Morgunblaðið - 25.06.1997, Side 52
52 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
í undirbún-
ingi er að
koma á fót
skemmtigarði
í Hong Kong
tileinkuðum
kvikmynd-
um Jackie !
Chan.
Hong
■r Kong, hafa
tekiðaðsérað
meta hugmyndir
opinberraaðilaumupp-
byggingu á sérstöku kvik-
myndasvæði. Hugmyndin er að
MYNDBÖNDMVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP
Hong Kong á
krossgötum
byggja upp kvikmyndaver, kvik-
myndasöfn, skemmtigarða, og
hótel á eyjunum Ma Wan og Tsing
Yi. Hjá Golden Harvest Films er
þegar hafinn undirbúningur að
skemmtigarði tileinkuðum kvik-
myndum þeirra stærstu stjörnu,
Jackie Chan.
► ÞAÐ eru ekki allir sem kvíða
yfirtöku kínverskra stjórnvalda á
Hong Kong. Margt starfsfólk í
kvikmyndaiðnaðinum þar vonast
t.d. til að samvinna við kínverska
kvikmyndagerðarmenn hleypi
nýju fjöri í framleiðsluna. Und-
anfarin ár hefur kvikmyndafram-
leiðsla í Hong Kong dregist saman
og einnig hagnaðurinn. Kvik-
myndagerðarmenn binda þess
" / vegna vonir sínar við að samrunn-
inn færi þeim nýjar fjármögnun-
arleiðir, nýtt hæfileikafólk, og
nýja uppbyggingu á iðnaðinum.
Enginn á þó von á því að breyt-
ingar komi strax í kjölfar yfirtöku
Kína. Hinn nýskipaði leiðtogi
Hong Kong, Tung Chee-hwa, mun
hafa í mörg horn að líta og kvik-
myndagerð líklega ekki ofarlega
á forgangslistanum. Menn virðast
þó tilbúnir til að bíða um stund í
þeirri trú að kínverskir leiðtogar
átti sig á því að það er þeim í hag
að Hong Kong kvikmyndaiðnað-
urinn vaxi á ný. Sá vöxtur kæmi
til með að færa yfirvöldum pening
og væri jafnframt menningarleg
lyftistöng.
Erlendir kvik-
myndagerðarmenn
ætla ekki að missa af
væntanlegri hagsæld og
hafa sumir þegar sett upp
útibú í Hong Kong eða stofnað
til samvinnu við innlend fyrir-
tæki. Fyrirtæki Francis Ford
Coppola, American Zoetrope,
hefur komið á fót framleiðslufyr-
irtæki í Hong Kong, og það sama
hefur kvikmyndaleikstjórinn Wa-
yne Wang gert með Chrome
Dragon. Sljórnarmenn annars
fyrirtækis, Phoenix Pictures,
hafa verið í viðræðum við eigend-
ur kvikmyndaversins Media Asia
um að framleiða myndir fyrir
kínverska markaðinn og einnig
myndir fyrir alþjóðamarkaðinn.
Ferðamálafrömuðir í Hong
Kong vilja einnig byggja upp
kvikmyndaiðnaðinn en þeir sjá
það sem aðferð til þess að halda
í blómlegan ferðamanna-
iðnaðinn. Yfirmenn hjá
Golden Harvest
Films, einu fjöl-
hæfasta kvik-
mynda-
stúdíói
Ljósmyndasýning Morgunblaðsins í Borgarnesi
m
Okkar menn, félag fréttaritara Morgunblaðsins, og Morgunblaðið
efndu til samkeppni um bestu Ijósmyndir fréttaritara frá árunum
1995 og 1996.
í Sparisjóði Mýrasýslu hefur verið komið upp sýningu á þeim
myndum sem dómnefnd taldi bestar.
Sýningin stendur til föstudagsins 4. júlí og er opin á afgreiðslutíma
sparisjóðsins.
Myndirnar á sýningunni eru til sölu.
Ég mæli með
Áhrifavaldar
æskuáranna
Benedikt Ingólfs-
son háskóla- og
söngnemi
BENEDIKT segir myndbandagláp
sitt vera í meðallagi „miði maður
við aðra fulltrúa hinnar afþreying-
arsinnuðu X-kynslóðar sem ég
tilheyri víst samkvæmt am-
erískum staðli.
Reyndar kýs
ég frekar að
kvikmyndahús
virkilega gimiieg-
■ J er að ræða en mynd-
bandið er vissulega prýðilegur valkost-
ur þegar slík iðja hentar manni. Og
þá fer maður yfirleitt á Klapparstíg-
inn þar sem úrvalið er myndarlegast
og viðmótið elskulegast. Þessar
myndir sem ég vel myndi ég ekki
endilega sitja á lista yfir bestu mynd-
ir allra tíma, en fyrir ýmsar sakir eru
þær samt í uppáhaldi hjá mér ásamt
fleiri myndum. Þær eiga það flestar
sammerkt að hafa öðlast dálæti mitt
fyrir mörgum árum þegar ég var
bam eða unglingur, þótt vissulega
höfði þær til manns á fleiri forsendum
nú en þá.“
ef ...
if ...-1968
Leikstjóri: Lindsey Anderson. Malc-
olm McDowell, David Wood, Richard
Warwick og Christine Noonan.
„Þessi mynd gerist í breskum, íhalds-
sömum heimavistarskóla í lok sjö-
unda áratugarins. í myndinni á skól-
innn að öllum líkindum að vera tákn
fyrir staðnaðar valdastofnanir og
afturhaldsöfl samfélagsins. Nokkrir
nemendur, sem ekki hlíta aganum
sem skyldi, gera uppreisn í lok mynd-
arinnar — nærtækt umfjöllunarefni
árið 1968. Myndin hafði talsvert
mikil áhrif á skopskyn mitt og bróð-
ur míns þegar við sáum hana ungir
í sjónvarpinu enda er Malcolm
McDowell óborganlegur í henni þótt
vart fái hann þá einkunn fyrir starf
sitt um þessar rnundir."
Ekki horfa núna
Don’t Look Now -1973
Leikstjóri: Nicolas Roeg. Julie
Christie, Donald Sutherland og Hilary
Mason. „Ég er feginn því að þegar
ég fór til Feneyja á sínum tíma var
það ekki um hásumarið í túristahá-
vaða heldur mjög snemma vors þegar
grár, kyrr og draugalegur andblær
ríkti á kvöldin á þröngum götunum
og við síkin — alveg eins og í þess-
ari dularfullu mynd. Magnað og ógn-
vekjandi andrúmsloft — rauði dverg-
urinn skelfdi mig ákaflega þegar ég
sá myndina fyrst og gerir það reynd-
ar enn. Þegar ég sá myndina aftur
nokkrum árum síðar tók ég eftir því
að í henni eiga Donald Sutherland
og Julie Christie prýðilega ástarsenu."
Morgunblaðið/Jim Smart
„ÉG ER svo einkennilega
gerður að hafa gaman af
sjálfsmeðvituðum persónum
úr amerískri borgaralegri og
menntaðri millistétt.“
Hjartarbaninn
Deer Hunter -1978
Leikstjóri: Michael Cimino. Robert
De Niro, John Cazale, John Savage,
Meryl Streep, Christopher Walken,
George Dzundza og Chuck Aspe-
gren. „Vissulega ekki gallalaus mynd
en afar áhrifarík fyrir minn smekk.
Yfírleitt leiðast mér Víetnam-myndir
(að verkum Olivers Stones meðtöld-
um) en þetta er heldur ekki dæmi-
gerð Víetnam-stríðsmynd. Sam-
bandi, eða sambandsleysi, vinanna í
þessu einkennilega samfélagi stáliðn-
aðarbæjarins í Pennsylvaníu eru gerð
sterk skil. Manni verður ósjálfrátt
hugsað til harðgerra vina sinna sem
erfiða í andsnauðu umhverfí kerskál-
ans í álverinu í Straumsvík. Góður
leikur og De Niro svíkur ekki frekar
en endranær. Lagið fræga í upphafi
og lok myndarinnar, sem John Will-
iams flytur á gítarinn sinn, er sömu-
leiðis einstaklega fagurt."
Hanna og systur hennar
Hannah and her Sisters -1986
Leikstjóri: Woody Allen. Woody All-
en, Michael Caine, Mia Farrow,
Carrie Fisher, Barbara Hershey,
Lloyd Nolan, Max von Sydow og
Dianne Wiest. „Ég gæti alveg eins
valið einhveija aðra Woody Allen-
mynd, en þessi er með þeim sterk-
ari. Bergmaníska alvaran í bland við
taugaveiklunarkenndan húmor Al-
lens. Leikaraúrvalið er skemmtilegt
eins og yfirleitt hjá Allen síðustu ár.
Ég er líka svo einkennilega gerður
að hafa gaman af þessum sjálfsmeð-
vituðu persónum úr amerískri, borg-
aralegri og menntaðri millistétt.
Samtölin eru áhugaverð, fólkið er
yfírleitt afskaplega opinskátt en um
leið þjakað af einhverri tilvistar-
kreppu sem það er vel að merkja
ákaflega meðvitað um. Mia Farrow
er auðvitað góða systirin."
MYNDBÖND SÍÐUSTU VIKU
Jólin koma Ofbeldishefð
(Jingle All the Way)k k (Violent Tradition)-k ~k'h
LeyndarmálRoan Óvæntir fjölskyldu-
Inish meðlimir
(The Secret ofRoan Inish)-k k 'h (An Unexpected Family)^ ★ ★
Eigi skal skaða Flagð undir fögru skinni
(First Do No Harm)-k ★ ★ (Pretty Poison) k 'h
Ótti Eiginkona efnamanns
(Fear)-k'k'h (The Rich Man’s Wife)+ 'h
Jack Djöflaeyjan
(Jack)kr k (Djöflaeyjan)k ★ ★ 'h
Vondir menn í vígahug Plágan
(Marshall Law)-k 'h (The Pest)k ★ ★
Heigi í sveitinni Krákan: Borg englanna
(A Weekendin the Country)-k ★ ★ (The Crow: City of Angels)k
Köld eru kvennaráð Allt fyrir aurana
(The First Wives Club)-k ★ ★ (If Looks Could Kill)'h