Morgunblaðið - 02.10.1997, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1997 37
AÐSENDAR GREINAR
Æskan
heldur velli
BARNABLAÐIÐ
Æskan hafði mikil
áhrif á mig þegar ég
var ungur drengur.
Þá voru umhverfi og
aðstæður barna
býsna mikið öðruvísi
en tíðkast í dag. í
mínu ágæta byggð-
arlagi, Keflavík, var
enginn leikvöllur
þegar ég fyrst man
eftir mér. Leikvöllur-
inn var bryggjan og
umhverfi hennar.
Sjónvarpið kom ekki
fyrr en ég var kom-
inn á fullorðinsár.
Bækur voru afar fá-
breyttar miðað við það sem gerist
í dag. Myndskreyttar bækur voru
fáséðar. Félagslíf á nútíma mæli-
Æskan á enn eríndi til
barna, segir Karl Stein-
ar Guðnason, og á með-
an blaðið er virkur mið-
ill mun það fylgja þeim
fram á fullorðinsár.
kvarða var ekki til, en við börnin
í Keflavík höfðum þó ákveðin for-
réttindi í þeim efnum. í Keflavík
var starfrækt barnastúka, sem var
afar virk. Svo til hvert einasta
barn sótti stúkufundi sem systurn-
ar Guðlaug og Jóna á Framnesi
stjórnuðu. Þar voru sagðar sögur,
leikin leikrit, farið í leiki o.fl. Þar
kynntist ég barnablaðinu Æskunni
fyrst.
Á heimili foreldra minna var
Æskan keypt í áskrift. Það var allt-
af beðið eftir blaðinu með eftirvænt-
ingu. Blaðið hafði gríðarleg áhrif.
Þar voru myndir, sögur, og ýmis-
legt sem höfðaði til okkar barn-
anna. Nokkuð sem hvergi var ann-
ars staðar að finna. Blaðið birti líka
nöfn þeirra sem óskuðu að skiptast
á bréfum. Mikill fjöldi
barna kynntist þannig
öðrum börnum víða af
landinu. Boðskapur
blaðsins var líka alltaf
skýr og greipti sig í hug
lesendanna. Þar spilaði
bamastúkan og Æskan
saman.
Það er því ekki vafi
á, að á sínum tíma
gegndi blaðið mjög þýð-
ingarmiklu hlutverki í
uppeldismálum þjóðar-
innar.
Þegar ég svo eignaðist
böm var það eitt af því
sjálfsagðasta að gera
heimilið að áskrifanda
Æskunnar. Börnin mín mátu blaðið
mikils og var það þeim drjúg dægra-
dvöl.
Hjól tímans hefur breytt ótrúlega
miklu frá því ég var að alast upp.
Nú hafa börnin svo til allt sem mig
dreymdi um og miklu meira en
það. Nú er líklega mesta vandamál-
ið að velja og hafna. Sjónvarpið
með fjölda barnatíma, myndböndin,
tölvur og tölvuleikir, internetið,
hvers konar blöð og bækur, allt
myndskreytt og tónlistin spiluð af
geisladiskum og víðar. Leikvellir og
leikskólar reknir í hveiju bæjarfé-
lagi af miklum myndarskap.
Barnablaðið Æskan heldur enn
velli þrátt fyrir allar þessar breyt-
ingar. Það má kallast kraftaverk.
Hvers vegna? Það er vegna þess
að blaðið og starfsmenn þess hafa
skynjað blæbrigði tímans. Æskan
á enn erindi til barna og á meðan
blaðið er virkur miðill sem færir
bömum og öðru ungu fólki hugsjón-
ir og stefnumið mun það fylgja
þeim eftir fram á fullorðinsár.
Ég er blaðinu þakklátur fyrir
allar góðu stundimar sem það gaf
mér í æsku. Það er einlæg von mín
að blaðið megi vaxa og eflast í tím-
anna rás íslensku þjóðfélagi til
heilla.
Höfundur er forstjórí
Tryggingastofnunar ríkisins.
Karl Steinar
Guðnason
netinu...
Hefur þú kynnt þér kosti ISDN?
ISDN mótald og grunntenging hjá
Pósti og Síma frá kr. 13.373
/13U5
ISDN mótöld
Meiri hraði á Internetinu
Tvær slmalínur - Aldrei á tali!
Hagkvæmt
Gott verð
Kíktu á þessa
MORE Pentium 166
ASUS P55-SP4AV móðurborð
166 MHz MMX Intel örgjörvi
5l2Kflýtiminni
32MB vinnsluminni
2100MB harður diskur
15" ViewSonic 100 riða skjár
Soundblaster hljóðkort
Windows 95 lyklaborð
Microsoft samhæfð mús
Windows 95 á geisladisk
MPEG2 spilari og fleira og fleira...
kr. 109.900 stgr.
Móöurborð
Eíns/tveggja örgjörva
Ég mit ekkepí
hvaé ég ap/da aö
veröa Cfslin&l
Þegar ég var
tsstgur var ég
alltaf aö sýsla í
einhvarfu „
haktívarki,,, Es
er.snn té
sýsía - i
járkarusli cg
varkfærum
Ég bý til gcöa
fcrtiö maö hvi
aö wanoa
Ilúift
Stjáni Meik. bifvélavirki
íslensku lífeyrissjóðirnir eru alþjóðleg fyrirmynd
Fólki á eftirlaunaaldri fjölgar í framtíðinni. Færri munu vinna störfin. Af þessum sökum hefur Alþjóðabankinn
hvatt iðnríki heims til að byggja fjárhagslegt öryggi lífeyrisþega næstu aldar á þremur meginstoðum:
• í fyrsta lagi almannatryggingum, sem þarf að fjármagna með sköttum.
• í öðru lagi lífeyrissjóðum með sjóðsöfnun, skylduaðild og samtryggingu.
• I þriðja lagi einstaklingsbundnum sparnaði. LÍFEYRISSJÓÐIRNIR
Það sem sérfræðingar Alþjóðabankans telja mikilvægast er skylduaðild, liföu vel og lengi
sjóðsöfnun og samtrygging. Einmitt þau atriði einkenna almennu lífeyrissjóðina.
Innistæður einstaklinga í bönkum og séreignarsjóðum koma aldrei í stað
lífeyrissjóóanna.