu, „The Ad-Dressing of Cats“. Cats er eftir Andrew Lloyd Webber, byggður á bók T.S. Eliots, og var hann frumsýndur í London árið 1981. Cats var frumsýndur 7. október ári síðar og hafa yfir 8,25 milljónir manna séð sýninguna, sem sló met söngleikjarins „A Chorus Line“. Af því tilefni útnefndi Rudolph Giuliani, borgarstjóri New York, 19. júní sérstakan „Cat’s dag“. Sagði hann söng- leikina á Broadway vera eitt helsta aðdráttarafl borgarinnar og það bæri að viðurkenna. Tuttugu og tveir Ieikarar koma fram í sýningunni og hef- ur verið skipt um þá flesta. Þó hefur leikkonan Marlene Dani- elle leikið í Cats frá upphafi á Broadway. Um eitt tonn af hári hefur farið í hárkollurnar, 5.782 hnjáhlífar hafa verið notaðar og yfir 48.000 smokkar, sem eru settir á hljóðnemana til að koma í veg fyrir að svitinn á andliti leikaranna eyðileggi þá. Á ÆFINGU á Ieikritinu Tristan og ísól, sem frumsýnt verður á sunnudaginn kemur. Á myndinni eru Erling Jóhannesson, Ásta Arnardóttir og Björn I. Hilmarsson. Tristan og ísól, ástarleikur LEIKHÓPURINN Augnablik frumsýnir nýtt íslenskt verk, Trist- an og ísól, ástarleik, næstkomandi sunnudag, 29. júní, í Borgarleik- húsinu. Eins og nafnið bendir til á verkið rætur að rekja til goðsagn- arinnar um Tristan og Isól, sög- unnar um ástina og dauðann. Verkið er samið af leikhópnum en höfundur handrits og leikstjóri er Harpa Arnardóttir. Það eru rússíbanarnir Eubar Kristján Ein- arsson gítarleikari, Daníel Þor- steinsson harmonikku- og hljóm- borðsleikari og Kjartan Guðnason slagverksleikari, sem sjá um tón- listina. Leikarar eru átta: Anna E. Borg, Ásta Arnardóttir, Björn I. Hilmars- son, Erling Jóhannesson, Ólafur Guðmundsson, Ólöf Ingólfsdóttir dansari, Sigrún Gylfadóttir og Steinunn Ólafsdóttir. Hljóðmaður er Jakob Tryggvason og ljósahönn- uður Jóhann Pálmason. Leikmynd gerir Ósk Vilhjálmsdóttir og bún- inga Sonný Þorbjörnsdóttir mynd- listarmenn. TOLLI við verk á sýningunni. Ný spor hjá Tolla TOLLI hefur opnað málverkasýn- ingu í Galleríi Horninu, Hafnar- stræti 15. Sýningin ber yfirskrift- ina Ný spor og þar fetar Tolli, segir í kynningu, að nokkru aðrar slóðir en á undanförnum sýningum og sýnir átta ný fígúratív olíumál- verk byggð á goðsögulegum minn- um. Tolli hefur hefur haldið fjölda sýninga víðs vegar innan lands sem utan. Sýningin verður opin alla daga kl. 11-23.30 og stendur til mið- vikudagsins 9. júlí. Sérinngangur gallerísins er eingöngu opinn kl. 14-18, en á öðrum tímum er inn- angengt um veitingahúsið. Picasso end- urheimtur í tvígang Grenoble. Reuter. MÁLVERK eftir Pablo Picasso, sem metið er á um 7 milljónir dala, um 490 milljónir ísl. kr. og var stolið fyrir fimm árum, er fundið. Er þetta í annað sinn sem verkinu er stolið og það endur- heimt. Verkið, „Barn og brúða“, er eign listasafnsins í Grenoble í Frakklandi og voru forráðamenn þess að vonum glaðir er þeir fréttu að það hefði fundist óskemmt, en það var málað árið 1901. Verkinu var stolið í fyrra sinnið árið 1949 og fannst viku síðar. í ljós kom að skólastjóri virts listaskóla lét ræna því þar sem hann var svo ósáttur við það hvernig það var sýnt. Verkinu var aftur stolið árið 1992 á opn- unartíma safnsins, og liðu 18 klukkustundir frá því að stuldur- inn uppgötvaðist. Nú, fimm árum síðar, höfðu sérsveitir frönsku lögreglunnar, sem leita uppi stolna listmuni, upp á verkinu. J ónsmessunætur draumur í skógi á Egilsstöðum Egilsstöðum. Morgunblaðið. Morgunblaðið/Ragnheiður Kristjánsdóttir FRÁ sýningu Leikfélags Flj ótsdalshéraðs á Draumi á Jónsmessunótt. HVERNIG fórum við að áður en við eignuðumst skóginn? Jú, jú, við komust af, en í dag getum við alls ekki án hans verið. Þangað förum við í göngutúra með fjölskylduna, trimmum til að bæta heilsuna, sjáum sýningarnar hans Philips á sviði Útileikhússins og svona mætti lengi telja. Nú hefur skógurinn okkar fengið enn eitt hiutverkið. Hann er orðinn leiksvið. Félagar í Leikfélagi Fljótsdalshéraðs undir leikstjórn Jóns St. Kristjánssonar hafa sett á þetta svið leikritið Draum á Jónsmessunótt eftir W. Shakespear. Það hefst á leiksviði Útileikhúss- ins, en áður en áhorfandinn veit af er hann farinn að elta leikarana út um allan skóg. Er jafnvel stund- um fyrir. En það gerir ekkert til. Leiksviðið er svo stórt — maður færir sig þá bara. Og leikarar koma ekki inn á þetta leiksvið bara úr einni eða tveimur áttum. Þeir koma alls staðar að svo athygli áhorfand- ans sefur aldrei og þegar allir eru orðnir rjóðir og sælir endum við leikinn aftur á leiksviði Útileik- hússins. Gallabuxur, mótorhjól, álfar, um 400 ára gamall texti og skógurinn okkar. Hljómar spenn- andi og er spennandi leiksýning á stórkostlegu leiksviði. Upplýsingar um næstu sýningar fást í Upplýsingamiðstöð ferða- mála í síma 471 2320. Ef rignir má draga fram bomsurnar og ekki gleyma að þetta er útileikhús á Islandi og fínt að taka með sér lopapeysuna þótt veður sé gott þegar lagt er í hann. GRLRNT -háþróuó Miísuhishi tækni HEKLA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.