Morgunblaðið - 25.06.1997, Qupperneq 28
28 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
OPINBERAR
HEIMSÓKNIR OG
FJÖLMIÐLAR
OPINBERAR heimsóknir þjóðhöfðingja og annarra helztu
ráðamanna ríkja hafa enn þýðingu, þótt fjarskipti og
margvísleg samskipti þjóða í milli hafi stóraukizt frá því, sem
áður var. Opinberar heimsóknir á borð við heimsókn Italíufor-
seta undanfarna daga þjóna m.a. og ekki sízt þeim tilgangi
að vekja athygli á því landi, sem gesturinn er fulltrúi fyrir og
samskiptum þeirra ríkja, sem hlut eiga að máli. Til þess að
allur almenningur geti orðið eins konar þátttakandi í slíkum
samskiptum þurfa fjölmiðlar að hafa aðstöðu til að gegna því
hlutverki, sem þeim er ætlað, að miðla upplýsingum til hins
almenna borgara. Það fer heldur ekki á milli mála, að þeir, sem
eru fulltrúar íslenzku þjóðarinnar hveiju sinni, hvort sem er
við móttöku gesta hér eða í slíkum heimsóknum á erlendri
grund telja það nokkru skipta, að upplýsingar um þessi sam-
skipti komist til almennings.
Af þessum sökum vakti það nokkra furðu, þegar fjölmiðlum
barst tilkynning frá utanríkisráðuneytinu síðla föstudags í síð-
ustu viku, hvað starfsmönnum þeirra var ætluð takmörkuð
aðstaða til þess að gegna ofangreindu hlutverki. í þeirri tiikynn-
ingu sagði m.a.: „Það er brýnt að þeir fréttamenn og mynda-
tökumenn, sem ætla að fylgjast með móttökuathöfninni við
Bessastaði séu komnir á svæðið þegar kl. 11.15, þegar svæðinu
verður lokað af öryggisástæðum. Bak við kirkjuna verður að
finna afmarkað svæði með palli fyrir myndatökumenn og ann-
að fyrir fréttamenn. Sjónvarpið (RÚV) annast eitt myndatökur
i veizlu forseta íslands á sunnudagskvöld sem og í móttöku
borgarstjóra í Höfða fyrr um daginn. Aðrar stöðvar geta feng-
ið efni hjá Sjónvarpinu. Rúmur aðgangur til myndatöku verður
í Vinaskógi og á Þingvöllum á mánudaginn, sem og á Nesja-
völlum og í hestabúinu að Dallandi. Engar myndatökur eru
leyfðar í Granda á þriðjudag og engin aðstaða er til myndatöku
í Stofnun Arna Magnússonar.“
Utanríkisráðuneytið kvaðst aðspurt senda út slíkar reglur
samkvæmt fyrirmælum frá húsráðendum á þeim stöðum, sem
heimsóttir væru svo og frá forsetaembættinu. Kornelíus Sig-
mundsson, forsetaritari sagðist hins vegar ekkert vita um þess-
ar reglur. Páll Magnússon, fréttastjóri Stöðvar 2, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið sl. sunnudag: „Það er eins og skrifstofa
forsetaembættisins átti sig ekki alveg á í hvaða landi þeir eru.“
Og bætti því að tilkynningin væri „gerræðisleg".
Forseti íslands, herra Olafur Ragnar Grímsson, brást snar-
lega við til þess að laga það, sem misfarizt hafði í samskiptum
við fjölmiðla með því að boða fréttastjóra þeirra til fundar við
sig eftir hádegi á sunnudag og var það lofsvert.
í samtali við forsetann, sem birtist í sjónvarpinu í fyrra-
kvöld, mátti hins vegar greina annan tón en þar sagði forset-
inn aðspurður hvort breytingar hefðu orðið á aðgengi úölmiðla
að móttökum á vegum forsetaembættisins: „Við hjónin höfum
nú leitazt við að greiða mjög götu fjölmiðla og sumum hefur
nú kannski fundizt nóg um hvað það snertir, þannig að við
höfum veitt fjölmiðlum aðgang að heimsókninni sem og öðrum
atburðum eftir beztu getu . . . Að við séum að loka embættinu
fyrir fjölmiðlum eins og ég sá í blaði hér um helgina er mikill
misskilningur og það satt að segja undrar mig að þeir, sem
þekkja mig skuli setja slíkt á blað.“
Vegna þessara ummæla forseta íslands er óhjákvæmilegt
að hafa orð á eftirfarandi:
í fyrsta lagi hefur Morgunblaðið ekki gagnrýnt forsetann
fyrir að „loka embættinu fyrir fjölmiðlum".
I öðru lagi er því miður ekki hægt að líta öðru vísi á en
utanríkisráðuneytið og forsetaembættið sýni öðrum fjölmiðlum
en RÚV ókurteisi með einhliða tilkynningu um að „aðrar stöðv-
ar“ geti fengið efni hjá ríkissjónvarpinu. Hér er væntanlega
átt við Stöð 2 en ekki var upplýst hvernig dagblöðin ættu að
geta aflað myndefnis af þeim viðburðum, sem um var að ræða.
Þetta var þá fyrst leiðrétt, þegar Morgunblaðið gerði athuga-
semdir.
í þriðja lagi er ástæða til að vekja athygli á að aðstaða sú,
sem ijölmiðlum var sköpuð við Bessastaði var allsendis ófull-
nægjandi.
A allt þetta og fleira var forseta bent, þegar hann efndi til
fundar með fulltrúum fjölmiðla á Bessastöðum og í því ljósi
kemur á óvart, að hann skuli í sjónvarpsviðtali á mánudags-
kvöldi lýsa „undrun“ á þeim athugasemdum, sem fram hafa
komið.
Morgunblaðið hefur ekki áhuga á öðru en góðum samskiptum
við forsetaembættið, hvort sem um er að ræða opinberar heim-
sóknir eða aðra viðburði. Hins vegar er ljóst, að fjölmiðlar
geta ekki sætt sig við vinnubrögð af því tagi, sem hér hafa
verið gerð að umtalsefni. Væntanlega verður úr þessu bætt
með þeim viðræðum milli fjölmiðla og forsetaembættis, sem
forseti kvaðst á sunnudag mundu beita sér fyrir, að fram færu.
Mikill niðurskurður á sóknardögum bla
Ósætti um
einyrkja
Ófriður hefur lengst af ríkt um veiðar
smábáta hér við land frá upphafí fískveiði-
stjórnunar 1984 og stóðu mörg spjót á sjávar-
útvegsráðherra eftir að samkomulag var gert
við trillukarla í fyrravor um 13,9% aflahlut-
deild úr heildarþorskkvóta landsmanna.
Jóhanna Ingvarsdóttir rifjar hér upp helstu
atriði samkomulagsins svo og viðbrögð tals-
manna úr ýmsum áttum.
INNLENDUM
VETTVANGI
ÚTVEGSMENN, aðrir en smábátasjómenn, töldu þá aðferð, sem beitt <
ef ríkisstjórnin teldi það vera hlutverk sitt að semja á laun um aukinn vei
SAMKOMULAG, sem gert var
milli sjávarútvegsráðuneyt-
isins og Landssambands
smábátaeigenda og sam-
þykkt var á Alþingi í júníbyrjun 1996,
fól í sér breytingar á fiskveiðistjórn-
unarkerfí smábáta, sem hafa svokall-
að krókaleyfi. Breytingar þessar köll-
uðu á hörð viðbrögð annarra útvegs-
manna um land allt sem töldu að með
samkomulaginu við trillukarla væri
verið að rýra aflahlut aflamarksskipa
og krókabátum umbunað sérstaklega
á kostnað þeirra, nú þegar fyrirséð
væri aukning þorskkvótans að nýju á
næstu árum. Þeirri aðferð, sem nú
væri beitt við fiskveiðistjórnun hér
við land, væri í hættu ef ríkisstjórn
teldi það vera hlutverk sitt að semja
á laun um aukinn veiðirétt eins hóps
á kostnað annars.
Útvegsmannafélög um land allt
skoruðu á stjórnvöld að falla frá
ásetningi sínum um löggildingu sam-
komulagsins sem þeir töldu að væri
mesta mismunun, sem um getur í
sögu fiskveiðistjórnunar síðustu árin.
Hinsvegar væri verið að auka úreld-
ingargreiðslur fyrir krókabáta, sem
skipaeigendum á aflamarki sé ætlað
að greiða. Vinnubrögð af þessu tagi
dæmi sig sjálf og geti vart talist lýð-
ræðisleg eða til þess fallin að auka
sátt milli aðila í greininni, sagði m.a.
í ályktun, sem stjórn LÍÚ sendi frá
sér eftir að samkomulagið var kynnt.
Köld vatnsgusa
í andlit
atvinnugreinarinnar
Ennfremur sagði í álykt-
un LÍÚ: „Útvegsmann hafa
sýnt fyllstu ábyrgð og að-
gætni við uppbyggingu
þorskstofnsins og tekið á sig mikla
tekjuskerðingu vegna niðurskurðar í
þorskveiðiheimildum á undanförnum
árum. Afleiðingar þessa niðurskurðar
hafa komið illa við marga útvegsmenn
og hafa þeir verið knúnir til róttækra
aðgerða s.s. að selja nýrri skip sín
úr landi og hætta störfum við sjávar-
útveg. Þeir, sem starfa áfram, hafa
orðið að kaupa veiðiheimildir háu
verði og taka á sig auknar skuldbind-
ingar í trausti þess að tekjur aukist
að nýju þegar þorskstofninn hefur náð
sér aftur. Því er þessi gjörð sjávarút-
vegsráðherra sem köld vatnsgusa í
andlit atvinnugreinarinnar. Rétt er
að minna ráðherra á að hann hefur
réttilega haldið því fram á opinberum
vettvangi að engar forsendur væru
til þess að auka við 21.500 tonna
aflapott krókabáta nú eða þegar
þorskkvóti yrði aukinn að nýju. Veiði-
heimildir krókabáta í þorski hafa ver-
ið rúmlega sjöfaldaðar á örfáum árum
úr um 3.000 tonnum í áðurnefnd
21.500 tonn á sama tíma og aflaheim-
ildir báta og togara á aflamarki hafa
verið skertar um nær 60%.“
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs-
ráðherra, sagði í kjölfar mótmæla LIÚ
það ekki vera neitt nýtt að einstakir
hópar innan sjávarútvegsins hafi hátt
þegar veiðihagsmunir væru annars
vegar. Ráðherrann sagði það hafa
verið mjög brýnt að ná samkomulagi
við LS og það samkomulag
væri í mjög góðu jafnvægi
þegar tekið væri tillit til
þróunarinnar síðustu árin.
Það ætti að vera stórút-
gerðinni í Iandinu keppi-
kefli að skapa frið um fisk-
veiðamar. „Ég sé ekki að
hún bæti stöðu sína með því að vera
í endalausum stríðsátökum við minni
báta og trillukarla."
Barnaleg viðbrögð
og undarlegt orðaval
Kristján Ragnarsson, formaður
LÍÚ, sagði það koma sér mjög á óvart
að ráðherra skuli leyfa sér að segja
að málið snúist um hagsmuni stórút-
gerðar gegn trillum. Arthur Bogason,
formaður LS, sagði viðbrögð stórút-
gerðarinnar barnaleg og það undar-
legt orðaval að útvegsmenn hafi sýnt
fyllstu ábyrgð við uppbyggingu þorsk-
stofnsins. „Þetta segja sömu menn
og veiddu 1,1 milljón tonna af þorski
á tímabilinu 1977-1991 umfram það
sem fiskifræðingar ráðlögðu. Þar voru
ábyrgðarfullu og aðgætnu mennirnir
á ferðinni. Það er því álíka mikið að
marka þetta bull og margt annað sem
frá þeim hefur komið.“
Arthur sagði að smábátaeigendur
fengju ekki stærri hlut af afla en
þeir nauðsynlega þyrftu. „Við höfum
ekki getað ruðst á alþjóðleg hafsvæði
eða bætt okkur tekjuskerðingu í
kvótabundnum tegundum innan lög-
sögunnar með því að fara í aðrar sem
eru ekki kvótabundnar. Þetta hefur
stórútgerðarliðið getað gert. Þeir
verða bara að sætta sig við að auðlind-
irnar eru til að allir geti lifað af þeim,
en ekki bara þeir. Þeir eiga þær ekki.“
Ákvarðanir stjórnvalda
leiddu til offjölgunar
Aldrei hefur tekist að koma bönd-
um á sókn og veiðar smábáta og nær
allar tilraunir til að koma á skynsam-
legri veiðistjórn fyrir smábáta hafa
verið gerðar í andstöðu við eigendur
þeirra. Óhætt er að fullyrða að deil-
urnar um veiðar smábáta hafi náð
hámarki með samkomulagi Alþingis
og Landssambands smábátaeigenda
frá því í fyrravor, en það var í fyrsta
sinn í einn og hálfan áratug, sem
samkomulag hefur orðið um veiði-
stjórn milli eigenda smábáta og
stjórnvalda. Deilurnar hófust í raun
snemma á síðasta áratug þegar veið-
um smábáta var stjórnað með aflahá-
marki og banndögum og leiddu til
stofnunar Landssambands smábáta-
eigenda árið 1985. Fjölgun smábáta
var lengst af óheft og beindu forystu-
menn LS því mjög snemma til stjórn-
valda að fjölgun þeirra yrði heft
þannig að þeir, sem veiðarnar stund-
Veiðiheimildir
krókabáta í
þorski sjö-
faldaðar á ör-
fáum árum