Morgunblaðið - 14.09.1997, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1997 11
Morgunblaðið/Kristinn
FORELDRAR með börnum sínum fyrsta skóladaginn. Hversu
mikil áhrif eiga foreldrarnir að hafa á skólastarfið?
launþegar og starfsmannafélögin
voru orðin þreytt á þessu á sínum
tíma. Sveitarfélögin hafa verið
hlynnt þeim markmiðum launa-
nefndar að reyna að samræma
samninga milli sveitarfélaga og
borga sömu laun fyrir sömu störf
hvar sem er á landinu. Við tókum
meðal annars upp starfsmat sem
hefur hjálpað okkur mjög að jafna
kjörin,. ekki síst milli karla og
kvenna.“
Eiríkur Jónsson, formaður Kenn-
arasambandsins, segir að ef Launa-
nefnd sveitarfélaga reynist ófær um
að semja verði kennarar að hugleiða
að semja við hvert sveitarfélag fyr-
ir sig. „Við verðum samt að klára
samningana að þessu sinni með því
fyrirkomulagi sem nú er. Sveitarfé-
lögin verða síðan að svara því
hvemig þau skipa liði sínu.“
Eiríkur útilokar ekki blandað fyr-
irkomulag þar sem samið verði um
hin stóru mál á landsvísu og stéttar-
félög kennara semji síðan við sveit-
arfélögin um sérmál. „í sameigin-
legri kynnisferð okkar og launa-
nefndarinnar til Danmörku kynnt-
umst við slíku kerfi. Það segir sig
sjálft að stórt sveitarfélag eins og
Reykjavík og lítið hafa gjörólíkar
áherslur."
Landsbyggðin styrkt til
að borga hærri laun
Bergljót Jónsdóttir, skólastjóri í
Súðavík, segist telja heppilegast að
samningsumboðið sé á einni hendi.
„Hins vegar fínnst mér löngu tíma-
bært að farið sé að líta öðmm aug-
um á landsbyggðina en höfuðborg-
arsvæðið. Við ættum að gera eins
og Norðmenn og Kanadamenn og
borga hærri laun þar sem erfitt er
að manna stöður. Það er ekki hægt
að leggja það á sveitarfélögin að
borga þennan mismun. Litlu sveit-
arfélögin eru fyrir með miklu dýr-
ari skóla vegna þess að nýtingin á
húsnæði og mannafla er auðvitað
miklu minni. Það er heldur ekkert
réttlæti í því að hvert og eitt sveitar-
félag fari að bera þessa bagga. Ég
held að best væri að kostnaðinum
væri jafnað út í gegnum Jöfnunar-
sjóð sveitarfélaga. Eg held að hreyf-
ingin á starfsfólki skólanna sé ein
aðalorsök fyrir slökum árangri
nemenda á Vestfjörðum á sam-
ræmdum prófum. Fjarnámið er
reyndar mjög mikilvægt og hefur
bætt aðstöðu okkar, því heimafólk
sem menntar sig á þann hátt fer
ekki burt.“
Unnur Halldórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri samtakanna Heimili
og skóli, telur að rannsaka þurfi
betur þarfir mismunandi sveitarfé-
laga í skólamálum. „Mín hugmynd
er sú að gera ætti tilraunasamninga
til 2-3 ára í nokkrum sveitarfélög-
um á allt öðrum nótum en er í dag.
Til dæmis mætti reyna það að kenn-
arar ynnu til 20. júní, byijuðu 10.
ágúst og dregið yrði úr vinnu á
veturna. Það mætti reyna mismun-
andi útfærslur, til dæmis eina sem
hentaði í litlu sveitarfélagi og aðra
í stórum þéttbýlisskóla.“
Fulltrúar stærri sveitarfélaga
vilja ekki tjá sig um möguleika á
því að semja sér. „Ég held að það
sé langheppilegast fyrir sveitarfé-
lögin að vera samtaka um það að
semja fyrir kennara," segir Bragi
Michaelsson í Kópavogi, „þó að
kennslu úti á landi sé auðvitað allt
öðruvísi háttað en hér.“
Góðvinir grunnskólanna
Það er samdóma álit þeirra sem
rætt var við að foreldrar geti haft
veruleg áhrif á skólamál ef þeir
beita sér. En áhugi þeirra á að
hafa bein áhrif á launamál kennara
virðist vera takmarkaður. Auk
hefðbundins starfs foreldra í for-
eldrafélögum hafa þeir einkum
sinnt fjársöfnun til tækjakaupa í
skólunum. Sums staðar virðist léleg
útkoma nemenda í samræmdu próf-
unum hafa ýtt við foreldrum.
Á Patreksfirði hafa foreldrar og
fyrrverandi nemendur að frum-
kvæði skólastjórans stofnað sér-
stakt félag til að styðja grunnskól-
ann. „Þegar ég kom til starfa fyrir
rúmum tveimur árum fann ég mik-
inn velvilja íbúa til skólans," segir
Guðbrandur Stígur Ágústsson
skólastjóri. „Mér fannst þó vanta
Því hef ur verið
varpað fram hvort
ekki væri ráð að
spyrja íbúa sveit-
arfélaga formlega í
atkvæðagreiðslu
að því hvort þeír
vilji greiða hærra
útsvar til að hægt
sé að hækka laun
kennara.
vettvang fyrir fólk til að geta stutt
skólann. Sumir skólar hafa látið
borga efnisgjald til að bæta aðstöðu
grunnskólanna, en við fórum þá
leið að stofna félag sem við nefnum
„Góðvinafélag Patreksskóla“.“
Fyrsta verkefni félagsins var að
safna peningum frá bæjarbúum,
fyrirtækjum og félagasamtökum til
tölvukaupa. Ráðgert er 1. október
muni félagið afhenda skólanum átta
nýjar margmiðlunartölvur af full-
komnustu gerð. „En við stoppum
ekki við þetta,“ segir Stígur. „Ég
hef hugsað mér að næsta verkefni
verði að gera eitthvað fyrir aðstöð-
una til raungreinakennslu í skólan-
um.“
Foreldrar þurfa að beita sér
Sigurður Viggósson fram-
kvæmdastjóri er einn stjórnar-
manna í Góðvinafélaginu. „Það er
augljóst mál að foreldrar þurfa að
beita sér við menntun barna sinna.
Skólinn er ekki nema framlenging
uppeldisins. Ég held að það sé alveg
ljóst að foreldrar verða að taka til
hendinni eins og þeir geta. Ef for-
eldrar hafa virkilegan áhuga á
skólamálum og sýna svona frum-
kvæði þá eykur það þrýsting á sveit-
arfélögin að leggja meiri peninga í
þetta.“
Aðspurður neitar Sigurður því
að Góðvinafélagið muni safna pen-
ingum til að hækka laun kennara.
Það verði látið þeim eftir sem greiða
eiga laun þeirra.
Stígur skólastjóri segir gagnrýni
á sjálfshjálparstarfsemi íbúa, eins
og þá sem Patreksfirðingar hafa
stundað, vera byggða á röngum
forsendum. „Ef íbúar á einhveijum
ákveðnum stað leggja meiri áherslu
á menntun barna sinna en aðrir þá
finnst mér að þeir eigi að fá að
sýna það. Það má taka til saman-
burðar hversu stór hluti af tækjum
á sjúkrahúsum landsins eru gefin
af kvenfélögum og einhveijum fé-
lagasamtökum, sem er hið besta
mál. Ef skólarnir ætla að fara þessa
leið verður allt vitlaust. Sagt er að
sveitarfélögin eigi að útvega það
sem vantar í skólana. En gildir
ekki það sama um sjúkrahúsin, að
ríkið á að útvega það sem þar vant-
ar. Ég er ekki að segja að sveitarfé-
lögin eigi að hætta að setja peninga
í skólana og senda skólastjórann
og kennarana fyrir hvers manns
hús og betla. En það er hægt að
fara þessa leið til að gera góðan
skóla ennþá betri. Það sem sveitar-
félögin leggja í skólamálin er of oft
í lágmarki."
Lágar einkunnir
leiddu til tölvukaupa
Á Hólmavík var ráðist í svipað
átak og á Patreksfirði, í kjölfar
slæmrar útkomu grunnskólans í
samræmdu prófunum. Haldinn var
fundur á Café Riis þar sem mættu
bæði sveitarstjórnarmenn og for-
eldrar og í framhaldi af því var stofn-
aður sérstakur vinnuhópur, Riis-
hópurinn, til að vinna að endurbótum
á skólamálum. Höskuldur Erlings-
son, lögregluvarðstjóri á Hólmavík,
var skipaður í nefnd til að safna
peningum til tölvukaupa fyrir nem-
endur. „Hugsunin á bak við þetta
var sú að okkar krakkar myndu sitja
við sama borð og aðrir í þessum
málum. Hjá okkur voru aðeins til
gamlar tölvur sem voru orðnar nán-
ast ónothæfar og svona lítil sveitar-
félög hafa einfaldlega ekki bolmagn
í að kaupa nýjar tölvur."
Leitað var bæði til einstaklinga
og fyrirtækja um framlög og að
sögn Höskulds voru viðtökurnar
góðar. Samtals söfnuðust 6-700
þúsund krónur og í sumar voru
keyptar sex tölvur, prentari, mótald
og fleiri tæki sem verða afhent
formlega síðar í þessum mánuði.
í Raufarhöfn var tölvukostur
grunnskólans endurnýjaður í fyrra
fyrir um eina milljón króna. Gefend-
ur voru fyrirtæki, verkalýðsfélagið
og einn einstaklingur. „Þetta sýnir
í verki hug heimamanna til skól-
ans,“ segir Gunnlaugur Júlíusson
sveitarstjóri.
í stærri sveitarfélögunum tíðkast
einnig svipaður stuðningur foreldra.
Að sögn Braga Michaelssonar í
Kópavogi hafa foreldrafélög styrkt
skólana þar með ýmsum hætti, til
dæmis gefið tölvur, hljóðfæri eða
styrkt tómstundastarf með ein-
hveijum hætti. í Reykjavík hafa
foreldrar gefið tölvur til ýmissa
skóla og Gerður G. Óskarsdóttir
fræðslustjóri segir að einn foreldra-
hópur sé einmitt að hugleiða tölvu-
gjöf um þessar mundir.
Foreldrar gera auknar kröfur
„Umræðan um skólamál fer vax-
andi meðal foreldra og þeir gera
auknar kröfur til skólanna," segir
Gunnlaugur Júlíusson á Raufar-
höfn. „Það sem þeir vilja er jafn-
rétti til náms handa bömunum.
Áður fyrr gat fólk í sjávarþorpunum
farið beint á sjóinn og unnið í frysti-
húsi og haft ágætis laun, hærri en
kennararnir höfðu. Nú verður fólk
að læra eitthvað til að koma fótun-
um undir sig. Þetta ræður breyttum
áherslum sveitarfélaganna gagn-
vart_ skólunum."
„Ég er viss um að það hafi ýtt
við fólki að einkunnir úr samræmdu
prófunum voru birtar,“ segir Stígur
skólastjóri í Patreksskóla. „Auðvit-
að segir útkoma skólans í sam-
ræmdu prófunum ekki allt um gæði
skólastarfsins þó vissulega gefi hún
sterkar vísbendingar."
Foreldrar hafa veruleg áhrif
Ljóst er að þrýstingur foreldra
og aðgerðir þeirra geta haft áhrif
á skólastefnu sveitarfélaganna. En
hversu langt eiga foreldrarnir að
teygja sig til að gera sína skóla
betri en skóla nágrannabyggðanna
og hversu mikið á vald þeirra að
vera.
„Auðvitað hafa foreldrar veruleg
áhrif á sveitarstjórnina," segir
Gunnlaugur sveitarstjóri á Raufar-
höfn. „Sveitarstjórnarmennimir eru
oftast sjálfir foreldrar. En formlega
er aðkoma foreldra að skólanum
með þrennum hætti. Þeir sitja í
skólanefnd sem að fer yfir ráðning-
ar og fylgist með þróun skólans í
stórum dráttum, starfa í foreldrafé-
laginu og með flutningi skólanna
til sveitarfélaganna var bætt við
foreldraráði sem á að vera skóla-
stjóra til halds og trausts varðandi
innra starf skólans. Ég hef verið
að velta fyrir mér hvort ekki væri
rétt að kosin væri stjórn foreldra
yfir skólann sem gæti haft meira
að segja um beina ákvarðanatöku
í ýmsum málum sem varða skól-
ann.“
Stígur skólastjóri á Patreksfirði
bendir á að skólar hafi alltaf verið
misgóðir, eins og komið hafi í ljós
þegar farið var að birta einkunnir
úr samræmdu prófunum. „Sumir
skólarnir eru alltaf í hópi tíu efstu,
ár eftir ár. Það hlýtur að liggja í
því að menntunin þar sé betri. Auð-
vitað er ekkert að því að það sé
hæfileg samkeppni milli sveitarfé-
laga um starfsfólk. Ég er ekkert
hræddur við það. Ef að við í Vestur-
byggð viljum ekki láta nema eitt-
hvert lágmarkfé í skólahald þá er-
um við að gefa til kynna að þetta
sé málaflokkur sem ekki sé í önd-
vegi hjá okkur. Það sjá þá bæði
foreldrar sem hér búa og kennarar.
Ef nágrannabyggðin leggur meiri
metnað í skólahaldið fara kennar-
amir þangað og jafnvel fólkið líka.
Auðvitað má þetta ekki fara út í
öfgar. Þess vegna er til dæmis einn
landssamningur um laun kennara
nauðsynlegur. Það ætti ekki að
stoppa metnaðarfull sveitarfélög
sem vilja gera betur.“
Meiri áhugi á samgöngumálum
„Menntamál eru framarlega á
forgangslista í Reykjavík og ég
veit ekki hvort íbúar sveitarfélaga
myndu allir setja þau framar ef
þeir fengju að ráða meiru,“ segir
Gerður G. Óskarsdóttir. „Ég fór á
nokkra borgarafundi sem borgar-
stjóri hélt í fyrra. Samgöngumál
voru fólki þar mun ofar í huga en
skólamál."
Aðspurð segist Gerður ekki hafa
fundið að birting einkunna úr sam-
ræmdu prófunum hafi haft áhrif á
áhuga fólks í Reykjavík á málefnum
skólanna, en það gæti tengst því
að borgin kom vel út.
JbOfnasmiðjaii
Verslun Háteigsvegi 7 • Sími 511 1100
Verksmiðja Ratahrauni 13 • Sími 555 6100
Hillumerkingakerfi
Verðmerkingaborðar
Skiltarammar á fæti
Þunnhærður?
Hin húðvinsamlega, eðlilega
Apolloaðferð, sem gefur þér
hárið aftur, er byltingarkennd
fyrir þær sakir að enginn
annar en þú veist um það!
Hættu að hugsa um hártoppa,
hárkollur og aðrar
efnafræðilegar aðferðir. Þú
getur tekið þátt í íþróttum og
sundi án þess að hafa
áhyggjur. Apollo er sem þitt
eigið hár, - alltaf.
ALLAN SÓLARHRINGINN.
Já, ég vil gjarnan fá nánari
upplýsingar.
Nafn:
Heimili:
Pnr. Staður:
APOLLO HÁR STÚDÍÓ
Hringbraut 19,
107 Reykjavík.
Sími: 5522099.
Kynning
í dag!
Opið í dag frá kl. 15-18
Jóhanna Kondrup og Gréta
Boða, förðunarmeistarar.
Námskeið eru að hefjast
Nýjustu línur í förðun
Nemendur taka þátt í glæsilegri
tískusýningu í haust
Konur
Á stuttum tíma gefum við
ykkur kennslu og persónulegar
leiðbeiningar í förðun með
fyrsta flokks vörum.
Erum með mest spennandi
námskeið fyrir alla.
tóáJliiÁlsKÓLI
Skútuvogi 11, s. 551 9217 og 565 4661.