Morgunblaðið - 02.10.1997, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1997______________________________________________________ MORGUNBLAPIB •
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís
Fylgst með
þingsetningu
VYTAUTAS Landsbergis, forseti
þings Litháen, sem er íopinberri
heimsökn á íslandi, fyigdist með
setningu Alþingis ofan af þing-
pöllum.
Leitinni að
Frakkan-
um hætt
FORMLEGRI Ieit að franska
ferðamanninum Miehael Led-
uc var hætt í gær. Til hans hef-
ur ekki spurst frá 6. september
sl., þegar hann fór með rútu
frá Reykjavík á Hvolsvöll.
Rúmlega fimmtíu manns úr
björgunarsveitum á Suður-
landi tóku þátt í leitinni, sem
hófst á miðvikudagskvöld í lið-
inni viku. Leitað var á leiðinni
frá Skógum í Landmannalaug-
ar, meðfram Markarfljóti og
fjörur gengnar beggja vegna
Markarfljóts. Jónas Hallsson
yfirlögi’egluþjónn segir að
menn muni hafa auga með
þessum slóðum öðru hverju.
Eftir að lýst var eftir Mich-
ael Leduc bárust lögreglu
ábendingar um að hann hefði
sést. Jónas segir ljóst að lýs-
ingamar hafi átt við annan
ferðamann.
Franska sendiráðinu hefur
verið tilkynnt að leit sé hætt.
Staðgreiðsluverð:
9.800 kr.
GP húsgögn
Ármúla 44 • stmi 553 2035
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti íslands, setti 122. löggjafarþing þjóðarinnar í gær.
Ræða forseta íslands við setningu 122. löggjafarþings þjóðarinnar
Morgunblaðið/Ásdís
„Næstsíðasta þing aldarinnar“
FORSETI íslands, Ólafur Ragnar Grímsson,
setti í gær 122. löggjafarþing þjóðarinnar. í setn-
ingarræðu sinni minnti forsetinn á að þúsund ára
afmæli kristnitökunnar á Pingvöllum og afmæli
landafunda íslendinga í Vesturheimi væru
skammt undan og að hefð væri fyrir því að Al-
þingi gegndi frumkvöðulshlutverki þegar minnst
væri sögulegra tímamóta. „Þingið sem nú hefur
störf er næstsíðasta þing þessarar aldar. Við
aðra þingsetningu héðan í frá verða aðeins þrír
mánuðir til upphafs aldamótaársins. Um heim
allan er hugur manna við þau vegamót sem í
vændum eru.“
Ólafur Ragnar benti á áhuga stjórnvalda vest-
anhafs á að taka þátt í því að minnast landafunda
íslendinga. „Nefndar hafa verið hugmyndir um
að gera sagnaarf íslendinga að efniviði í hugbún-
að sem skólar og menntastofnanir víða um veröld
geti hagnýtt sér með aðstoð tölvuheims og al-
nets.“
Forsetinn lagði einnig áherslu á mikilvægi
þess að rækta tengslin við fólk af íslenskum upp-
runa í Norður-Ameríku.
Ólafur Ragnar gerði umhverfis- og menntamál
að umræðuefni. „Á undanförnum áratugum hafa
stjórnvöld orðið að verja mestri orku í glímuna
við knýjandi vandamál verðbólgu og óstöðugleika
í efnahagsmálum og atvinnulífi. Nú hefur á tæp-
um áratug tekist að skapa slíka festu á þeim vett-
vangi að tími og kraftar gefast til að sinna mál-
efnum sem oft er vildð til hliðar í daglegu amstri
en ráða þó mestu um örlög lands og þjóðar þegar
horft er til lengri tíma.“
Forseti færði að lokum öllum þeim þakkir sem
sýnt hefðu fjölskyldu hans hlýhug og stuðning að
undanförnu.
Aðgangur að
lagasafni ókeypis
ÓLAFUR G. Einarsson var endur-
kjörinn forseti Alþingis við setn-
ingu þingsins í gær. Sextíu þing-
menn greiddu honum atkvæði sitt,
en tveir þingmanna voru fjarver-
andi og einn skilaði auðu.
Ólafur flutti stutt ávarp að kjör-
inu loknu og sagði meðal annars
frá því að með samkomulagi við
dómsmálaráðuneytið hefði verið
ákveðið að frá og með þingsetning-
ardeginum yrði ókeypis aðgangur
að íslenska lagasafninu á vef Al-
þingis, h ttp:/www.althingi.is.
Olafur sagði einnig frá tillögum
um framtíðarskipulag húsnæðis-
mála Alþingis. Ráðgert er að öll
starfsemi þingsins verði innan Al-
þingisreitsins í framtíðinni, sem
afmarkast af Kirkjustræti, Vonar-
stræti, Templarasundi og Tjarnar-
götu. Gert er ráð fyrir 3.500 fer-
metra nýbyggingum en í staðinn
mun Alþingi segja upp og selja
2.500 fermetra húsnæði utan Al-
þingisreitsins.
Beðið fyrir Guðrúnu Katrínu
Þorbergsdóttur
Að venju hófst þingsetningin á
messu sem sr. Sigurður Jónsson í
Odda flutti að þessu sinni. Sigurð-
ur minnti þingmenn á sterk sögu-
leg tengsl kirkju og ríkis á íslandi
og bað menn að minnast mildlvæg-
asta boðskapar kristinnar trúar,
að elska guð og náunga sinn. Sig-
urður bað viðstadda sérstaklega
að biðja fyrir frú Guðrúnu Katrínu
Þorbergsdóttur.
Forseti íslands setti þingið en
síðan settist aldursforseti þingsins,
Ragnar Arnalds, í forsetastól.
Ragnar minntist Guðmundar J.
Guðmundssonar, fyrrverandi for-
manns Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar, sem lést 12. júní síð-
astliðinn.
Guðmundur tók nokkrum sinn-
um sæti sem varamaður á þingi
1978-1979 en var þingmaður
Reykvíkinga 1979-1987. Ragnar
sagði frá störfum Guðmundar í
þágu verkalýðshreyfingarinnar og
ýmsum öðrum félagsstörfum hans.
„Við samningaborð átti hann
jafnan stóran hlut að lausn vinnu-
deilna og átti mikinn þátt í samn-
ingum um atvinnuleysistrygging-
ar, sjúkrasjóði, byggingu hag-
stæðra íbúða fyrir efnalitla og líf-
eyrissjóði verkalýðsfélaga. Undir
lok starfsferils síns átti hann
drjúgan þátt í þeirri þjóðarsátt
sem tókst um lækkun verðbólgu
og stöðugara verðlag."
Morgunblaðið/RAX
JÓN BALDVIN Hannibalsson, verðandi sendiherra í Washington,
spjallaði við vörð laganna á leið til þingsetningarinnar.