Morgunblaðið - 02.10.1997, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1997 27
BÓKMENNTIR
Ljóöabók
JÓHANN VILLÖLLUM í
HÚSINU VEL
og fleiri sonnettur eftir Kristján
Þórð Hrafnsson. Prentun Grafík
hf. Mál og menning 1997 - 39 síður.
KRISTJÁN Þórður Hrafnsson
hefur áður sent frá sér tvær
ljóðabækur, í öðrum skilningi
(1989) og Húsin og göturnar
(1993). Öll ljóð nýju bókarinnar eru
í sonnettuformi, en fyrri ljóð Krist-
jáns Þórðar eru undir fijálslegri
háttum.
Borgin er yrkisefni Kristjáns
Þórðar. Hús hennar, götur og fólk
eru í hverju ljóði. í einu ljóðanna
er ort um ár kreppunnar 1933 og
skáld sem þrátt fyrir allt þótti ver-
öldin fögur. Þetta skáld er aldrei
mjög fjarri Kristjáni Þórði. Og segja
má að yngra sáldið telji veröldina
fagra þótt varla geti hún alltaf tal-
ist töfrandi.
Kannski er það ekki beinlínis lyk-
ilatriði að vera frumlegur, en ein-
hverju þarf að bæta við það sem
áður var ort, auka við frá sjálfum
sér. Það finnst mér Kristján Þórður
gera í þessum geðfelldu ljóðum sem
gaman er að lesa þótt ekki væri til
annars en reyna að skilja fólk um
þrítugt uppalið í Reykjavík, vel
máli farið og að því er virðist ágæt-
lega lesið.
Fyrir þremur árum lítur Reykja-
vík þannig út í augum skáldsins,
ljóðið nefnir það Reykjavík er ekki
bara...:
Nokkrar snjóþungar götur sem bílar með
erfiði aka,
auðnarleg portin og vindbarið Lækjartorg,
íbúðarhús þar sem einungis myndbðndin
vaka
LISTIR
REYKJAVIK
EREKKI
BARA...
að enduðu hversdagsins
vafstri. Nei, lifandi borg.
Þar sem Tómas Guðmunds-
son gekk um í ljúfum trega,
í Garðastrætinu snillingar
þáðu mat,
og Halldór Kiljan lét klippa
sig vikulega,
með kaffi á Skálanum
Steinn Steinarr hugsi sat.
Og leikhúsin setja upp Sha-
kespeare og Bubbi rokkar,
og Sigurður Pálsson á bók-
menntahátíðum les,
James Joyce er þýddur og
Þórarinn Eldjárn skokkar,
og Þorsteinn Gylfason ræðir
um Sókrates.
Ekki einungis steypa og malbik og málmur
og gler,
heldur menning og tunga og þess vegna
lifum við hér.
Hámenningunni kemur þó Krist-
ján Þórður ekki endilega best til
skila. Daglegt líf kynslóðar hans
verður oft ekki síður trúverðugt:
„Sigríður ætlar á eftir í bíó með
Kára./ Ólafur hlustar á fréttir af
deilum á þingi./ Og Pétur er aleinn
að hugsa um hið harm-
ræna og sára/ hlut-
skipti mannsins. Karl
vill að Guðríður
hringi.“
Léttúð
sonnettuskáldsins
Það er í rauninni
töluverð léttúð að setja
hversdagslífið í
Reylqavík í sonnettur.
Sonnettuskáld eru
yfirleitt meira en
háttbundin. Þau eru
upphafin og háfleyg,
yrkja um hið
ósnertanlega: ástir
sem ekki verður notið,
óumræðilega fegurð náttúrnnar, hið
eilífa. Kristján Þórður þarf aftur á
móti að koma götum og bakgörðum,
ljósaskiltum, pylsum, skinku, pasta
og heilhveitisamlokum í ljóð og
þeim boðskap að annað líf hefjist
þegar fólk kemur heim til sín.
Að þessu leyti er hann í nokkurri
uppreisn þótt hann standi ekki
alveg einn. Og hann leggur líka
rækt við annað ljóðform en flest
ef ekki öll skáld á svipuðum aldri.
Þótt nútímalífið og umhverfíð
heilli Kristján Þórð eða kannski
Kristján Þórður
Hrafnsson
megi segja að hann freisti þess
ekki að sleppa við það eru honum
ljósar hætturnar sem það býður upp
á. Þetta kemur m.a. í ljós í íslenski
tungu sem fjallar um þá sem fara
á mis við tunguna. Þetta er fólkið
sem les ekki neitt nema símanúmer
og nýjustu tilboð frá
veitingastöðum, fregnir af gestum
á krám, æsingafréttir og
ljósmyndasíður í blöðum ásamt því
sem stendur á umbúðum neysluvara
og fáeinar línur á sýningartjaldi,
svo að gripið sé niður í þessa
upptalningu daglega lífsins. Hér er
vissulega umhugsunarefni á ferð,
en einhvern veginn lætur skáldinu
grínið betur og gerir sér það
auðvitað ljóst. Gamansemin er ríkur
þáttur ljóðanna en skopsæi orð sem
lýsir viðleitni ljóðanna þó betur.
Ekki skal treganum gleymt. Það
er heilmikið af honum í bókinni.
Til dæmis í eftirfarandi línum: „Ég
þekki hana ekki sem núna um
garðshliðið gengur./ Mín gamla
vinkona býr ekki hérna lengur."
Treganum er þó yfirleitt ýtt til
hliðar með því að koma sér upp
eilítið kaldranalegu viðhorfi:
„Múslí og rúsínum mun út í
súrmjólk hrært./ Senn morgnar.
Þú veist ei hve fegurð þín getur
sært.“ Treginn fær líka á sig aðrar
myndir eins og í Samræðum á
kaffihúsi: „Hún er ung og vel vaxin
og vill láta dást að sér./ Þú veist
að við þörfnumst öll annarra, því
er nú verr.“
Sé litið á sonnettur sem ljóðrænt
hnossgæti þá gætir Kristján Þórður
þess að bera ekki of mikið á borð.
Jóhann vill öllum í húsinu vel er
hófleg bók, sonnetturnar 30 talsins.
Þetta er bók sem er líkleg til að fá
hljómgrunn hjá mörgum og ekki
bara yfirlýstum ljóðavinum.
Jóhann Hjálmarsson
Vetrarstarf
Listaklúbbs-
ins að hefjast
LISTAKLÚBBUR Leikhúskjall-
arans er nú að hefja sitt fjórða
starfsár og hefur
verið gengið frá
dagskránni fram
að áramótum.
Kvennahljóm-
sveitin Ótukt hef-
ur vetrarstarf 6.
október, síðan
verður dagskrá
helguð (jóðlist-
Machon leikkonan
Maehon Ghita N0rby
kemur fram ásamt Svend Skipper-
tríóinu og franska leik- og söng-
konan Machon flytur frönsk al-
þýðulög við píanóundirleik Corinne
Mamet Machon.
I nóvember koma tíu ungra lista-
menn frá Belgíu, Hollandi, Þýska-
landi og Spáni með sjónhverfinga-
leikhús; Söngskólinn í Reykjavík
verður með ljóðatónleika í tilefni
áttræðisafmælis Jóns Þórarinsson-
ar tónskálds; dagskrá verður í
tengslum við leikritið „Grandaveg-
ur 7“ eftir Vigdísi Grímsdóttur í
leikgerð Kjartans Ragnarssonar og
Sigríðar Margrétar Guðmunds-
dóttur; leikhópurinn Bandamenn
og bandamenn þeirra undir sljóm
Sveins Einarssonar leiklesa „Bel-
ialsþátt" eftir Sebastian Wild.
í desember standa „Fjölnis-
menn“ fyrir dagskrá í tUefni full-
veldisdagsins 1. desember; þá verð-
ur jólabókalestur á aðventu; Vox
Feminae, kvennakór undir sljóm
Margrétar Pálmadóttiu' flytur jóla-
lög og sögur sem helguð em hinni
heilögu guðsmóður.
i Kwt
Sýnd kl. 5 og 9 ÍTHX Digital
11 f ITTTTT11«K1 HJrr TTTl
phiimj-L
Skilaboð utan úr geimnum!
Hver verður fyrstur til að fara?
www.$amfllm.ls
JODIE FOSTER
Matthew McConaughey
Gdntact
Nýjasta kvikmynd Óskarsverðlauna-hafans og leikstjóra Forrest Gump, Robert
Zemeckis, gerð eftir metsölubók Pulitzer-verðlaunahafans Carl Sagan, (Cosmos).
®RNERBROS.^
.SOUTH SIDE AMUSEMENT COMPANY^ .ROBERT ZEMECKIS^ JODIE FOSTER MÁTHW McCONAUGHEY “COmCT"
JAMESWOODS jOHN HURT TOM SKERRITL ANGEIÁ BASSETT1AIAN SILVESTRl “SARTHUR SCHMIDT 'tsEDlRD VERREAUXittsíDON BURGESSna
h*sCARLSAGAN-AiDRllN SSjOAN BRADSHAW^ IM)A OBST “^stCARL SAGANANN DRUYAN -tótCAESAGAN
-^JAMES V, HART.i MICHE GOLDEiERG “íROBERT ZEMECKIS- STEVE STARKEY ^ROBERT ZEMECÖS^ m
www.contoct-themovie.com ——
KRINGLUB
Sýnd kl. 11 ÍTHX Digital
BÍm56Öi.B.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 í THX Digital
nmtrn i» nnnmumm;
SAMM