Morgunblaðið - 02.10.1997, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Nærgöngul
bók um
forsætis-
ráðherra
Dana
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
BÓK um Poul Nyrup Rasmus-
sen, forsætísráðherra Dana,
skrifuð án samvinnu við hann,
kom út í Danmörku á þriðju-
dag. Bókin hefur verið við-
fangsefni fjölmiðla undanfarna
daga og er skrifuð af tveimur
blaðamönnum, sem í frásögn af
ævi hans og ferli leggja meiri
áherslu á einkalífíð en starfs-
ferilinn. Bókin bætir engu við
átakamál, sem Nyrup hefur
verið viðriðinn, en rekur þeim
mun nánar sögur úr hjónabandi
hans, vináttusambönd og sam-
skipti við samstarfs- og emb-
ættismenn.
Höfundar bókarinnar lögðu í
sjónvarpsviðtali áherslu á að
þeir hefðu ekki tekið neitt með í
bókinni nema það sem þeir
hefðu fengið frá fleiri en einum
óháðum aðilum, en létu ósvarað
spurningu um hvernig þeir
gætu þá hafa kannað upplýs-
ingar, sem hlytu að vera úr
samtölum Nyrups við fyrri eig-
inkonur. Einnig sögðust þeir
ekki taka með alla þá vitneskju,
sem þeim hefði áskotnast og
skrifuðu því ekkert um kynlíf
forsætisráðherrans. Er þeir
voru beðnir að lýsa Nyrup
sögðu þeir að vinnusýki væri
helsta einkenni hans. Sjálfír
hljóta þeir þó einnig að vera
iðnir, því bókarskriftirnar hófu
þeir í janúar og þeir hafa áður
skrifað aðrar hliðstæðar bæk-
ur.
Eiginkonan sögð
stjórnsöm
Síðdegisblöðin hafa lagt aðal-
áherslu á lýsingu bókarinnar á
Lone Dybkjær eiginkonu hans,
Evrópuþingmanni og fyrrver-
andi ráðherra Róttæka vinstri-
flokksins, en í bókinni er henni
lýst sem fram úr hófí stjórn- og
afskiptasamri. í umfjöllun
danska útvarpsins um bókina
sagði að höfundarnir væru
blaðamenn, sem vanir væru að
fjalla um stjórnmál og eðli
þeirra. Vandséð væri hins veg-
ar hvar þeir hefðu fengið þá
hugmynd að þeir væru vel til
þess fallnir að rýna í einkalíf
Nyrups.
Reuter
HJÓLREIÐAMAÐUR í París leiðir hjól sitt yfir götu skammt frá Sig-
urboganum í gær þegar akstur einkabfla var takmarkaður til að að
draga úr mengun.
UMFERÐIN TAKMÖRKUÐ í PARÍS
, S París /
FRAKK- /
\ LAND ';
Franska stjórnin hefur sett reglur sem takmarka
umferð einkabíla til að draga úr mengun í París,
sem hefur verið mikil í borginni. Þetta er í fyrsta
sinn sem gripið er til slíkra aðgerða í París.
Bannsvæði
Samkvæmt reglunum var í gær bannað að aka bílum
með skráningarnúmer, þar sem fyrsta númeraröðin
endar á sléttri tölu. Hugsanlegt er að í dag verði
hins vegar bannað að aka bílum með oddatölu.
Akstur bila með sléttri
tölu bannaður í gær
r8^LPB78l
Bílar með oddatölu
Dregur úr mengun í París
eftir takmörkun umferðar
París. Morgunblaðiö.
UMFERÐ bíla er nú aftur með eðlilegum hætti,
en hún var takmörkuð í gær vegna mikillar
mengunar af útblæstri. Óvenju hlýtt hefur verið í
veðri miðað við árstíma og loft hefur verið svo
stillt að hjúpur hefur lagst yfír borgina. Mengun
af völdum niturs, brennisteins og ósons fór yfir
hættumörk og varð þvi að grípa til ráðstafana.
Mengunin hafði náð svokölluðu þriðja stigi,
sem krefst aðgerða lögi’eglunnar, en þegar á
öðru stigi er varað við því að sjúklingar, aldraðir
og ungabörn séu úti og fólk stundi líkamsæfing-
ar undir berum himni. Síðdegis í gær var meng-
unin hins vegar komin niður í lægri mörk fyrsta
stigs.
Aðgerð umhverfísráðherra
Dominique Voynet umhverfísráðherra, sem er
úr flokki Græningja, ákvað að banna í einn dag
að minnsta kosti akstur bíla með númer, sem
enda á sléttri tölu. Þannig var ætlunin að minnka
umferð um helming í borginni og úthverfum
hennar. Þetta er í fyrsta sinn, sem til slíkra ráð-
stafana er gripið í Frakklandi, en þær þekkjast
til dæmis á Spáni og öðrum suðlægari löndum.
Ef þetta hefði ekki dugað til að draga nægilega
úr menguninni hefði verið bannað að aka bflum
með númer, sem enda á sléttri tölu, í dag.
Umferð minnkaði um 15% í miðborg Parísar í
gær og um 35% í úthverfum. Þetta dugði til í bili
og tóku flestir „grænu bílabyltingunni" vel, þótt
Frakkar séu almennt hirðulausir um umhverfi
sitt og flokki tíl dæmis helst ekki rusl.
Margir ráðvilltir
Ráðstöfun gærdagsins olli hins vegar talsverð-
um ruglingi. Margir höfðu ekki skilið reglurnar
til fulls og lögreglumenn voru önnum kafnir við
að leiðbeina bflstjórum, láta þá hafa uppiýsinga-
bæklinga og senda þá heim, sem ekki máttu
keyra. Hins vegar létu þeir nægja að veita bíi-
stjórum áminningu fremur en að sekta þá um 900
franka (um 12 þúsund krónur) eins og leyfilegt
er. Undantekning var þó gerð frá reglunni um að
ekki mætti aka bifreiðum með slétt númer ef þrír
eða fleiri voru í þeim, enda hvatt til þess að menn
hefðu samflot.
Einnig mátti aka sjúkra- og brunabílum í
neyðartilvikum og öðrum þjónustubifreiðum var
leyft að fara ferða sinna. Sama átti við um lík-
bíla, póstbíla og bifreiðar til dýra- og matvæla-
flutninga. Þá nutu blaðamenn, læknar og hátt-
settir embættismenn þeirra forréttinda að mega
aka um án tillits til bílnúmers.
Ráðherrar á rafbíluni
Almenningssamgöngur voru ókeypis frá 5.30 í
gærmorgun til miðnættís, en þjónustan var
skert eins og fyrri daginn vegna verkfalla. Lion-
el Jospin forsætisráðherra, Voynet og þrír ráð-
herrar aðrir komu til ríkisstjórnarfundar á raf-
magnsbílum. Var Peugeot-bifreið forsætisráð-
herrans græn og átti liturinn að vera táknrænn
fyrir umhyggju hans fyrir umhverfínu.
„Þar sem rafbílar eru enn dýrir verður það að
duga í bili að fólk sé samferða," sagði umhverfís-
ráðherrann og bætti við að það væri hins vegar
engin lausn á mengunai’vandanum að fólk hefði
samflot. „En ég tek ofan fyrir hinni miklu
ábyrgðartilfinningu og þroska samborgara
minna,“ sagði Voynet þegar hún benti á hvað
dregið hefði úr umferð í gær.
Fólk tekið af
lífí fyrir mann-
át í N-Kóreu
Hong Kong. Reuter.
WorldCom gerir
30 milljarða dala
tilboð
DAGBLAÐIÐ South China Morn-
ing Post greindi frá því í gær að
hungursneyðin í Norður-Kóreu
væri orðin svo mikil að farið væri að
bera á mannáti og yfirvöld hefðu
gripið til þess ráðs að taka fólk af
lífi fyrir að selja mannakjöt.
í blaðinu var vitnað í norður-
kóreskan herforingja, sem flúði yfir
landamæri Norður-Kóreu og Kína
ásamt fjölskyldu sinni. Kvaðst hann
hafa orðið vitni að því að fólk var
tekið af lífi fyrir mannát í þorpi sínu.
„Fólk er að missa vitið vegna
hungurs," sagði maðurinn, sem ekki
var nafngreindur. „Það myrðir
meira að segja og étur börnin sín.“
Haft var eftír ónefndum kaup-
sýslumanni af kóreskum uppruna,
sem oft og tíðum ferðast til Norður-
Kóreu í viðskiptaerindum, að hann
hefði frétt að kona hefði verið tekin
af lífi í ágúst fyrir að myrða 18 börn
í hafnarbænum Hamhung í vestur-
hluta Norður-Kóreu.
Milljón manna hungurmorða?
Blaðið hafði á þriðjudag eftir
norður-kóreskum flóttamönnum að
a.m.k. ein milljón manna hefði soltið
í hel í landinu.
„Þessa tölu hef ég séð í skjölum
kommúnistaflokksins," sagði 25 ára
gamall námsmaður og var því bætt
við að foreldrar hans væru háttsett-
ir í norður-kóreska kommúnista-
flokknum.
Hungursneyðin í Norður-Kóreu
fylgir í kjölfar mikilla flóða árið
1995, sem leiddu til þess að ræktun-
arland og áveitukerfi eyðilögðust og
uppskera brast.
a
Reuter
Vonlaus barátta
VONLAUS barátta hefur verið háð
við skógarelda í Indónesfu og
breiðast þeir enn út. Hér reyna
bændur og búalið á miðri Súmötru
að hefta útbreiðslu eldanna og
koma í veg fyrir að þorp þeirra
brenni.
Jackson, Mississippi. Reuter.
FJORÐA stærsta símafélag Banda-
ríkjanna, WorldCom Inc., hefur gert
óumbeðið tilboð upp á 30 milljarða
dollara í keppinautinn MCI Coram-
unications Corp. og slegið út tilboð
British Telecommunications Plc.
WorldCom, sem er lítið fjarskipta-
fyrirtæki í örum vexti, vill greiða
41.50 dollara í Worldcom hlutabréf-
um fyrir hvert eitt hlutabréf í MCI.
Hlutabréf í MCI seldust á 29,375
dollara við lokun á þriðjudag, en
hækkuðu fyrir opnun á miðvikudag í
34.50 dollara.
Miðað við núverandi hlutabréfa-
verð er tilboð British Telecom í MCI
um 17 milljarða dollara virði eða
32,75 dollara á hlutabréf. Tilboðið
nam upphaflega 21 milljarði dollara,
en MCI skýrði frá því í júlí að mikill
kostnaður við að sækja inn á svæðis-
bundinn símamarkað mundi koma
ÍMCI
niður á hagnaði fyi’irtækisins og
samið var um að lækka tilboðið.
Kaupir aðra simaþjónustu
WorldCom skýrði einnig frá sam-
komulagi um að kaupa símaþjónusta
Brooks Fiber í St. Louis fyrir 2,4
milljarða dollai-a með hlutabréfum í
WorldCom og með því að taka við
skuldum.
Brooks heldur uppi símaþjónustu í
44 meðalstórum borgum, þar af 34 á
mörkuðum sem WorldCom þjónai’
ekki.
Fyrir þremm- vikum samþykkti
Woi’ldCom að kaupa fjarskiptakerfi
CompuServe Coi-p, og treysti þar
með í sessi forystuhlutverk sitt í al-
netsfjarskiptum. WorldCom hafði
þegar tryggt sér örugga aðstöðu á
því sviði með Uunet dótturfyrirtæki
sínu.