Morgunblaðið - 14.09.1997, Qupperneq 48
48 SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FOLK I FRETTUM
Ég vil að fólk
gráti og hlæi
Breska kvikmyndin Leyndarmál og lygar
naut fádæma vinsælda þegar hún var sýnd
í Háskólabíói. Nú hefur leikstjóri myndar-
innar, Mike Leigh, lokið við myndina Sjálf-
stæðar stelpur sem verður frumsýnd í Há-
skólabíói um næstu helgi. Hildur Lofts-
dóttir hitti meistarann í London til að
spjalla um nýju myndina.
LYNDA Steadman, Mark Benton og Katrin CartP .
skemmta sér á námsáranum
HANNAH og Annie hittast mörgum árum seinna,
og lenda í ýmsu óvæntu.
Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir
MIKE Leigh á skrifstofu sinni í Soho í London.
SJÁLFSTÆÐAR STELPUR segir
frá tveimur stúlkum Annie og
Hönnuh sem eru dálítið sérstakar.
Pær verða vinkonur þegar þær
leigja saman á námsárunum. Nú
eru þær að hittast í íyrsta sinn
mörgum árum eftir námslok, og
hafa margar misjafnlega skemmti-
legar minningar að rifja upp.
- Hvað viltu segja með Sjálfstæð-
um stelpum?
„I þessari mynd er ég
að fara inn á þema sem er
mér mjög hugleikið;
hvernig lífið gengur fyrir
sig, hvemig fólk fótar sig í
lífinu og hvaða breytingum það tek-
ur við þá misjöfnu reynslu sem það
lendir í. Ég fjalla um þetta í mörg-
um af mínum myndum. Þetta eru
hugleiðingar um vináttu, ýmiskonar
sambönd og hvemig þeim reiðir af í
tímans rás.
Ég vona að ég sé að gera myndir
um lífsreynsluna í heild. Með það að
markmiði er ég í Sjálfstæðum stelp-
um að tala um það sem við göngum í
gegnum á yngri ámm. Einnig hve
erfítt það er að bera í brjósti sér til-
finningar til fólks í lengri tíma án
þess að fá útrás fyrir þær.“
Fyrst og fremst manneskja
- Persónumar í myndum þínum
eru sjaldan aðíaðandi, en áhorfand-
anum fer samt fljótt að þykja vænt
um þær.
„Já einmitt, þetta er mér sérlega
hugleikið, því þetta gerist svo oft í
lífinu. Um leið og manni fer að
þykja vænt um fólk þá sér maður
það í öðra ljósi. Þessu vildi ég koma
á framfæri með því að hafa móður-
ina og dótturina af sitthvoram kyn-
þættinum í Leyndamálum og lyg-
um. Fyrst skiptir mestu
máli að Hortense er
svertingi, en þegar á líð-
ur og málin fara að þró-
ast, þá skiptir bara máli
að hún er manneskja. Að
þau eru öll mannverur með tilfinn-
ingar. Oft sýnist fólk indælis mann-
eskjur í fyrstu en er svo skíthælar
er á reynir. Þannig er nú einmitt líf-
ið.“
Leikarar eru skapandi
listamenn
- Áhorfendur eru undantekninga-
laust hrifnir af frammistöðu leikara
þinna. Hvaða aðferðir notar þú við
þá?
„Ef við tökum Sjálfstæðar stelp-
ur sem dæmi, þá kom ég fyrst með
hugmynd að mynd, eða frekar til-
finningu fyrir mynd, sem mig lang-
aði til að gera. Hlutverkin Annie og
Hannah voru upphugsuð sérstak-
lega fyrir leikkonurnar Lyndu
Steadman og Katrin Cai-tlidge. Það
gerði ég reyndar í samvinnu við
þær. Þannig vinn ég alltaf. Ég vinn
með leikuranum mjög lengi, og
handritið kemur út úr því samstarfi.
Við vinnum saman í marga mánuði,
GN
Sunnud. 14. sept.
Kl. 11:00 Djassmessa í
Árbæjarkirkju
Kl. 17:00 Síódegisdjass
á Jómfrúnni við Lækjar-
götu: Djassklúbbur
RúRek: J.J. Soul Band
Kl. 21:00 Alþjóðlegt
spunakvöld í
Kringlukránni
Kl. 23:00 RúRek á
miðnætti: Spuni í tali og
tónum á Jómfrúnni vió
Lækjargötu
Mióasala
i Japis Brautarholti
Miðapantanir
i síma 551 0100.
Námufélagar Landsbankans fá afslátt.
búum til heilan heim, reynum að fá
mynd á hann, æfum fram og til
baka og að lokum föram við í upp-
tökur. Það sem ég er í raun að gera
er að vinna með leikuram og not-
færa mér það að þeir geta verið
skapandi listamenn eins og aðrir
listamenn."
Enskir leikarar eru góðir
- Eftir hverju velurðu þá leikar-
ana þína?
„Stundum þekki ég leikarana og
veit hvað þeir geta gert fyrir mig.
Ég vann t.d með Katrin Cartlidge í
myndinni Naked, og hún er alveg
frábær leikkona sem er óhrædd við
að vera bæði ljót og óaðlaðandi.
Þannig vil ég hafa leikara. Stundum
tek ég líka áhættu í leikaravali. Þar
má nefna Mark Benton, sem leikur
Ricky, furðulegan vin stúlknanna.
Hann kom í prafu til mín í fyrsta
skipti fyrir þessa mynd og reyndist
alveg frábær leikari. Þetta era allt
frábærir leikarar. Andy Serkins
sem leikur ömurlega manninn sem
er að selja íbúðina sína, er alveg frá-
bær náungi. En hann er líka mjög
góður leikari og undirbjó sig mikið
fyrir hlutverkið. Hann fór í kaup-
höllina í London og valdi sér fyrir-
mynd þar, og hann er nákvæmlega
eins og þessir taugaveikluðu gæjar,
sífellt að fá sér kókaín í nös. Ég hef
annars mikið val því enskir leikarar
era mjög góðir. Ekki allir, en flest-
ir.“
Heima er best
- Muntu fara einhverjar ótroðnar
slóðir í framtíðinni?
„Reyndar má ég ekkert tala um
það sem ég mun taka mér fyrir
hendur á næstunni. Ég held samt
áfram að gera kvikmyndir svo lengi
sem ég get, og held mig sjálfsagt
við þau efni sem mér era hugleikin.
Ég vil fyrst og fremst halda áfram
að fá áhorfendur mína til að finna
til, hlæja og gráta.
Ég hef verið spurður að því
hvort ég hafi áhuga á að fara til
Hollywood, en þá vil ég frekar
deyja. Það kemur ekki til greina að
starfa með öðrum en sjálfstætt
starfandi aðilum. Auk þess sem ég
sé ekki hvers vegna ég ætti að hafa
áhuga á Hollywood. Ég hef unnið
bæði á írlandi og í Ástralíu, og það
gekk ágætlega. En ég vil vinna í
Englandi því þar á ég heima. Ég
segi sögur af því umhverfi sem ég
þekki. Alveg eins og hvaða góður
íslenskur kvikmyndaleikstjóri sem
er hefur sjálfsagt mestan áhuga á
að gera myndir á Islandi. Líka til
að styrkja íslenska kvikmynda-
gerð.“
- Hvernig heldurðu að fólk taki
Sjálfstæðum stelpum eftir miklar
vinsældir Leyndarmála og lyga?
„Þau viðbrögð sem ég hef fengið
hingað til við þessari mynd era
mjög jákvæð. Fólki finnst myndim-
ar mínar góðar af misjöfnum per-
sónulegum ástæðum, og það er eins
og margir sjái sig í þessari mynd.
Eg vona að það sé satt, því mig
langar að gera myndir sem fólk vill
sjá.“
- Eitthvað sem þú vilt segja að lok-
um?
„Nei, allt sem ég vil segja er,
vona ég að minnsta kosti, á tjald-
inu.“
Haustnámskeið
KennsLa í
framhalds-,
byrjenda- og
stúLknaflokkum
hefst dagana ol rt ,
i5. tiL 20. Skakskoli
september n.k. í s l a n d s
Alþjóðlegir
titiLhafar
annast alLa
kennsLu.
Kennt verður frá kl. 17.00 tiL 19.00 aLLa virka
daga og frá kl. 11.00 tiL 12.30, 12.30 tiL 14.00
og 14.00-16.00 um heLgar.
Nánari upplýsingar og skráning alla virka daga
og helgarfrá kl 10.00 til 13.00 í síma 568 9141.
Athugið systkinaafiláttur.
Kvikmyndaskóli Islands
Tveggja mánaða námskeið í kvikmyndagerð
Kennslan er bókleg og verkleg. Farið verður í alla helstu
grunnþætti kvikmyndagerðar, þ.e. leikstjórn, kvikmynda-
töku, klippingu, hljóðvinnsluleikmynd, förðun og fram-
leiðslu. Leiðbeinendur og fyrirlesarar eru 19 talsins, þar af
margir af helstu kvikmyndagerðarmönnum landsins.
Námskeiðið stendur yfir frá 6. október til 29. nóvem-
ber 1997. Nemendum verður skipt í tvo hópa; daghóp og
kvöldhóp. Kennt verður fjóra daga í viku, mánudaga til
fimmtudaga, 4 tíma í senn. Einnig verður kennt á laugar-
dögum 6 tíma og þá verða fyrirlestrar og kvikmyndasýn-
ingar.
Þetta er einstakt tækifæri fyrir alla þá sem vilja verða
kvikmyndagerðarmenn eða vilja öðlast þekkingu í
gerð kvikmynda.
Umsóknafrestur rennur út 30. september. Upplýsingar
og skráning í síma 588 2720 milli kl17 og 19 frá og með
15. september.
Stundum tek
ég líka áhættu
í leikaravali