Morgunblaðið - 25.06.1997, Side 44
44 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ veiðist enn þá einn og einn „ísaldarurriði" í Þingvallavatni.
Kristján Agúst Halldórsson veiddi þennan 5 punda urriða í vatn-
inu á silfraðan Tóbíspón í vor.
Skráning á
silungsveiði
fer batnandi
VEIÐIMÁLASTOFNUN sendi um
síðustu mánaðamót frá sér saman-
tekt um úrvinnslu á veiðiskýrslum
frá vertíðinni 1996. Fyrir löngu hef-
ur komið fram að heildarstangaveiði
á laxi nam rétt tæpum 30.000 löx-
um, sem var 4.800 löxum minni afli
en 1995, en eitt og annað fleira at-
hyglisvert kemur fram í samantekt-
inni. Til dæmis, að skráðir voru
21.624 smálaxar sem nam 73,4%
af heildarveiðinni, en stórlaxar voru
7.812 talsins, eða 26,6%.
Hlutföll smálaxa og stórlaxa eru
athyglisverð í ljósi þess að smálaxa-
göngur þóttu bregðast fyrir öllu
Norðan- og Norðasustanverðu land-
inu. Hefði ekki svo farið hefði mun-
að meiru, en Vesturlandið heldur
smálaxinum vel inni í þessari mynd,
því þar veiddust alls 13.411 laxar
af mumræddum tæpum 30.000 og
það er fyrst og fremst smálax sem
veiðist á Vesturlandi.
Batnandi silungaskráningar
í ofangreindri skýrslu frá Veiði-
málastofnun kemur og fram að
55.767 silungar hafí verið skráðir í
veiðibækur, en búast má við að þar
sé aðeins dropi í hafinu á ferðinni.
Skýrslan er unnin af Guðna Guðbergs-
syni fiskifræðingi og segir hann að
skráning á silungsveiði hafi farið batn-
andi á undanfömum árum en þó vanti
á að öll silungsveiði sé skráð. Fimm
hæstu urriðaámar voru þessar: Laxá
í Þingeyjarsýslu ofan Brúa 2.813 fisk-
ar, Grenlækur 2.730, Fremri Laxá á
Ásum 1.301, Skaftá 813 og Hvítá í
Borgarfírði 722. Tvær síðast nefndu
ámar eru nýjar inni á lista ef svo
mætti að orði komast og gæti það
bent til vaxandi sjóbirtingsveiða.
Fimm efstu bleikjuárnar voru þess-
ar: Fljótaá 6.931, Víðidalsá og Fitjá
2.782, Vatnsdalsá 2.498, Eyjafjarð-
ará 2.098 og Staðarhólsá og Hvolsá
1.490. Ekkert óvænt á ferðinni þar.
Böðvar áfram formaður LV
Böðvar Sigvaldason á Barði í Mið-
fírði var endurkjörinn formaður
Landssambands veiðifélaga til næstu
þriggja ára á aðalfundi sambandsins
fyrr í þessum mánuði. Með honum í
stjóm verða Vigfús B. Jónsson Laxa-
mýri, Bragi Vagnsson Burstafelli,
Svavar Jensson Hrappsstöðum og
Ketill Ágústsson Brúnastöðum.
Fundurinn ályktaði um endurskoðun
veiðilöggjafar, eflingu Veiðimála-
stofnunar, hreinleika íslenska veiði-
vatna, uppkaup laxanetja í sjó og
skipulag miðhálendisins.
Samvinna ABU og LS
Landssamband stangaveiðifélaga
og sænsk/bandaríska veiðivörufyrir-
Pennavinir í SIO löndum.
international Pen Friends.
Sími BB1 B1B1.
Morgunblaðið/Arnaldur Halldórsson
HAUKUR Geir Garðarsson
veiddi fýrsta lax sumarins í
Laxá í Leirársveit, 11 punda
hrygnu í Laxfossi.
tækið ABU Garcia hafa gert með
sér kynningarsamning sem hefur í
för með sér fjárhagslegan ávinning
fyrir LS. LS leggur Veiðimanninum
ehf til kynningarefni um stangaveiði
sem mun fylgja sérstökum veiðivöru-
settum sem seld verða á næstu miss-
erum. LS ber úr býtum ákveðna
prósentu af hveiju seldu setti og
vill ABU með þeim_ hætti efla
stangaveiðiíþróttina á íslandi.
Flækjur úr sögunni...
eða svo gott sem
Flækjur kunna brátt að heyra
sögunni til, en um þessar mundir
er um eitt ár síðan að Seglagerðin
Ægir, sem er umboðsaðili Daiwa á
íslandi, flutti inn fyrstu kasthjólin
sem kölluð eru „Twist buster".
Hönnun þeirra hjóla er byltinga-
kennd og liggur breytingin fyrst og
fremst í nýrri hönnun á móttökubún-
aði línu þar sem hún lendir inn á
spólu. „Við vorum spenntir að prófa
þetta við íslenskar aðstæður, því
sagt var að þessi nýja hönnun eyddi
nánast algerlega snúningi á línu.
Við sáum fram á að gömlu „góðu“
flækjurnar væru kannski úr sög-
unni. Nú er þetta búið að vera í
umferð hér á landi í ár og búið að
reyna hjólin við allar aðstæður. Nið-
urstaðan er sú að hjólin hafa farið
langt fram úr björtustu vonum.
Sjálfir höfum við prófað hjólin og
margir hafa keypt þau hjá okkur
og lýst ánægju sinni.
Ný sporðaköst
Eggert Skúlason fréttamaður er
byijaður að vinna nýja syrpu af
stangaveiði- og náttúrulífsþáttunum
sem nefndir hafa verið Sporðaköst
og má reikna með þáttunum á dag-
skrá Stöðvar 2 eftir næstu áramót.
Þetta er fjórða syrpa Sporðakasta,
en að þessu sinni verða þættirnir
unnir á bökkum Hrútafjarðarár,
Straumfjarðarár, Vatnsdalsár og
Kjarrár, auk þess sem einn verður
trúlega gerður í bleikjuveiði í Loð-
mundarfirði og hefur verið til athug-
unar að vinna einn þátt erlendis,
hvað sem úr verður.
IDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Þakkir til RÚV
HULDA hringdi og vildi
hún senda RUV þakklæti
fyrir frábæra sögu, „Gesti“
eftir Kristínu Sigfúsdóttur,
sem lesin hefur verið að
undanförnu í síðdegisút-
varpinu. Einnig sendir hún
Maríu Sigurðardóttur kær-
ar þakkir fyrir góðan upp-
lestur sem var bæði skýr
og greinilegur.
Myndir af
forseta og frú
UNDIRRITUÐ var á ferð
um miðbæ Hafnarfjarðar á
þjóðhátíðardaginn 17. júní.
Það vakti undrun mína að
hvergi sást mynd af
forsetahjónunum í búð-
argluggum eða bönkum
eins og verið hefur venja
undanfarin ár. Þetta er
fallegur siður sem væri leitt
að félli niður. Sérstaklega
fannst mér þetta leitt þar
sem forsetahjónin sýndu
okkur þann heiður að vera
viðstödd athöfn þegar
lagður var homsteinn að
nýju skátaheimili.
Guðrún Benediktsdóttir.
Tapað/fundið
Grá yrjótt
ullarpeysa tapaðist
GRÁ yijótt ullarpeysa tap-
aðist við Álftamýrarskóla
20. júní eftir hádegið.
Finnandi vinsamlegast
hafi samband í síma
553-1089 eftir kl. 17.
Skjalataska
tapaðist í maí
BRÚN skjalataska með
pappíram í tapaðist 23.
maí, líklega á strætis-
vagnastöð við Vesturgötu
eða á svæðinu frá Ægis-
götu og niður að Garða-
stræti. Uppl. í síma
552-5430 eða 551-6875.
Úr og körfubolti
töpuðust í
Hafnarfirði
UNGUR piltur í unglinga-
vinnu í Hafnarfirði tapaði
úrinu sínu við Mosabarð
um miðjan júní. Einnig
tapaði hann körfuboltan-
um sínum, tegund Orlando
Magie, við Hvaleyrarskóla
í maí. Þeir sem hafa orðið
varir við þessa hluti era
beðnir að hringja í síma
565-2337. Fundarlaun.
Hjól fannst
MOONGOOSE-hjól fannst
við Vallengi sl. laugar-
dagskvöld. Eigandinn má
vitja þess í síma 586-1084
Dýrahald
Snúður er týndur
í Grafarvogi
MIG langar að tilkynna
hvarf á kettlingi sem hvarf
22. júní frá Beijarima í
Grafarvogi. Kettlingurinn
er 3 mánaða gamall, svart-
ur og hvítur að lit. Andlitið
er hvítt frá augum og nið-
ur eftir bringu og kviði,
loppurnar eru með breiðri
hvítri rönd upp eftir fótun-
um að framan. Tveir
drengir tóku hann úr garði
okkar í Beijarima 16 þar
sem hann var við leik með
mömmu sinni. Hann var
ekki merktur en heitir
Snúður. Hans er sárt sakn-
að af heimilinu. Allar upp-
lýsingar eru vel þegnar í
síma 587-6087.
Kettlinga
vantar heimiii
TVÖ kettlingakrútt bráð-
vantar gott og ástríkt
heimili þar sem þeir geta
verið í friði. Þeir eru
þriggja mánaða og kassa-
vanir. Uppl. í síma
552-0834.
Tveir kettlingar
þurfa heimili
TVEIR átta vikna gamlir,
kassavanir kettlingar þurfa
að eignast góð heimili.
Annar er bröndóttur, hinn
svartur með hvítar loppur.
Áhugasamir dýravinir eru
vinsamlega beðnir að
hringja í síma 565-6377.
Fjórir kettlingar
óska eftir heimili
FJÓRIR fallegir kettling-
ar, algerir snyrtipinnar,
óska eftir góðum heimilum
sem fyrst. Uppl. í síma
565-3672 eða 555-0515
(Þorgerður).
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
ÞESSI stutta skák var
tefld á Evrópumeistara-
móti landsliða í Pula í
Króatíu í vor. Hvítt: Bel-
otti (2.405), Ítalíu, svart:
Grabarczyk (2.480), Pól-
landi, skoski
leikurinn, 1. e4
- e5 2. Rf3 -
Rc6 3. d4 -
exd4 4. Rxd4 -
Rf6 5. Rxc6 -
bxc6 6. e5 -
De7 7. De2 -
Rd5 8. c4 - Rb6
9. g3 - g6 10.
Rd2 - Bg7 11.
Rf3 - 0-0 12.
Bg5 - De6 13.
0-0-0?! (Byijun
hvíts er mis-
heppnuð) 13. -
a5 14. Kbl -
Ba6 15. Hcl -
Hfb8 16. Hc2
og nú höfum við
stöðuna á stöðumyndinni:
16. - Rxc4 17. Hxc4 -
Hb4 (Annar skemmtilegur
vinningsleikur var 17. -
d5, því ef hvítur drepur í
framhjáhlaupi ogleikur 18.
exd6 þá á svartur 18. -
Hxb2+) 18. Rd2 - Bxc4
19. Rxc4 - Df5+ 20. Dd3
- Dxg5 21. Dxd7 - Hd8
22. h4 - Hxd7 og hvítur
gafst upp.
SVARTUR leikur og vinnur.
HÖGNIHREKKVÍSI
Víkverji skrifar...
AÐ er ekki á hveijum degi sem
starfsmenn Morgunblaðsins
drekka kaffi með forseta íslands á
Bessastöðum. Víkveiji varð þess
heiðurs aðnjótandi sl. sunnudag að
sitja fund með forsetanum á Bessa-
stöðum ásamt starfsystkinum, þar
sem starfsaðstaða fjölmiðla í tengsl-
um við opinberar heimsóknir var
til umræðu.
XXX
FORSETINN bauð viðstöddum
upp á kaffi og það vakti sér-
staka athygli Víkveija, þegar þjón-
ustustúlkan bar fram kaffið, að hún
bauð forsetanum fyrst að fá sér
kaffi, hvað hann þáði. Þessu næst
bauð hún forsetaritara kaffibolla,
sem hann þáði ekki, og loks var
komið að því að gestunum væri
boðið upp á kaffíbolla! Víkveiji telur
að forsetaembættið sé með þessu
að taka upp erlenda siði hinna kon-
ungbornu, sem eru framandlegir
og beinlínis ógeðfelldir í íslensku
samfélagi. Hér á landi er fyrir því
rótgróin og elskuleg hefð, sem ein-
att gengur undir nafninu „íslensk
gestrisni", að gestgjafinn, hver sem
hann er, býður gestum sínum fyrst
upp á veitingar og hugar í kjölfar
þess að eigin þörfum.
XXX
VEGIR Guðs eru órannsakan-
legir, það vitum við öll. En
það eru vegir Pósts og síma líka.
Mönnum er ugglaust í fersku minni
að siglingakeppni frá Bretlandi lauk
hér í Reykjavíkurhöfn á þjóðhátíð-
ardaginn. Það var The Royal
Plymouth Yacht Club, sem stóð
fyrir keppninni, sem þótti takast
mæta vel. Skömmu eftir að keppn-
inni lauk barst bréf hingað til lands,
sem sent var frá ofangreindum sigl-
ingaklúbbi og átti að berast til for-
manns Siglingaklúbbs íslands.
Bréfið endaði, samkvæmt upplýs-
ingum Víkveija, á skrifborði í for-
sætisráðuneytinu! Hveijar skyldu
svo skýringar þessa vera? Jú, á
umslagi bréfsins var ritað: The
President of the Icelandic Yacht
Club. Auðvitað eru þeir ekki seinir
á sér í póstþjónustunni að leggja
saman tvo og tvo og fá út fimm.
Þeir sjá á umslaginu President, sem
þýðir jú forseti, og þar af leiðandi
kemur þeim enginn í hug nema
Ólafur Ragnar Grímsson, en sú var
tíðin að forsetaembættið og forsæt-
isráðherraembættið deildu húsa-
kynnum í Stjórnarráðshúsinu, þótt
nú um stundir sé hvorugt embættið
með skrifstofur sínar þar.
xxx
KANNSKI er það sem gerðist
þarna hjá Pósti og síma ekki
svo ósvipað því sem iðulega mun
gerast með póst sem sendur er frá
Boston í Bandaríkjunum hingað til
íslands. í Boston býr mikill fjöldi
íra og munu þeir margir starfa við
póstþjónustuna þar í borg. Víkveiji
þekkir mörg dæmi þess, að bréf og
aðrar póstsendingar sem áttu að
fara til íslands (Iceland á ensku)
höfðu viðkomu á Irlandi (Ireland á
ensku) einfaldlega vegna þess að
þeir sem flokkuðu póstinn lásu
rangt á umslög og umbúðir.