Morgunblaðið - 28.09.1997, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 28.09.1997, Blaðsíða 32
32 SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ + Anna María Einarsdóttir var fædd í Reykja- vík 19. desember 1940. Hún lést á heimili sínu hinn 11. september síð- astliðinn. Anna var dóttir hjónanna Einars Einarssonar bílstjóra, f. 20.1. 1918, og Ástu Magnúsdóttur rit- ara, f. 30.1. 1921. Hún var einkabarn foreldra sinna. Anna lauk lands- prófi 1956 frá Gagnfræðaskóla vesturbæjar og hóf að því loknu störf við launaútreikn- inga hjá Almenna byggingar- félaginu í Reykjavík. Þar var hún við störf til 1963. Hún gift- ist Bolla Magnússyni, vél- virkja, f. 6.9. 1941, árið 1963 og sama ár héldu þau til Óð- insvéa í Danmörku þar sem Bolli nam skipatæknifræði. í Óðinsvéum vann Anna við lag- erbókhald hjá stórfyrirtækinu Thomas B. Thrige til 1966. Þau fluttu aftur til íslands 1967. Anna starfaði við erlend innkaup hjá Stálvík hf. frá Þá er á enda löng og erfið sjúk- dómslega mágkonu minnar, Önnu Maríu Einarsdóttur, og fögru og flekklausu æviskeiði lokið svo langt um aldur fram. Sár harmur er kveðinn að bróður mínum, börn- um þeirra hjóna, öldruðum foreldr- um og tengdabörnum. Mér er í minni þegar Anna kom fyrst á heimili foreldra minna og okkar systkinanna. Hún var vissu- lega bæði Ijúf og kurteis, en snemma kom í ljós að hún bjó yfir viljafestu, hreinskilni og einurð 1970-1972 þegar hún fluttist með fjölskyldu sinni til Japan, þar sem þau bjuggu í rúmt ár. Eftir heimkomuna var hún aðstoðar- stúlka á tann- læknastofu Jóns Ólafssonar frá 1975-1977, en hóf þá störf hjá Félagi heyrnarlausra og var ráðgjafi, skrif- stofusljóri og túlk- ur félagsins í tíu ár. Á árunum 1983 til 1988 dvöldust þau Anna og Bolli langdvölum í Póllandi og frá 1988 til 1993 bjuggu þau samtals þrjú ár í Portúgal. Þau hjón eignuðust tvö böm, Ástu upplýsingafræðing, f. 15.5. 1965, og Magnús iðn- rekstrarfræðing, f.21.3. 1969. Sambýlismaður Ástu er Ralph Ottey stærðfræðingur, f. 15.4. 1953, en Magnús er kvæntur Elínu Eiríksdóttur bókasafns- fræðingi, f. 20. 12. 1969. Sonur þeirra er Bolli, f. 3.2. 1996. Útför Önnu Maríu var gerð frá Fossvogskapellu hinn 19. september. sem var í samræmi við fádæma heiðarleika hennar og nákvæmni. Þetta kom vel fram I öllum hennar verkum, jafnt sem húsmóður og þar sem hún starfaði og einmitt þessir eiginleikar koma mér fyrst í hug þegar ég hugsa til hennar. Árið 1965 dvaldi ég um skeið hjá þeim hjónum á fyrstu búskapará- rum þeirra meðan þau voru í Óð- insvéum þar sem Bolli var þá við nám. Dugnaður og glaðværð hús- móðurinnar setti mark sitt á heim- ilislífið sem og skipulagsgáfa MINNINGAR hennar og nákvæmni í einu og öllu. Þetta var henni verðmætur bakhjarl þegar kom að störfum utan heimilisins, því þar gat hún fyrir vikið einbeitt sér af þeirri alúð sem henni var töm og hún krafðist af sjálfri sér. Hún vann um þessar mundir hjá Thomas B. Thrige og hafði verið sett yfir bókhaldið á stærsta lager þessa mikla fyrirtækis, þótt hún hefði hafið störf við minnsta lagerinn. Ekki tók hana nema eitt ár að ávinna sér þetta traust, og þegar tölvuvæðing rekstursins skyldi hefjast í árdaga tölvuvæðingar 1965 var hún ein tíu starfsmanna sem valdir voru til að nema tölvun- arfræði. Allt ber þetta vott um árvekni hennar og skarpa greind. Sama farsæld í starfi fylgdi Önnu þegar hún árið 1977 gerðist skrifstofustjóri, ráðgjafi og túlkur Félags heyrnarlausra, en þar starfaði hún í tíu ár. Hún var lengst af eini starfsmaður félags- ins og var aðeins ráðin í hálft starf, en afkastaði ekki minna en ef hún hefði verið í fullu starfi. Sumir sögðu að því væri líkast sem hún „ætti félagið sjálf“, svo ötullega lagði hún sig fram. Hún gerðist vinur og hjálparhella fólksins í félaginu og vann í þágu þess af lífi og sál. Þetta var starf sem krafðist iðulega afskipta af við- kvæmum persónulegum málum og þá gjarna utan vanalegs vinnu- tíma. En Anna fékkst ekki um það, hún gat gefið sér tíma til margs, þar á meðal til virkrar þátttöku í félagslífi heyrnarlausra á kvöldum ogum helgar. Allt þetta var við hana metið og henni vottað þakklæti á ýmsan hátt: Hún var gerð að heiðursfélaga Félags heyrnarlausra 1988 og íþróttafé- lag heyrnarlausra veitti henni viðurkenningu fyrir margvíslega aðstoð. Sami hugur kom fram við útför hennar en fjöldi heyrnar- lausra var viðstaddur athöfnina í Fossvogskapellu og það sem fram fór var túlkað á táknmál. Það átti fyrir Önnu að liggja að halda heimili í fimm löndum um ævina, því vegna starfa Bolla gerðu þau hjón víðreist. Fyrsta langa utandvölin var í Danmörku, eins og fram hefur komið, en síðar lá leiðin til Japan í eitt ár. Frá 1983 til 1988 voru þau langdvölum í Póllandi og frá 1988 til 1993 í Portúgal, en þar bjuggu þau sam- tals í þrjú ár. Tvívegis ferðuðust þau í kringum hnöttinn og saman heimsóttu þau á fimmta tug landa í fjórum heimsálfum. Stundum er sagt að það sé list að kunna að ferðast og sú list var þeim hjónum í bijóst lögð, enda hefur maður hennar oft haft á orði að betri ferðafélaga hafi hann ekki getað hugsað sér. Áhugi Önnu á siðum og menningu framandi þjóða var óþrjótandi og þyrfti Bolli að vera fjarri vegna vinnu sinnar átti hún ekki í vandræðum með að hafa ofan af fyrir sér. En þótt víst farn- aðist þeim vel þau tímaskeið sem þau bjuggu utanlands er samt mest um vert hve myndarlegt heimili þau jafnan áttu hér heima allt frá því er þau komu frá Dan- mörku. Bjuggu þau fyrst í þrjú ár við Rauðagerði í Reykjavík en fluttu þá í Kópavog. í tólf ár stóð heimili þeirra við Hlíðarveg og í fjórtán ár við Reynihvamm. Var það 11. júní sl. að þau fluttu í það nýja og veglega hús sem þau létu byggja við Heiðarhjalla 43 í Kópa- vogi. Sorglegt er til þess að hugsa að þar auðnaðist Önnu ekki að dvelja nema í rétta þijá mánuði. Árið 1987 tók hún að kenna sjaldgæfs taugasjúkdóms sem langan tíma tók að greina en smám saman ágerðist. Þegar ekki síður alvarleg veikindi bættust við 1994 hófust miklir reynslutímar fyrir hana og ástvini hennar og er óhætt að segja að öll hafi þau orðið að taka á því sem þau áttu. Kjarkur Önnu var mikill og kannski mun mest hafa á hana og fjölskylduna reynt árin 1994 og 1995. Hún var þá ýmist á sjúkrahúsi eða lá heima, en heima vildi hún vera svo mikið sem unnt ANNA MARIA EINARSDÓTTIR -I- Ásgerður Ein- * arsdóttir var fædd í Reykjavík 30. apríl 1913. Hún lézt 8. september síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Sigríður Þorláksdóttir, (Ó. Johnsons kaup- manns í Reykjavík), húsfreyja, f. 22. marz 1877, d. 11. ágúst 1960, og Ein- ar Arnórsson (Jóns- sonar, bónda að Minna-Mosfelli i Grímsnesi), lögfræðiprófess- or, ráðherra og hæstaréttar- dómari, f. 24. febrúar 1880, d. 29. marz 1955. Systkini hennar eldri voru Ingibjörg (1908-1994), leikkona, Guðrún, (1909-1928) og Áslaug, (1911- 1947), listmálari, húsfreyja í Kaupmannahöfn, en yngri Hrafnhildur, (1915-1964), hús- freyja í Svíþjóð, síðar Banda- ríkjunum, og Logi, hæstarétt- ardómari, f. 1917. Hálfbróðir þeirra sammæðra var Ólafur Haukur Ólafsson (1900-1970), stórkaupmaður í Reykjavík. Látin er i Reykjavík öldruð móð- ursystir mín, Ásgerður Einarsdótt- ir, 84 ára að aldri. Hún hafði um nokkurra ára skeið átt við vanheilsu að stríða með þverrandi líkams- þreki, þótt hugurinn væri skýr, og hún fylgdist með því sem gerðist og væri minnug á liðna daga. Ás- gerður, sem frá unga aldri gekk undir gælunafninu Bista, var hin síðasta fimm dætra afa míns og Faðir hans lézt af slysförum, en Ól- afur ólst upp á heimili móður sinnar og stjúp- föður frá sjö ára aldri. Ásgerður var tvígift: Fyrri mað- ur hennar (1936) var Einar B. Sig- urðsson (1911- 1978), iðnrekandi í Reykjavík. Sonur þeirra Einar Logi Einarsson, f. 1938, tónlistarmaður. Þau skildu. Seinni maður hennar (1947) var Matthías Matthíasson, (1907-1969), um- boðsmaður hjá Sjóvá. Sonur þeirra Haukur Matthíasson, f. 1948, sálfræðingur, búsettur í Bandaríkjunum. Synir Matthí- asar og stjúpsynir Ásgerðar Matthías Matthíasson, f. 1937, tæknifræðingur, og Einar Matthíasson, f. 1942, fram- kvæmdastjóri. Útför Asgerðar Einarsdótt- ur fór fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík 13. september í kyrrþey að ósk hinnar látnu. ömmu, Einars Arnórssonar og konu hans, Sigríðar Þorláksdóttur, sem féll frá, en eftir lifir sonurinn Logi, fyrrum hæstaréttardómari, yngstur þeirra systkina, kominn fast að átt- ræðu. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að vera lengstum fram á fullorðins- ár í skjóli svo góðra hjóna sem ömmu minnar og afa, Sigríðar og Einars. Og til viðbótar við þá ein- stöku ástúð, sem þau sýndu ungum dreng, dóttursyni sínum, hlaut hann hlýtt atlæti og umhyggju hjá þess- ari frænku sinni, Ásgerði, sem ein- lægt var foreldrum sínum og systk- inum innan handar. Hún var lengur en systur hennar í heimahúsum, en atvikin höguðu því svo, að tvær þeirra, Áslaug og Hrafnhildur voru lengstum búsettar erlendis, og féllu báðar frá á bezta aldri; móðir mín, Ingibjörg, var í áratug frá 1930 gift Halldóri Laxness, og hennar líf snerist þau ár um það að ferðast með skáldinu um heiminn, aðstoða hann, eða stunda atvinnu utan heimilis, og síðar meir sneri hún sér einnig að leiklistarstörfum; syst- irin Guðrún féll frá átján ára að aldri, efnileg stúlka, syrgð af for- eldrum sínum alla tíð. Allt studdi þetta að því, að liðsinnis Ásgerðar var oftar leitað en ella, og hún brást heldur ekki. Fyrir það ber að þakka við leiðarlok. Ásgerður Einarsdóttir var alin upp á vel stæðu borgaraheimili virts embættismanns, þar sem sam- heldni, festa og góðir siðir voru í heiðri hafðir og ekkert til sparað, að börnin kæmust til manns. Þann- ig var Ásgerður vel menntuð stúlka að þeirrar tíðar hætti. Hún gekk að vísu ekki langskólaveg, en fór til útlanda, Skotlands og Danmerk- ur, þar sem hún sótti námskeið í þeim hagnýtu fræðum, sem þá þóttu góður undirbúningur fyrir gjafvaxta stúlku, á svipaða lund og systur hennar; þó sýndi Áslaug hæfileika til málaralistar og sótti listaskóla erlendis, en veikindi hömluðu framgangi hennar á því sviði. Það kom í hlut Ásgerðar að verða heimavinnandi eiginkona og móðir og standa lengi fyrir allstóru heimili. Haustið 1936 giftist hún fyrri manni sínum, Einari B. Sig- urðssyni, sem þá var starfsmaður við Sjóklæðagerð íslands, allþekkt- ur á sínum tíma fyrir þýða tenór- rödd sem einsöngvari með Karla- kómum Fóstbræðmm. Þau áttu einn son, Einar Loga, sem einkum hefur lagt fyrir sig störf að tónlist- armálum, svo og ritstörf. Hann var mér líkt og góður yngri bróðir í æsku okkar. Á samvistarárum sín- um dvöldust þau hjónin oft með syni sínum á slóðum ættmenna Ein- ars að Norðtungu í Þverárhlíð í Borgarfirði, þar sem þá var vinsæll gisti- og veitingastaður í nánd við eftirsótta laxveiðiá. Þama dvaldist Ásgerður í sumarfríum og var þá svo elskuleg að leyfa mér að slást í förina og dveljast með þeim í sveit- inni. Mér er frænka mín æ í minni á þeim ámm, ung og glæsileg nú- tímakona, stundandi útivist með veiðiskap og skíðaiðkun, akandi bíl þeirra hjóna af öryggi og leikni í uppsveitum Borgarfjarðar, á þeim ámm, sem slíkt taldist vart kven- mannsverk, enda vegir með fmm- stæðu móti. Heimili þeirra Ásgerðar og Einars stóð á neðri hæð í húsi afa míns að Laufásvegi 25, en þau slitu samvistir eftir nær sjö ára sambúð. Eftir það hélt Ásgerður þar áfram heimili ásamt syni sínum, og leit jafnframt til með foreldrum sínum, sem nú voru tekin að reskj- ast. Sumarið 1947 urðu þau umskipti á högum Ásgerðar, að hún gekk í hjónaband með Matthíasi Matthías- syni (Einarssonar læknis), sem var starfsmaður líftryggingadeildar Sjóvátryggingafélags Islands. Hann var þá ekkjumaður um fer- tugt og átti tvo unga syni, Matthías níu ára og Einar fimm ára, sem Ásgerður gekk í móðurstað. Ári síðar eignuðust þau soninn Hauk. Eftirminnilegur er mér einlægt brúðkaupsdagur þeirra í júnímánuði fyrrgreint ár; hann var óvenjulegur að því leyti, að þau voru, af sr. Jóni Johannessen, gefin saman fyr- ir dyrum úti að Arnarfelli við Þing- vallavatn, þar sem fjölskylda Matt- ÁSGERÐUR EINARSDÓTTIR var. Að það var henni mögulegt í þeim mæli sem raun varð á var einkum að þakka ást og fórnfýsi manns hennar sem gaf henni allt það sem hann mátti. Löngum sat hann yfir henni og vakti hjá henni. Sama átti við um fjölskyldu Magn- úsar sonar þeirra sem búið hefur í húsinu með þeim bæði við Reyni- hvamm og Heiðarhjalla og dóttur þeirra Ástu sem flust hefur um tíma heim frá útlöndum vegna veikinda móður sinnar. Sáu þau til þess að Anna hlaut hveija þá bestu aðstoð og aðhlynningu sem völ var á. Þau nutu löngum frá- bærrar aðstoðar hjúkrunarfræð- inga frá Karitas. Einnig var þeim hjálp heimilisþjónustu Kópavogs ómetanleg og þá einkum þeirra Hjölmu Poulsen og Margrétar Sig- urðardóttur en með þeim og Önnu má segja að tekist hafi einlæg vin- átta. En ekki síst á allt starfslið deildar A-7 á Borgarspítalanum skilið lof fyrir frábæra aðhlynn- ingu og umönnun. Anna og Bolli eignuðust tvö börn, þau Ástu, sem fæddist þeim 1965 á Danmerkurárunum, og Magnús, sem fæddur er 1969 í Reykjavík. Þau Magnús og Elín kona hans eiga soninn Bolla, sem nú er á öðru ári. Hann var auga- steinn Önnu og henni til gleði í veikindum hennar og ekki verður ofmetið hvers virði það var henni er að leiðarlokum dró að fá dag- lega að sjá þetta ömmubarn sitt vaxa og dafna. Við systkinin og fjölskyldur okkar vottum Bolla og börnunum tveimur, sem og foreldrum Önnu, sem nú hafa séð á bak einkadóttur sinni, innilega samúð okkar. Miss- ir þeirra er meiri en orð fá lýst og biðin eftir því sem orðið er hefur verið sársaukafull. Megi Guð gefa þeim huggun og styrk. Blessuð sé minning Önnu Maríu Einarsdóttur. Héðan skal halda, Heimili sitt kveður Heimilisprýðin í hinsta sinn. Síðasta sinni híasar átti sér bústað, og rak bú- skap um skeið, og Matthías læknir reyndi fyrir sér með hreindýrarækt. Þetta var í blíðskaparveðri, og fjöl- skyldur þeirra voru saman komnar þar eystra til fagnaðar. Þau voru glæsileg brúðhjón, og mikið jafn- ræði með þeim að atgervi og mann- kostum, bæði komin frá menningar- legum heimilum, þar sem reglufesta og virðing fyrir hefðbundnum gild- um var ríkjandi. Það var því hæsta máta eðlilegt, að sú arfleifð væri ávöxtuð með góðum árangri á þeirra stóra heimili, sem til var stofnað í húseign Einars, afa míns, að Laufásvegi 25. Ásgerður lét ekki sinn hlut eftir liggja að hlúa að velferð fjölskyldunnar, og þá ekki sízt, að drengirnir þeirra fengju sem bezt uppeldi við þær aðstæður, sem þarna höfðu skap- azt. Heimilið var glæsilegt og bar vott um menningarlegan metnað, prýtt listaverkum eftir kunna lista- menn, m.a. Kjarval, Jón Stefánsson, Mugg o.fl., að ógleymdri systur Matthíasar, listakonunni Louisu Matthíasdóttur. Matthías Matthías- son var mikill ágætismaður, traust- ur og heimakær fjölskyldumaður með afbrigðum. Hann sýndi tengda- foreldrum sínum ræktarsemi, skauzt oft yfir til afa míns og ömmu, og þau höfðu gaman af að spjalla um gömlu Reykjavík, en Sigríður, amma mín, sem var inn- fæddur Reykvíkingur, f. 1877, kunni margt skemmtilegt að segja af bænum og fólki hans frá því á síðari hluta 19. aldar. Ásgerður og Matthías tóku alfar- ið við jörð og húsum að Arnarfelli í Þingvallasveit, þegar Matthías læknir féll frá árið 1948. Þangað lögðu þau leið sína meira og minna allan ársins hring, eftir því sem unnt var. En þó var þetta fyrst og fremst þeirra griðastaður á sumr- um, ekki sízt meðan drengirnir voru ungir, en þá dvöldust þeir þar eystra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.