Morgunblaðið - 30.08.1997, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Aftur á
„AÐ SJÁ sólina rísa 16 sinnum og
setjast 16 sinnum á venjulegum
sólarhring gerir það að verkum að
'^fkaminn greinir ekki mun dags og
nætur. Sólarhringurinn hjá okkur
var 90 mínútur," segir Bjarni
Tryggvason geimfari sem lýsti
geimferð sinni í viðtali við Morg-
unblaðið í geimferðamiðstöðinni í
Houston á fimmtudag.
Bjarni segir að geimfararnir
hafi skipt tímanum í vinnulotur og
svefnlotur. I vinnulotunum voru
gerðar 43 tilraunir en bandaríska
geimferðastofnunin telur ferðina
hafa tekist mjög vel og er talað um
95% árangur í þeim rannsóknum
sem gerðar voru.
„Ég er Kanadamaður, Kanada
tók mig að sér en ræturnar eru
, £^mt alltaf á íslandi. Mér finnst af-
ar eðlilegt að íslendingar telji mig
landa sinn,“ segir Bjarni. Hann
segist hlakka mikið til væntanlegr-
ar Islandsferðar en þá vonast hann
m.a. til að halda fyrirlestra í verk-
fræðideild Háskóla íslands um
geimferðina.
■ Sólarupprás/30
jörðinni
Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson
BJARNI Tryggvason í geim-
ferðamiðstöðinni í Texas.
Utanríkisráðherra um áform Hydro Aluminium
Rætt um að álverið
rísi á Austurlandi
VERÐI af áformum Hydro Alumini-
um, dótturfyrirtækis Norsk Hydro,
um nýtt álver hér á landi eru hug-
myndir um að það rísi á Austurlandi,
nánar tiltekið á Reyðarfirði, og
þannig verði hægt að nýta raforku
frá Fljótsdalsvirkjun í fjórðungnum.
Þetta kom fram hjá Halldóri Ás-
grímsson utanríkisráðherra á aðal-
fundi Sambands sveitarfélaga á
Austurlandi í gær.
Könnunarviðræður hafa að undan-
fömu staðið yfir milli íslenskra
stjómvalda og Hydro Aluminium um
byggingu 200 þúsund tonna álvers
hér á landi. Halldór sagði við Morg-
unblaðið í gær að slíkt álver yrði að
byggja á raforkuframleiðslu á Aust-
in-landi og ef álverið yrði á Suðvest-
urlandi væri Ijóst að raforkan yrði
umtalsvert dýrari með því að leiða
hana yfir hálendið. Þar að auki væm
af því umhverfisspjöll að flytja mikið
rafmagn með þeim hætti. Hins vegar
væri stærð fýrirhugaðs álvers galli
fyrir litlar byggðir á Austurlandi og
verið gæti að þeir sem hefðu áhuga á
að byggja álver á Austurlandi sæju
sér það ekki fært af þeim sökum.
„Eg er þeirrar skoðunar að það
skipti afar miklu máli fyrir byggða-
þróun í landinu að það komi upp
sterkur þéttbýliskjarni á Austur-
landi og við verðum að nýta það
tækifæri sem felst í nýtingu orku-
lindanna þar. Það er jafnframt ljóst
að ef af slíku á að geta orðið verður
að færa byggðirnar á Austurlandi
betur saman. Það era uppi áform um
að gera jarðgöng og ég er ekki í vafa
um að slík framkvæmd myndi
styrkja mjög framgang þess máls,“
sagði Halldór Ásgrímsson.
Á fundi sveitarfélaganna í gær
var samþykkt ályktun þar sem gert
er ráð fyrir því að aðilar í atvinnulífi
geti komið inn í virkjunarfram-
kvæmdir. Halldór segir að í viðræð-
unum við Hydro Aluminium sé til at-
hugunar að fyrirtækið komi inn í
uppbyggingu raforkuversins og eigi
í því hlut, sem verði síðan afskrifað-
ur á ákveðnum tíma. „Þar væri
vissulega um stefnubreytingu að
ræða en það er ljóst að Austfirðing-
ar eru opnir fyrir því að standa að
þeirri stefnubreytingu,“ sagði Hall-
dór.
Halldór sagði aðspurður að varð-
andi staðsetningu álvers á Austur-
landi hefði ávallt verið horft á Reyð-
arfjörð og að hans mati væri Eyri
ákjósanlegasti staðurinn. Einnig
hefði verið rætt um staðsetningu í
botni fjarðarins en það væri mun
verri kostur.
Varðhald til
" ’ 8. október
GÆSLUVARÐHALD yfir fjóram
sakborningum í stóra e-pillumálinu
svokallaða hefur verið framlengt til
8. október.
Tveir sakbominganna komu fyrir
dómara á fimmtudag og féllst hann
á beiðni ákæruvaldsins um áfram-
haldandi gæsluvarðhald vegna
væntanlegrar ákæra og dómsmeð-
ferðar og byggist sú niðurstaða á al-
varleik brotsins.
Hinir sakbomingamir tveir komu
fyrir dómara í gær og varð niður-
staðan í máli þeirra hin sama.
Draumur
rættist
DRAUMUR margra Eyja-
manna rættist er dregið var í
Evrópukeppni bikarhafa í
knattspymu í gær. ÍBV mætir
hinu sterka liði Stuttgart og
verður fyrri leikurinn á Laug-
ardalsvelli 18. september.
Tengsl ÍBV og Stuttgart hafa
löngum verið mikil. Ásgeir Sig-
urvinsson lék með þýska liðinu í
mörg ár og varð Þýskalands-
meistari með því 1984. Sigurvin
VT^Dlafsson, bróðursonur Ásgeirs,
æfði í nokkur ár hjá Stuttgart,
en hann leikur nú með ÍBV. Þá
leikur Sverrir Sverrisson með
ÍBV, en Eyjólfur bróðir hans
varð á sínum tíma Þýskalands-
meistari með Stuttgart.
■ ÍBV mætir/Bl
Velta í Ljósa-
^ vatnsskarði
BÍLL valt við bæinn Birningsstaði í
Hálshreppi í Ljósavatnsskarði í
gær. Þrennt var í bflnum, þar af eitt
ungbarn. Barnið slapp ómeitt en
ökumaður skarst nokkuð. Fólkið
var flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri til skoðunar. Að sögn lög-
«*!%glu var veltan nokkuð hörð en bíl-
belti björguðu því að ekki fór verr.
Morgunblaðið/Arnaldur
Fjórtán
kennarar
segja upp
FJÓRTÁN grunnskólakennarar
af sautján við ÁJftanesskóla í
Bessastaðahreppi ganga inn á
skrifstofu Bessastaðahrepps til
að afhenda uppsagnir sínar.
Þeir þrír kennarar hjá Álfta-
nesskóla sem ekki sögðu upp
eru nýráðnir.
„Við erum að segja upp
vegna þess að við sjáum ekki
fram á að það verði neinar
breytingar á kjaramálum okk-
ar,“ sagði Kristín Sigurleifs-
dóttir, einn kennaranna við
Álftanesskóla.
Kennararnir við Álftanes-
skóla, sem allir eru konur,
sögðu að enginn fyrirvari væri
á uppsögnunum ef til þess kæmi
að samið yrði fyrir þann tíma
sem uppsagnirnar tækju gildi.
Þær væru þegar byijaðar að
huga að öðrum störfum, þó
ekki innan kennarastéttarinnar.
Formaður KI eftir uppsagnir fjórtán kennara við Alftanesskóla
Hrina uppsagna kenn-
ara kæmi ekki á óvart
FJÓRTÁN grannskólakennarar af sautján við
Álftanesskóla í Bessastaðahreppi afhentu Jó-
hanni Jóhannssyni, staðgengli sveitarstjóra
hreppsins, uppsagnarbréf í gær vegna óánægju
með launakjör. Uppsagnimar taka gildi að þrem-
ur mánuðum liðnum. Eiríkur Jónsson, formaður
Kennarasambands Islands, segist aðspurður
hafa haft fregnir af því að kennarar í einstökum
grannskólum væru að velta fyrir sér að segja upp
störfum en stéttarfélagið komi þar hvergi nærri.
Eiríkur sagði að sér kæmi ekki á óvart ef hrina
uppsagna færi af stað í kjölfar þessa.
Jón G. Kristjánsson, formaður samninga-
nefndar launanefndar, segir að forystumenn
kennara hafi greint sér frá því að heyrst hafi að
kennarar væra að íhuga uppsagnir. Hann sagði
ekki óeðlilegt þótt einhver slík hreyfing væri á
þessum árstíma en ef um umfangsmeiri uppsagn-
ir væri að ræða kæmi það á óvart, því kennarar
hefðu ekki notað hópuppsagnir fyrr í kjaradeilu,
þótt það væri þekkt í öðrum stéttum.
Samninganefndir kennarafélaganna og launa-
nefndir sveitarfélaga sátu á löngum samninga-
fundi á fimmtudagskvöldið og hefur verið boðað
til annars fundar í dag.
Sveitarfélögin boða fund
Jóhann Jóhannsson sagði að það dyldist eng-
um að það væri alvarlegt mál þegar kennaralið
innan skóla segði upp störfum og að sjálfsögðu
þyrfti að skoða það alvarlega. Erla Guðjónsdótt-
ir, skólastjóri Álftanesskóla, sagði um uppsagnir
kennaranna að þær væra auðvitað mjög dapur-
legar, en hafa bæri í huga að þær beindust hvorki
að skólanum sem slíkum né hreppnum.
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga
ræddi í gær stöðuna í kjaraviðræðum við kenn-
ara og leikskólakennara. Vilhjámur Þ. Vilhjálms-
son, formaður sambandsins, sagði að samþykkt
hefði verið að boða fulltrúa allra sveitarfélaga á
landinu til fundar til að ræða þessa alvarlegu
stöðu. Hann sagði að vilji væri hjá sveitarfélög-
unum að bæta kjör kennara, en takmarkað væri
hvað langt væri hægt að ganga í þessum samn-
ingum. Stjórn sambandsins legði mikla áherslu á
að lausn fengist í þessari deilu og báðir aðilar
yrðu að finna til ábyrgðar í þeim viðræðum sem
stæðu yfir.