Morgunblaðið - 30.08.1997, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 30.08.1997, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Lista- verkið Ferð Hugmynd um að sameina íþróttafélögin KA og Þór Formaður Þórs telur meiri verkaskiptingu koma til greina LISTAVERKIÐ Ferð eftir Trygg’va Ólafsson var afhjúpað á gaflinum á húsi Fróða, neðst í sunnanverðu Grófargili, í gær- dag, á 135 ára afmæiisdegi Akur- eyrarbæjar. Listaverkið er 2x2,40 metrar að stærð. Við það tækifæri afhenti Tryggvi Akur- eyrarbæ að gjöf tíu grafíkverk eftir sig, en þeim verður komið fyrir á ýmsum stofnunum bæjar- ins. Eftir athöfnina var opnuð sýning á verkum Tryggva í Deiglunni, en hún stendur til 5. september næstkomandi og er opin frá kl. 14 til 18 daglega. I tiiefni afmælisins var Ketil- húsið opið bæjarbúum og bornar voru þar fram veitingar. Ketil- húsið verður tekið i notkun innan skamms. HUGMYND Heimis Ingimarssonar, bæjarfulltrúa Alþýðubandalags, um að það skilyrði verði sett að íþrótta- félögin Þór og KA verði sameinuð eða taki upp raunhæfa samvinnu um verkaskiptingu, sem leiði til hag- kvæmni í rekstri, eigi Akureyrarbær að veita þeim aðstoð í fjárhagserfið- leikum þeirra, mælist misvel fyrir meðal forráðamanna félaganna. Bæjarráð hefur samþykkt að veita íþróttafélaginu Þór 20 milljóna króna styrk til að greiða niður skuld- ir félagins og KA hefur sent inn erindi til bæjarins þar sem óskað er eftir aðstoð vegna erfíðrar fjárhags- stöðu. Sigmundur Þórisson, formaður Knattspyrnufélags Akureyrar, seg- ist ekki sjá flöt á sameiningu félag- anna, en bendir á að deildir þeirra hafi með sér samvinnu á ýmsum Morgunblaðið/Kristján ÁRNI Steinar Jóhannsson umhverfisstjóri tekur við gjöf Tryggva Ólafssonar, en hann færði Akureyrarbæ tiu grafikverk að gjöf. sviðum. Það væri spurning hvort hægt væri að auka hana og þá helst á sviðum sem snúa að opinberum aðilum. Menn þyrftu líka að velta fyrir sér hvort vilji væri fyrir því að vera í fremstu röð í öllum greinum en það kostaði mikla peninga. „Kannski væri það besta sem hægt væri að gera knattspyrnunni til framdráttar að stofna félag um hana sem menn væru tilbúnir að leggja peninga í, félag sem hvorki yrði undir nafni KA né Þórs,“ sagði Sig- mundur. Sigmundur sagði erindi KA um Qárstuðning bæjarins sent í kjölfar þess að vitað hefði verið af því að verið væri að aðstoða Þór og menn vildu að félögin nytu jafnræðis. I erindinu væri farið fram á aðstoð við greiðslu rekstrarskulda einstakra deilda félagsins en þær gætu numið TRYGGVI Ólafsson við verk sitt Ferð, sem afhjúpað var á afmælisdegi Akureyrarbæjar. um 20 milljónum króna. Guðmundur Sigurbjörnsson formaður Þórs segist hafa rætt við forsvarsmenn KA um einhvers konar sameiningu eða samvinnu milli félaganna síðasta vetur, en málið ekki fengið hljóm- grunn, þó hefðu þær raddir heyrst að skynsamlegt væri að stefna að samvinnu með einhverjum hætti. „Mér finnst hugmynd Heimis urh verkaskiptingu milli félaganna ógalin," sagði Guðmundur. Hann benti á að þegar væri slík verka- skipting fyrir hendi, KA væri með júdó- og blakdeildir og Þór með körfuboltann. Þá benti hann á að bestu handknattleiksmenn Þórs hefðu farið yfir til meistaraflokks KA „þannig að í mínum huga er þetta eins konar IBA-lið, sem heitir reyndar KA. En svo vill maður auð- vitað eiga gott knattspyrnulið og Cosimo hjá Snorra LISTAMAÐURINN Cosimo opnar sýningu í galleríi Snorra Ásmundssonar í Grófargili á Akureyri í dag, laugardaginn 30. ágúst kl. 16. Cosimo _er fæddur í Torino á Norður-Ítalíu en fluttist til íslands árið 1980. Sýning hans nefnist „i Fiori Astrali di Co- simo“ eða Astralblómin hans Cosimos og er hans fyrsta einkasýning. Sýningin stendur aðeins í 6 daga, en galleríið er opið frá kl. 14 til 18 alla daga vikunn- ar. Lítið framboð af lóðum undir atvinnu- og þjónustustarfsemi á Akureyri mér finnst ekki óraunhæft að taka knattspyrnuna og KA handboltann," sagði Guðmundur og benti á að við- ræður hefðu staðið yfir um byggingu knattspyrnuhúss á íþróttasvæði Þórs. Þær hefðu að vísu legið niðri um skeið meðan rætt var um fjár- hagsstöðu félagsins. „Við erum bún- ir að taka á okkar málum, höfum tekið fyrir greiðslur til leikmanna og kaupum enga að, byggjum okkar lið upp á heimamönnum sem er grundvallaratriði." Guðmundur sagðist ánægður með stuðning bæjarins við félagið, en það hefði verið aðalmál núverandi stjórn- ar um alllangt skeið að koma fjár- málum í lag. Þórsarar væru bæjaryf- irvöldum þakklátir sem og einnig íjölda einstaklinga og fyrirtækja sem gert hefðu félaginu kleift að leysa Ijárhagsvanda sinn á þennan hátt. Morgunblaðið/Hermína UM 25 manns sóttu námskeið um Lions Quest sem haldið var á Dalvík nýlega. Fjórar lóðir lausar Lions Quest- námskeið í Dalvíkur- FJÓRAR lóðir eru lausar á Akureyri undir atvinnu- og þjónustustarfsemi auk svæðis við Viðjulund þar sem skipulag og nýting er til endurskoð- unar. Þetta kemur fram í yfirliti frá byggingafulltrúa Akureyrarbæjar um lausar lóðir í bænum til bygging- ar íbúðarhúsa og atvinnuhúsa en Guðmundur Stefánsson bæjarfull- trúi óskaði fyrir nokkru eftir slíkri samantekt. Lausar lóðir undir atvinnustarf- semi eru við Frostagötu, Óseyri og Hlíðarbraut, ein á hverjum stað, auk verslunar- og íbúðarlóðar við Kiðag- il sem ekki hefur verið auglýst. Guðmundur Stefánsson bæjarfull- trúi segir Iistann sýna svart á hvítu að framboð á lóðum undir atvinnu- húsnæði sé lítið um þessar mundir. „Þetta er alltof lítið framboð, það þarf að vera mun meira. Að mínu mati hefði átt að gera hluta af Krossaneshaganum byggingarhæf- an en þar er framtíðarbyggingar- svæði undir atvinnuhúsnæði," sagði Guðmundur. „Það er sterkara fyrir bæinn að geta boðið upp á tilbúnar lóðir, að búið sé að ganga frá öllum málum, gera götur og annað, fremur en að benda út í hagann og segja að þarna eigi að byggja næst.“ Það stæði hins vegar til bóta, hreyfing væri komin á málið og þess kannski ekki langt að bíða að einhveijar lóð- ir yrðu til á svæðinu. Hann sagði mjög hafa færst í vöxt á síðari árum að fyrirtæki úr Reykavík settu upp útibú eða deildir á Ákureyri, nú væri málum svo kom- ið að í mörgum tilfellum væri erfitt fyrir þessi fyrirtæki að fá hentugt húsnæði undir sína starfsemi. Hann sagði mikil umskipti hafa orðið í bænum á síðustu misserum, ekki væri langt síðan eftirspurn eft- ir atvinnuhúsnæði var nánast engin. „Atvinnulífið hefur tekið vel við sér að undanförnu, menn eru bjartsýnni og þá skapast meiri eftirspurn eftir húsnæði," sagði Guðmundur. Hann sagði nokkurrar tregðu gæta bæði í bæjarkerfinu og eins meðal pólití- skra fulltrúa, menn vildu fyrst fá umsækjendur og fara þá að gera lóðir tilbúnar. Sjálfur teldi hann betra að hafa hinn háttinn á, að hafa svæðin klár þegar umsækjend- ur koma. I yfirlitinu kemur einnig fram að alls eru 42 lóðir undir einbýl- ishús lausar, engin lóð er til undir raðhús á einni hæð, ein lóð fyrir raðhús á tveimur hæður er laus með samtals fimm íbúðum og þá eru þrjár lóðir lausar um þessar mundir undir fjölbýlishús með samtals 58 íbúðum, en þar eru m.a tvö 8 hæða hús með 20 íbúðum. skóla KENNARAR Dalvíkurskóla, Ár- skógsskóla og fleiri sem hafa með málefni unglinga að gera sóttu nú í lok ágúst þriggja daga leiðbeininganámskeið um Lions Quest. Lionsklúbbur Dalvíkur og Lionsklúbburinn Sunna á Dalvík buðu á námskeiðið sem 25 manns sóttu. Námsefnið Lions Quest, Að ná tökum á tilverunni, er ætlað 12 til 14 ára börnum og felst í al- mennri lífsleikni. Það er þróað í samvinnu Alþjóðahreyfingar Li- ons og fræðslustofnunarinnar Quest. Lionshreyfingin á íslandi og menntamálaráðuneytið hafa í sameiningu unnið að útgáfu þessa námsefnis á íslandi. For- eldrasamtökin Vímulaus æska hafa stutt við útgáfuna en Náms- gagnastofnun gefur efnið út. Námsefnið er nú notað í yfir 20 löndum. Tvö meginmarkmið efnisins eru að hjálpa ungu fólki að þroska með sér eiginleika eins og sjálfsaga, ábyrgðartilfinn- ingu, góða dómgreind og hæfni til samskipta við aðra og að hjálpa ungu fólki til að efla tengsl við fjölskyldu, skóla, jafn- aldra og samfélagið og tileinka sér auk þess heilbrigðan og vímu- efnalausan lífsmáta. Almenn ánægja var með náms- keiðið meðal þátttakenda og inni- hald námskeiðsins. Atvinnumálanefnd Akureyrar — Styrkveitingar Atvinnumálanefnd Akureyrar veitir tvisvar á ári styrki til einstakl- inga og fyrirtækja á Akureyri sem vinna að atvinnuskapandi verkefnum. Styrkir til einstakra verkefna geta numið allt að 50% af áætluðum kostnaði við framkvæmd hvers verkefnis. Hámarks styrksupphæð er kr. 400.000. Styrkirnir eru fyrst og fremst ætlaðir smærri rekstraraðilum. Umsækendur verða að fullnægja skilyrðum atvinnumálanefndar um nýsköpunargildi verkefnisins, auk þess að leggja fram skýrar upplýsingar um viðskiptahugmynd, vöruþróun, markaðssetningu, rekstraráætlun og fjármögnun. Umsóknareyðublöð liggja fyrir á Atvinnumálaskrifstofu, Strandgötu 29, sími 462 1701. Umsóknarfrestur er til 20. september nk. AFN0T AF IBUÐ I DAVÍÐSHÚSI, AKUREYRI Eins og áður hefur komið fram, þá gefst fræðimönnum og listamönnum kostur á að sækja um l -6 mánaða dvöl í lítilli íbúð í Davíðshúsi, til að vinna að fræðum sínum eða listum. Ákveðið hefur verið að frestur til að skila umsóknum um afnot af íbúðinni árið 1998 renni út 20. september nk. Umsóknir ber að senda til: Akureyrarbær, c/o Ingólfur Ármannsson, sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs, Glerárgötu 26, 600 Akureyri. Nánari upplýsingar á skrifstofu menningarmála, sími 460 1457. v
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.