Morgunblaðið - 14.09.1997, Qupperneq 40
r40 SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
I Hf/fþéR, i-AÞD! |
[>/!£> &£TIVE&E>
VEFUZA/
Grettir
WEVÉ DECIPEP WE 5H0ULP U/ELL TRY T0 FINP OUR BROTHEK
8E M0VIN6 ON..YODRFAMILY 5PIKE..HE KN0W5 MICKEY M0U5E,
CAN'T AFFORPTHREE P065.. WHO 15 VERY WEALTHY, ANP CAN
^ 6ETUSJ055 IN HOLLYWOOP..
-'“ö'" "
Við höfum ákveðið að við
ættum að halda áfram ...
fjölskylda þín hefur ekki
efni á þremur hundum ...
Við reynum að finna bróður
okkar Sám ... Hann þekkir
Mikka Mús, sem er mjög auðug-
ur, og getur fundið starf fyrir
okkur í Hollywood ...
Farið varlega
yfir götuna.
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Hugleiðing vegna yfir-
vofandi verkfalls
I leikskólanum er bannað að plata
Frá Helgu Alexandersdóttur:
ÞANN 22. september nk. hefst verk-
fall leikskólakennara ef samningar
hafa ekki náðst. Það hlýtur að vera
mörgum áhyggjuefni, einkum for-
eldrum þeirra bama sem eru í leik-
skólunum. Leikskólakennarar hafa
verið seinþreyttir til vandræða í
gegnum árin en ástandið í launamál-
um stéttarinnar er orðið svo slæmt
að við það verður ekki unað lengur
enda eru margir leikskólakennarar
farnir í önnur og betur launuð störf.
Það sem veldur mér leiða sem
stuðningsmanni Kvennalistans til
margra ára og er tilefni þessara
skrifa er sú von sem ég batt við fram-
boð Reykjavíkurlistans og sigur hans
í síðustu kosningum, von sem að
hluta til hefur brugðist. R-listinn
samanstendur af félagshyggjuflokk-
um með Kvennalistann í broddi fylk-
ingar og hafði m.a. uppi hugmyndir
í kosningabaráttunni um að rétta
hlut kvenna sem starfa hjá Reykja-
víkurborg hvað launakjör varðar og
beita sér fyrir starfsmati á hinum
hefðbundnu kvennastörfum hjá
Reykjavíkurborg. Þessi fyrirheit
vöktu hjá mér von um að loksins
væri komið fólk í borgarstjórn sem
skildi kröfur okkar. Reykjavíkurlist-
inn lofaði líka foreldrum að byggja
fleiri leikskóla og íjölga með öllum
ráðum leikskólaplássum í Reykjavík,
þannig að öll börn hefðu sama rétt
óháð félagslegum aðstæðum.
Reykjavíkurlistinn hefur staðið
myndarlega að byggingu leikskóla á
kjörtímabilinu, byggðir hafa verið
glæsilegir leikskólar og ekkert hefur
verið til þeirra sparað. Einnig hefur
verið byggt við eldri skóla og 3ja
deilda leikskólar verið stækkaðir í 4
deilda. Ekki má gleyma fjölgunum á
deildum þar sem hver fermetri hefur
verið nýttur; þannig eru nú til deild-
ir sem eru með allt að 28 börn sam-
tímis og geta þau verið vel á fjórða
tuginn yfír daginn ef um mörg hluta-
pláss er að ræða. Þessi fjölgun hefur
að sjálfsögðu aukið álag á leikskóla-
kennara.
Fjölgun leikskólaplássa hefur gert
það að verkum að gjörbreyting hefur
orðið á aðstöðu foreldra, biðlistarnir
hafa styst til muna, giftir foreldrar
eiga nú kost á heilsdagsvistun og
því ber að fagna.
Þar sem leikskólakennarar eru
dæmigerð kvennástétt bjóst ég við
að kjörin yrðu bætt, ekki veitti af,
einnig að hugað yrði að starfsmati,
en sú varð ekki raunin.
Leikskólakennarar hafa verið með
lausa samninga frá síðustu áramót-
um, en fyrir þann tíma var búið að
leggja fram kröfugerð félagsins.
Ekkert hefur gerst þegar þetta er
skrifað og það sem olli mér mestum
vonbrigðum var að Reykjavíkurborg
afhenti launanefnd sveitarfélaga
umboð sitt til að semja við leikskóla-
kennara og er það fyrsta sinn eftir
að Féiag íslenskra leikskólakennara
fékk sjálfstæðan samningsrétt. Þetta
gerðu fulltrúar R-listans þrátt fyrir
að hafa lýst yfir vilja fyrir síðustu
kosningar til að leiðrétta kjör
kvennastétta. Það virðist því ekki á
dagskrá að ganga á undan öðrum
sveitarfélögum með góðu fordæmi
og bæta kjör leikskólakennara eins
og eg reiknaði með.
Ástandið er mjög slæmt í dag, illa
hefur gengið að ráða fólk til starfa
í leikskólana nú í haust. Mikill ijöldi
leikskóladeilda er nú án leikskóla-
kennara og á sumar þeirra er ekki
einu sinni búið að fá ófaglærða
starfsmenn í þeirra stað.
Leikskótastjórar eru mjög uggandi
um hvað framtíðin ber í skauti sér.
Leikskólum hefur fjölgað en leik-
skólakennarar fást ekki til starfa
vegna lélegra launa og mikils vinnuá-
lags. Eg hef velt því fyrir mér hvort
í leikskólunum verði í framtíðinni að
hluta til „gæsla" þar sem enginn
fagiærður verður til staðar nema ef
til vill úttaugaðir leikskólastjórar,
eða hvort það verður hlutskipti þess-
ara bygginga að standa tómar eins
og sumar sjúkrahúsbyggingarnar í
landinu. Einskonar minnismerki um
„góðar" hugsjónir. Eitt er víst að
ekki skortir börn í þessi hús.
I leikskólanum er lögð áhersla á
vináttu, einnig er lögð á það rík
áhersla að segja alltaf satt og efna
gefin loforð. Eg vona sannarlega að
núverandi meirihluti í Reykjavík hafi
ekki verið að plata okkur fyrir síð-
ustu kosningar og snúi sér að því
að leysa deiluna við leikskólakennara
hið snarasta. Með því verði stöðvaður
flótti úr stéttinni og hægt verði að
ráða í stöður leikskólakennara og
halda þannig leikskólunum gangandi
með metnaðarfullu starfi.
HELGA ALEXANDERSDÓTTIR,
leikskólastjóri í Laugaborg.
Leikskólakennarar -
verkfall 22. september
Frá Valgerði Kristjánsdóttur:
NÚ ER leikskólakennurum full al-
vara og það styttist nú óðum tíminn
sem til stefnu er til að ná samningum
áður en til verkfalls kemur.
Ég undirrituð býst við að fara í
verkfall þann 22. september því ég
sætti mig ekki við þessi lágu laun
og ekki heldur það að vera talin sem
aukafyrirvinna, því launin mín skipta
miklu um afkomu heimilis míns.
Okkar (góða) ísland er ekki fjöl-
skylduvænt þjóðfélag. Við skulum
byija á barninu, það fer í leikskóla,
ómótað, ungt og viðkvæmt og treyst-
ir algerlega leikskólakennaranum
sínum og barnið trúir öllu sem því
er sagt. Fyrstu æviár barnsins eru
dýrmætasti og viðkvæmasti tími
ævinnar og ef ekki er hlúð vel að
barninu á þessum árum getur verið
erfitt að byggja á þeim grunni síðar
á skólagöngunni. Leikskólakennsla
er ekki síður mikilvæg en önnur
kennsla, þó börnin séu yngri og að-
ferðir og áhersluþættir því aðrir.
Leikskólakennarar telja eðlilegt að
menntun þeirra sé á háskólastigi eins
og önnur kennaramenntun.
Verðmætamatinu er öfugt farið í
þessu landi; þær starfsstéttir sem
vinna að mannlega þættinum, þ.e.
leikskólakennarar, kennarar, heil-
brigðisstéttir o.fl., eru stéttir með
lágu launin. Mikilvægt er að þessar
stéttir séu betur launaðar, þannig
að það verði eftirsóknarverðara að
sækja þessa menntun. Það mun skila
sér betur út í þjóðfélagið til barnanna
og um leið til þjóðfélagsins.
Leikskólakennarar! Nú stöndum
við öll saman og sættum okkur ekki
lengur við þetta ófremdarástand
starfsstéttar okkar. Við eigum betra
skilið.
Baráttukveðjur.
VALGERÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR,
leikskólakennari í Mosfellsbæ.