Morgunblaðið - 25.06.1997, Qupperneq 56
MORG UNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMIS691100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
JAK 55 flugvél Björns á leið í loftið með Makagonovu.
Heimsmeistari í listflugi
kennir Islendingum
TVÖFALDUR heimsmeistari í list-
flugi, Kalida Makagonova, er komin
hingað til lands til þess að þjálfa ís-
lenska listflugmenn. Hún þjálfar
landslið Rússa í listflugi og keppir
einnig með liðinu. Það var fyrir til-
•*tilli Júrí Resetovs, sendiherra
Rússa á Islandi, sem Makagonova
kemur hingað til lands.
Makagonova sýndi listir sínar við
Tungubakka í Mosfellsbæ í gær.
Þar voru staddir m.a. Arngrímur
Jóhannsson, forstjóri Atlanta, sem
er r.iikill áhugamaður um listflug,
Magnús Nordal og fleiri áhuga-
menn. Makagonova flaug JAK 55
listflugvél sem er í eigu Björns
Thoroddsen og vöktu tilburðir
hennar í lofti óskipta aðdáun við-
^B^ iddra. Engum duldist að þama
tlaug heimsmeistari sem á að baki
2.400 flugtíma í listflugi.
„Ég er mjög glöð að vera komin
hingað til fslands," sagði Maka-
gonova í stuttu samtali við Morgun-
blaðið í gær eftir sýninguna á
Tungubakka. Hún er borin og barn-
fædd í Moskvu þar sem hún býr
ásamt eiginmanni srnum og sautján
ára syni þeirra.
„Ég vonast til að geta veitt ís-
lenskum atvinnuflugmönnum, sem
eru áhugasamir um listflug, ein-
hverja tilsögn. Ég vona líka að ég
hafi tækifæri til þess að sjá eitthvað
af þessu fagra landi og hitta
skemmtilegt fólk.“
Makagonova kvaðst vonast til
þess að Islendingar sæju sér fært að
senda keppnislið í næstu heims-
meistarakeppni í listflugi, og hún
væri tilbúin að leggja sitt af mörk-
um þá tíu daga sem hún verður hér
á landi.
Bifreiðaskoðun Islands
Hlutur ríkisins seldur
FRAMKVÆMDANEFND um
einkavæðingu ákvað á fundi sínum í
gær að leggja til við dómsmálaráð-
herra að allur hlutur ríkisins í
Bifreiðaskoðun íslands verði seldur í
dreifðri sölu til almennings með
svipuðum hætti og þegar hlutur rík-
isins var seldur í Lyfjaversluninni og
Jgrðborunum.
Um er að ræða 44,6% hlutabréfa í
félaginu. Landsbréf hf. munu annast
söluna sem áætlað er að fari fram
síðar í sumar.
Að sögn Skarphéðins Berg Stein-
arssonar, deildarstjóra í fjármála-
ráðuneytinu og ritara framkvæmda-
nefndar um einkavæðingu, hefur
Landsbréfum hf. verið falið að ann-
ast sölu á hlutabréfum ríkisins í Is-
lenska járnblendifélaginu. Um er að
ræða sölu á 26,5% hlutabréfa í félag-
inu þannig að eftir söluna mun ríkið
eiga 12% í Islenska jámblendifélag-
inu.
■ Lagt til/16
Úthafskarfaveiðar á Reykjaneshrygg
Upplýsingar um
afla skila sér illa
Morgunblaðið/Jim Smart
Kalida Makagonova undirbýr sig
fyrir brottför. Björn Thoroddsen
flugmaður fylgist með.
UPPLÝSINGAR frá öðrum þjóðum
en okkur íslendingum um út-
hafskarfaaflann á Reykjaneshrygg
skila sér ekki með þeim hætti sem
samþykkt hafði verið af aðildarþjóð-
um NEAFC. Nýjustu tölur frá öðr-
um en okkur eru frá 1. júní, þrátt
fyrir að tilkynna beri um aflann
vikulega. Samþykkt þessi, sem allar
aðildarþjóðir voru meðmæltar, gild-
ir fyrir úthafskarfa og norsk-ís-
lenska síldarstofninn.
Að sögn Guðmundar Kristmunds-
sonar hjá Fiskistofu hafa aflatölur
íslenskra skipa um þessar tegundir
verið gefnar út vikulega, en mjög
brösuglega hefur gengið að fá afla-
tölur annarra þjóða. Nýjustu tölur
um úthafskarfaafla annarra þjóða
eru frá 1. júní sl., en aðild að
NEAFC eiga Danmörk fyrir hönd
Færeyja og Grænlands, Evrópu-
sambandið, ísland, Noregur, Pól-
land og Rússland. Guðmundur segir
að ógemingur sé að fylgjast með
því hversu mikill heildaraflinn á
Reykjaneshrygg sé orðinn því fyrir
utan gloppóttar upplýsingar aðild-
arlandanna, sé á svæðinu fjöldi
veiðiskipa frá löndum sem standa
utan NEAFC og hafa því ekki
skyldur gagnvart þeim félagsskap.
■ Dræm veiði þarf/C3
Framkvæmdastjóri Básafells hf. um flutning viðskipta frá SH yfir til ÍS
Ekki ráölegt að vera hjá
báðum sölusamtökunum
STJÓRN Básafells hf. hefur að tillögu fram-
kvæmdastjóra félagsins samþykkt samhljóða að
færa þau viðskipti, sem áður voru hjá Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna hf., yfir til íslenskra sjáv-
arafurða hf.
Amar Kristinsson, framkvæmdastjóri Bása-
fells, neitar því alfarið að ÍS hafi boðið betur en
SH. Engar viðræður um slíkt hafi farið fram við
sölusamtökin. „Á hinn bóginn ef skoðaður er hjá
okkur hluthafalistinn, er ljóst að hluthafablokkin
IS-megin er stærri en sú sem tengd er SH þó
/^keljungur, Burðarás og Jöklar séu hluthafar hjá
okkur Uka. Þetta er alfarið mín ákvörðun. Hefði
ég tekið ákvörðun á hinn veginn á ég ekki von á
því að ég hefði verið beittur neinum þrýstingi
heldur," sagði Arnar.
„Eftir að hafa farið yfir stöðuna og skoðað mál-
ið fram og til baka, tók ég þá ákvörðun að ekki
væri ráðlegt að vera hjá báðum sölusamtökunum.
Ég stóð frammi fyrir því að þurfa að velja á milli
sölusamtakanna og valdi ÍS. Mér fannst það ekki
vera valkostur í stöðunni að frysta rækjan færi
yfir til SH sem er með mjög mikið af frystri
rækju á sinni könnu fyrir og margar stórar
rækjuverksmiðjur. Að mínu áliti hafði SH ekkert
með það að gera að bæta við sig verksmiðjum,"
sagði Arnar.
Kemur ekki á óvart
Friðrik Pálsson, forstjóri SH, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að þessi ákvörðun stjóm-
ar Básafells hefði ekki komið sér á óvart í ljósi
aðdraganda sameiningarinnar þegar fyrir hafi
legið að meirihlutaeigendur félagsins væru sam-
starfsaðilar Islenskra sjávarafurða.
Að sögn Arnars kemur þessi ákvörðun auðvit-
að í kjölfar þess að ákveðið var að loka bolfisk-
vinnslu fyrrum Norðurtangans á Isafirði sem var
stærsti framleiðandinn fyrir SH. Hún framleiddi
um tvö þúsund tonn af frystum afurðum á ári síð-
ustu árin, en mun meira á árum áður Amar segir
að SH sé í raun að missa meiri viðskipti heldur
en ÍS er að fá. „SH er að missa bolfiskvinnsluna,
sem tilheyrði Norðurtanganum.
Hún verður lögð niður og fer þar af leiðandi
ekki til ÍS. Frystitogarinn Orri IS, sem áður var í
eigu Norðurtangans, flyst hins vegar frá SH yfir
til ÍS. Síðan kemur eitthvað til með að verða
fryst af bolfiski á Flateyri og færist sala á þeirri
framleiðslu frá SH og yfir til ÍS, en áhersla verð-
ur lögð á saltfisk á Flateyri sem seldur verður í
gegnum smærri söluaðila ásamt niðursoðinni
rækju. ÍS er hvorki seljandi saltfisks né niður-
soðinnar rækju.“
Verðmæti framleiðslu Kambs á Flateyri og
Norðurtangans á ísafirði sem SH sá um sölu á
nam um 900 milljónum króna í fyrra. Arnar áætl-
ar að IS komi nú til með að selja um 60% af veltu
fyrirtækisins, en áætlað er að velta þess verði á
þessu ári 3,7 milljarðar króna.
Morgunblaðið/J úlíus
Niðurrif
samkvæmt
áætlun
NIÐURRIF á Víkartindi í Háfs-
fjöru gengur samkvæmt áætlun, en
verið er að hluta skipsflakið í sund-
ur og annast bandaríska björgun-
arfyrirtækið Titan það verk í um-
boði tryggingarfélags skipsins. Bú-
ið er að flytja brú og framenda
skipsins upp í Qöruna og verið er
að vinna að því að taka vélarrúmið
af skipinu. A myndinni sem tekin
er úr brúnni sést framendinn og
það sem eftir er af skipinu í flæð-
armálinu.
Brotajárnið sem safnast hefur
fyrir úr Víkartindi er ennþá allt í
Háfsfjöru sem er nú ófær öllum
stórum farartækjum og því ekki
hægt að flytja brotajárnið í burtu.
Telja menn að ekki verði hægt að
flytja járnið til Reykjavíkur fyrr en
sandurinn frýs næsta haust. Gerð-
ur hefur verið samningur við Hr-
ingrás hf. um að hirða brotajárnið
úr fjörunni og flytja það til Reykja-
víkur.