Morgunblaðið - 30.08.1997, Blaðsíða 23
-OU
M0RGUNBLAÐIÐ VIKU LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997 23
m
□
og Helgi ÞorgOs segir mér frá einu
áhugamáli sínu.
„Eg reyni að forðast allar dellur
þar sem ég veit að þær taka mikla
orku. Ég hef til dæmis gaman af að
veiða en forðast að láta það verða
að dellu. Ég veiði aðallega í ám og
pyttum í Dölunum fyrir vestan, en
þaðan er ég ættaður. Ég er með
byssuleyfi og er með jörð þar sem
er talsvert af fugli en það er spurn-
ing hvort ég túlka það beinlínis
sem áhugamál. Mér þykir gott að
geta náð mér í mína eigin bráð. Ég
náði því að vera á hreindýraveiðum
og í selveiði á Grænlandi núna í
sumar.“
Helgi Þorgils Friðjónsson fer í
sund á hverjum morgni í Sundhöll-
ina við Barónsstíg og syndir lág-
mark 800 metra. Það hefur hann
gert árum saman. Hann er rétt
rúmlega fertugur og er fremur há-
vaxinn og grannur og hann vinnur
skipulega dag hvern að list sinni.
Hann sér árangurinn í vaxandi eft-
irspurn eftir myndum sínum víða
erlendis. Kona Helga Þorgils er
Margrét Lísa Steingrímsdóttir,
þroskaþjálfi og forstöðukona, og
börn þeirra hjóna eru Örn, mat-
reiðslunemi á Hótel Holti, Þorgils
og Ólöf Kristín.
en jafnframt að ná fram bestu kost-
um hans, án þess að bæla um of
skap hans og vilja. Hann er örlátur
á umbun, þegar hesturinn stendur
sig vel. Barninu þarf á sama hátt að
stýra með festu og ástríki til far-
sællar hegðunar, án þess að bæla
sjálfstæðan vilja þess og hæfileika.
Umbun er því nauðsyn og hvatning
til að halda áfram á sömu braut og
gera enn betur. Ef barnið fær enga
umbun fyrir að lemja foreldra sína
má gera ráð fyrir að það hætti að
nota þessa aðferð til að fá sitt fram.
•/.i'si'míur Morgunblaðsins geta
spurt sálfræðinginn um það sem
þcim liggur á hjarta. Tekið er á
móti spurningum á virkum dögum
milli klukkan 10 og 17 í síma 569
1100 og bréfum eða símbréfum
merkt: Vikulok, Fax: 569 1222.
Ennfremur simbréf merkt: Gylfi
Ásmundsson, Fax: 5601720.
Mynda-
albúmið
Q Við systkinin í Búðardal
um 1960. Þórður Frið-
jónsson, Sigurður Rúnar,
Helgi Þorgils, Steinunn
Kristín, Lýður Ámi.
Q Nemendur í MHÍ 1972-73.
Ég tók myndina. Gipskarl-
inn á miðri myndinni er
samvinnuverk mitt og
Þórs Vigfússonar og var
hann tilefni myndarinnar.
EJá ferðalagi um Ítalíu þeg-
ar ég sýndi á Feneyja-
biennalinum 1990. Ég að
vinna i skissubók og
Magga að gefa Ólöfu
mjólk. Þorgils tók mynd-
ina og er þá þriggja ára.
Q Frá opnun einkasýningar
mínnar 1984 hjá Birgittu
Rosenberg í Ziirich. Ég
og galleríistinn.
□ Þorgils og Ólöf Kristín
1991 á Hafursstöðum.
Ólöf í peysunni minni.
f-1 Þorgils, Öm og Magga
ólétt 1989 með önd á
millí sín I Finnlandi eftir
sánabað.
□ Fiutningur 1993 á húsinu
okkar á Kjallaksstöðum.
Sólsetur og húsið stendur
enn á áburðarbrettunum.
Amma og afi byggðu hús-
ið 1930.
Q Á toppi Snæfellsjökuls
1986. Magga, Þórður
Friðjónsson, Steinunn
Þórðardóttir og ég.
Q Frá opnun listasafns
Dalamanna 1993 sem ég
stóð að, að mestu leyti,
ásamt Sigurði Rúnari og
pabba. Þetta er hluti gef-
enda stofngjafar sem allir
eiga ættir að rekja í Dal-
ina. Frá vinstri: Daði,
Halldór, Kristinn, Tumi og
Hallsteinn. Yfir gnæfir
bronssty a af Jóhannesi
úr Kötlun og svo íslenski
fáninn.
Þ J OÐLEIKHU SIÐ
irtasalan hefst
cpnfpmhpr
? ■ 1#C*I 11 Uv5S
I