Morgunblaðið - 28.09.1997, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1997 13
ERLENT
PressLánk
JOANN Burkholder, sjávarlíffræðingur við Háskóla Norður-Karólínuríkis, sýnir stækkaða mynd
af lífverunni Pfiesteria piscicida. Burkholder hefur sjálf orðið fyrir barðinu á pfiesteria, að því
er talið er.
lega að sannfærast um að það er
eitthvað á seyði.“
Nokkrar gerðir ef eitri
Morris segir líklegt að pfíesteria
einfrumungurinn framleiði nokkrar
gerðir af eitri. Eitt þeirra leysi upp
hold físksins svo að hann dettur í
sundur. „Það er fínt fyrir lífveruna
vegna þess að allt í einu er allt fullt
af næringarefnum úr fískinum.“
Þá virðist pfíesteria framleiða
taugaeitur, sem Morris segir líklega
hafa áhrif á heilann í fískinum.
„Það kann að lama fískinn eða valda
því að hann fer ekki og þess vegna
geta hin eiturefnin náð að leysa físk-
inn upp,“ segir Morris. Sjómenn
hafa greint frá því að fískurinn
„hagi sér undarlega" þegar pfíester-
iablóm eru nálæg - hann syndir í
hringi.
Áhrifín á fólk yrðu öllu minni,
segir Morris. Þetta geti valdið erfíð-
leikum með nám, óbirtar rannsóknir
á rottum sem hafi verið hafðar ná-
lægt pfíesteria sýni að hún geti leitt
til námserfíðleika hjá dýrum. Fyrsta
vísbendingin um að þetta kunni
einnig að eiga við um fólk kom í
ljós þegar JoAnn Burkholder, vís-
indamaður við Háskóla Norður-
Karólínuríkis kom nálægt lífverunni
á rannsóknarstofu skólans. Hún
þjáðist af minnisleysi og öðrum
kvillum, sem á endanum hættu þó
að hrjá hana.
Eftirspurn snarminnkar
Áhyggjur fólks vegna áhrifa pfi-
esteria hafa valdið því að eftirspurn
eftir sjávarafurðum frá Chesa-
peakeflóa hefur minnkað stórlega.
Fiskur af þessu svæði var vinsæll
allt frá Washington til Kalifomíu, í
Evrópu og Japan. Heildsalar og
stórmarkaðir selja ekki físk frá
svæðinu og veitingahús, sem sér-
hæfa sig í fiskréttum, fylgdu í kjöl-
farið er eftirspurnin hrundi.
Sjávarútvegur í Marylandríki
veltir árlega um 400 milljónum
Bandaríkjadala, eða sem svarar um
28 milljörðum íslenskra króna, og
hafa áhyggjur þessar haft víðtækar
afleiðingar. Fjölda fólks hefur verið
sagt upp störfum og útgerðarmenn
sumir hafa selt báta sína.
Þótt pfíesteria hafí einkum herjað
á meinhadd, torfufísk sem óhæfur
er til manneldis, útifyrir strönd
Marylandríkis, hafa áhyggjur neyt-
enda náð til allra sjávarafurða frá
Chesapeakeflóa og jafnvel til físks
sem veiddur hefur verið í mörg
hundruð sjómílna fjariægð. „Þetta
versnar stöðugt hvað varðar við-
skipti,“ segir Joe Rupp, fram-
kvæmdastjóri félags bátaeigenda í
Maryland.
Ótti neytenda hefur lítið minnkað
þótt embættismenn Marylandríkis
hafí lýst því yfír að sjávarfang úr
Chesapeakeflóa sé skaðlaust. Parris
N. Glendenning, ríkisstjóri, hefur
heitið því að lagðir verði fram 200
þúsund dalir til markaðssetningar í
því skyni að vinna aftur traust við-
skiptavina.
Matseðlar
endurprentaðir
Glendenning hefur skipað nefnd
til þess að §alla um markaðssetn-
inguna og hann hefur skorið upp
herör gegn tveim verslanakeðjum
sem auglýsa sérstaklega að þær
sjávarafurðir sem verslanimar hafi
á boðstólum séu ekki frá Chesape-
akeflóasvæðinu. Þar með sé ýtt
undir þá hugmynd að allar sjávaraf-
urðir frá því svæði séu hættulegar.
Talsmaður verslanakeðjunnar
Giant Foods, sem hefur stærstu
markaðshlutdeildina á Washington-
svæðinu, segir að hætt hafí verið
að selja kóralbassa í byijun septem-
ber. „Við vorum með hann. Það vildi
hann enginn. Við enduðum á því
að henda honum í ruslið,“ segirtals-
maður Giant Foods.
Á veitingahúsinu Crisfíeld Sea-
food í Silver Spring í Maryland hafa
matseðlar verið endurprentaðir og
tekið fram á þeim að fískréttir séu
ekki úr sjávarfangi úr Chesapeake-
flóa. „Við pöntum ekkert úr flóanum
vegna þess að við viljum segja við-
skiptavinum okkar það,“ segir John
Richmond, einn eigenda Crisfield
Seafood. „Við erum eiginlega bara
að gera eins og hinir."
Gestakomum á staðinn hefur
fækkað um allt að 20 prósent, og
fækkar enn. Sala á krabbakjöti hef-
ur minnkað um helming, og þeir sem
láta sig hafa það að snæða það segj-
ast vera að taka áhættu, að því er
framkvæmdastjórinn segir. Engin
dæmi eru þekkt um að krabbar
hafí orðið fyrir barðinu á pfíesteria.
Geta sjálfum sér um kennt
En hvað veldur því að þetta virð-
ist vera að gerast núna? Burkhold-
er, Morris og fleiri vísindamenn
segja að eitthvað hafi gerst sem
hafí breytt lífveru, sem yfirleitt sé
meinlaus, í hættulegt meindýr. Að
öllum líkindum sé orsakanna að leita
í einhveiju sem menn hafí gert.
„Þegar við gerum eitt og annað
við umhverfi okkar getur svo farið
að svona lífverur taki að skjóta upp
kollinum og það getur hugsanlega
haft áhrif á heilsu fólks,“ segir
Morris. Vísindamenn eru nú að
kanna hvort „næringarríkt af-
rennsli", til dæmis kjúklingaskítur
frá alifuglabúum, sé þáttur í orsök
breytinganna.
Yfirvöld í Maryland hafa bannað
veiðar og sundiðkan á fjórum stöð-
um, m.a. í hluta Pocomokeárinnar.
í Virginíuríki er farið hægar í sak-
irnar en opnuð hefur verið upplýs-
ingamiðstöð sem hægt er að hringja
í. Ekki hafa komið upp nein veik-
indatilvik í Virginíu sem talið er að
megi rekja til pfiesteriasýkingar.
Embættismenn segja að ekki sé
farið offari. „Í hvert einasta sinn
sem ný veiki kemur upp hlýtur
maður að hafa áhyggjur," segir
John Rullan, í heilbrigðismálaráðu-
neyti Maryland.
Heimildir: Reuter og The Washington Post
SPENNANDI VETRARTILBOÐ
fyrir viðskiptafólk, starfsmannahópa,
fjölskyldur o.fl.
Hótel Edda að haust- eða vetrarlagi er góður
kostur fyrir fólk í viðskipta- og söluferðum.
Einnig fyrir alla þá sem vilja fara í hressandi
og skemmtilegt frí innanlands, t.d. starfsmanna-
hópa, fjölskyldur og vinahópa. Nú bjóða heils-
árshótelin á Flúðum, Kirkjubæjarklaustri, Höfn
og Egilsstöðum upp á dvöl á hótelunum á hag-
stæðu vetrarverði.
Hótel Flúðir, sími 486 6630
Kirkjubæjarklaustur, sími 487 4799
Starfsfólk Edduhótelanna býður ykkur
velkomin. Fáið nánari upplýsingar á
hótelunum sjálfum eða hjá starfsfólki
Ferðaskrifstofu íslands í síma 562 3300
Hótel Höfn, sími 478 1240
Nýtt hótel á Egilsstöðum, opnar jan.'98
Hótel Valaskjálf, sími 471 1500
trardvöl á Hótel Eddu:^)