Morgunblaðið - 14.09.1997, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 14.09.1997, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ 36 SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1997 r FASTEIGNA MARKAÐURINN ehf ÓÐINSGÓTU 4. SÍMAR SS1-1S40. SS2-1700. FAX S62-0540 KVENFATAVERSLUN. Vorum að fá í sölu þekkta kvenfataverslun í miðborginni. Eigin innfluttningur á þekktum vörumerkjum. Gott leiguhúsnæði. % C-M FASTEIGNAMARKAÐURINN ehf ÓÐINSGÖTU 4, SÍMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562-0540 Opiö hús í dag - Lundur 3, Kópavogi Falleg 4ra herbergja, 104 fm íbúð með fallegu útsýni yfir Fossvogsdalinn. Rúmgóð svefnherbergi, stórt eldhús. Falleg sameign. Stutt í skóla, þjónustu og útivistarsvæði. Áhv. 3,8 millj. Verð 7,2 millj. Helena tekur á móti þér og þínum í dag milli kl. 13 og 15. Ath. gengið inn norðanmegin. Fasteignasalan GOMU Þórsgötu 26 sími 552 5099 /fF FASTEIGNA MARKAÐURINN ehf DINSGÖTU 4. SÍMAR 551-1540. 552-1700. FAX 562-0540 % Opið hús Skaftahlíð 9, Rvík. Falleg 128 fm neðri sérhæð ásamt 20 fm herb. í kjallara. 28 fm bílskúr. Tvær samliggjandi stofur og 3 svefnherb. Svalir. Hæðin er mikið endurnýjuð. Falleg lóð. Verð 12,1 millj. Ahv. 2,6 millj. hagstæð langtlan. Eignin verður til sýnis í dag, sunnudag frá kl. 14-17. Gjörið svo vel að líta inn. rf$> FASTEIGNAMARKAÐURINN ehf = I ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 551 -1540. 552-1700. FAX 562-0540 ===== -a „Penthouse“ — Austurströnd Stórglæsileg 131 fm 5—6 herb. íbúð á þessum frábæra útsýnisstað. Falleqt eldhús, stór oa opin sólstofa. Parket og flísar á öllu. Stórar suð-vestursvalir. Þessa qullfallequ íbúð verður bú að skoða. Verð 11,2 millj. (4455). Hóll, fasteignasala, Skipholti 50B, sími 551 0090. Faxatún 13 Garðabæ Opið hús í dag, sunnudag frá kl. 15 til 19 Um er að ræða einbýl- ishús sem stendur á failegri hornlóð. Húsið er mikið endurnýjað að innan. Gjörið suo uel að líta inn. Skeifan, fasteignamiðlun ehf., Suðurlandsbi-aut 46, s. 568 5556. Sérhæfð fasteignasala fyrir atwinnu- og skrif- stofuhúsnæði ¥ STOREIGN FASTEIGNASALA Austurstræti 18 sími 55 - 1 2345 Arnar Sölvason, sölumaður Jón G. Sandholt, sölumaður Gunnar Jóh. Birgisson hrl. löggildur fasteignasali Sigurbjöm Magnússon hrl. löggildur fasteignasali Til leigu Opið í dag sunnudag frákl. 13-15 VIÐ HLIÐIIMA Á VERSLUIM 11-11 í MOSFELLSBÆ Ti leigu er ca. 400 fm. verslunarhúsnæði á mjög góöum stað í Mosfellsbæ. Húsnæðið getur hentað vel fyrir t.d. efnalaug, framköllunarþjónustu, bakarí, bókaverslun, leikfangaverslun, hárgreiðslustofu, blómabúð, barnafata- verslun, apótek, fiskbúð, sportvöruverslun og m.fl. flllar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar. + Þorvaldur Birg- ir Axelsson fæddist á Læk á Skagaströnd hinn 22. ágúst 1938. Hann lést 4. septem- ber sl. Foreldrar hans voru Axel Helgason, f. 1896, d. 1971, og Jóhanna Lárusdóttir, f. 1908, d. 1981, og var hann fjórða barn þeirra hjóna af átta systk- inum. Syskini hans eru Jakobína Helga, f. 1930, Ingibjörg, f. 1931, Rúdolf, f. 1936, Ævar, f. 1943, Magðalena, f. 1946, Ester, f. 1948, og Brynja, f. 1950. Þorvaldur eignaðist fjórar dætur með fyrrverandi eigin- konu sinni, Elínu Skeggjadótt- ur, f. 1939. 1) Bryndís, f. 1957, gift Helga Þórhallssyni og eiga þau þrjú börn, 2) Ragna Björk, Það leita margar ljúfar minning- ar á hugann þegar ég með þessum fátæklegu orðum kveð ekki bara tengdaföður minn heldur líka vin og velunnara. Það þarf nokkuð mörg lýsingar- orð til að lýsa því sem prýddi Þor- vald, en mér dettur helst í hug hjálpsamur, hlýr, ráðagóður, gam- ansamur, víðlesinn og afburða greindur. Það er síðsumarkvöld. Ég er einn að basla við að leggja parket og gólfflísar á íbúð sem við hjónin höfðum fest kaup á. Þetta er dálít- ið meira mál en ég hélt í fyrstu og í mörg horn að iíta. Dyrabjöllu er hringt og_ í forstofu stendur Þor- valdur. „Ég ætlaði bara að kíkja við af forvitni," segir hann og spíg- sporar íhugull um gólf um leið og hann forvitnast um verkið._ „Nú ferð þú heim og hvílir þig. Ég lít svo_ við á morgun." Ég hef ekki kynnst lengra inn- liti hvorki fyrr né síðar. I marga daga var unnið langt fram á kvöld og ekkert gefið eftir fyrr en allt var komið á sinn stað. Ég get enn heyrt hann segja kankvíslega: „Eigum við ekki að taka eitt borð enn, bara eitt borð,“ með þunga áherslu á „bara“. Þannig var hald- ið áfram af vandvirkni og ná- kvæmni. Það myndaðist á milli okkar ein- hver strengur sem aldrei slitnaði. Ég lærði ekki bara að leggja park- et og flísar heldur kynntist ég manni sem hafði svo mikið að gefa og gat svo auðveldlega miðlað. Vandamálin voru ekki til heldur aðeins skemmtilegar þrautir sem voru vegnar og metnar frá öllum hliðum. Þorvaldur var hafsjór af f. 1958, gift Arnari Jenssyni og eiga þau fjögur börn, 3) Þórhildur Elín, f. 1967, í sambúð með Helga Hjörvari og eiga þau eitt barn, og 4) Snæfríður, f. 1975, og á eitt barn. Að loknu námi í Stýrimannaskólan- um starfaði Þor- valdur sem stýri- maður og síðar skipherra hjá Land- helgisgæslunni í áratugi. Hann lét öryggis- og björgunarmál sjó- manna mjög til sín taka og kom á fót Slysavarnaskóla sjómanna, mótaði starfið og var fyrsti skólastjórinn. Hann sótti fjöl- mörg námskeið á sviði öryggis- mála viða um lönd og var einn best menntaði kafari landsins. Útför Þorvaldar Birgis fór fram í kyrrþey. fróðleik enda óvenju víðlesinn og hafði á takteinum margar tilvitnan- ir úr fornritum og fagurbókmennt- um. Til marks um það var hann að Jesa Illíónskviður er kallið kom. í sumar var hringt. „Þið eruð að fara í ferðalag. Vantar ykkur ekki bíl. Ég bara nefni þetta svona,“ og enn var áherslan á „bara“. Það var aldrei komið að tómum kofunum þegar leitað var ráða hjá Þorvaldi. Hann fann alltaf jákvæð- ar hliðar á öllum málum og aldrei minnist ég þess að hafa heyrt hann segja að eitthvað væri ekki hægt heidur tækju hlutirnir aðeins mis langan tíma. Þorvaldur var lengst stýrimaður og að lokum skipherra hjá Land- helgisgæslunni. Hann tók þátt í öllum þorskastríðunum og var skip- herra í því síðasta. Hann var gæt- inn og mjög fær skipherra sem var minnisstæður starfsfélögum sínum og hafa fyrrum skipherrar séð ástæðu til að minnast hæfni hans og áræði í endurminningum sínum. Hann lét sig mjög varða öryggi á sjó og slysavarnir sjómanna enda hafði hann sem skipstjórnandi séð víða pott brotinn í þeim efnum. Það var því engin tilviljun að honum var falið að koma á fót Slysavarnaskóla sjómanna og með þrautseigju, einbeitni, vilja og óbil- andi áhuga mótaði hann starf skól- ans svo eftir var tekið og telja margir sig eiga honum mikið að þakka. Þar naut sín vel öll sú þekk- ing og fræðsla sem hann hafði við- að að sér, en Þorvaldur var afburða kennari og átti auðvelt með að miðla til annarra. Hann hafði auk þess sótt íjölmörg námskeið á sviði öryggismála víða um lönd. Þá var hann og einn best menntaði kafari landsins og til marks um kappsemi hans átti hann ekki að fá inni í kafaraskóla erlendis þar sem hann var lítið eitt yfir aldursmörkum en skilaði samt bestum árangri yfir skólann í skólalok. Það er komið að leiðarlokum og þessi fátæklegu orð segja fæst af því sem í hugann kemur. Ég þakka nú þær stundir sem þú áttir með mér og fjölskyldunni eins og þegar þú komst til okkar um síðustu jól. Þessar stundir voru því miður allt of fáar en ómetanlegar. Ég átti samt því láni að fagna að sitja hjá þér dágóða stund í síð- ustu viku. Á borðinu stóð gjafa- karfa frá þakklátum aðstandendum manns sem þú bjargaðir úr háska fyrir löngu. Þú vildir helst snúa talinu að einhveiju öðru er ég innti þig eftir þessu. Þegar ég hafði orð á því að fólk langaði kannski til að gleðja þann sem það stæði í mestri þakkarskuld við var sem þú ljómaðir. Þú máttir það svo sannar- lega. Hafðu þökk fyrir allt og allt kæri vinur minn og tengdafaðir. Þín er sárt saknað. Huggun er samt harmi gegn að þú fórst hljótt og virðulega eins og þú hafðir sjálfur óskað þér. Blessuð sé þín minning. Helgi Þórhallsson. Okkur systkinin langar að minn- ast bróður okkar með fáeinum orð- um. Hann hét fullu nafni Þorvaldur Birgir Axelsson, fæddur á Læk, Skagaströnd, A-Hún. Margs er að minnast og fjöl- margt að þakka. Það sem ein- kenndi hann frá fyrstu tíð var áhugi hans á sjó og sjómennsku. Enda var starf hans, frá ungum aldri, sjómennskan, sem hann helgaði alla krafta sína. Þar átti hann að baki langan og afar sérstæðan og farsælan starfsferil. Þess verður vafalaust getið síðar, á öðrum vett- vangi. Það sem einkenndi hann per- sónulega, í augum okkar systkin- anna, var glaðværðin og stundum afar sérstætt skopskyn. Hann var afar vel máli farinn, hafði mjög gott vald á íslensku máli og átti auðvelt með að kasta fram frum- sömdum stökum. Á góðum stund- um virtust stökur og hnyttileg framsetning orða koma án fyrir- hafnar. Oft heyrðum við hann fara með heilu kvæðabálkana eftir þjóð- skáld okkar. Efstur á blaði þar var vafalaust Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. Þar sem við vitum að honum var ekki að skapi að fluttar væru um hann langar lofræður kveðjum við hann með þessum orð- um, sem vel gætu verið hans. Ég kem til að flytja þér kærar þakkir og kveðja þig, vinur og bróðir. Skip mitt bíður... Það skyggir að kvöldi og skeflir á fomar slóðir. MINMINGAR ÞORVALDUR BIRGIR AXELSSON EINAR ÓLAFSSON + Einar Ólafsson fæddist á Þjótanda í Villingaholts- hreppi 25. janúar 1934. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 3. september siðastliðinn og fór útför hans fram frá Oddakirkju 13. september. Enn einu sinni er kær vinur fall- inn í valinn, langt fyrir aldur fram, eftir áralöng erfið veikindi. Það mun hafa verið í kringum 1950 að fundum okkar Einars bar sam- an, er faðir minn og afi unnu við að stinga sniddu utan á vegfylling- una við enda Þjórsárbrúar. Eg hafði fengið að fara með í blíðu- veðri, austur í Kampholtsmýri, þar sem verkið fór fram. Ungur maður á Chevrolet-vörubíl flutti snidduna frá þeim félögum. Þar var kominn Einar Ólafsson, þá búsettur á heimili foreldra sinna á Þjótanda. Ég mun hafa verið 7 eða 8 ára er þetta gerðist. Einar bauð mér að sitja í trukknum, sem ég þáði með þökkum. Þar hófust kynni okkar, sem entust til hinsta dags Einars. Ég átti margar ökuferðir með þess- um prúða og barngóða manni á næstu árum, mér til mikillar ánægju. Þegar árin liðu eignaðist ég iíka vörubíl og unnum við alloft saman víða hér um slóðir, þó mest á Þingvallasvæðinu þar sem Einar var flokksstjóri hjá Vegagerðinni í mörg ár. Ég minnist margra góðra stunda í vegagerðarskúrnum með þessum stórskemmtilega manni, sem sagði öðrum betur frá og þekkti að mér fannst, meira en annan hvern Islending. Hann var glaður á góðri stund og hvers mann hugljúfi, jafnt í starfi, sem leik. Þó hefur mér aldrei fundist sól hans rísa hærra en þegar við ræddum lífið og stöðu hans í þeim veikinum sem hann barðist við af svo mikilli einurð og karlmennsku, suður á Kanaríeyjum fyrir hart nær tveimur árum. Þá tjáði hann mér að hans hérvist teidist í mánuðum hér eftir. Ég maldaði í móinn og sagði eitthvað á þá leið, að ég gæti allt eins farið á undan honum. Hann samsinnti því, en sagði um leið og við skáluðum fyrir góðri ferð og okkur sjálfum, „Siggi! Sá okkar sem síðar fer, sendir hinum línu.“ Þetta heit skal hér efnt, þó í litlu sé. Mig langar að kveðja þennan vin minn með vísu Haf- steins Stefánssonar, vinar míns, sem er á þessa leið: Gleðinni hann alltaf ann, eignast fjölda vina. Það er sól um þennan mann, þótt’ann rigni á hina. Ég sendi eiginkonu, börnum, barnabörnum og ættingjum öllum, mínar innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Einars Ólafs- sonar. Sigurður Karlsson frá Kjartansstöðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.