Morgunblaðið - 25.06.1997, Qupperneq 43
!
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ1997 43
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
Virða skal það sem
vel er gert
Frá Hrafnkatli A. Jónssyni:
ÞAÐ ER til siðs að veitast að ráða-
mönnum þjóðarinnar þegar þeir
segja eða gera eitthvað sem ekki
þykir til fyrirmyndar. Það er hins
vegar ekki oft sem ástæða þykir
til að hrósa fyrir áhrifaríka ræðu,
eða viturlega ákvörðun. Það þykir
sjálfsagt að teknar séu réttar
ákvarðanir og á sama hátt telst
ekki til tíðinda þótt forystumönnum
í stjórnmálum mælist vel.
Ég ætla að
bregða hér út af
venju, ef til vill
vegna þess að ég
hefi ekki hikað
við að gagnrýna
þegar mér þykir
sem rangt sé
sagt eða gert.
Það tilefni
sem ég tel að sé
hrósvert er
ávarp Davíðs
Oddssonar forsætisráðherra sem
hann flutti á þjóðhátíðardaginn.
Ég tel að forsætisráðherra hafi
á skýran og myndugan hátt sett
fram stefnumótun í veigamiklum
málum sem skipta allan almenning
á íslandi miklu máli.
Hann vék þar fyrst að utanríkis-
málum og vakti athygli á þeim stór-
kostlegu breytingum sem orðið hafa
í Evrópu á síðustu árum, sem með-
al annars hafa leitt til þess að leið-
togi Rússlands þykir sjálfsagður
gestur meðal forystumanna NATÓ-
ríkjanna og jafnframt að nú lítur
út fyrir inngöngu fyrrum aðildar-
ríkja Varsjárbandalagsins og ríkja
eins og Eystrasaltsríkjanna í Atl-
antshafsbnandalagið á næstu árum,
án þess að til komi veruleg and-
staða frá Rússum. Mér þótti hins-
vegar skipta enn meira máii um-
fjöllun hans um Evrópusambandið.
Ég hefi talið að það skipti íslend-
inga mjög miklu máli að fram færi
hreinskiptin umræða um Evrópu-
sambandið og með hveijum hætti
ísland ætti að hafa samskipti við
Evrópu. Mér hafa verið það mikil
vonbrigði hvernig Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur haldið á því máli. Þær
brotalamir sem á allra síðustu mán-
uðum hafa verið að koma i upp-
byggingu Evrópusambandsins hafa
þó sannfært mig um að þar hefur
verið haldið á málum af skynsemi
og framsýni. Eftir _sem áður er
umræðan um stöðu íslands gagn-
vart Eyrópu jafn nauðsynleg og
áður. Ég tel að forsætisráðherra
hafi hafið þessa umræðu í ávarpi
sínu 17. júní.
Umfjöllun Davíðs Oddssonar um
íslensk efnahagsmál eru þó það í
ávarpi hans sem mér þótt mestum
tíðindum sæta. Þar lagði hann
áherslu á grundvöllinn í stefnu
Sjálfstæðisflokksins í áratugi um
sátt á milli stétta og virðingu fyrir
hinum mannlegu gildum sem leggja
verði á ekki minni aherslu en lög-
mál markaðarins. Ég hvet alla til
að kynna sér þjóðhátíðarávarp for-
sætisráðherra og þá sérstaklega
þann kafla þess sem fjallar um
efnahagsmál. Ég vona svo sannar-
lega að Sjálfstæðisflokkurinn muni
fyikja sér á bak við formann flokks-
ins í þessari stefnumótun og þess
muni sjá stað í verkum núverandi
ríkisstjórnar og ákvörðunum Al-
þingis á næstu misserum.
HRAFNKELL A. JÓNSSON,
héraðsskjalavörður, Egilsstöðum.
p SL The Gathering •
íslandsmeistaramót
verður haldið í hátíðasal
Háskóla íslands 28.-29. júní.
Skrásetning í verslunum Míþríl Skólavörðustíg,
Fáfni Hverfisgötu, Jack&.Jones Selfossi,
Bókabúð Keflavíkur og Bókabúð Jónasar Akureyri.
Nánari uppiýsingar við skrásetningu.
SÉRSTAKUR DÓMSTÓLL í BRETLANDI
FÉLAGARÉTTUR
Nr. 001205, 1997
MAL THE NORWICH UNION
LIFE INCURANCE SOCIETY
°g
MÁL NORWICH UNION ANNUITY LIMITED
°g
MÁL NORWICH UNION FRANCE
°g
MÁL NORWICH UNION LIFE INSURANCE
IRELAND LIMITED
°g
MÁL NORWICH UNION LIFE
& PENSIONS LIMITED
°g
MÁL VARÐANDI LÖG UM VÁTRYGGINGA-
FÉLÖG FRÁ 1982
Hér með tilkynnist að hinn 23. apríl 1997 gaf sérstakur dómstóll
hennar hátignar út tilskipun samkvæmt skrá 2C með lögum um
vátryggingafélög frá 1982 þar sem samþykkt ér áætlun um flutning
til Norwich Union Annuity Limited, Norwich Union France,
Norwich Union Life Insurance Ireland Limited og Norwich Union
Life & Pensions Limited á langtímaviðskiptum (samkvæmt
skilgreiningu 1. kafla (1) laganna), sem The Norwich Union Life
Insurance Society (sem nefnist NULIS í skjali þessu) annast og um
stuðningsákvæði til að framkvæma framangreinda áætlun.
Aætlunin hefúr nú verið framkvæmd og samkvæmt skilmálum hennar
hafa langtímaviðskipti NULIS verið flutt til framangreindra félaga.
VERIÐ ÞAR
SEM EG ER
, y ,
ALMENNA MOTID I VATNASKOGI
27. - 29. JÚNÍ 1 997
• Biblíufræðsla
• Samkomur
Barnastundir
Lofgjörð, sálgæsla og fyrirbæn
Fjölbreytt útidagskrá fyrir alla
aldurshópa
Tvennir tónleikar
Föstudagskvöld kl. 23:00
Hans-lnge Fagervik
.ardagskvöld kl. 23:00
Inge Fagervik ásamt íslenskum
tónlistarmönnum
Ókeypis tjaldstæði
Margskonar leiktæki
Svefnpokapláss
• Matsala
• Mótsgjald kr. 1500
fyrir 15 ára og eldri,
ókeypis fyrir börn
I®
Silkiprent hf.
Samband íslenskra
kristniboösfélaga
Holtavegi 28,124 Reykjavík, sími 588 8899