Morgunblaðið - 30.08.1997, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 30.08.1997, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997 41 + Hrefna Þor- steinsdóttir var fædd í Mjóafirði 19. febrúar 1904. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði hinn 26. ágúst síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru hjónin Anna Pétursdóttir og Þorsteinn ívars- son. Önnur börn þeirra hjóna voru Svejnlaug, Kristinn og ívar Pétur. Fyr- ir átti Þorsteinn dótturina Stein- unni. Þorsteinn og Anna fluttu frá Mjóafirði 1907 ásamt börn- um sínum, fyrst til Reylqavíkur og síðan í Garðinn en þaðan var Þorsteinn ættaður. Hrefna missti föður sinn af slysförum ung að árum og bjó um tima á heimili skólastjórahjónanna í Gerðum, þeirra Einars Magnús- sonar og Matthildar Finnsdótt- ur. Hrefna giftist 11. júlí 1925 Gísla Árna Eggertssyni, skip- stjóra, f. 17. apríl 1904, d. l.janúar 1965. Þau hófu bú- skap í foreldrahúsum Gísla í Kothúsum en bjuggu Iengst af á Krókvelli í Garði og voru Elsku amma. Nú hefur þú öðlast frið eftir langa lífsgöngu. Alla þína tíð varst þú hraust og sterk kona sem gafst aldrei upp, enda sýndir þú það þessa síðustu daga hvað þrautseigjan var mikil. Minningamar hrannast upp og er ég mjög þakklát fyrir allar góðu stundirnar sem ég átti með þér. Þú varst alltaf hress og kát og í fjölda ára leið ekki sú helgi að þú kæmir ekki í heimsókn. Og þá var nú margt gert, sungið, spjallað og spilað. Allur sá áhugi sem þú sýndir á því sem ég gerði var ómet- anlegur. Ein ferð er mér þó alltaf minnisstæðust frá bemskuárunum er þú vel yfir áttrætt fórst með mér á sleða og við renndum okkur aftur og aftur niður brekkurnar. Þú varst alltaf vinnandi á meðan þú gast, prjónaðir heil ósköp, hafð- ir mikið yndi af matargerð og eng- in heimsókn til þín var án þess að pönnukökur væru á boðstólum. Á jólunum varst þú líka alveg ómissandi og fannst mér engin jól vera nema að þú nytir þeirra með okkur. Elsku amma mín, þú varst vel gefin dugnaðarkona, með lífsgleð- ina að leiðarljósi og gerðir alltaf gott úr öllu. kennd við þann bæ. Eftir að Gísli féll frá fluttist Hrefna til Reykjavíkur og bjó í Ljósheimum 18 þar til hún flutt- ist að Hrafnistu fyrir tæpum tveim- ur árum. Hrefna og Gísli eignuðust 4 börn, þijá syni, Eggert f. 12. maí 1927, Þor- stein f. l. desember 1928 og Árna f. 25. febrúar 1942, d. 14. júní 1997 og dóttur- ina Unni sem dó í bernsku. Eggert er kvæntur Regínu Ól- afsdóttur f. 23. apríl 1929. Þeirra börn eru: Soffía Mar- grét, Gísli Arni, Hrefna Unnur og Ólafur. Þorsteinn er kvænt- ur Vilborgu Vilmundardóttur f. 29. júlí 1931. Þeirra börn eru: Vilmundur, Gísli, Hrefna Björg og Þorbjörg Stefanía. Arni var kvæntur Freyju Har- aldsdóttur f. 17. janúar 1942. Þeirra börn eru: Haraldur og Unnur Ella. Langömmubörn Hrefnu eru 20. Utför Hrefnu verður gerð frá Utskálakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14.00. Hjartans þakkir fyrir allt sem þú gafst mér og fjölskyldu minni. Minninguna um þig mun ég varð- veita um ókomin ár. Hvíl þú í friði. Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð. Þú vaktir yfír velferð bama þinna. Þú vildir rækta þeirra ættarjörð. M æsku varstu gædd þeim góða anda, sem gefur þjóðum ást til sinna landa og eykur þeirra afl og trú. En það er eðli mjúkra móðurhanda að miðla gjöfum - eins og þú. (Davíð Stefánsson.) Þín Unnur Ella Árnadóttir. Elsku amma. Orð á blaði fá seint lýst tilfinning- um okkar til þín. Við erum enn að reyna að læra af þér, og markmið- ið er að verða jafn skemmtileg og þú, sterk og jákvæð í garð tilver- unnar. Við þökkum þér fyrir allar góðu sögurnar og brandarana. Líka fyrir það hvernig þú dróst fram það góða i öllum hlutum. Og fyrir að sýna að hugarfarið er það sem skiptir máli, eins og þú sagðir sjálf. Nú ertu laus úr viðjum gamals lík- ama og getur gert allt sem hugur- inn girnist. Við höldum áfram með góðar minningar í farteskinu, þar til við hittumst á ný. Hrefna og Guðmundur. Margs er að minnast þegar við bamabörnin lítum yfir lífshlaup ömmu Hrefnu. Um margt er það eins og í ævintýri. Við munum þeg- ar hún tók á móti okkur á Krók- velli, gaf okkur kakó og settist svo með okkur inn í stofu og sagði okk- ur sögur. Þama sat hún með pijón- ana sína, bamabömin í hring á gólf- inu og kötturinn Fúsi kúrði í fanginu á einhveiju barnanna. „Segðu okkur sögu frá því þú varst lítil. Segðu okkur sögu frá því þegar kýrin piss- aði á hausinn á karlinum." Og hún var hafsjór af sögum og ljóðum um gleði og sorgir úr daglega lífínu. Enginn var vondur, allir vom góðir og við áttum að vera góð við menn og dýr og ekki segja ósatt. Þetta síðasta var stundum dálítið erfítt því oft vom sögumar hennar ömmu færðar í búning ævintýranna en það vom jú bara sögur. Þegar við urðum eldri breyttust samskiptin. Sögurnar urðu að sam- ræðum um daginn og veginn. Stundum um pólitík. Amma var jafnaðarmanneskja og sá ekki lífs- gæði í gróðafíkn og hóglífi og því að troða á náunganum. Fólk fyndi frekar hamingjuna í nægjusemi og vinnu og því að rækta sinn garð. Með dugnaði og vinnusemi kom maður undir sig fótunum og var engum háður. Það vom eflaust áhrif frá erfiðri æsku að amma lagði mikla áherslu á að maður ætti ekki að vera upp á aðra kominn og sýna þeim sem minna mega sín hjálp- semi. Amma hafði frábæran húm- or, stundum svolítið svartan en aldr- ei meiðandi. Hláturinn var kitlandi og einlægur og oft fylgt eftir með ,ja, þú segir nokkuð" og hendi sleg- ið á lær. Annað sem amma lagði mikla áherslu á við okkur krakkana var að við ástunduðum heilsusam- legt lífemi. Sjálf fór hún oft i langa göngutúra, helst á hveijum degi, fór jafnvel í leikfími. Hollur matur, fískur, grænmeti og lýsi var undir- staða góðrar heilsu. Segja má að þetta hafi sannast á henni sjálfri því henni varð vart misdægurt um ævina, sá um sig sjálf og hélt and- legu og líkamlegu þreki fram undir nírætt. Lestur góðra bóka var líka hollur fyrir andlegu hliðina og ég minnist þess að þá heyrði ég ömmu kvarta í fyrsta sinn þegar hún var orðin það sjóndöpur að hún átti orðið erfítt með að lesa. En umfram allt var hún móðir sona sinna, full af metnaði fyrir þeirra hönd og stolt yfír velgengni þeirra í lífínu. Þá sjaldan hún skipti skapi var það oftast til að láta strákana, eins og hún kallaði syni sína, vita að enn gæti hún sett ofan í við þá. Amma var gustmikill dugnaðarforku sem HREFNA ÞORSTEINSDÓTTIR + Magnús Ingi Gíslason fæddist í Reykjavík 7. apríl 1934. Hann lést á Stokkseyri 12. ágúst síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru hjónin Gísli Magnússon og Millý Eiriksdóttir. Magnús Ingi kvænt- ist Aðalheiði Karls- dóttur hinn 28. des- ember 1958. Þau eignuðust eina dótt- ur, Ernu. Hún er gift Steindóri Kára Reynissyni og eiga þau tvær dætur, Aðalheiði Millý og Elínu Gíslínu. Lengst af starfaði Magnús Ingi sem varðstjóri á Litla- Hrauni. Útför Magnúsar Inga fór fram frá Stokkseyrarkirkju 23. ágúst. Elsku afi. Aðfara- nótt 12. ágúst var eflaust sú allra erfið- asta og lengsta nótt sem við systurnar höfum upplifað, og okkur þótti sárt að heyra að þú værir dáinn. Allar minning- arnar sem komu upp í huga okkar voru óteljandi um allar góðu stundirnar sem við áttum með þér. Það hvarflaði ekki að okkur að þetta yrði í síðasta skiptið sem við mundum hitta þig þegar við fórum í heyskap til þín og ömmu á Stokkseyri einn fallegan sunnu- dag í góðu veðri. Þú varst svo hress og kátur. Þú varst mikill og góður hestamaður og þótti mikið vænt um hestana ykkar ömmu. Ekki vorum við systurnar nú háar í loftinu þeg- ar við fórum að reyna að príla á bak hestunum og þú hjálpaðir okk- ur. Og svo fórstu nú með okkur í ófáa útreiðartúra og svo oftar en einu sinni að veiða og var það nú heldur betur gaman og eins þegar við fórum í sumarbústað með ykkur ömmu, mömmu og pabba upp í Munaðarnes. Þú varst ótrúlega flinkur að mála og voru þau ófá listaverkin sem þú málaðir af mikilli snilld. Allar þessar minningar og margar fleiri koma upp í huga okkar systr- anna á hveijum degi og þær eiga aldrei eftir að gleymast. Það er erfítt að skrifa niður þessi orð því að það er ekki hægt að lýsa því hvað við söknum þín sárt. Elsku afi. Við þökkum fyrir að hafa feng- ið að njóta allra þessara skemmti- legu stunda með þér og biðjum góðan Guð að styrkja ömmu í þess- ari miklu sorg. Með þessum fátæklegu orðum kveðjum við þig og þökkum þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur og fyrir alla þá hlýju sem þú hefur gefíð okkur og minning þín mun lifa í hjörtum okkar um alla tíð. Ástar- og saknaðarkveðjur. Millý og Elín. MAGNUSINGI GÍSLASON aldrei féll verk úr hendi. Við sjáum hana fyrir okkur í hveitiskýi í eld- húsinu í Ljósheimunum að baka flatkökur handa allri fjölskyldunni. Þegar því er lokið tekur hún til í eldhúsinu, stelst til að fá sér hálfa sígarettu og kaffibolla. Svo sest hún við pijónana og heldur áfram að pijóna jólagjafir á barnabörnin, sokka, vettlinga, peysur, trefla og lambhúshettur. Þegar tendadæt- urnar tóku slátur var hún ómiss- andi, bæði í vinnuna og til að halda uppi fjörinu. Hún var karakter og stórkostleg manneskja. Eftir að amma fluttist til Reykjavíkur vann hún í mörg ár fulla vinnu í Dósagerðinni og lóð- aði lok á dósir. Seinna vann hún í fatagerð við að festa hnappa og tölur á vinnufatnað. Sagan segir að þegar hún hætti hafi þurft að kaupa rándýra vél til að vinna störfin hennar. Amma gerði ekki víðreist um heiminn framan af ævinni. En á efri árum fór hún víða. í fyrsta sinn sem hún ferðaðist til útlanda heim- sótti hún Árna son sinn til Mexíkó. Sú ferðasaga var oft rifjuð upp og mikið hlegið að vandræðum þeirrar gömlu á Kennedyflugvelli þegar hún alein þurfti að skipta um flug og hafði við lítið annað að styðjast en merkispjald sem hengt hafði verið um hálsinn á henni. Seinna fór hún til Danmerkur, Kanaríeyja og Vínarborgar. í Vínarborg fór hún í Vínaróperuna og þótti það mikil upplifun. Amma hafði yndi af tónlist, spilaði á orgel og söng í kór Útskálakirkju alla sína tíð í Garðinum. Henni þótti alltaf mjög vænt um kirkjuna sína, eins og hún kallaði Útskálakirkju. Amma eignaðist margar vinkon- ur um ævina og rækti sambandið við þær. Hún sótti ekki félagsstarf eða samkomur fyrir aldraða, til þess var hún of ung í anda og sótti sinn félagsskap í vinkonumar og fjölskylduna. Hún talaði stundum um „þessi gamalmenni“ sem reynd- ar vom oftar en ekki mun yngri en hún sjálf. Við hátíðleg tækifæri klæddist hún íslenskum búningi og var þá allra kvenna glæsilegust. Hún amma mín kvaddi þennan heim sátt við guð og menn. Hún lifði næstum heila öld, kærleiksrík ætt- móðir sem ávann sér virðingu sam- ferðamanna sinna alla tíð. Lífsvið- horf hennar eru okkur til eftir- breytni. Við kveðjum hana með þökk og virðingu. Starfsfólki á Hrafnistu eru færð- ar alúðarþakkir fyrir góða umönnun Hrefnu. Eins eru öllum þeim sem heimsóttu hana og glöddu síðustu æviárin færðar kærar þakkir. Gísli Árni Eggertsson. Hún Hrefna Þorsteinsdóttir er dáin. Það ætti ekki að koma á óvart þegar litið er til þess hve fullorðin hún var. Þetta er leiðin okkar allra er sagt og sem betur fer vitum við ekki hvenær við fömm. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast Hrefnu allnáið um sext- án ára skeið. Við bjuggum í sömu blokk og þar sem hún var mágkona ömmu minnar tókst með okkur mjög góð vinátta þrátt fyrir aldurs- mun. Hrefna var ákaflega hress og skemmtileg kona. Það var gaman að fá hana í heimsókn enda ætíð velkomin. Hún hafði iðulega frá mörgu að segja. Sögurnar frá göml- um tíma í Garðinum vom heillandi og fengu mann til að ferðast aftur í tíma og upplifa þetta allt saman. Hún var börnum mínum sem besta amma og fylgdist með þeim af ein- lægum áhuga. Fyrir þetta vil ég þakka Hrefnu af alhug. Einnig vil ég þakka hennar góðu kynni og vináttu. Ég tel mig betri manneskju eftir að hafa kynnst henni. Ég vona innilega að hún Hrefna mín hafi það gott þar sem hún er núna. Fjölskyldu hennar sendi ég mínar bestu samúðarkveðj- ur. Guðrún Bjarnadóttir. Hrefna frænka mín hefur nú kvatt þennan heim. Hún var hvíld- inni fegin, komin á tíræðisaldur, og. í raun hægt að samgleðjast henni fyrir að fá að fara. Við konurnar í íjölskyldunni höfum haft hana að fyrirmynd og oft hugsað og orðað okkar á milli að við vildum vera eins og hún Hrefna frænka okkar; jákvæðar, sterkar og lífsglaðar. Þetta voru þeir eiginleikar sem ein- kenndu hana og gerðu samvistir við hana svo ánægjulegar. Þegar ég man fyrst eftir henni bjó hún á Krókvöllum í Garði. Móð- ir mín var ráðskona í Sandgerði hjá Eggerti syni hennar og eldaði fyrir skipshöfnina á Víði II. Ég fékk að fara í heimsókn til Hrefnu frænku til lengri eða skemmri dvalar. Höfn- in í Sandgerði hefur sjálfsagt ekki þótt heppilegt leiksvæði fyrir litla telpu. Seinna þegar hún varð ekkja flutti hún til Reykjavíkur og bjó þar alla tíð síðan, nema síðasta ár í Ljósheimum. Ég bjó í næsta húsi og fór fljótlega eins og fyrrum að sækja til hennar. Við urðum góðar vinkonur. Þessi vinátta okkar hefur verið mér mikils virði og fyrir hana vil ég þakka með þessu fátæklegu * línum. Tilfínningum er oft erfítt að koma í orð. , Ég sendi ástvinum Hrefnu sam- úðarkveðjur. Minningin um merka konu mun lifa með okkur. Maria Jóna Gunnarsdóttir. + Ástkær faðir okkar, ELÍ GUNNARSSON málari, andaðist á dvalarheimilinu Felli í Reykjavík miðvikudaginn 27. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar. Hilmir Elíson, Stefán Þór Elíson, Már Elíson, Kári Elíson, Alma Elídóttir. + Ástkær móðir, tengdamóðir og amma, KRISTJANA KRISTINSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn 23. ágúst síðastliðinn. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey. Halldór Einarsson, Ólafía Einarsdóttir, Ingólfur Kristjánsson, María Huld Ingólfsdóttir, Einar Þór Ingólfsson, Ingólfur Örn Ingólfsson, Bjarni Már Ingólfsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.