Morgunblaðið - 28.09.1997, Blaðsíða 52
MORGUNBLABID
K9.
Z SUNNUDAGUR 2S. SEPTEMBER 1097
& #
r
x
HA.SKOLABIO
HASKOLABIO
Hagatorgi, simi 552 2140
'
i
Colin Firlh
Ruth Gemmell
FUNI
Hvernig er lif manns
sem elskar konuna
sína en dýrkar 11
menn svo mikið að
hann eyðir tímanum
frekar í þá? Frábær
bresk grínmynd sem
notið hefur mikilla
vinsælda. Góð mynd
fyrir aðstandendur
deliukalla! (Lax, gæs,
rjúpa, bolti, golf, þið
vitið...)
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.10
Sýnd mánudag kl. 7, 9 og 11.
10.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. Mánud. kl. 5, 7, 9 og 11.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
Sýnd mánudag kl. 5, 7, 9 og 11.
rmiiiiiirniiiin
Stuttmynd eftir
Böðvar Bjarka
Pétursson.
Sýnd með Sjálf-
stæðum stelpum.
mh lui.nwiN wiHHii’i (.oii'iirm.
x T .sWWns
^ % ^SKL’GGAR roRTIDAIi
%\ <c;i ic ).s i s
; pá s t
Sýnd kl. 4.45, 7 og 9.15. B.l. 12.
Mánudag kl. 7 og 9.15.
•B, •
.. JJ. , ■* Ss>
Sýnd kl. 9 og 11. b.í. 14.
Sýnd kl. 2.45 og 5.15. Síð. sýningar.
Sýnd mánudag kl. 5.15.
www.austinpowers.com
BÖÐVAR Bjarki Pétursson er
upptekinn maður. Hann er for-
stöðumaður Kvikmyndasafns Is-
land, auk þess að sitja í stjóm
Kvikmyndafræðafélags íslands og
í ritstjórn blaðs kvikmyndagerðar-
manna, Lands & Sona. Böðvar
Bjarki er leikstjóri og framleiðandi
myndarinnar „Siggi Valli á mótor-
hjóli“. Hann gat ekki gefið sér tíma
fyrir viðtal, en blaðamaður fær að
fara með honum í útréttingar og
tala við hann á meðan.
Mynd um gamlan mann
„Árið 1992 bjó ég til myndina
„Siggi Valli trommari" sem margir
muna eftir, að hluta til fyrir
skringilegheit og að hluta til fyrir
eitthvað annað, kannski fyrir leið-
indi. Hún fjallaði um það
þegar gamli maðurinn
fékk óvænt tækifæri til
að spila á trommur í
Templarahöllinni eftir
margra ára hlé. Sú
mynd var ákaflega ein-
föld að allri gerð og fékk misjafna
dóma hér heima, en gekk glimrandi
vel á kvikmyndahátíðum og ferðað-
ist nokkuð víða. Ég fékk mjög
sterk viðbrögð við henni, svo mig
langaði að gera aðra mynd um
Sigga Valla, eða þann gamla, mynd
sem hann er tákn fyrir. Það yrði þá
að vera á svipuðum forsendum; að
gera heimildamynd um þennan
mann, en nota jafnframt aðferðir
leiknu myndanna til þess. Á yngri
árum var Siggi Valli trommari,
hljómsveitargæi, en líka mótor-
hjólagæi og töffari. Pað lá því við
að fjalla um það næst.“
Margir koma að lítilli mynd
„Þessi mynd er framleidd af
kvikmyndafyrirtækinu mínu, 20
geitum, í samvinnu við Stöð 2. Is-
lenska kvikmyndasamsteypan
kemur nánast að öllum íslenskum
myndum og þessari líka,
N orðnorðvestur-kvikmyndagerð,
Bifhjólasamtök lýðveldisins og
Danmarks Radio. Danirnir höfðu
séð Sigga Valla trommara og voru
tilbúnir til að leggja peninga í nýtt
ævintýri. Þannig koma margir að
framleiðslu þessarar
litlu myndar.
Tökurnar tóku um
fimm daga og Sigga
Valla fannst þetta ekki
erfitt, því myndin er
um drauminn hans,
hann trúði því ekki að þetta væri
virkilega að gerast. Það eru flug-
vélaskot og mörg önnur skot þar
sem ég bauð honum að hafa ein-
hvern í hans stað á hjólinu, því
hann var heilan dag á mótorhjóli
að keyra fram og til baka á 100 km
hraða. En hann vildi vera sjálfur á
hjólinu allan tímann. Gamalt fólk
getur gert allan fjandann."
Líturlögmál-
umheimildar
myndar
Morgunblaðið/Kristín Ólafsdóttir
JON Ingi og Sigurður Valgarð
létu engan bilbug á sér finna
við upptökur myndarinnar.
heimildamyndum er ákveðin at-
burðarás sett á svið. Hins vegar
vantar tvö atriði; það er viðtölin og
þulinn. Þá komum við að þeirri ein-
kennilegu spurningu hvort heim-
ildamynd geti ekki verið heimilda-
mynd ef hana vantar viðtal eða
þul? Auðvitað neitum við því.“
Þriðja myndin um Sigga Valla?
„Myndin er 12 mínútur og verð-
ur sýnd í Háskólabíói á undan
myndinni „Sjálfstæðar stelpur" eft-
ir Mike Leigh. Annars er fátækleg
hefð fyrir því að sýna svona stuttar
myndir hér á landi, og maður
græðir ósköp lítið á því.
Eg hef eina mynd í huga enn um
Sigga Valla, sem ég get samt ekki
sagt frá, en hún verður líka um
hlut sem á raunverulega við hann.
Það er alveg nauðsynlegt fyrst
þetta eru heimildamyndir. Samt er
það mjög freistandi að láta hann
gera bara eitthvað, því hann mynd-
ast svo gríðarlega vel.
Morgunblaðið/Iíorkell
AÐALHETJURNAR Jón Ingi Hannesson og Sigurður Valgarð Jóns-
son ásamt leikstjóranum og Sniglum.
Lögmál heimildamyndarinnar
„Þetta er eina íslenska myndin
sem komst inn á heimilda- og stutt-
myndahátíðina Nordisk panorama,
og það sem stuttmynd, en ekki
heimildamynd. Ég frétti af því að
það hafi mikið verið deilt um það í
dómnefndinni hvort þetta væri
heimildamynd eða ekki. Myndin lít-
ur lögmálum heimildamyndar; það
er enginn að leika annan en sjálfan
sig, engar setningar eru skipulagð-
ar fyrirfram, og eins og er algengt í
Gamalt fólk getur
gert allan fjandann
Stuttmyndin Siggí Valli á mótorhjóli
var frumsýnd í Háskólabíói á fímmtudag-
inn. Þar fær gamall maður óvænt tæki-
færi til að fara í ferð með Sniglunum.
HildurLoftsdóttir spurði leikstjórann
hvernig hugmyndin kom upp.