Morgunblaðið - 14.09.1997, Page 1
104 SIÐUR B/C/D/E
208. TBL. 85. ÁRG.
SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
KISTU móður Teresu, nunnunar sem helgaði líf sitt fátæku fólki, ekið á fallbyssuvagni um götur Kalkútta.
Hundruð þúsunda manna stóðu meðfram þriggja kflómetra langri leiðinni og vottuðu henni virðingu sína.
Móðir Teresa lögð
til hinstu hvflu
Stjórn Jag-
lands tæp
Tromse. Morgunblaðið.
ENN er of snemmt að fullyrða að
Verkamannaflokkurinn nái því
marki í norsku kosningunum, sem
fara fram á morgun, sem hann setti
sér fyrir kosningar. Slðustu skoð-
anakannanii- eru misvísandi, benda
ýmist til þess að stjómin haldi velli,
eða falli með naumindum, sé miðað
við 36,9%-markið sem Thorbjörn
Jagland forsætisráðherra setti sér í
upphafí kosningabaráttunnar.
Samkvæmt skoðanakönnun Feed-
back Research, sem birt var í gær-
morgun, nýtur Verkamannaflokkur-
inn 36,4% fylgis, sem er 7,2% aukn-
ing frá síðustu könnun í ágúst. Hins
vegar dregur úr stuðningi við Fram-
f'araflokkinn sem er spáð 13,7%.
Hægriflokknum og Kristilega þjóð-
arflokknum er spáð fylgisaukningu,
hægrimönnum er spáð 14,2% stuðn-
ingi og hinum síðamefndu 12,8%.
Aðrir flokkar fá minna. Samkvæmt
könnun sem Opinion gerði fyrir
Aftenposten kýs um helmingur
þeirra, sem gert hafa upp hug sinn
síðustu daga, Verkamannaflokkinn.
Losaði
höfuðið af
og festi
aftur
London. Reuter.
BRESKUR taugaskurðlæknir
losaði höfuð af 36 ára konu, hjó
fleyg úr höfuðkúpunni neðan-
verðri og efsta hryggjarliðnum
áður en hann festi höfuðið aftur
við hryggjarsúluna með málm-
plötu og tveimur skrúfum. Að
því loknu gat konan horft fram á
við aftur en höfuðið hafði verið
fast svo hún sá aðeins niður á
tær sér.
í aðgerðinni, sem tók 17
klukkustundir, varð læknirinn,
Steve Gill, að losa svo um höfuð-
ið að einungis mænan, helstu
æðar og hörandið á framanverð-
um hálsinum hélt því við
skrokkinn.
Konan, Bridget Fudgell, þjáð-
ist af gigtveiki sem lýsir sér í því
að hryggjarliðimir gróa saman
og mynda staurliði. Hálsbrotn-
aði hún fyrir fjórum árum og
festist höfuðið þá niðri. Aðgerð-
in var gerð í febrúar en ekki
skýrt frá henni opinberlega fyrr
en á þingi taugaskurðlækna í
vikunni.
Kalkútta. Reuter.
MÓÐIR Teresa, dýrlingur götu-
ræsanna, eins og hún var nefnd
vegna líknarstarfa sinna í þágu
þeirra snauðustu, var borin til grafar
í fábrotnum húsakynnum líknarsam-
taka sem hún stofnaði í Kalkútta í
lok sex stunda opinberrar útfarar.
Með því lauk vikulangri þjóðarsorg í
Indlandi. Við lok útfararþjónustunn-
ar hét systir Nirmala, arftaki móður
Teresu, að halda merki hennar á lofti
með því að líkna fátækum og hinum
verst settu um heimsbyggðina alla.
Mörg hundruð þúsund manns röð-
uðu sér upp meðfram leiðinni sem
kistu móður Teresu var ekið að
greftmnarstað. Milljónir manna víða
um heim fylgdust með í beinni sjón-
varpsútsendingu. Drottningar, for-
setar og forsætisráðherrar og full-
trúar tuga ríkja voru viðstaddir út-
fararþjónustu í 12.000 sæta íþrótta-
höll í Kalkútta sem fulltrúi páfa,
Angelo Sodano kardínáll, stjórnaði.
Meðal þeirra voru Hillary Clinton,
forsetafrú Bandaríkjanna, Sofía
Spánardrottning, Oscar Luigi
Scalfaro Italíuforseti, Noor Jórdan-
íudrottning og K.R. Narayanan Ind-
landsforseti.
Hápunkti náði athöfninn er munað-
arleysingi, glæpakvendi sem bætt
hefur ráð sitt, holdsveikur maður og
fatlaður piltur færðu móður Teresu
heilagar fórnargjafír. I lok athafnar-
innar gengu tugir fyrirmenna að
kistu hennar og lögðu að henni hvíta
blómsveiga.
Frá íþróttahöllinni var ekið með
kistu móður Teresu um götur
Kalkútta til höfuðstöðva líknarsam-
taka hennar. Þegar greftrun var lok-
ið innandyra skutu gúrkha-hermenn
af riflum til himins. Móðir Teresa
lést úr hjartaslagi 5. september á 88.
aldursári. Hún hlaut friðarverðlaun
Nóbels 1979 fyrir störf sín; fyru- að
gefa milljónum manna von og reisn.
Flugritar
nást upp
FLUG- og hljóðriti norsku Super
Puma-þyrlunnar, sem fórst við
Hálogaland sl. mánudag, náðist upp
af hafsbotni í gærmorgun og var síð-
degis sendur áleiðis til Englands til
rannsóknar.
I flugritanum er að finna upplýs-
ingar um starfsemi vélbúnaðar þyrl-
unnai- og á hljóðritanum samtöl flug-
mannanna tveggja en hvort tveggja
er talið geta leitt í Ijós hvað olli því
að þyrlan fórst.
Breskir sérfræðingar í Farn-
brough munu rannsaka ritana tvo
um helgina og er vonast til að bráða-
birgðaniðurstaða um orsakir slyssins
liggi fyrir upp úr helginni.
Sömuleiðis höfðu fundist lík allra
þeima 12 sem fórust og var vonast til
að þau síðustu næðust upp af hafs-
botni í gær.
Tilraunir tU að ná meginhluta
þyrluflaksins upp í gærmorgun
mistókust er einn víranna, sem fest-
ur hafði verið í flakið, slitnaði.
Valdið til
fólksins 10
Veitum vöruskiptum
trygga umgjörð
Vistvæ
Sungu sig inn í
hjörtu Grænlendinga