Morgunblaðið - 02.10.1997, Side 1
80 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
223. TBL. 85. ÁRG. FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Harðar deilur á þingi breska Verkamannaflokksins
Blair segir sparnað
óhj ákvæmilegan
Bnghton. Reuter.
TONY Blair, forsætisráðherra
Bretlands, brást í gær við gagnrýni
úr röðum flokksmanna sinna með
því að segja að þeir gætu ekki vikið
sér undan þeim sparnaðarráðstöf-
unum sem nauðsynlegt væri að gera
til þess að búa landið undir næsta
árþúsundið.
A flokksþingi Verkamannaflokks-
ins, sem nú stendur í Brighton á
Englandi, veittu þingfulltrúar til-
lögum stjómarinnar um umbætur í
menntakei-finu, þar sem gert er ráð
fyrir innheimtu skólagjalda, braut-
argengi, og ekki kom til atkvæða-
gi'eiðslu um þær. Tillögur stjórnar-
innar hafa verið umdeildar meðal
flokksmanna. Atkvæðagreiðslu um
aðra umdeilda tillögu, er lýtur að
endurþjóðnýtingu bresku járn-
brautanna, var frestað eftir heiftar-
legar deilur.
David Blunkett, menntamálaráð-
herra, sagði í ræðu á þinginu í gær
að innheimta skólagjalda í háskól-
um Bretlands væri eina leiðin til að
auðvelda fleirum aðgang að þeim og
tryggja að skólarnir stæðust alþjóð-
legan samanburð.
Endurþjóðnýtingu
verður ekki flýtt
Blair komst hjá því að alvarleg
snurða hlypi á þráðinn í áætlunum
hans er aðstoðarforsætisráðherran-
um, John Prescott, tókst að fá víg-
reifa formenn verkalýðsfélaga ofan
af hugmyndum um að endurþjóð-
nýtingu bresku járnbrautanna verði
flýtt. Prescott sagði þingfulltrúum
að slík breyting myndi kosta fjóra
og hálfan milljarð punda og þeim
fjármunum væri betur varið til end-
urbóta á sjúkrahúsum og skólum.
Breska járnbrautakerfi(f var
einkavætt í stjórnartíð íhalds-
flokksins, og mótmæltu þingmenn
Verkamannaflokksins, sem þá voru
í stjómarandstöðu, harðlega. Einn
verkalýðsleiðtoganna hvatti til þess
í gær að endurþjóðnýtingin yrði
gerð hið snarasta. Sagði hann að
fyrirtæki hefðu stórkostlegar tekjur
af því að þiggja opinberar niður-
greiðslur vegna reksturs lesta á
leiðum sem ekki skili hagnaði.
Spurði leiðtoginn hvernig það
gæti verið almenningi á Bretlandi
til hagsbóta að jámbrautakerfið
væri orðið að umfangsmesta, lög-
lega peningaþvættiskerfi í heimin-
um.
Annar verkalýðsleiðtogi sagði að
um 100 fyrirtæki, af öllum stærðum
og gerðum, ættu nú hlut að rekstri
járnbrautanna með einum eða öðr-
um hætti. I heild væri reksturinn
því óheyrilega umfangsmikill og
þungur í vöfum. Leiðtoginn sættist
þó á endanum á það, að Prescott
myndi gefa næsta flokksþingi, sem
haldið verður á næsta ári, skýrslu
um það hvernig stjórnvöld hygðust
tryggja að staðin væru skil á rekstr-
inum.
Reuter
VLADIMIR Títov (ofar) og Scott Parazynski að störfum utan á rúss-
nesku geimstöðinni Mír í gær. Er það í fyrsta sinn sem rússneskur
geimfari fer í geimgöngu frá bandarískri geimferju.
Tóku sjón-
varpssenda
í Bosníu
Maastricht. Reuter.
HERSVEITIR Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO) í Bosníu gáfu harð-
línumönnum Bosníu-Serba ótvírætt
til kynna að hörku verði beitt ef
þurfa þykir til að þeir uppfylli
ákvæði Dayton-friðarsamninganna.
Gæsluliðar tóku í gær yfir fjórar
sjónvarpssendistöðvar í serbneska
lýðveldi Bosníu til að stöðva villandi
áróður hai'ðlínumanna gegn gæslu-
sveitunum og friðarsamkomulaginu.
Taka sendann átti sér stað á sama
tíma og varnarmálaráðherrar NATO
komu saman til fundai' í Maastricht í
Hollandi til að leggja á ráðin um
framtíð stöðugleikasveita (SFOR) í
Bosniu. Vegna ótryggs ástands í
landinu gætir þegar þess viðhorfs að
óráðlegt sé að draga sveitirnar það-
an í júní á næsta ári, svo sem ráðgert
er.
■ Hvatt til daglegra/24
Auka eftirlit yfir Irak
Dubai, París. Reuter.
VESTRÆNAR flugsveiyr, sem
framfylgja flugbanni yfir Irak,
hafa aukið eftirlitsflug yfir suður-
hluta landsins í kjölfar þess að Ir-
anir gerðu loftárás á stöðvar
íranskra stjórnarandstæðinga inn-
an landamæra Iraks.
Bandaríkjamenn hafa varað
Irani við frekari aðgerðum og sagt
þá eiga á hættu að flugvélar þeirra
yrðu skotnar niður færu þær inn á
flugbannssvæði Sameinuðu þjóð-
anna í Irak.
Stjórnin í Baghdad heldur því
fram, að átta íranskar orrustuþot-
ur hafi gert loftárásir á tvennar
stöðvar Mujahideen Khalq-sam-
takanna í Irak á mánudag. Krafðist
stjórnin þess í gær að flugbanni
yrði aflétt svo íraski herinn geti
varið landið árásum af þessu tagi.
Herða baráttu gegn
klerkastjórninni
Regnhlífarsamtök íranskra
stjórnarandstæðinga efndu til
fundar í Baghdad og hét 570
manna samkundan því að herða
baráttu fyrir því að koma stjórn-
inni í Tehran frá völdum.
Þrátt íyiir harða gagnrýni af
hálfu Bandaríkjamanna á samning
franska fyrirtækisins Total urn
fjárfestingar í gasvinnslu í íran
sagði talsmaður franska utanríkis-
ráðuneytisins í gær, að frönsk
stjórnvöld myndu halda áfram
„þýðingarmiklum viðræðum" við
írönsk yfirvöld.
Frakkar segja samning Total
hafa verið gerðan án afskipta
stjórnvalda í París og bandarísk
lög um bann við fjárfestingar í Iran
nái ekki til fyrirtækja utan Banda-
ríkjanna.
Reuter
Umbóta-
sinnar
umkringdir
LÝÐRÆÐISSINNAR í Hong
Kong söfnuðust í gær saman fyr-
ir utan ráðstefnuhöll þar sem
haldið var opinbert hanastélsteiti
í tilefni þjóðhátíðardags Kína.
Hrópuðu þeir slagorð gegn kín-
verskum stjórnvöldum og for-
dæmdu m.a. morðin á Torgi hins
himneska friðar í Peking 1989.
Vart höfðu umbótasinnar mætt á
staðinn er fjölmennt lið lögreglu
hafði umkringt þá.
Freistuðu
viðgerð-
ar á Mír
Houston, París. Reuter.
BROTIÐ var blað í sögu geim-
ferða í gær er reyndur rússneskur
geimfari, Vladímír Títov, varð
fyrstur Rússa til þess að fara í
geimgöngu frá bandarískri geim-
ferju. Er hann jafnframt fyrsti út-
lendingurinn til að klæðast banda-
rískum geimgöngubúningi en bún-
ingurinn og áfastur búnaður kost-
ar jafnvirði rúmlega 700 milljóna
króna.
Títov, sem er í áhöfn geimferj-
unnar Atlantis, fór í fimm stunda
geimgöngu ásamt bandaríska
geimfaranum Scott Parazynski í
gær. Hófst hún klukkan 17:43 að
íslenskum tíma og var tilgangur-
inn að endurheimta tvö bandarísk
rannsóknartæki sem fest eru utan
á rússnesku geimstöðina Mír.
Jafnframt áttu Títov og Par-
azynski að freista þess að festa
sérsmíðaða hettu á utanverðan
byi'ðing Spektr, eins hluta Mír, í
þeim tilgangi að þétta gat, sem
myndaðist við árekstur ómannaðs
bii'gðafars við geimstöðina í júní.
Hettan er keilulaga og 78,5 senti-
metrar í þvermál og því of breið til
að komast inn í gegnum hlera Mír.
I gær var lokið við að tengja
nýja móðurtölvu Mír sem flutt var
með Atlantis en vonast er til að
með henni séu úr sögunni bilanir
sem valdið hafa því að ekki hefur
verið hægt að stilla ljósfangara
sólrafhlöðukerfis ferjunnar sem
hagkvæmast gagnvart sólu. Hefj-
ast átti handa við að forrita tölv-
una frá jörðu niðri í gærkvöldi en
þar til því er lokið sjá hreyflar Atl-
antis um að stilla braut Mír.