Morgunblaðið - 02.10.1997, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1997 31
LISTIR
Einörð glínia
BOKMENNTIR
Ljóð
HANDAN ORÐA
eftir Sigrúnu Guðmundsdóttur
Skákprent 1997 - 40 bls.
Finnbogi
Guðmundsson
MARVÍSLEGUR sársauki er und-
irtónninn í fyrstu ljóðabók Sigríðar
Guðmundsdóttur, Handan orða.
Ljóðaheimur hennar er fremur við-
kvæmur og brothættur. Meginyrkis-
efnin tengjast iðulega samskiptum
eða samskiptaleysi Ijóðmælandans
og við skynjum sterkt nánd hans. í
mörgum ljóðanna er vikið að tilfinn-
Nýjar bækur
• HAFRÆNA, sjávarljóð og
siglinga, er í nýrri og endurskoð-
aðri útgáfu.
Guðmundur Finnbogason safnaði
efni í bókina á sínum tíma en hún
kom fyrst út árið
1923 á vegum
Bókaverslunar
Sigfúsar Ey-
mundssonar.
Guðmundur ætl-
aði ljóðsafn
þetta íslenskum
sjómönnum,
Stýrimannaskól-
anum og svo
öðrum þeim er
ljóðum unna.
Um 150 nafngreind skáld eiga
kvæði eða vísu í safninu en einnig
er margt eftir ónafngreinda höf-
unda, allt frá því á 10. öld og fram
til upphafs 20. aldar.
Sonur Guðmundar, Finnbogi
Guðmundsson, annaðist endurskoð-
un bókarinnar fyrir hina nýju út-
gáfu. Efni hennar er hið sama og
hinnar fyrri en stafsetningu hefur
aðeins verið breytt og sumum skýr-
ingum, einkum á elsta kveðskapn-
um.
Sjávarútvegsráðuneytið og
Menningarsjóður veittu styrk til
endurútgáfu Hafrænu. Bókin er
279 blaðsíður innbundin ogleið-
beinandi útsöluverð er 2.890 kr.
Útgefandi er Skjaldborg.
• STAFKARLAR eru eftir Berg-
ljótu Arnalds. Bókin kom fyrst út
á síðata ári og náði strax miklum
vinsældum og seldist fljótt upp.
Bókin um Stafkarlana er ævin-
týri ætlað börn-
um sem vilja
læra að þekkja
stafina. Sagan
fjallar um systk-
inin Ara og Ösp
sem eru úti á
leikvelli með
stafabókina sína
og þá gerist dá-
lítið skrítið.
Vindhviða feykir
til síðunum í
bókinni og stafirnir fjúka út á leik-
völlinn.
Bókin er 45 blaðsíður í bandi og
skreytt litríkum myndum sem Jón
H. Marinósson gerði. Leiðbeinandi
útsöluverð er 1.580 kr. Útgefandi
er Skjaldborg.
Gínur og herðatré
Bergljót
Arnalds
ingalegri höfnun: „Eg gaf honum
ást mína / en hann vildi hana ekki.“
Af höfnuninni sprettur sársauki,
söknuður og sorg. Sálarháskinn er
nálægur og vísað til sjálfsvígs og
dauða. Stundum skapar höfundurinn
jafnvel einhvers konar tómleika-
kennd eða gildisleysi Iíkt og sjálfið
sé afmáð:
Myrkrið umlykur mig
sogar mig inn í sig
uns ég hverf inn í það.
Fyrst streitist ég á móti
en þegar aflsmunurinn
verður of mikill
þurrkast ég út.
Það er að sönnu einnig slegið á
aðra strengi í þessari ljóðabók því að
í tóminu eru svipleiftur sem gera líf-
ið bærilegt, einn lítill ástarleikur,
andartak ástar. „Við vorum umvafín
/ óendanlegri birtu. / Augnablik einn
daginn." Vonin á sér líka sitt ljóð og
þá ekki síður lífsspekin: „Leiktu þér
ekki við dyr dauðans, / opnaðu held-
ur dyr lífsins / og gakktu þar inn.“
Margt er laglega ort í þessari bók.
Skáldið takmarkar sig við fremur fáa
og skýra miðla, einfaldar myndir, lít-
inn litaskala og ljós tákn. Ég hygg
að það sé skynsamlegt af höfundi sem
gefur út sína fyrstu bók. Fyrir bragð-
ið eru ljóðin aðgengileg. Það er ort
um hjarta sem kona
slítur úr sér og grefur
í þurran sand eyðimerk-
ur eða köflótt líf þar
sem lífinu er líkt við
marglita efnisbúta
„sem falla ekki saman
/ hversu oft sem hún
raðar þeim.“ Kannski
er þó skáldskapur Sig-
rúnar áhrifamestur
þegar jafnvel hinum
einföldustu miðlum er
varpað fyrir róða en
smámyndir úr hvers-
dagslífínu eru látnar
ramma inn óræðar til-
finningar í opnu ljóði,
Já, jómfrúin góð:
Ég strýk handarbaki yfir
varir mínar.
Loka augum, snerti
Sigrún
Guðmundsdóttir
augnlokin með fingrum mín-
um.
Hringi til London.
Hringi í Jón.
Hlusta á Martinu.
Hengi upp þvott.
Strauja silkiblússu.
Set á mig varalit.
Úða mig með ilmvatni.
Sest niður með Newsweek og
Vope.
Fer með Faðirvorið áður en
ég sofna.
Það er vel að þessari
fyrstu ljóðabók Sigrún-
ar Guðmundsdóttur
staðið. Skáldskapurinn
ber vott um einarða
glímu við tilfinningar
og kenndir og höfundur fer hóflega
og af fágun með myndmál og tákn.
Skafti Þ. Halldórsson
lagerútsala
n/érðúTÓpnúðTdág^l^O^
Vörur frá
r ttlMM
-4/y gjý.
Meiriháttar lagersala á Hverfisgötu 105
Inngangur frá noröurhliö - næg bílastæði og það verðuiX^
ÓDÝRT!
Verðdæmi:
300 kr. slár 1.500 kr.slár
500 kr. slár 1.900 kr. slár
1.000 kr.slár 2.500 kr. slár
Jakkar - bolir - buxur - skyrtur - vesti - jakkaföt - kápur -
pils - dragtir - klútar - skartgripir - snyrtivörur - skór - stígvél
Opið frá
kl. 13 til 18 alla daga
(einnig laugardaga
og sunnudaga)
\ Lögreglustöði
JQ
(0
Hverfisgata
UrtÍ«!£^'*i,a'a
4YOU
Þessi merki
eru m.a. á
lagerútsölunni:
Everlast
Levi's
Diesel
Destroy skór
Dickies
Kookai
St. Fingers
Morgan
Mod. Ecram
Shelly's skór
Charly's company
Claude Zana
Helena Hart