Morgunblaðið - 14.09.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.09.1997, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 7/9-13/9 ►SÖLUSAMBAND ís- lenskra fískframleiðenda hf., SÍF, hefur keypt allt hlutabréf kanadíska físk- vinnslufyrirtækisins Sans Souci Seafood Limited í Yarmouth á Nova Scotia í Kanada. Einnig hefur SÍF keypt aliar eignir, land, fastafjármuni, áhöld og tæki fyrirtækisins Tara Nova í Shelbourne á Nova Scotia. Tekur SÍF við rekstri beggja fyrirtækj- anna um mánaðamótin. ► FORSÆTISRÁHERRA hefur skipað nefnd þing- manna sem tilnefndir eru af öllum þingflokkum, til að kanna möguleika á breyt- ingu á kjördæmaskipaninni og tilhögun kosninga til Al- þingis. Er nefndinni ætlað að halda áfram störfum nefndar sem starfaði í lok siðasta kjörtimabils og skila tillögum sinum fyrir iok kjörtímabilsins eða i síðasta lagi á þingi 1998-99. ►LEIKSKÓLAKENNAR- AR hafa boðað verkfall 22. september. Ef til verkfalls kemur er ljóst að áhrif þess verða víðtæk þegar yfír 14 þúsund börn missa gæslu. Er þetta í fyrsta sinn sem Félag íslenskra leikskóla- kennara boðar verkfall frá því félagið var stofnað, en leikskólakennarar tóku þátt í verkfalli BSRB árið 1984. ►BÆJARSTJÓRNIR Eski- fjarðar, Neskaupstaðar og Reyðarfjarðar hafa hver fyrir sig samþykkt að ganga til kosninga um sameiningu bæjarfélaganna 15. nóvem- ber. 3.300 manns búa í bæj- unum þremur. Býður konungs- fjölskyldu birginn SPENCER jarl, bróðir Díönu prins- essu, hóf harðvítuga deilu við bresku konungsfjölskylduna um það hvaða hlutverki sonum Díönu og Karls Breta- prins ber að gegna, í minningarræðu sem hann flutti við útför systur sinnar í Westminster Abbey sl. laugardag. Viðbrögð í Bretlandi við bitrum orðum í minningarræðunni voru sterk og tóku margir Bretar undir yfírlýstan vilja jarlsins til að hlífa prinsunum ungu, Vilhjálmi og Harry, við stífum hegðun- arreglum konungsfjölskyldunnar. Stjórnmálaskýrendur breskra fjölmiðla voru sammála um að hið þúsund ára gamla konungdæmi yrði að aðlagast betur tíðarandanum til að eiga sér von um að halda velli á þeirri fjöimiðlaöld, sem gerði Díönu að þeirri persónu, sem tókst að snerta viðkvæma strengi í bijósti stórs hluta almennings. Sótt var að konungsfjölskyldunni eftir útförina og sá hún sig knúna til að lýsa því yfir á mánudag, að ekkert væri hæft í fréttum þess efnis að Elísa- bet drottning hefði verið andvíg því að Díönu prinsessu yrði veitt opinber útför. Skoðanakönnun, sem birt var í byijun vikunnar, bendir til að kon- ungsfjölskyldan sé ekki eins illa liðin og ætla mætti af gagnrýni í liðinni viku. 22% töldu að Elísabet stæði sig illa, en 63% voru ánægð með störf hennar. í könnuninni kom fram að 82% kváðust hlynnt konungdæminu ef Vil- hjálmur prins yrði konungur en ekki Karl Bretaprins faðir hans. Þriðjungur kvaðst vilja að Elísabet afsalaði sér völdum og Vilhjálmur tæki við. Á fimmtudag var hafin hreinsun tugi tonna af blómum sem lögð höfðu verið að þremur höllum konungdæmis- ins í London og öðrum minnismerkjum en þrátt fyrir það streymir enn fólk að höllunum og leggur þar nýja blóm- vendi. Sterkur þorsk- árgangur MIKIÐ af þorskseiðum fannst í hafinu við ísland í árlegum leiðangri Hafrann- sóknastofnunar. Hefur ekki fundist jafn mikið af þorskseiðum og nú frá árinu 1984 og er seiðavísitalan sú fjórða hæsta sem mælst hefur frá því mælingar hófust árið 1970. Útbreiðsla seiðanna var einnig mjög mikil og fundust þau meira og minna á land- grunninu úti fyrir Vestfjörðum, Norð- urlandi og suður fyrir miðja Austfirði. Stærð seiðanna var í meðallagi. Nýr biskup KARL Sigurbjömsson sóknarprestur i Hallgrímsprestakalli hlaut hreinan meirihluta í biskupskjöri og er því rétt- kjörinn næsti biskup íslands. Karl hlaut 111 atkvæði, Sigurður Sigurðar- son 42 atkvæði, Gunnar Kristjánsson 15 atkvæði og Auður Eir Vilhjálms- dóttir hlaut 14 atkvæði. Dómur í Noregi UNDIRRÉTTUR í Bodö í Noregi hef- ur, að kröfu norska ákæruvaldsins, dæmt skipstjórann á Sigurði VE og útgerð hans til greiðslu sektar að upp- hæð 4,3 milljónir króna. Ákveðið hefur verið að áfrýja dómnum til hærra dóm- stigs. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra segir að sér blöskri niður- staða dómsins og að hann hljóti að hafa áhrif varðandi samstarf þjóðanna almennt og sameiginlega nýtingu fískistofna. ►TÓLF manns fórust með norskri Super Puma-þyrlu undan Hálogalandi sl. mánudag en talið er að bil- un hafi orðið á flugi með þeim afleiðingum að hún hafí brotnað sundur áður en hún hrapaði í hafið. ►LEIÐTOGAR Sinn Fein, stjórnmálaarms írska lýð- veldishersins (IRA), skrif- uðu á þriðjudag undir yfir- lýsingu þar sem ofbeldi í pólitískum tilgangi er for- dæmt. Með því tryggðu norður-írskir lýðveldissinn- ar sér sæti við samninga- borð viðræðna um framtíð Norður-írlands. ►MADELEINE Albright, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, heimsótti ísrael og sjálfsljórnarsvæði Pal- estínumanna á miðvikudag og fimmtudag. Hvatti hún ísraelsstjórn til að stöðva landnám gyðinga á her- setnum svæðum, sagði að stöðvun aðgerða, sem Pa- lestínumenn teldu ögrun gegn sér, gæti verið mikil- vægt skref í þágu friðar- ferlisins. ísraelsstjórn, sem var óviðbúin yfirlýsingu af þessu tagi, hafnaði hug- myndinni. ►SKOTAR samþykktu stofnun skosks þings í þjóð- aratkvæðagreiðslu á fimmtudag, en hátt í þijár aldir eru síðan hið forna Skotlandsþing í Edinborg var leyst upp. 74,3% sam- þykktu endurstofnun skosks þings og 63,5% lýstu sig fylgjandi því að þetta þing færi með völd til tak- markaðrar skattlagningar. 34. þing Sambands ungra sjálfstæðismanna Morgunblaöiö/UolU RÁÐHERRAR Sjálfstæðisflokksins silja fyrir svörum á þingi SUS á föstudagskvöld. Frá vinstri: Halldór Blöndal, Björn Bjarnason, Friðrik Sophusson, Jón Kr. Snæhólm fundarstjóri, Þorsteinn Pálsson og Davíð Oddsson. Feður fái fæðingarorlof RÁÐHERRAR Sjálfstæðisflokks- ins sátu fyrir svörum á þingi Sambands ungra sjálfstæðis- manna á föstudagskvöld. Fjöl- mennt var á fundinum og bárust margar fyrirspurnir. í máli Frið- riks Sophussonar fjármálaráð- herra kom m.a. fram að það lægi fyrir ríkisstjórninni tillaga frá honum þess efnis að feður sem starfa hjá ríkinu fengju tveggja vikna fæðingarorlof sem þeir gætu nýtt sér á fyrstu átta vikum eftir fæðingu barnsins. „Málið er til skoðunar hjá stjórnarflokk- unum og ég vonast til þess að ríkisstjórnin samþykki þetta mál þannig að hægt verði að segja frá því í næstu eða þarnæstu viku.“ í dag mun nefndarstörfum þingsins Ijúka og að þeim loknum verður gengið til kosninga í emb- ætti formanns, stjórnar og vara- stjórnar. Ásdís Halla Bragadóttir aðstoðarmaður menntamálaráð- herra er sú eina sem hefur lýst yfir framboði í formannsembætt- ið og er ekki búist við mótfram- boði. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri Moskva heimsborg innan örfárra ára YURI Luzhkov, borgarsjtóri Moskvu, tók á móti Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarsljóra en hún var viðstödd þriggja daga hátíðarhöld í tilefni 850 ára afmælis Moskvuborgar. INNAN örfárra ára verður Moskva orðin ein af heimsborgunum ef þró- unin heldur áfram eins og á undan- fömum árum, að mati Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra en hún var viðstödd þriggja daga hátíð- arhöld í tilefni 850 ára afmælis Moskvuborgar. Borgarstjóri átti með- al annars fund með Yuri Luzhkov, borgarstjóra Moskvu, sem sýndi mik- inn áhuga á Reykjavík sem vetrar- borg og fræddi hann um einangrun húsa sem er mikið vandamál í Moskvu. Ingibjörg sagðist hafa skynjað sterkt sögu og menningu þjóðarinnar og um leið hvað möguleikamir væru miklir í framtíðinni. „Mér finnst eins og Moskva geti eftir örfá ár verið orðin ein af heimsborgunum ef þróun- in heldur áfram eins og hún hefur verið á undanfömum áram,“ sagði hún. „Vandamálin era gífuleg sem Rússar eru að glíma við og má þá nefna mengun og alla innri uppbygg- ingu samfélagsins." „Til marks um að lýðræðið er farið að skjóta rótum get ég nefnt að gef- in era út blöð, sem era mjög gagnrýn- in á stjómvöld. í einu blaðanna, sem gefið er út á ensku, var því haldið fram að heimilisleysingjamir í Moskvu hefðu allir verið reknir út fyrir borgina í tilefni hátíðarhaldanna en engu að síður þegar haldnir voru miklir tónleikar á háskólatorginu, vora þar saman komnar um 3,5 millj- ónir manns. Það fólk sem maður sá þar var ekki tötrum klætt og það sem kom mér á óvart var að varla sá vín á nokkram manni. Auðvitað sé ég þetta með gestsaugum og sé þetta í einhverri sjónhendingu en fólkið sem sást á götunum hefði getað verið statt hvar sem var í heiminum. í verslunum var nóg af öllu en miðað við laun hafa fáir efni á þeim vöram. Mér var sagt að millistjómandi hjá Moskvu- borg hefði 200 dollara á mánuði í laun. Það dugar skammt en auðvitað er kominn upp stór hópur nýríkra og ábyggilega talsverður hópur sem hef- ur mikla kaupgetu. Það sér maður á bílunum sem hvergi sjást flottari.“ Stórtækur atvinnurekandi Ingibjörg sagði að Moskvuborg væri mjög stórtæk í atvinnurekstri. Borgin ræki banka sem væri ein stærsta fjármálastofnun í Rússlandi, sjónvarpsstöð, símaþjónustu og olíu- fýrirtæki og er allur þessi rekstur að stóram hluta til í samkeppni við einka- aðila. Að undanfömu hefur verið unnið við að gera upp gamlar byggingar í borginni og meðal annars hefur Kirkja frelsarans, sem reist var til minningar um sigurinn yfír Napóleon verið end- urbyggð en Stalín lét sprengja hana í loft upp og byggja sundlaug í henn- ar stað. Sagði Ingibjörg að kirkjan væri tákn um að nú hefði blaðinu verið snúið við. Öflugur og kraftmikill Ingibjörg sagði að Yuri Luzhkov, borgarstjóri Moskvu, hefði virkað öflugur og kraftmikill. „Sagan segir að hann sé allt um kring og fari einu sinni í viku í yfirreið á alla þá staði, þar sem framkvæmdir eru í gangi til að sjá hvort menn era á áætlun og ef ekki þá fá menn bágt fyrir,“ sagði hún. „Hann nýtur gífurlegra vinsælda í Moskvu. Hann var endurkjörinn árið 1996 og hlaut 90% atkvæða. Öll þessi hátíðarhöld voru sögð vera liður í því að hann muni bjóða sig fram til for- seta árið 2000.“ Ingibjörg sagði að Luzhkov hefði sýnt mikinn áhuga á Reykjavík sem vetrarborg og vildi vita hvemig við einöngraðum húsin en það væri mikið vandamál sem borgaryfirvöld í Moskvu stæðu frammi fyrir. Hús væru þar illa einangruð og því væri leitað leiða til að draga úr hitatapi. „Hann hafði áhuga á að vita hvemig við færam að í þessum efnum og eins hvemig nýta mætti orkuna sem best til upphitunar," sagði Ingibjörg. „Þeir vora mjög hrifnir af að heyra hvemig við leiðum vatn 60 km frá Nesjavöll- um og töpum ekki nema tveimur gráðum í hita á leiðinni. Þessu sýndu þeir mikinn áhuga.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.