Morgunblaðið - 14.09.1997, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 14.09.1997, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ 4 GUÐNÝ EIRÍKSDÓTTIR + Guðný Eiríks- dóttir fæddist á Smærnavöllum í Garði 15. septem- ber 1916. Hún and- aðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 8. september síðast- iiðinn. Foreldrar hennar voru Guð- rún Sveinsdóttir og Eiríkur Guðmunds- son, sem lengst af bjuggu í Garðhús- um í Garði. Guðný var yngst sex systk- ina en þau voru Guðmundur, Vilborg, Þóra, Kjartan, og Marta, þau eru öll látin. Eftirlifandi maki Guðnýj- ar er Þórður Pálsson, f. 1. apríl 1921 á Eyrarbakka. Þórður var kennari við Austurbæjarskól- ann. Þórður og Guðný eignuð- ust sex börn, þau eru: 1) Elín, deildarfulltrúi, f. 1942, gift Reinhoid Kristjánssyni, þau eiga þijú börn: Kolbrúnu, Kristján, Jóhann og Kjartan Þór. 2) Steinunn, starfar við umönnun, f. 1943, gift Hrafni Backman, þau eiga fjögur börn: Gunnar, Þórð, Guðnýju, og Guðrúnu. 3) Aðal- steinn, verkfræðing- ur, f. 1945, kvæntur Guðrúnu Jóhannes- dóttur, þeirra börn eru: Kristín, Elísabet, Jóhannes, Þórður, Atli, og Fjóla Ósk. 4) Kjartan, hagfræðing- ur, f. 1949, kvæntur Helgu Einarsdóttur, þeirra börn eru: Ið- unn Guðný, og Kjart- an Dór. 5) Gunnar, skrifstofumaður, f. 1953, kvæntur Haf- dísi Kjartansdóttur, þau eiga þijú börn: Þórnýju, Eyþór og Jóhönnu. Yngstur er Páll, bifvélavirki, f. 1958, ókvæntur og barnlaus. Guðný og Þórður ráku smá- barnaskóla á heimili sínu, Mei- haga 5, um 19 ár skeið, frá 1951 til 1970. Guðný starfaði með líknarfélaginu Hvítaband- inu frá árinu 1936 til dauðadags og sinnti þar ýmsum trúnaðar- störfum. Guðný verður jarðsungin frá Neskirkju á morgun, mánudag- inn 15. september, og hefst at- höfnin klukkan 15. Elsku amma mín. Nú ertu farin frá okkur og ég vil kveðja þig með þessum fátæk- legu orðum. Margar af æskuminn- ingum mínum eru tengdar ykkur afa, Melhaganum og Þrastarskógi. Þó ég hafi ekki verið há í loftinu þegar þið hættuð að dvelja í Þrast- arskógi man ég vel hvað mér þótti húsið alltaf fallegt, eldrautt í miðju skógarijóðrinu, og það sást ekki fyrr en næstum var komið að því. í mínum huga var þetta ekta sumarbústaður og engir bústaðir sem ég hef séð síðan standast sam- anburð. Þama varst þú mörg sumr- in með krakkahópinn þinn. Á að- fangadag þegar við komum við á Melhaganum með jólagjafirnar til ykkar var alltaf svo spennandi að sjá jólatréð. Það var alltaf stærsta og flottasta jólatréð í bænum og náði alveg upp í loft, enda úr Skóg- inum. Á gamlárskvöld var svo lagt á borð sem náði enda á milli í stof- unni fyrir alla fjölskylduna og bor- inn fram soðinn lax úr Soginu. Þú varst mikill dugnaðarforkur, með stóra fjölskyldu og svo rákuð þið afi forskóla á efri hæðinni á Melhaganum, þar sem hundruð ef ekki þúsundir barna lærðu að lesa, skrifa og reikna, þar á meðal ég. Þú varst líka sípijónandi lopapeys- urnar þínar fallegu, öll áttum við peysur sem þú pijónaðir. Ég man þegar ég kynnti Medda fyrir fjöl- skyldunni, þá var það eitt af því fyrsta sem þú spurðir mig hvort hann vantaði ekki lopapeysu. Síð- ustu peysuna sem þú pijónaðir gafstu mér til að klára handa Hirti mínum. Þó ekki mættirðu pijóna lengur lopapeysur varst þú ekki hætt í handavinnunni og bangsa- parið sem þú pijónaðir á síðasta ári er gullfallegt og ber vott um vandvirkni- þína. Þú varst alltaf kát og skemmti- leg og áttir fjölda vina. Á Melhag- anum var alltaf mikill gestagangur og þú fylgdist mjög vel með því sem gerðist úti í þjóðfélaginu og því sem fólkið þitt var að gera. Alltaf var gaman að koma til þín, þú sagðir líka svo skemmtilega frá. Ófáar hafa þær verið stundirn- ar sem ég hef setið hjá þér í krókn- um í eldhúsinu, spjallað og hlegið á meðan þú pijónaðir eða bakaðir vöfflurnar þínar. Ég vil biðja guð að styrkja afa, mömmu og systkini hennar sem nú eiga um sárt að binda. Guð geymi þig, elsku amma, og hafðu þökk fyrir allt. Kolbrún. Guðný Eiríksdóttir hefur kvatt þennan heim og langar mig með Marmari ♦ Granít ♦ Blágrýti ♦ Gabbró íslensk framleiðsla Sendum myndalista MOSAIK Hamarshöfði 4 - Reykjavík simi: 587 1960 -fax: 587 1986 UPPLÝSINGAR f SÍMUM 562 7575 & 5050 925 O i f HOTEL LOFTLEIÐIR. S t «'« 1 r_» n < u 1 1 Glæsileg kaffihlaðborð FALLEGIR SALIR OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA nokkrum orðum að þakka henni störfin í þágu Hvítabandsins. Hún kynntist ung líknarfélaginu og gekk til liðs við það liðlega tvítug. Guðný vann vel fyrir félagið og var í stjórn Hvítabandsins á árun- um 1982-1986. Hún vann í ýms- um starfsnefndum féiagsins og einnig var hún fyrir hönd Hvíta- bandsins í áfengisvamanefnd kvenna. Á 95 ára afmæli Hvíta- bandsins árið 1990 var Guðný gerð að heiðursfélaga. Guðný hlaut í vöggugjöf marga mannkosti sem hún kunni að nýta sér og öðrum til gagns og ánægju. Hún var létt í lund, einlæg og vildi öllum vel. Guðný hvatti til sam- starfs og fékk meðal annars systur sína, Andreu Þóru, og dætur sín- ar, Elínu og Steinunni, til starfa í Hvítabandinu. Ástvinum hennar sendum við samúðarkveðjur. Minningin um merka konu mun lifa með okkur og kveðjum við hana með þökk og virðingu. Hildur G. Eyþórsdóttir, formaður Hvítabandsins. Á afmælisdegi sínum 15. september verður jarðsett Guðný Eiríksdóttir tengdamóðir mín. Hún hefði orðið 81 árs. Þegar ég hugsa til baka um öll þau ár sem við Guðný höfum þekkst kemur svo margt upp í hugann. Ég kynntist henni þegar ég fór að koma á Melhagann fyrir 28 árum með Kjartani syni hennar. Strax urðum við mestu mátar. Margt áttum við sameiginlegt eins og allar stund- irnar sem við gátum rætt um handavinnu, matargerð, ferðalög, félagsstörf, bókmenntir, bama- uppeldi og menntamál. En pólitík ræddum við aldrei. Hún hafði yndi af að segja frá ættmönnum sínum og afkomendum sínum úr Garðin- um, öllum skemmtilegu stundun- um með systkinum sínum og af- komendum þeirra. Oft hef ég dáðst að dugnaði hennar í lífi og starfí og langar að setja nokkrar línur á blað sem þakklæti til Guðnýjar, sem ég virti mikils, fræddist af og átti skemmtilegar stundir með. Guðný var mjög falleg kona þegar ég kynntist henni, sex barna móðir, hvað þá þegar hún var ung. Það er ekki að undra að Þórður tengdapabbi yrði hrifinn af henni þegar hann fór að heimsækja frænku sína, Oddfríði, til Reykja- víkur, en hann var þá við nám á Laugarvatni. Oddfríður var þá með vinnukonu sem hún biður að koma með ijómatertu handa gestinum, en vinnukonan var Guðný. Er nokkur furðu þó að Þórður yrði hrifinn, þarna stóð draumadísin með ijómatertu. Þetta var 1936 eða fyrir 61 ári og þegar ég horfi til baka og hugsa um stundirnar sem ég átti með þeim saman, hvað Þórður var hrifinn af henni, góður við hana og duglegur í veikindum hennar, það er aðdáunarvert. Eða þegar hún var að pijóna lopapeys- umar á alla ijölskyldumeðlimi, stóra og smáa. Og þegar hún var að útbúa jólapakkana eða afmælis- gjafimar hans Þórðar í gegnum árin, hann var nefnilega svo forvit- inn að vita hvað væri í pökkunum. Hvað hún lagði mikla rækt við að gleðja hann og gefa honum óvænt- ar gjafir. Því henni þótti svo vænt um hann. Árið 1950 fluttust Guðný og Þórður á Melhagann, þar hafa þau búið síðan og þar var oft gest- kvæmt. Það gátu allir fengið gist- ingu, nóg var plássið og alltaf eitt- hvað gott að borða. Hún var mikil húsmóðir og hjá henni lærði ég ýmislegt í matargerð, m.a. að gera slátur og kakósúpu sem er í miklu uppáhaldi. Hvað við sátum oft og flettum Húsfreyjunni í leit að spennandi uppskriftum. Oft próf- aði hún nýja uppskrift í matargerð á fjölskyldunni á laugardögum. Alltaf að gleðja aðra. Á Melhaganum var Þórður með smábamaskóla frá 1951-1970 samhliða sinni hefðbundnu kennslu í Austurbæjarskólanum. Guðný hjálpaði honum í 19 ár, og kom það sér vel því hún átti svo gott með að leiðbeina bömum í lestri, sérstaklega þeim, sem voru óró- legri og seinni að ná tökum á lestr- inum en aðrir. Hún var mjög fróð manneskja, það var eins og að fletta upp í alfræðiorðabók þegar leitað var til hennar, svo mikið hefur hún lesið um ævina og mundi allt og alltaf þyrsti hana í að fræð- ast og lesa meira. Hún ferðaðist mikið innanlands og erlendis, mesta unun hafði hún af innanlandsferðum sínum og var gaman að hlusta á hana segja frá öllum ferðalögunum. Þegar hún var ung ferðaðist hún mikið með Helgu vinkonu sinni, þær fóm t.d. á hestum í Þórsmörk, í margra daga ferðalag, því_ þá voru engir vegir eins og nú. Ég held að hún hafi skoðað alla staði á landinu og var gaman að fylgjast með, þegar pakkað var í bílinn þegar hún og Þórður fóru í öll tjaldferðalögin um landið. Af utanlandsferðum þótti henni Rússlandsferðin vera alveg sérstök en hún var ekkert gefin fyrir sólarlandaferðir. Til hvers að liggja í sól, þegar svo margt var hægt að skoða í heiminum? Guðný starfaði í líknarfélagi Hvítabands- ins frá 20 ára aldri. Var hún mjög áhugasöm í starfi sínu þar, mætti á alla fundi sem hún mögulega gat. Sat í stjóm í 6 ár og í ýmsum nefndum, t.d. ferðanefnd. Margar ferðir skipulagði hún fyrir Hvíta- bandskonur, m.a. var hún alsæl eftir velheppnaða ferð með þeim þegar farið var svokallaðan Nesja- vallahring. í þessari ferð vom margar erlendar félagskonur og lauk ferðalaginu hjá Vigdísi for- seta. Henni var eftirminnileg ferð um Snæfellsnesið, þegar þær gistu í verbúð í Grundarfírði, sem var eins og fínasta hótel. Já, hún hefði þurft að skrifa í bækur allar þessar ferðir, sem hún hafði svo gaman af. Þórður var skógarvörður í Þrast- arskógi frá 1943-1970, átti Guðný margar góðar stundir þar með börnum sínum, barnabömum og ættingjum. Þar var nóg pláss og oftast nýveiddur silungur, sem sumir fengu þó alveg nóg af. Allir vildu vera þar sem þau voru. Eftir að við Kjartan fluttumst aftur heim frá Svíþjóð árið 1982 brást það varla, að Guðný kæmi með Þórð í kaffisopa í Garðabæinn einn dag í viku, til að hjálpa mér með einhveija handavinnu eða að fá hjálp með handavinnu. Síðasta handavinnan okkar saman var mynd sem heitir Nóttin og var smáuppfylling eftir, sem hana langaði að klára sjálf, en þá var sjónin farin að gefa sig. Nú verð ég að klára þessa mynd fyrir okk- ur báðar. Síðustu 13 mánuði hefur Guðný verið á deild B4 á Sjúkrahúsi Reykjavíkur og var svo þakklát fyrir alla þá aðhlynningu sem hún fékk þar því allir væru svo góðir við sig. Hún gerði engar kröfur og kvartaði aldrei. Þótt hún væri sárlasin og líkaminn slitinn var hugurinn og dugnaðurinn alltaf sá sami. Sem lítið dæmi, nú 9. ágúst þegar Iðunn dóttir okkar Kjartans gifti sig lét Guðný sig ekki vanta, hún ætlaði í kirkjuna og kom. Var það síðasta ferð hennar út af spíta- lanum fyrir andlát. Ég kveð með söknuði tengdamóður mína sem ég stend í mikilli þakkarskuld við og tel það vera mikla gæfu að hafa verið samferða henni, kynnst mannkostum hennar og ástúð. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stnð. (V. Briem.) Tengdaföður mínum votta ég mína dýpstu samúð, svo og öllum þeim sem eiga um sárt að binda við fráfall tengdamóður minnar. Blessuð sé minning Guðnýjar Eiríksdóttur. Helga Kristín Einarsdóttir. SVAVAR ÁRNASON þetta, hinir muna. Hver sem lifir á sinn stað og stund stormum lífsins háður. Sá harmur sem að olli sárri und var okkar gleði áður. (Sigurður Jósefsson) + Svavar Arnason fæddist í Reykjavík 5. sept- ember 1991. Hann lést af slysförum á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 13. ágúst síð- astliðinn og fór út- för hans fram frá Fossvogskirkju 21. ágúst. Elsku litli Svavar okkar. Nú þegar þú ert farinn frá okkur er eins og geislar sól- arinnar hafí hætt að skína. En við trúum því að þú sért núna á æðra tilverustigi þar sem alltaf er sól. Við vitum að þar eru allir góðir við þig því þú ert svo góður, gef- andi og fallegur drengur. Við trú- um líka að þú sért með okkur. Við biðjum góðan Guð að vera með þér og varðveita um alla eilífð. Við biðjum hann einnig um að veita okkur styrk til að tak- ast á við þann mikla sársauka sem sorgin og hinn djúpi söknuð- ur veldur okkur. í hug- um okkar munum við varðveita góðar minn- ingar um yndislegan, lítinn dreng. Elsku Svavar, við þökkum þér af öllu hjarta fyrir allt og allt, elskulega barn. Bemska þín, svo björt og ljúf og hrein var burtu hrifin, fyrr en nokk- urn varði. Nú eftir stendur endurminning ein, eins og blóm í vina þinna garði. Nú litli vinur sárt við söknum þín safn af Ijúfum minningum við geymum. Við minnumst þín, hvert sinn er sólin skín þú sannur geisli varst sem aldrei gleymum. Hve gaman var I góðri bræðra sveit og gott var þar að una. Þar leikið var, þá keppt og unnin heit, Á erfíðri stundu hefur stuðning- ur og samhugur ættingja og vina verið okkur mikils virði og hjálpað svo mikið í hinni þungbæru sorg. Viljum við þakka af heilum hug fyolskyldum okkar, samstarfsfólki í Marel og námsbraut í hjúkrunar- fræði Háskóla íslands, vinahópi frá Minnesota, skólasystkinum úr Menntaskólum, starfsfólki leik- skóla Arnarborgar, nágrönnum svo og öllum öðrum vinum og vanda- mönnum sem veitt hafa okkur og aðstandendum okkar stuðning, samúð og vinarhug. Kom englasveit, flyt hann til himins heim. Kom geisli skær að lýsa upp dimman geim. Kom náðarstund, að sefa tregatár. Kom varmi blær og þerrðu votar brár. Kom bjarta ljós með birtu þína og yl. Kom líkn til þeirra sem að finna til. Kom mjúka hðnd að milda sárin nú. Kom andi Guðs og gef oss sanna trú. (Sigurður Jósefsson) Innilegustu kveðjur, Árni, Hildur, Sigurður Jósef, Bjarni, Jón Þór og Unnsteinn. € C i V < í i ( ( ( I I I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.