Morgunblaðið - 14.09.1997, Qupperneq 14
14 SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Frjálsíþróttir
Síðasta stigamót IAAF
Fukuoka, Japan:
Hástökk kvenna:
1. Inga Babakova (Úkraínu)..........2,02
2. Yulia Lyakhova (Rússl.)..........1,99
3. Monica Iagar (Rúmeníu)..........1,96
4. Hanne Haugland (Noregi)..........1,96
5. Alina Astafei (Þýskal.)..........1,93
Kringlukast karla:
1. Lars Riedel (Þýskai.)...........67,98
2. Adam Setliff (Bandar.)..........66,12
3. John Godina (Bandar.)..........65,66
4. Jíirgen Schult (Þýskal.).......64,18
5. Virgilus Alekna (Litháen)......63,76
Þrístökk kvenna:
1. AshiaHansen (Bretlandi).........15,15
2. Sarka Kasparkova (Tékkl.)......14,94
3. Rodica Mateescu (Rúmeníu)......14,59
3.000 m hindrunarhlaup karla:
1. Joseph Keter (Kenýa)........8.21,75
2. Moses Kiptanui (Kenýa).......8.21,87
3. Bernard Barmasai (Kenýa).....8.22,48
4. Eliud Barngetuny (Kenýa).....8.23,39
5. Patrick Sang (Kenýa).........8.23,43
6. Wilson Boit Kipketer (Kenýa).8.26,50
400 m hindrunarhlaup kvenna:
1. Kim Batten (Bandar.)............53,45
2. Deon Hemmings (Jamaíku).........53,98
3. Tatyana Tereshchuk (Úkraínu)...54,37
4. Debbie Ann Parris (Jamaíku)....54,96
5. Nezha Bidouane (Marókkó).......55,12
6. Guðrún Arnardóttir.............55,96
7. Anna Knoroz (Rússl.)...........56,24
8. Susan Smith (Irlandi)..........58,09
Kúluvarp kvenna:
1. Astrid Kumbernuss (Þýskal.).....20,95
2. Vita Pavlysh (Úkraínu).........20,59
3. Irina Korzhanenko (Rússl.).....19,06
400 m hindrunarhlaup karla:
1. Samuel Matete (Sambíu)..........48,01
2. Stephane Diagana (Frakkl.).....48,14
3. Llewellyn Herbert (S-Afríku)...48,45
4. Bryan Bronson (Bandar.)........48,47
800 m hlaup karla:
1. Wilson Kipketer (Danmörku)....1.42,98
2. Patrick Ndururi (Kenýa).......1.43,45
3. David Kiptoo (Kenýa)..........1.44,09
4. Rich Kenah (Bandar.)..........1.45,19
5. Vincent Malakwen (Kenýa).....1.45,37
6. Hezekiel Sepeng (S-Afríku)...1.45,56
7. Marko Koers (Hollandi).......1.45,73
Míluhlaup kvenna:
1. Carla Sacramento (Portúgal)...4.40,25
2. Jackline Maranga (Kenýa).....4.40,44
3. Juli Henner (Bandar.)........4.40,92
5.000 m hlaup karla:
1. Khalid Boulami (Marókkó).....13.09,40
2. Thomas Nyariki (Kenýa).......13.10,41
3. Paul Koech (Kenýa)..........13.10,77
4. Mohammed Mourhit (Belgiu)...13.13,49
5. DanielKomen (Kenýa).........13.17,93
Langstökk karla:
1. Ivan Pedroso (Kúbu)..............8,53
2. James Beckford (Jamaíku).........8,40
3. Erick Walder (Bandar.)...........8,40
4. Kiril Sosunov (Rússl.)...........8,26
5. Roland McGhee (Bandar.)........8,15
6. Chiek Tidane Toure (Senegal)....8,06
7. Sean Robbins (Bandar.)..........8,02
Spjótkast karla:
1. Jan Zelezny (Tékkl.)............89,58
2. Boris Henry (Þýskal.)..........86,76
3. Patrik Boden (Sviþjóð).........86,52
200 m hlaup kvenna:
1. Marion Jones (Bandar.)..........21,84
2. Merelene Ottey (Jamaíku)........21,92
3. M. Gainsford-Taylor (Ástralíu).22,43
4. Inger Miller (Bandar.).........22,44
200 m hlaup karla:
1. Frankie Fredericks (Namíbíu)....19,81
2. Obadele Thompson (Barbados).....20,19
3. Jon Drumoond (Bandar.)..........20,32
4. Ato Boldon (Trínidad)...........20,44
5. Geir Moen (Noregi).............20,50
6. Rohsaan Griffin (Bandar.)......20,53
7. Kevin Little (Bandar.).........20,55
8. Patrick Stevens (Belgíu).......20,62
Míluhlaup karla:
1. Robert Anderson (Danmörku)....4.04,53
2. H. E1 Guerrouj (Marokkó).....4.04,55
3. Venuste Niyongabo (Búrúndí)..4.04,95
110 m grindahlaup karla:
1. Mark Crear (Bandar.)............13,03
2. Florian Schwarthoff (Þýskal.)...13,11
3. Tony Jarrett (Bretlandi)........13,14
4. Igor Kovac (Slóvakíu)...........13,14
5. Jack Pierce (Bandar.)...........13,19
6. Terry Reese (Bandar.)..........13,24
7. Roger Kingdom (Bandar.)........13,26
8. Courtney Hawkins (Bandar.).....13,53
Stangarstökk karla:
1. Sergey Bubka (Úkraínu)...........6,05
2. Maksim Tarasov (Rússl.).........6,00
3. Tim Lobinger (Þýskal.)..........5,90
4. PatManson (Bandar.).............5,85
5. Lawrence Johnson (Bandar.)......5,60
100 m grindahlaup kvenna:
1. Michelle Freeman (Jamíku).......12,40
2. Ludmila Engquist (Svíþjóð)......12,48
3. Dionne Rose (Jamaíku)..........12,81
4. Brigita Bukovec (Slóveníu).....12,99
5. Susan Smith (írlandi)..........13,22
6. Guðrún Arnardóttir.............13,38
7. Naoko Kobayashi (Japan)........13,41
8. Yvonne Kanazawa (Japan)........13,44
800 m hlaup kvenna:
1. Ana Fidelia Quirot (Kúbu).....1.56,53
2. Maria Mutola (Mósambikk).....1.56,93
3. LetitiaVriesde (Súrínam).....1.59,73
5.000 m hlaup kvenna:
1. Sally Barsosio (Kenýa).......15.13,46
2. Lydia Cheromei (Kenýa)......15.15,63
3. Paula Radcliffe (Bretlandi).15.17,02
■ Gabriela Szabo, Rúmeníu.......lauk ekki
keppni
Guðrún varð í sjötta sæti
Keppti bæði 100 og 400 m grindahlaupi í Fukuoka í Japan í gær
Guðrún Arnardóttir, hlaupa-
kona úr Ármanni, varð í
sjötta sæti í 400 m grindahlaupi
á síðasta stigamóti Aþjóða ftjáls-
íþróttasambandsins í Fukuoka í
gær. Hún hljóp á 55,96 sekúndum
og nokkuð frá íslandsmeti sínu,
54,79 sek. Allir keppendurnir í
hlaupinu voru nokkuð frá sínu
besta og má þar nefna heims-
meistarann Nezha Bidouane frá
Marokkó sem varð næst á undan
Guðrúnu á 55,12 sek.
Guðrún byrjaði hlaupið ágæt-
lega en um miðbik þess virtist hún
missa dampinn og er hún kom inn
í lokabeygjuna var hún í síðasta
sæti. En endaspretturinn hefur
oft reynst henni dýrmætur og svo
var einnig að þessu sinni. Hún
komst fram fyrir Önnu Knoroz frá
Rússlandi og Susan Smith frá ír-
landi á síðustu metrunum og náði
sjötta sæti.
Kim Batten, Bandaríkjunum,
sigraði örugglega í hlaupinu og
Deon Hemmings frá Jamaíku varð
að gera sér annað sætið að góðu
og þar með gekk henni rúmlega
14 milljónir króna úr greipum.
í 47. sæti
Með þessum árangri náði Guð-
rún 47. sæti í heildarstigakeppni
kvenna þar sem ailar greinar eru
meðtaldar, en nærri 300 keppend-
ur hlut stig í kvennakeppninni i
mótaröðinni í sumar.
Guðrún keppti einnig í 100 m
grindahlaupi í Japan, en það hefur
verið aukagrein hjá henni síðustu
ár.
Ástæðan fyrir því hún keppti
var að einhveijir keppendur gengu
úr skaftinu og var Guðrúnu boðið
að hlaupa í skarðið. Það hlaup var
fimm stundarijórðungum eftir að
400 m grindahlaupinu lauk. Þar
varð hún einnig í sjötta sæti á
tímanum 13,38 sek., sem er um
20/100 úr sekúndur frá íslands-
meti hennar frá sl. sumri.
Reuter
GUÐRÚN Arnardóttir hafnaðl í 6. sætí í síðasta stigamótinu í Fukuoka í gær. Hér fer hún fram
úr Önnu Knoroz frá Rússlandi, en hún kom næst á eftir Guðrúnu í mark.
Ömggt hjá Kip-
keter að vanda
DANANUM Wilson Kipketer, konungi 800 m hlaups karla, og
drottningu kúluvarpsins, Astrid Kumbernuss frá Þýskalandi, urðu
ekki á nein mistök á síðasta stigamóti Aiþjóða frjálsíþróttasam-
bandsins í Fukuoka í Japan í gær. Þau gerðu bæði það sem
þurfti, sigruðu í sínum greinum og urðu efst í stigakeppni mótar-
aðarinnar. Fyrir vikið hlutu þau hvort um sig um 14,5 millj. kr.
Kipketer, hefur verið ósigrandi í
800 m hlaupi í tvö ár, þurfti
að sigra til þess að halda efsta sæt-
inu í karlaflokki. Eins og vant er lét
hann andstæðinga sína, sem þó voru
ekki af verri endanum, ekki slá sig
út af laginu. Meðal þeirra voru
Kenýamennirnir David Kiptoo,
Patrick Ndururi og Rich Kenah auk
silfurverðlaunahafans frá Ólympíu-
leikunum í fyrra, Hezekiels Sepengs
frá S-Afríku. Segja má að Daninn
fótfrái hafi gert út um hlaupið á
fyrri hringum sem hann hljóp á
49,73 sek. Þar með var mesta loftið
úr andstæðingunum enda hraðinn
nærri millitíma á heimsmeti í 800 m
hlaupi. Kipketer slakaði aðeins á
sprettinum á lokahringnum en það
breytti engu um niðurstöðuna - ör-
uggur sigur á 1.42,98 mín.
„Ég vildi bara vera fyrstur, hug-
urinn var ekki við heimsmetið að
þessu sinni,“ sagði kappinn að hlaup-
inu loknu, en þess má geta að heims-
met hans er 1.41,11. Annar í hlaup-
inu varð Ndururi á 1.43,45.
Yfirburðir Kumbernuss í kúlu-
varpinu voru álíka og þeir sem Kip-
keter hafði í sinni grein. Hún varp-
aði í þriðju umferð 20,95 m og það
var ekki fyrr en í sjöttu umferð að
Vita Pavlysh varð önnur til að varpa
yfir 20 m er kast hennar mældist
20,59. Auk þess sem Kumbernuss
og Kipkerter fengu um 14,5 milljón-
ir fyrir sigurinn í stigakeppninni
hlutu þau hvort um sig tæpar ijórar
milljónir króna fyrir að sigra í sinni
grein eins og allir sigurvegar móts-
ins.
Deon Hemmings frá Jamaíku var
jöfn Kumbernuss í stigakeppni
kvenna áður en mótið hófst og þurfti
því nauðsynlega að sigra í 400 m
grindahlaupinu til þess að fá sömu
fjárupphæð. En vopnin snerust í
höndum Hemmings því hún hafði
ekki roð við Kim Batten heimsmet-
hafa i greininni. Batten tók forystu
strax í upphafi og hélt henni allt til
ioka og fékk tímann 53,45 sek.
Hemmings varð önnur á 53,98. Þess
má geta að heimsmeistarinn Hezha
Bidouane frá Marokkó varð að gera
sér 5. sætið að góðu á 55,12 sek.
Bubka reyndi við heimsmet
Sexfaldur heimsmeistari í stang-
arstökki karla, Úkraínumaðurinn
Sergei Bubka, kom, sá og sigraði í
sinni grein. Hann átti í basli með
að fara yfir 5,95 m og gekk það
ekki fyrr en í þriðju tilraun. Rússinn
Maksim Tarasov fór yfir 6 m og lét
því Bubka hækka upp í 6,05 og átti
tvær tilraunir sem voru fjarri því
góðar. En í þriðju tilraun fór hann
glæsilega yfir, var 15 til 20 sm yfir
hæðinni. Tarasov og Þjóðvetjinn Tim
Lobinger felldu báðir og var því sig-
ur Bubka öruggur. Lét hann hækka
upp í 6,15 og reyndi í þrígang við
heimsmet, en það gekk ekki að þessu
sinni.
„Mér gekk gott tækifæri á að
setja heimsmet úr greipum," sagði
Bubka. „Það var synd að mér tókst
ekki að fara yfir 6,15 að þessu
sinni.“
Marion Jones frá Bandaríkjunum
og Merlene Ottey, Jamaíku, voru í
sérflokki í 200 m hlaupi kvenna. Þær
voru jafnar inn á beinu brautina en
þá tók Jones við sér og virtist ætla
að sigra með yfirburðum. Ottey
sýndi hins vegar á síðustu 30 m að
hún er hvergi nærri dauð úr öllum
æðum. Hún sótti að Jones en náði
ekki að komast upp að hlið hennar,
en tókst að minnka bilið, tíminn
21,92 sek., en Jones fékk 21,85 sek.
Fyrsta tap
El Guerro-
uj í sumar
„EYÐIMERKURKÓNGUR-
INN“ Hicham E1 Guerroiý
varð að játa sig sigraðan í
fyrsta skipti á keppnistímabil-
inu á mótinu í Fukuoka. Allt
stefndi í öruggan sigur hans í
hægu míluhlaupi er Daninn
Robert Anderson kom úr öft-
ustu röð á lokasprettinum og
stakk sér fram fyrir Marokkó-
manninn á við marklínuna. Svo
snögglega birtist Daninn að
Guerrouj kom ekki við neinum
vörnum. Tíminn í hlaupinu var
hins vegar afar slakur, sigur-
tíminn 4.04,53 mín., og annað
sætið 4.04,55. Þess má geta að
tíminn á 1.500 m var 3,51 mín.
Samveldis-
met hjá
Hansen
ASHIA Hansen frá Bretlandi
sigraði með glæsibrag í þri-
stökki kvenna er hún setti
bæði breskt met og Samveld-
ismet í sfðustu umferð þrí-
stökkskeppninnar. Hún stökk
15,15 m og skaut m.a. heims-
meistararnum Sörku Ka-
sparkovu frá Tékklandi ref
fyrir rass. Kasparkova stökk
aðeins 14,94 m í síðustu um-
ferð. Fáir höfðu reiknað með
Hansen í gullsæti fyrirfram
og hvað þá eftir að keppnin
hófst því hún var fjarri sínu
besta allt þar til í lokastökkinu.
Bubka og
Ottey ekki
að hætta
TVEIR af fremstu frjáls-
íþróttamönnum síðustu tæpa
tvo áratugi, Sergej Bubka,
heimsmethafi í stangarstökki
frá Úkraínu og Merlene Ottey
spretthlaupari frá Jamaíku
segjast hvorug vera á þeim
buxunum að liætta. Bubka
sagði í gær að meðan hann
tapaði ekki með reglulegu
millibili ætlaði hann ekki að
hætta þrátt fyrir að meiðsli
hafi verið að gera honum lif ið
leitt síðasta árið. Ottey sem
er 37 ára gömul og ætlaði að
hætta í fyrrahaust er ánægð
með keppnistímabilið í sumar.
hún vann fyrst til verðlauna á
stórmóti á Ólympíuleikunum í
Moskvu árið 1980. „Ég hef
verið í fremstu röð síðan 1980
og ég hef ekki hugmynd um
hvenær ég hætti,“ sagði Ottey
í vikunni.